Morgunblaðið - 08.12.1998, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
ÞEIR kynntu nýju réttina á dögunuin, f.v. Sævar Kristinsson frá Iðntæknistofnun, Jón Helgi Björnsson frá
KÞ, Sigurgeir Höskuldsson, vöruþróunarstjóri KÞ, og Ásgeir Baldursson, markaðsstjóri KÞ.
. ISM
OROBLU
milljónavinningar
fram að þessu og
550 milljónir í vinninga
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
BRIMBORG
FAXAFENI8 • SlMI 51S 7010
jDesti
r.
smábíll
!“
arsms
What Car, 1998
Nýir
skyndi-
réttir
kynntir
KJÖTIÐJA KÞ og Iðntæknistofn-
un íslands kynntu nýlega útkomu
samstarfsverkefnis „Vöruþróun
97“. Þar eru á ferðinni fjórar teg-
undir af tilbúnum máltíðum. Þeir
heita „Allir heimsins réttir“ og er
dreift undir vörumerkinu EKTA. í
fréttatilkynningu frá ofangreind-
um aðilum kemur fram að unnið
hafi verið eftir markvissu vöruþró-
unarferli undir stjórn verkefnis-
stjóra frá Iðntæknistofnun.
Réttirnir sem um ræðir heita
„Alpa snitzel", „Mexíkó Enchi-
lada“, „Kreóla hakkbollur" og
„Hawaii pottréttur". Þeir eru hrað-
frystir með leifturfrystingu sem á
að tryggja upprunalegan fersk-
leika þeirra þegar neytendur grípa
til þeirra. I réttunum er að finna
meiri fjölbreytileika í meðlæti
heldur en gengur og gerist í öðmm
skyndiréttum sem hér eru fram-
leiddir. T.d. er í öllum réttunum
fersk fryst grænmeti.
Aðstandendur réttanna segja að
hugmyndin á bak við markvissa
vöruþróun sé að mynda verkefnis-
hóp með fólki sem hefur yfir að búa
mismunandi reynslu og þekkingu
þannig að skapist sterk heild sem
getur tekist á við verkeíhið af full-
um krafti þar sem ábyrgð er skipt
á fjórum megin sviðum; markaðs-
mál, vöruþróun, framleiðsla og
fjármál.
Vörumerkið EKTA er sameig-
inlegt vörumerki Kjötumboðsins
Goða í Reykjavík og Kjötiðju KÞ á
Húsavík. Fyrstu vörurnar undir
vörumerkinu komu á markað árið
1996. Verkaskipting fyrirtækj-
anna tveggja er með þeim hætti
að Goði hefur þróað og framleitt
ferskar vörur meðan Kjötiðjan
hefur einbeitt sér að frystum vör-
um. Sala og dreifíng á EKTA-vör-
um er í höndum Kjötumboðsins
Goða.
Formaður LS um dóm Hæstaréttar
Atvinnuréttindi
allra í óvissu
ARTHÚR Bogason, formaður
Landssambands smábátaeigenda,
segir niðurstöðu Hæstaréttar í fisk-
veiðistjórnunarmálinu ekki hafa
meiri áhrif á atvinnuréttindi smá-
bátasjómanna en annarra sem
hagsmuna eigi að gæta í sjávarút-
vegi. Hann bendir á að hægt sé að
hefja fiskveiðar á öðrum skipum en
smábátum með tiltölulega litlum til-
kostnaði.
„Ég get ekki séð að atvinnurétt-
indi smábátaeigenda séu í meira
uppnámi en atvinnuréttindi stórút-
gerðarinnar. Dómurinn fjallar ekki
sérstaklega um smábáta og það er
langt frá því að einvörðungu sé
hægt að hefja fiskveiðar á smábát-
um. Ég vil benda á að víða um heim
eru til sölu togarar fyrir mjög lítið
fé og það er hægt að fá veiðileyfi á
togara, rétt eins og á trillu, sam-
kæmt dómnum. Ég tel því að menn
ættu frekar að hafa áhyggjur af
fjölgun í togaraflotanum en í smá-
bátaflotanum. Að mínu mati er und-
arlegt að sjávarútvegsráðherra
skuli tiltaka smábátaútgerðina sér-
staklega í þessu sambandi, því at-
vinnuréttindi alh-a í kerfinu hljóta
að vera í óvissu. Ég hlýt að líta svo
á að atvinnuréttindi smábátasjó-
manna séu lögvarin af stjórnarskrá,
rétt eins og annarra þegna þessa
lands,“ segir Arthúr.
Biðstaða í
viðræðum
Arthúr segir viðræður LS og
sjávarútvegsráðuneytisins um sókn-
ardagafjölda smábáta í biðstöðu
vegna dóms Hæstaréttar. Hann
segir fáa gera sér fyllilega grein
fyrir því á þessari stundu hvaða af-
leiðingar dómurinn kunni að hafa.
„Við erum líkt og aðrir að skoða
þessi mál og átta okkur á því hvert
framhaldið verður ef gerðar verða
þær lagabreytingar sem menn hafa
rætt. Það er rétt að gefa þessu tíma
og leyfa mönnum að átta sig á stöð-
unni,“ segir Arthúr.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
STAPAVÍK AK hleypt af stokkunum hjá
Skipasmíðastöðinni hf. á ísafirði.
Stapavík AK hleypt af
stokkumim á Isafírði
Morgunblaðið. ísaljörður.
NÝJUM báti, Stapavík AK, var
hleypt af stokkunum í Skipasmíða-
stöðinni hf. á ísafirði fyrir
skemmstu en skipið er þriðja ný-
smíðin sem Skipasmíðastöðin hf.
skilar af sér á tveimur árum. Stapa-
vík AK er sérútbúinn dragnótabát-
ur, smíðaður fyrir Stapavík ehf. á
Akranesi. Báturinn er 17,50 metra
langur, 4,80 metra breiður og dýpt-
in er 2,80 metar. Báturinn var
lengdur á smíðatímanum frá upp-
haflegri teikningu og mæling liggur
ekki endanlega fyrir en hann mun
vera um 40 brúttólestir. Aðalvél
skipsins er 350 hestöfl og verða
fimm menn í áhöfn. Við hönnun
skipsins hefur verið lögð áhersla á
sjóhæfni og öryggi áhafnar, ásamt
því að uppfylla nútímakröfur um
vinnuaðstöðu og meðferð afla. St-
arfsmenn Skipasmíðastöðvarinnar
hf. og fjölmargir undii’verktakar frá
Isafirði og nági-enni hafa unnið við
smíðina frá því í sumar. Báturinn
verður væntanlega afhentur fullbú-
inn um miðjan desember.
Að sögn Marsellíusar Sveinbjörns-
sonar hjá Skipasmíðastöðinni hf. hef-
ur fyrirtækið fengið óskir um smiði á
allt að þremur bátum til viðbótar eft-
ir sömu teikningu og Stapavík SK en
ekki hefur enn verið gengið frá
samningum þar að lútandi.
Skipasmíðastöðin hf. er nú þátt-
takandi í samevrópsku þróunar-
verkefni með skipasmíðastöðvum í
Hollandi, Portúgal og Bretlandi,
ásamt háskólum og rannsóknastof-
um. Verkefnið felst í að auka fram-
leiðni í litlum skipasmíðastöðvum
með notkun á tölvustuddri hönnun
ogframleiðslu.
á Isafirði.
fenop0ce
„ÍHxfnlíiht’vdJ
VITABIOTICS
- Þarsem náttúran
og vísindin vinna saman
inn góð vítamín til að viðhalda
góðri heilsu og auka orku.
Auðvelt aðeins eitt hylki á dag.
Fæst aðeins í apótekum