Morgunblaðið - 08.12.1998, Síða 31

Morgunblaðið - 08.12.1998, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 31 „Við erum því alveg samkeppn- ishæf í útlánum ef miðað er við þessa stóru, erlendu banka og getum í mörgum tilvikum boðið betri kjör.“ „En ég lít á hlutafjárkaupin sem langtímafjárfestingu og vona að flestir fjárfestar kaupi bréfin með því hugarfari.“ banka atvinnulífsins á dögunum en tilboð voru takmörkuð við ákveðið hámark á hvern kaupanda. Fram- virk viðskipti af þessu tagi tíðkast víða og jafnvel til sérstakur mark- aður í Bandaríkjunum fyrir „fram- tíðarréttindi". Stefán segir aðspurður að málið hljóti að vera hvort viðkomandi einstaklingur megi ekki selja nema hann sé örugglega búinn að eiga bréfm einhvern lágmarkstíma. Þetta þyrfti þá að skilgreina, hvort hann megi vera nokkrar sekúndur eða skuli vera lengri tími og enn sé þetta spumingin um það hvort markaðurinn sé frjáls. „En ég lít á hlutafjárkaupin sem langtímafjárfestingu og vona að flestir fjárfestar kaupi bréfin með því hugarfari. Eg hvet fjárfesta til að eiga hlutabréfin, selja þau ekki strax. I því sambandi vil ég benda á að stjórn og starfsfólk bankans hafa metnað til að skila eigendum hans góðum arði.“ Imynd Búnaðarbankans mun að sjálfsögðu skipta meira máli þegar bréf í honum verða orðin að mark- aðsvöru og samkeppni harðnar um viðskiptavinina með auknu mark- aðsfrelsi. Bent hefur verið á að hluthafar muni væntanlega spyrja um hvað sem er og gagnrýna eða heimta skýringar. Búnaðarbankinn fór ekki varhluta af gagnrýni sem kom fram á laxveiðar bankastjóra ríkisbankanna fyrr á árum á kostn- að stofnunarinnar en þeim deilum lauk sem kunnugt er með því að þrír bankastjórar Landsbankans sögðu upp. Einnig hefur verið fundið að því að bankinn skuli hafa leigt íbúð í London til afnota fyrir fulltrúa og gesti stofnunarinnar, gestabók sem þar var lenti í ruslinu. „Um gestabókina verð ég að segja að mér finnst fáránlegt hvernig þetta hefur verið blásið upp með útúrsnúningum," segir Stefán. „Þetta var einfaldlega talið svo ómerkilegt að bókinni var farg- að í tiltekt löngu áður en þetta mál kom upp, fargað eins og hverju öðru einskis verðu drasli, hún týndist alls ekki. Það var ekki einu sinni svo að allir sem gistu þarna skrifuðu nafn sitt í bókina, það var ekki skylda og hvers vegna að halda upp á þetta? En um íbúðina er það annars að segja að við höfum alltaf látið reikna út öðru hverju hvort væri hagstæðara fyrir okkur, að greiða fyrir hótelherbergi eða leigja íbúð og íbúðin kom betur út. Þetta var kalt mat. Þú spyrð af hverju aðrir bankar og fyrirtæki noti þá ekki þessa aðferð en það veit ég ekki. Eg veit aðeins að reksturinn geng- ur vel hjá okkur og það bendir nú til þess að útreikningar okkar í þessu dæmi geti einnig verið í góðu lagi.“ Deilt hefur verið á ráðamenn Búnaðarbankans fyrir að undan- skilja þá sem ekki voru í lífeyris- sjóði bankamanna þegar starfsfólki voru boðin hlutabréf á sérkjörum við hlutafélagavæðinguna. Stefán segir að bankinn hafi samið um þessi mál áður en Landsbankinn, þar sem allir fengu þessi kjör, gerði það. Skilningur manna í Bún- aðarbankanum hafi verið sá að heimildin ætti eingöngu við um starfsfólk i lífeyrissjóðnum. „Þessu var ráðuneytið ósam- mála. Við gerðum ekki ágreining við ráðuneytið og leiðréttum þetta. En ósanngjarnt væri að fullyrða að Búnaðarbankinn hefði átt að fylgja fordæmi sem ekki var til þegar þessi tilhögun var ákveðin.“ Áfram persónuleg þjónusta Ljóst er talið að útibúum bank- anna muni fækka með aukningu rafrænna viðskipta og starfsfólk verður hlutfallslega færra, tæknin dregur úr vinnuaflsþörf í lána- stofnunum. Stefán er spurður hvort persónuleg þjónusta úti á landi muni minnka en segir að svo verði alls ekki. Tryggt verði að við- skiptavinir geti sem fyrr rætt við fulltrúa bankans á heimaslóðum en einnig að fólk geti valið sér útibú og þjónustufulltnja. Hann segir að áhersla sé lögð á sjálfvirkni og að viðskiptavinir Búnaðarbankans geti m.a. með tölvusamskiptum helst átt viðskipti við fyrirtækið allan sólarhringinn; lenging opnunartíma sé minna at- riði. „Um starfsmannafjöldann vil ég aðeins segja að við gerum ráð fyrir aukningu umsvifa en að ekki verði þörf fyrir fleira fólk ef okkur tekst að auka sjálfvirkni. Miðað við aukningu umsvifanna hefur starfs- mönnum í reynd fækkað mjög á seinni árum.“ Hann er spurður um hlut kvenna í stjórnunarstöðum. Stefán segir að það sé auðvitað ljóst að enn gegni einvörðungu karlar stöðum banka- stjóra hjá fyrirtækinu. En sé litið á ráðningar í 20 yfirmannastöður hjá bankanum 1996-98 og þá átt við framkvæmdastjóra, aðstoðaiTnenn bankastjórnar, útibússtjóra og for- stöðumenn, skrifstofustjóra og af- greiðslustjóra auk deildarstjóra komi í ljós að konur hafi hreppt 13 þeirra. AUs séu 133 í yfirmanna- stöðum hjá Búnaðarbankanum og bankastjórar þá meðtaldir, af þess- um fjölda séu nú 73 konur. Af töl- unum sést þó að hlutfall þeiiTa fer lækkandi eftir því sem ofar dregur í valdastiganum. „En þetta sýnir að því fer fjarri að við stöndum okkur illa í þessum efnum miðað við aðra,“ segir Stef- án. „Og við ráðum fólk í stöður eft- ir hæfileikum þess. Kynferði hefur hvoi'ki áhrif á ráðningu né launa- kjör.“ Stefán er spurður um hlutafjár- útboðið og auglýsingu Islands- banka um kennitöluviðskipti í því sambandi. „Eftir síðustu upplýsingum að dæma verður Islandsbanki ekki einn um hituna. Ljóst er að áhug- inn er svo mikill að það verður ekki mikið sem fellur hverjum og einum í hlut. En viðskiptavinir geta keypt æði marga hluti, jafnvel heilu fjöl- skyldurnar og margir hafa haft samband við okkur og sýnt áhuga. Við teljum okkur hafa á að skipa mjög hæfu starfsfólki á öllum svið- um og banki verður aldrei meira eða minna virði en fólkið sem vinn- ur hjá honum, rétt eins og í öðrum fyrirtækjum. Ekkert gengur af sjálfu sér í þeim efnum. Eg tel mig þekkja þennan banka mjög vel, er búinn að starfa hér í fjörutíu ár og ég er ekki í nokkrum vafa um að það eru góð kaup í Búnaðarbank- anum.“ Það er til ostur Jyrir hvert tilefni og það er alltaf tilefni til aðfá sér ost. Úrvalið afgimilegum ostum og ostaréttum er meira en nokkru sinni fyrr og enginn vandi aðfinna tegundir sem falla að smekk hvers og eins. Ostar eru alltaf þægilegur og fljótlegur kostur þegar þú vilt gera þér og þínum dagamun. Ostar eru mxttúrulegur og góður kalkgjafi. Jöfn og góð kalkneysla er mikilvæg, því hún hindrar beinþynningu síðar á ævinni. Flestir þekkja mikilvægi kalkneyslu fyrir heilbrigði beina og tanna, en vissir þú að ostur í lok máltíðar vinnur auk þess gegn sýrum sem skemma tennumar? Þér er því óhætt aðfá þér ost afminnsta tilefni. Ef þú ert með tilbreytingu í huga skaltu muna eftir ostunum! ÍSLENSKIR W p\CTAT3 V* www.ostur.is VjS / GISQH VIJAH

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.