Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 48
>48 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Elskulegur eiginmaður minn,
JÓN HEIÐAR AUSTFJÖRÐ
pípulagningameistari,
Lyngholtí 12,
Akureyri,
lést laugardaginn 5. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jóhanna B. Austfjörð.
Ástkær eíginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
EINAR PÁLL KRISTMUNDSSON
kennari og málarameistari,
Giljalandi 16,
Reykjavík,
lést föstudaginn 27. nóvember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Guðrún Jónasdóttir,
Kristín Margrét Einarsdóttir, Sigurður Oddgeirsson,
Jónas Gunnar Einarsson, Þorbjörg Kr. Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ELÍS G. VIBORG,
Barmahlíð 36,
Reykjavík,
sem lést 1. desember sl., verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 9. desem-
ber kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast hins látna er vinsamlega bent á Minningar-
gjafasjóð Landspítalans.
Guðríður Þorsteinsdóttir,
Viðar G. Elísson,
Guðrún Elsa Elísdóttir,
Þorsteinn Elísson,
Hildur Jóna Þorsteinsdóttir,
Þorsteinn Már Þorsteinsson,
Elísa Björk Þorsteinsdóttir,
Guðjón Ingi Gunnlaugsson,
Katrín Ásta Sigurjónsdóttir.
Ásta Fríða Baldvinsdóttir,
Sigurjón Einar Þráinsson,
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI HANNESSON
kennari og fyrrverandi forseti
Alþýðusambands íslands,
Stigahlíð 30,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vik fimmtudaginn 10. desember nk. kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans
er bent á Samtök sykursjúkra.
Þórunn Bjarney Garðarsdóttir,
Hanna Ragnheiður Helgadóttir, Steffen Simbold,
Helgi Þór Helgason,
Erla Margrét Helgadóttir,
Haukur Helgason,
Anna Þórunn Halldórsdóttir,
Kristín Jóna Halldórsdóttir,
Garðar Halldórsson,
Guðbjörg H. Gylfadóttir,
Gunnar G. Vigfússon,
Sigrún Davíðsdóttir,
Ágúst Þorsteinsson,
og fjölskyldur.
Inga Jónsdóttir
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
GERÐUR HULDA LÁRUSDÓTTIR,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
áður til heimilis í Urriðakvísl 16,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans laugar-
daginn 5. desember sl.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 11. desember kl. 13.30.
Stefán Jónasson,
Lárus Óli Þorvaldsson, Jóna Sveinsdóttir,
Guðrún Stefánsdóttir, Árni Jónsson,
Gerður Stefánsdóttir
og barnabörn.
GUÐRUN S.
SCHEVING
+ Guðrún S.
Scheving fædd-
ist 14. september
1915. Hún lést hinn
11. nóvember síð-
astliðinn og fór út-
för hennar fram frá
Landakirkju í Vest-
mannaeyjum 21.
nóvember.
Mig langar að
kveðja hana Diddu í
Heiðarhvammi. Eg
kynntist henni fyrir
liðlega fjörutíu árum.
Hún gladdist með mér
og fjölskyldu minni á góðum stund-
um, sem voru margar og studdi mig
þegar á bjátaði, af
næmi, skilningi og
væntumþykju.
Didda var Vest-
mannaeyingur í húð og
hár, og unni Eyjunum
og mannlífinu þar. I
Heiðarhvammi fæddist
hún og ólst þar upp hjá
ástríkum foreldrum,
þeim Sesselju Sigurð-
ardóttur og Sigfúsi
Scheving, sem m.a.
stofnaði fyrsta vísi að
sjómannaskóla í Vest-
mannaeyjum. Bróðir
hennar, Vigfús Helgi
Scheving, fórst af slysförum um tví-
tugt og var það fjölskyldunni mikið
+
Utför ömmu okkar, tengdamóður og systur,
EINÖRU INGIMUNDARDÓTTUR,
Norðurbrún 1,
sem lést miðvikudaginn 25. nóvember hefur
farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð.
Margrét Pálmadóttir,
Gyða Halldórsdóttir,
Edda Halldórsdóttir,
Páll Halldórsson,
Gunnar Sveinn Halldórsson,
Halldór Þorgrímsson
og systkini hinnar látnu.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
BRYNDÍSAR SIGURÐARDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
2B, Hrafnistu, Hafnarfirði.
Elísabet Erla Gísladóttir, Bragi Jóhannesson,
Þuríður Hanna Gísladóttir, Guðjón Tómasson,
Sigurður Örn Gíslason, Margrét Margrétardóttir,
Svala Lárusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og útför
BJARNA JÓHANNS GUÐMUNDSSONAR,
Kleppsvegi 34.
Sérstakar þakkir til Vilhelmínu Haraldsdóttur
læknis og Hjúkrunarþjónustu Karítasar.
Guð blessi ykkur öll.
Kristbjörg Guðmundsdóttir,
Árni Jón Baldursson,
Jófríður Guðjónsdóttir,
Baldur Guðjón Árnason,
Bjarni Jóhann Árnason,
Bjarki Þór Árnason,
Jóhann Skúlason,
Margrét Skúladóttir,
og fjölskyldur.
+
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og kveðjur vegna
andláts móður okkar og systur,
MARGRÉTAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Snorrabraut 56.
Ágústa Árnadóttir,
Anna Þóra Árnadóttir,
Sigrún Árnadóttir,
Margrét Árnadóttir,
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Ragnar Þorsteinsson.
áfall. Heiðarhvammur var ávallt
mannmargt heimili, þótt húsnæði
þætti lítið á nútímavísu. Þar bjuggu
tvær fjölskyldur, auk vermanna,
sem höfðu þar fæði og húsnæði á
vertíðum. Þegar vinkona Sesselju
féll frá tóku þau hjónin að sér fóst-
urdóttur hennar, Guðrúnu Jóns-
dóttur, sem ólst upp og átti heimili
hjá þeim upp frá því. Dóttir Guð-
rúnar, Sesselja, er líka sem ein af
fjölskyldunni.
Didda giftist Karli O.J. Björns-
syni bakarameistara og eignuðust
þau sex börn. Eitt barnanna,
stúlka, lést skömmu eftir fæðingu.
Bræðurnir eru fjórir, en dóttur bar
Didda undir belti þegar Karl féll
frá um aldur fram. Fjölskyldan bjó
lengst af í Víðidal og þar ráku þau
hjónin bakarí. Eg man það þegar
ég var krakki í Eyjum, þá þóttu
brauðin i Kallabakaríi sérlega góð,
enda Kalli sannkallaður meistari í
sínu fagi, en honum var margt til
lista lagt. I Víðidal var myndar-
heimili, og farnaðist fjölskyldunni
vel, þar til ský dró fyrir sólu síðustu
æviár Kalla og áttu Didda og
drengirnir þá margar erfiðar
stundir.
Eftir lát Kalla fluttist Didda aft-
ur að Heiðarhvammi, en þá var
Sesselja móðir hennar nýlega látin,
og hélt þar heimili með föður sínum
og börnum upp frá því. Mér er
minnisstætt hvað mér þótti mann-
lífið gott við Helgafellsbrautina, í
húsunum í nági'enni við Heiðar-
hvamm. Samskipti fólks voru mikil,
einkum kvennanna. Það var hjálp-
ast að, slúðrað, hlegið og grátið ef
því var að skipta. Margir af ná-
grönnum Diddu voru hennar bestu
vinkonur alla tíð, þótt leiðir skildu.
Didda bjó í Heiðarhvammi fram að
gosi, þá var Scheving gamli dáinn
og krakkarnir fluttir að heiman
hvert af öðru. Húsið eyðilagðist í
gosinu og var rifið. Didda flutti til
Reykjavíkur, eins og margir eyja-
skeggjai' og var búin að taka á leigu
íbúð og farin að vinna fljótlega. En
hugurinn stefndi til Eyja, hún fann
sig ekki í stórborginni. Hún var
með fyi'stu konunum sem fóru að
vinna úti í Eyjum og vann í mötu-
neytinu allan gostímann.
Didda var mannkostamanneskja,
vel gefín og kunni skil á ýmsu. Hún
las mikið, mundi mikið af vísum og
kvæðum og gat kyrjað heilu brag-
ina á góðri stundu. Didda var glað-
lynd og hressileg í framgöngu. Það
var sko engin lognmolla í kringum
hana Diddu, þegar hún var og hét.
Vinnusemi var henni í blóð borin,
enda afburðadugleg, og hafði fyrir
mörgum að sjá. Saumaskapur og
hannyrðir léku í höndunum á henni,
og seinni árin, þegar hún hafði
meiri tíma, saumaði hún út og
prjónaði af mikilli vandvirkni og
liggja margir kostagripir eftir
hana.
Ef á bjátaði í fjölskyldunni var
hún alltaf tilbúin að rétta hjálpar-
hönd, hafði ekki mörg orð um það,
var bara mætt á staðinn. Hún lagði
mikla áherslu á að krakkarnir
lærðu eitthvað, hefðu eitthvað í
bakhöndinni, eins og hún orðaði
það. Strákunum fannst þetta nú
óþarfa nöldur í henni mömmu sinni.
Næga atvinnu var yfirleitt að hafa í
Eyjum og til hvers var þá að vera
að læra? Öll börnin lærðu þó eitt-
hvað gagnlegt, og ef til vill eru þau
þakklát nöldrinu í dag. Barnabörn
Diddu eru nú 16 talsins, og barna-
barnabörnum fjölgar.
Það voru forréttindi að slíta
barnsskónum í Eyjum og alast upp
í faðmi þeirrar fjölbreyttu náttúru
sem þar ríkir. Mér fannst skipta
máli að börnin mín fengju nasasjón
af þessu frábæra umhverfi í návist
ömmu sinnar. ÖIl þrjú nutu þau
þess að fá að vera hjá henni hluta
úr sumri af og til, og á unglingsár-
um fengu þau tvö elstu vinnu í fiski
og bjuggu við gott atlæti hjá ömmu.
Hlátur dóttur minnar, fas og lát-
bragð minna mig oft á ömmu
Diddu. Eg er glöð yfir að hún Guð-
rún Scheving var amma barnanna
minna.
Hafðu þökk fyrir allt, elsku
Didda.
Ásdís Ástþórsdóttir.