Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 50
»5 50 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Neytendafræðsla í grunn-
skólum og lífsleikni
í BYRJUN árs 1996 var sam-
þykkt norræn framkvæmdaáætlun
til fjögurra ára um neytendafræðslu
í skólum. Markmiðið með áætluninni
er að stuðla að aukinni þekkingu
norrænna ungmenna á málefnum
neytenda og gera þau hæfari til þess
að taka ábyrgð á málum sínum og
fjölskyldna í velferðarsamfélagi nú-
tímans. Rannsóknir annars staðar á
Norðurlöndum hafa sýnt að almenn
þekking ungs fólks á fjárhagsmál-
efnum heimila er ekki nægjanleg.
Þrátt fyrir það gerir þjóðfélagið sí-
fellt meiri kröfur til ungs fólks að
þessu leyti.
Að undanförnu hefur samráðshóp-
ur með fulltrúum frá viðskiptaráðu-
neyti, menntamálaráðuneyti, Neyt-
endasamtökunum og Kennslumið-
stöð Kennaraháskóla íslands unnið
að því að koma með tillögur til að
fylgja eftir ákvæðum norrænu fram-
kvæmdaáætlunarinnar. Niðurstaða
þeirrar vinnu er útgáfa verkefna
sem nú hefur verið dreift í alla
grunnskóla landsins og á skólaskrif-
tm. stofur. Verkefnin er að fínna á
geisladiski sem iðnaðar- og við-
skiptaráðuneyti gefur út en einnig
var útbúin mappa þar sem hægt er
að geyma verkefnin á prentformi.
Möppunni er skipt í þrjá hluta sem
fjalla um markmið neytendafræðslu,
verkefni í neytendafræðslu og
stærðfræði í neytendafræðslu.
I fyrsta hlutanum er að fínna
markmið fyrir neytendafræðslu á
sex sviðum, þ.e. fjármál einstaklinga,
réttindi og skyldur neytenda, áhrif
auglýsinga, neysla og umhverfi, mat-
væli og matreiðsla og öryggismál.
Markmiðin eru samin af norrænum
starfshópi og leggja þau grunninn að
norrænu framkvæmdaáætluninni
um neytendafræðslu í skólum og
liggja einnig á þessu sviði til grund-
vallar nýrri skólastefnu mennta-
málaráðuneytisins, Enn betri skóli.
Annar hlutinn inniheldur verkefni
sem samin voru á námskeiði sem
Kennaraháskóli íslands hélt vorið
1996 með styrk frá iðnaðar- og við-
skiptaráðuneyti til að stuðla að neyt-
endafræðslu á gnmn-
og framhaldsskóla-
stigi. Þátttakendur á
námskeiðinu voru 38
af báðum skólastigum
og urðu verkefnin alls
20. Hluta þeirra er að
fínna í verkefnamöpp-
unni og henta þau vel
til kennslu í yngri
beklgum grunnskól-
ans. Að auki er safn
fróðleiksmola og
stuttra verkefna eða
hugmynda til notkun-
ar á mið- og unglinga-
stigi sem starfsmenn
kennslumiðstöðvar
KHÍ hafa unnið.
Þriðji hlutinn
byggist á verkefnum sem efla eiga
skilning á fjármálum barna og ung-
linga, fjármálum fjölskyldunnar,
eigin lifsstíl, fjárhagslegum áhætt-
um sem leynast í samskiptum fólks
og mikilvægum þáttum sem tengjast
rekstri heimilis. Einnig er að finna
verkefni sem ætluð eru til að gera
nemendur sér meðvitandi um stöðu
sína sem neytenda á jörðinni, lífs-
skilyrði, mannfjölda og auðlindir
auk verkefna sem miða að því að
gera nemendur betur læsa á um-
hverfí sitt, t.d. sem þátttakendur í
umferðinni, og ábyrga nemendur á
því sviði. Verkefnin eru talin við
hæfí nemenda í efri árgöngum
grunnskólans, allt frá 6. bekk upp í
10. bekk.
I nýrri skólastefnu menntamála-
ráðuneytisins er lögð áhersla á lífs-
leikni, en hún mun verða sérstök
námsgrein í grunnskóla og skylduá-
fangi í framhaldsskóla og er ætlunin
að gefa út námsefni sem tekur til efn-
isþátta lífsleikni í einni heild.
Samkvæmt nýju skólastefnunni
Markmið norrænu
framkvæmdaáætlunar-
innar um neytenda-
fræðslu í skólum og
námsgreinarinnar lífs-
leikni, segja Guðni 01-
geirsson og Þórunn
Erhardsdóttir, falla
saman að stórum hluta.
felur námsgreinin lífsleikni í sér við-
leitni til að dýpka skilning nemand-
ans á sjálfum sér og umhverfi sínu og
stuðla þannig að persónulegi-i hæfni
hans til að takast á við lífið í nútíma-
samfélagi með þeim réttindum,
skyldum og ábyrgð sem því fylgir.
Líf í nútímasamfélagi gerir sívaxandi
kröfur um færni einstaklinga á ýms-
um sviðum til undirbúnings virkrar
þátttöku í atvinnulífi sem og á vett-
vangi fjölskyldunnar. Þar má t.d.
nefna samskiptahæfni, umburðar-
lyndi og skilning á lýðræðislegum
leikreglum samfélagsins, fjölskyldu-
fræðslu, öryggismál og slysavarnir,
lyfjamisnotkun og fíknivarnir og
þætti sem lúta að neyslu og um-
hverfi. Hvað neytendafræðslu varðar
sérstaklega er markmiðið að gera
nemendur sér meðvitandi um rétt-
indi sín og skyldur sem neytendur,
hafa reiður á eigin fjármálum, vera
sér meðvitandi um áhrifamátt og
þýðingu auglýsinga svo og um áhrif
einkaneyslu á samfélag og náttúru.
Með því að taka markvisst á ofan-
greindum lífsleikniþáttum munu
skólar eiga auðveldara með að taka
þátt í uppeldi og alhliða menntun
nemenda í virkri samvinnu við heim-
ilin sem bera höfuðábyrgð á uppeldi
barna. Jafnhliða er lögð áhersla á að
h'fsleikniþættir séu teknir fyrir í öll-
um námsgreinum eftir því sem fram-
ast er unnt og að lífsleikniáherslur
verði nokkurs konar rauður þráður í
skólakerfinu hér á landi við upphaf
21. aldar.
Markmið norrænu framkvæmdaá-
ætlunarinnar um neytendafræðslu í
skólum og námsgreinarinnai' lífs-
leikni falla saman að stórum hluta.
Með útgáfu verkefnanna sem lýst er
hér fyrr í greininni er verið að koma
til móts við þau tilmæli sem sett eru
fram í framkvæmdaáætluninni og
nýju skólastefnunni og er það von
okkar að þau munu stuðla að aukinni
þekkingu og færni íslenskra ung-
menna á málefnum neytenda í vel-
ferðarsamfélagi nútímans.
Guðni er deildarsérfræðingur í
menntamálaráðuneytinu og Þórunn
er deildarstjóri i iðnaðar- og við-
skiptaráðuneyti.
Magnart: 2 x 50W rms
útvarp neð 24 stöðva nlnnl - rds
þrlggja dlska spllarl
Tvöfalt segulband pouer
Hátalarar tvískiptLr: 8ow
pouer bass
skipta máLL
Magnan: 2 x íoou rms
útvarp neð 24 stöðva mLnnL - rds
ÞrLggja dLska spLLarL
Tvöfalt segulband
HátaLarar tvískLptLr: 120U vl
pouer bass
Magnarc: 2 x 33U rms
útvarp með 24 stöðva mLnnL
ÞrLggja dLska spLLarL
TvöfaLt seguLband
HátaLarar tvCskLptLr: 50U
59.900 kr
uagnarL 2 x i2ou rms á -
útvarp með 24 stöðva mLnnL - rds
26 dLska spLLarL
TvöfaLt seguLband
HátaLarar tvCskLptLr: 150U V.
pouer bass
Dulkauðalegur,
miðlægur
glámbekkur
ÞJÓÐIN er að vakna
inn í nýja tíma og nýjan
heim, undirheima gen-
anna, þar sem rætur
okkar liggja. Heim for-
feðra okkar. Sumir eru
vaknaðir, aðrir eru í
svefnrofunum. Þó eru
flestir enn sofandi. Það
sem verra er, margir
vaka en láta sem þeir
sofi, og eru komnir á
kreik í rökkrinu fyrir
allar aldir.
Kalt vatn rennur milli
skinns og hörunds, þeg-
ar hugsað er til þess,
hvernig keyra átti dul-
kauðalegt gagna-
grunnsfrumvarpið í
gegnum þingið í vor, án umræðu
þeirra manna í þjóðfélaginu, sem vit
hafa og þekkingu á þessu máli. Þessi
staðreynd vekur tortryggni og segir
e.t.v. allt sem segja þarf. Aróður,
sem síðan hefur verið rekinn í krafti
peninga, magnar enn frekar þessa
tilfinningu. Maður í grárri gæru vís-
inda, sem talar eins og stjórnmála-
maður, jafnvel farandsali, lofar gulli
gena og grænum skógum. Glópagulli
og ættartrjám með eplum Iðunnar?
Er verið að breyta þekkingu í blekk-
ingu? Og blekkingu í verðmæti?
Verðmætum í gróða fárra fjárfesta?
Með dalalæðu í augum, blindaðir af
fíkn í fé, frægð og frama, skrá menn
nafn sitt á blöð þessa Brekku-
kotsannáls (sumir dulkóðað).
Berja átti frumvarpið í gegn í vor
og enn skal það gert, ef marka má
orð þess er á veldissprotanum held-
ur. Sá, sem notar þann sprota sem
barefli, er í sporum þess sem svívirð-
ir svanna og notar vopn sitt til að
þjóna sömu lund. Hann er í sama
flokki og giljagaurar Landsvirkjun-
ar, sem ætla að spjalla og limlesta
Fjallkonuna. Og þeir sem blekkja
þjóðina með fagurgala, loforðum um
lífselexír, eru í sporum flagarans,
sem fíflar fljóð. Frændur deyja
aldrei, hveims í gagnagrunni getur,
er kannski draumur
þein-a svefndrukkinna,
sem falla fyrh' hinu vís-
indalega fagnaðarer-
indi. Draumur, sem
gæti orðið martröð
Eg hefi áhyggjur af
andliti þjóðarinnar sem
snýr að útlöndum, ef
frumvarp um tölvu-
væddan, miðlægan
glámbekk verður sam-
þykkt. Óþægilegt verð-
ur fyrir íslenska ráða-
menn (ráðherra, alþing-
ismenn, embættismenn)
og vísindamenn að
þinga með félögum sín-
um á erlendri grundu í
framtíðinni. Dulkóðaðir
fjárfestar verða þá e.t.v. horfnir á
braut með sinn skjótfengna gróða og
lífeyrissjóðir sitja þá kannski uppi
með verðlaus hlutabréf, en þjóðin
Eg hefí áhyggjur af
andliti þjóðarinnar
sem snýr að útlöndum,
segir Sigurður V.
Sigurjónsson, ef frum-
varp um tölvuvæddan,
miðlægan glámbekk
verður samþykkt.
nakin og svívirt undir hrimgráum
hnjúk, sem glottir við tönn.
Fyrirtækið Islensk erfðagreining
og miðlægur gagnagi'unnur eru að-
skilin mál. Eða hvað? Fyrirtækið er
hið besta mál. Eða hvað? Miðlægi
glámbekkurinn er hið versta mál! Ef
fjárfestar fyrirtækisins hafa í upp-
hafi verið að kaupa gagnagrunninn,
þá hefur þjóðin verið blekkt. Og Al-
þingi líka.
Gang hægt gegnum genanna dyr.
Höfundur er læknir.
Sigurður V.
Sigurjónsson
V