Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 61

Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 61 Matur og matgerð Randabrauð eða randalín Tungan tekur breytingum, segir Kristín Gestsdóttir. í orðabók Blöndals 1920-24 er randalín „kona sem klæðist röndóttri ✓ blússu“ en í orðabók Arna Böðvarssonar um 40 árum síðar er það skilfflreint sem „randakaka“. ÞEIR sem á annað borð ætla sér að baka fyrir jólin eni flestir byrjaðir, enda er það orðið al- mennur siður að gæða sér á jóla- bakkelsi á jólaföstunni. Þegai- jólin sjálf koma er svo margt annað til að borða að kökurnar hafa vikið. Jólasmákökur hafa Islendingar lengi bakað, jafnvel áður en þeir eignuðust bakaraofna, en fyrsti bakaraofninn kom til landsins árið 1860 og það leið langur tími þar til þeir urðu eign almennings. Hvern- ig var þá hægt að baka smákökur án bakaraofns? Þeir efnameiri áttu svokallaða lokpönnu, sem hægt var að baka í aðeins fáar smákökur í einu. Lokpannan var með þremur löppum og henni var stungið í glóð á eldstæðinu. Lok gekk ofan í hana og þar á var líka sett glóð til að fá yfirhita. Svo fyrirhöfnin hefur ver- ið ærin. Hinir fátækari bökuðu alls engar kökur heldur steiktu klein- ur, parta, laufabrauð o.fl. í tólg og svo auðvitað lummur sbr. jólavís- una: „Pabbi segir, pabbi segir“ þar sem talað er um „að borða sætar lummurnar". En það eru hvorki smákökur né sætar lummur í þess- um þætti heldur randalínur, sem lengi hafa verið vinsælt jólabakk- elsi á Islandi. Hörð terta móður minnar 1 kg hveiti 1 tsk. hjartarsalt '/2 tsk. lyftiduft ____________V2 tsk. kanill________ 500 g smjör eða smjörlíki 500 g sykur ____________ 4 egg _______________ Rabarbarasulta 1. Blandið þurrefnum saman, myljið smjörið út í. Setjið síðan eggin út í eitt í senn og hnoðið vel, helst í hrærivél. Setjið síðan í kæli- skáp í í-2 klst. 2. Skiptið í 3 hluta, fletjið út svo að passi á þrjár plötur, hafið bök- unarpappír undir. Hitið bakaraofn- inn í 200°C, blástursofn í 180°C, bakið í 12-15 mínútur. 3. Kælið og leggið saman með sultunni. Súkkulaðirandalín með hvítu kremi _____175 g smjör eða smjörlíki__ 1 dl flórsykur 1 dl strósykur _______________4 egg_______________ 4 msk. kakó 2 dl hveiti 1 '/2 tsk. lyftiduft 1. Hrærið smjör með sykri, setj- ið síðan eitt egg í senn út í og hrærið saman. 2. Blandið saman kakó, hveiti og lyftidufti og hrærið saman. 3. Leggið bökunarpappír á bök- unarplötu, smyrjið deiginu á hann. Hitið bakaraofn 200°C, blástursofn í 180°C, bakið í miðjum ofni í 15-20 mínútur. Kælið og skerið í 3 hluta. Kremið: 125 g smjör (ekki smjörlíkij 125 g flórsykur 1 þeytt eggjahvíta 1. Hrærið smjör og flórsykur, þeytið hvítuna og blandið í. Smyrj- ið á tvo hluta kökunnar og leggið saman. Gott er að geyma þessa köku í frysti. Kryddrandalín með Ijósu smjörkremi 400 g smjörlíki 500 g sykur _______4-5 egg_______ 2 tsk. sódaduft 2 tsk. lyftiduft 2 tsk. af hverju: negul, kanil og engifer _______3 msk. kakó___ 1 kg hveiti 4-5 dl mjólk 1. Hrærið lint smjörlíki með sykri, hrærið eggin út í. 2. Blandið saman þurrefnum, hrærið út í til skiptis við mjólkina. 3. Setjið bökunarpappír á 3 plöt- ur, smyrjið deiginu jafnt á Hitið bakaraofn í 210°C, blástursofn í 190°C. bakið í 12-15 mínútur. Kælið. Kremið: 250 g smjör 8 dl flórsykur 2 eggjarauður 1 tsk. vanilludropgr Hrærið allt saman. Leggið kök- una saman með kreminu. Skerið í um 8 sm ræmur, vefjið hverja ræmu í álpappír og geymið í kæli eða frysti. Merktu við ! Sendum í póstkröfu s: 568 8190 Hárgreiðslu og förðunarsett Sturtuklefi fyrir Barbie, án dúkku Stór eldavél Stór tvíbura dúkkukerra Stærð 66*36 cm Trégítar 'SmásJá meðíjósi "nuron . mm1 1 2 3 KRINGMN Kerruvagn með innKéupakerru og poka Stærð 40 cm tasett Stærð 60 cm mari BollasteIF% margar gerðii frá 495 Baby Bom kerra □ CKr. 1.76$) 4$ ju*, P1' Ífc': X Án Þyrla með Ftafhlöðu Ijósum og hljóðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.