Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 FÓLK í FRÉTTUM Sýnt á Stóra sóiði kl. 20.00: BRÚÐUHEIMILI — Henrik Ibsen Frumsýning 26/12 kl. 20 uppsett — 2. sýn. 27/12 uppselt — 3. sýn. sun. 3/1 örfa sæti laus. TVEIR TVÖFALDIR — Ray Cooney 9. sýn. mið. 30/12 — 10. sýn. lau. 2/1. SOLVEIG — Ragnar Arnalds Fös. 8/1. BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA — Astrid Lindgren Pri. 29/12 kl. 17 - sun. 3/1 kl. 14. Sýnt á Litla sóiði: ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric Emmanuel-Schmitt Mið. 30/12 kl. 20. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst Sýnt á SmiðaOerkstœði kl. 20.30: MAÐUR í MISLITUM SOKKUM Fim. 10/12 uppselt — fös. 11/12 uppselt — lau. 12/12 uppselt — þri. 29/12 - mið. 30/12 — lau. 2/1 — sun. 3/1. Miðasalan er opin mánud.—þriðiud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími SS1 1200. Gjafakort í Þjóðteikfuísið — qjöfiti sem tifnar Uið Nemendaleikhúsið sýnir í Lindarbæ IVANOV eftir Anton Tsjekhov. sýn. miö. 9. des. kl. 20 sýn. fös. 11. des. kl. 20 sýn. sun. 13. des. kl. 20 örfá sæti laus sýn. mið. 16. des. kl. 20 sýn. fim. 17. des. kl. 20 sýn. lau. 19. des. kl. 20 uppselt_ MIÐAVERÐ KR. 500. MIÐAP. í SÍMA 552 1971 ALLAN SÓLARHRINGINN. Miðasala opln kl. 12-18 og tram að sýnlngo sýnlngardaga Ósóttar pantanlr seldar daglega ____ Sími: 5 30 30 30 IM0 Gjafakont í leikhusið Tilvalin jólagjöf! KL. 20.30 sun 13/12 nokkur sæti laus sun 27/12 jólasýning ÞJONN fr s ú p u nm i lau 12/12 kl. 20 örfá sæti laus lau 12/12 kl. 23.30 örfá sæti laus fös 18/12 kl. 20 og 23.30 Tónleikaröð Iðnó í kvöld 8/12 kl. 20.30 Nýársdansleikur Tryggið ykkur miða strax! Tilboð til leikhúsgesta 20% afsiáttur af mat fyrir leíkhúsgesti í Iðnó Borðapöntun í síma 562 9700 ISIÆNSKA OI’liltAN Gamanleikrit í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar sun. 6/12 kl. 21 uppselt mán. 28/12 kl. 20 uppselt þri. 29/12 kl. 20 uppselt mið. 30/12 kl. 20 uppselt Miðaverð kr. 1100 fyrir karla kr. 1300 fyrir konur lau. 26/12 kl. 14 sun. 27/12 kl. 14 örfá sæti iaus sun. 10/1 kl. 14 Leikhúsmiði í jólapakkann! Georgfólagar fá 30% afslátt Miðapantanir í síma 5511475 frá kM3 Miðasala alla daga frá kl 15-19 Jólabókatónaflód Canada & höfundar frá Bjarti fimmtudaginn 10/12 BARBARA & ÚLFAR SPLATTERH föstudaginn 11/12 kl. 24 laus sæti Miðapantanir allan sólarhringinn í síma 551 9055. Miðasala fim.-lau. milli 16 og 19 og símgreiðslur alla virka daga. Netfang: kaffileik@isholf.is KONAN FIM: 10. DES - laus sæti Síðasta sýning fyrir áramót Veitingahúsin Hornið, REX og Pizza 67 bjóða handhöfum miða ýmis sértilboð. T J A r'nar B í Ó Miðasala opin 2 dögum fyrlr sýn. 17-20 & allan sólarhringinn í síma 561-0280 Nýkrýnd í feg- urðarævintýri ► FEGURÐIN er vegin og metin víða í heiminum og eru fjölmargar fegurðarsamkeppnir haldnar ár- lega. Sú fegursta fær að launum titil og kórónu og veldissprota al- veg eins og aivöru prinsessa í æv- intýri. Hér er hin 22 ára Kisha Al- varado frá Costa Rica en hún vann í Ungfrú Asíu-Kyrrahafs-fegurðar- samkeppninni. Þátttakendur komu frá 25 þjóðlöndum, en keppnin fór fram á Clark-flugvellinum, sem áð- ur var bandarískur herflugvöllur, rétt norður af Manila á Filippseyj- um sunnudaginn 6. desember. Bláir neistar TÓIVLIST Vafningur, lag Óskars Guðjónssonar í endurútsetningu sveitarinnar Lhooq, er með bestu Iögum geislaplötunnar. Geisladiskur NEISTAR Safnplata með raftónlist. A geisla- disknuni eiga lög Northern Light Orchestra, Móa, Chico, Dirty Bix, Tim 2, Óskar Guðjónsson, Hassbræð- ur, Monotone og Amin. Geislaplatan var hljóðrituð á ýmsum stöðum en lokahljóðvinnsla fór fram í Stúdíó Irak undir stjórn Bjarna Braga. Sproti gefur út, Skífan dreifir. ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Sproti hefur áður gefið út safnplötur með upprennandi tónlistmönnum, poppur- um og rokkurum, á Neistum er komið að raftónlistinni. Geislaplatan hefst á laginu Loverboy með Northern Light Orchestra ásamt ásamt Páli Óskari, þokkalegt lag, einfalt raf-“soul“ sem Páll ber í raun uppi, ágætis rísandi er í laginu en endalaus orgellykkja verð- ur þreytandi við endurtekna hlustun. Að tónlistarmönnunum ólöstuðum þá er rýmið orðið svo mikið á „sampler- um“ í dag að þess gerist ekki þörf að endurtaka lykkjur endalaust. Við tek- ur endurhljóðblöndun á lagi Móu, Joy and pain af breiðskífu hennar, Uni- versal. Það er hinn franski Dimitri from Paris sem blandar og er útkom- an nokkur vonbrigði, bæði með hlið- sjón af öðrum verkum Dimitri sem og upprunalegri útgáfu lagsins, endur- hljóðblöndunin bætir engu við heldur týnir fyrri anda lagsins. Það er ein- menningssveitin Chico sem á þriðja lag geislaplötunnar, The sun, tónlist Chico er eins konar „triphop" bak- grunnstónlist og ágæt sem slík, þessi tegund tónlistar býður þó ekki upp á mikla athygli hlustandans því hún er einhæf og viðburðasnauð, betui' hæfir hún í bakgrunni á kaffíhúsum o.þ.h., lyftutónlist tíunda áratugarins. Öll platan einkennist mjög af þessum kima raftónlistarinnar sem hefur þró- ast út frá „triphop" tónlist og nýleg- um vinsældum „easy listening" sjö- unda áratugarins. Dirty Bix á lagið That Pomo Track, klámmyndatónlist er jú einnig bakgrunnstónlist, meira gerist í That Pomo Track en í laginu á undan, lag- ið er gott en betra efni hefur þó heyrst frá Birgi Sigurðssyni, fónk- aðra og vandaðra. Monotone á tvö lög á Neistum, Pick a life og Pale Love, það er söngur í lögum Monotone en það er því miður sjaldgæft í flestum tegundum raftónlistar, tónlist sveitar- innar er „triphop“ en söngurinn er í þessu tilviki sveitinni til vansa, bæði hefur söngvarinn takmarkaða rödd en textamii' era einnig gerðir af van- efnum, einkum sá fyrri sem hljómar líkt og afbökun á upphafsorðum kvik- myndarinnar Trainspotting. Það er enginn asi á þeim tónlistarmönnum sem fram koma á Neistum, Tim 2 hrista lítið upp í hraðanum og hljóma síst hrárri. Þó er lag þeirra Origo nokkuð skemmtilegt fónkskotið „triphop" með skemmtilegum Rhodes og gítai'línum. Sjöunda lag Neista, Vafningur, lag Óskars Guðjónssonar í endurútsetningu sveitarinnar Lhooq, er með bestu lögum geislaplötunnar, einhæft vissulega en skemmtilegt fyr- ir góða bassa og hrynlínu (þó ekki drum’n bass), grípandi lag, einkum í upphafl. Að Vafningi loknum taka svo Hassbræður við, þessar tilvísanii- í kannabis eru lýsandi fýrir það hugar- ástand sem hlustandanum er ætlað að komast í og vissulega er gott að geta komist í leiðslu af tónlist, þarna koma tengsl þessarar lyftu „triphop"- tónlistai- sem einkennir geislaplötuna við sveimtónlist hvað best fram. Hassbræður gera tilraun til að koma hlustandanum í leiðslu og tekst nokkuð vel upp, einkum fyrir trompet Iykkju sem leiðfr lagið. Lag Amin, Cat, hristir upp í hlustandan- um eftfr rólegheitin, taktfastur hryn- ur og skemmtilegur gítar- og bassa- Ieikur sér til þess. Síðasta lag plöt- unnar, líklega það besta, er svo lag Northern Light Orchestra, sem hóf plötuna, Brown sugar er hrátt „grúv“ með frábærri bassalínu sem vinnur mikið á þrátt fyrir ófrumlega byrjun. Neistar eru gott og þai-ft framtak, svona safnplötur eru nauðsynlegar, plötur sem innihalda nýja tónlist, kynna það sem á eftir að gerast, eða reyna a.m.k. Þar með er tilgangurinn til staðar í stað þess að sópa saman lögum af vinsældarlistum sem þegar eru til á breiðskífum viðkomandi tón- listarmanna. Gísli Árnason BÍÓIN í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/ Arnalcíur Indriðason Hildur Loftsdóttii• BÍÓBORGIN Muhin ★★★‘/2 Teiknimyndirnar frá Disney gerast ekki mikið betri. Fín saga, tónlist og teikningar. Pottþétt fjölskyldu- skemmtun. The Avengers ★ Flatneskjulega leikstýrð njósnaskop- mynd, svo illa skrifuð að hin yfírleitt trausta leikaraþrenna (Fiennes, Connery, Thurman) veldur einnig vonbrigðum. Brellurnar fá stjörn- una. The Horse Whisperer Falleg og vel gerð mynd á allan hátt, sem lýsir kostum innra friðs í harm- oníu við náttúnma og skepnur. SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA The Negotiator ★★!/2 Góðir saman Jackson og Spacey en lengd myndarinnar ekki raunhæf. Mulan ★★★!/!2 Teiknimyndirnar frá Disney gerast ekki mikið betri. Fín saga, tónlist og teikningar. Pottþétt fjöiskyldu- skemmtun. Smile Like Yours ★ Tilgangslaus vella, dulbúin sem róm- antísk gamanmynd. Snake Eyes ★l/2 Brian De Palma fer vel af stað í nýj- ustu spennumynd sinni, en svíkur síðan áhorfandann í tryggðum, fyrst og fremst sem handritshöfundur. Hver heilvita maður sér fljótlega í gegnum næfurþunnt plottið og gam- anið er úti. Foreldragildran ★★ Rómantísk gamanmynd um tvíbura sem reyna að koma foreldrum sínum saman á ny. Stelpumynd útí gegn. A Perfect Murder ★★★ Peningar og framhjáhald trylla ást- arþríhyrninginn. Ur því verður fín spennumynd sem sífellt rúllar uppá sig og kemur skemmtilega á óvart. Töfrasverðið ★★ Warner-teiknimynd sem nær ekki gæðum né ævintýrablæ Disney- mynda. Kærður saklaus ★★ Sæmilegasta skemmtun, gerir grín að bíómyndum dagsins. Það þai'f gi'einilega Leslie Nielsen í þessar myndir. Daprast flugið eftir hlé. HÁSKÓLABÍÓ Út úr sýn ★★★ Ástin grípur í handjárnin milli löggu og bófa að hætti Elmores Leonards. Sem fær ágæta meðhöndlun að þessu sinni. Fyndin, fjömg, krydduð furðu- persónum skáldsins, sem eru undur vel leiknar yflr línuna, Stelpukvöid ★★!/2 Ti'agikómedía um tvær miðaldra kon- ur sem halda til Las Vegas þegar í ijós kemur að önnur þeirra er komin með krabbamein. Klútamynd mikil. Maurar ★★★ Frábærlega vel gerð tölvuteikni- mynd. Leikaravalið hið kostulegasta með Woody Allen í fararbroddi. Fín- asta skemmtun fyrfr fjölskylduna. Dansinn ★★'/2 Nett og notaleg kvikmyndagerð smásögu eftir Heinesen um afdrifa- ríka brúðkaupsveislu í Færeyjum á öndverðri öldinni. Skilur við mann sáttan. Björgun óbreytts Ryans ★★★★ Hrikaleg andstríðsmynd með trú- verðugustu hernaðarátökum kvik- myndasögunnar. Mannlegi þátturinn að sama skapi jafnáhrifaríkur. Ein iangbesta mynd Spielbergs. KRINGLUBÍÓ The Negotiator ★★'/2 Góðir saman Jackson og Spaeey en lengd myndai'innar ekki raunhæf. Mulan ★ ★ ★ '/2 Teiknimyndfrnar frá Disney gerast ekki mikið betri. Fín saga, tónlist og teikningar. Pottþétt fjölskyldu- skemmtun. The Avengers ★ Flatneskjulega leikstýrð njósnaskop- mynd, svo illa skiifuð að hin yfirleitt trausta leikaraþrenna (Fiennes, Connery, Thurman) veldur einnig vonbrigðum. Brellurnar fá stjörn- una. Foreldragildran ★★ Rómantísk gamanmynd um tvíbura sem reyna að koma foreldrum sínum saman á ny. Stelpumynd útí gegn. LAUGARÁSBÍÓ The Truman Show ★★★★ Frumlegasta bíómynd sem gerð hef- ur verið í Bandaríkjunum í áraraðir. Jim Carrey er frábær sem maður er lifir stöðugt í beinni útsendingu sjón- varpsins án þess að vita af því Dansaðu við mig ★!4 Skemmtileg mynd fyi'ir dansáhuga- fólk. Annars er sagan klisja út í gegn og húmorinn ansi sveitalegur. REGNBOGINN Þjófurinn -k-k-k Döpur og grimm, sovésk söguskoð- un. Þjófurinn táknar Stalín, myndin vel skrifað og leikið uppgjör höfund- ar við þá viðsjárverðu tíma sem kenndir eru við harðstjórann. Það er eitthvað við Maríu ★★★ Skemmtilega klikkaður húmor sem fer ótroðnar slóðir í ferskri og sætri mynd um Maríu og vonbiðlana. Halloween H20 ★★ Sú sjöunda bætir engu við en lýkur seríunni skammlaust. Dagfinnur dýralæknir ★★!4 Skemmtilega klúr og hressileg út- gáfa af barnaævintýrum Loftings öðlast nýtt líf í túlkun Eddie Murp- hys og frábæri'i tölvuvinnu og tai- setningu. STJÖRNUBÍÓ Knock Offk Dæmalaus dellumynd frá Damme. Partíið ★V2 Amerískt menntaskólapartí, fyrir þá sem hafa gaman af slíku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.