Morgunblaðið - 10.12.1998, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Blóðug átök á Vesturbakkanum á afmæli palestínsku uppreisnarinnar
Skyggir á heimsókn Clintons
Ilekron. Jerúsalem. Reutcrs.
PALESTÍNUMAÐUR beið bana og
rúmlega 55 særðust í óeirðum á
Vesturbakkanum í gær þegar
Palestínumenn minntust þess að ell-
efu ár eni liðin frá því uppreisn
þein-a gegn hemámi Israela, intifa-
da, hófst. Óeirðirnar á Vesturbakk-
anum og deilan um hvort Palestínu-
menn geti stofnað sjálfstætt ríki
hafa varpað skugga á fyrirhugaða
heimsókn Bills Clintons Bandaríkja-
forseta til ísraels og sjálfstjórnar-
svæða Palestínumanna 12.-15. þessa
mánaðar.
Palestínumenn köstuðu steinum
að ísraelskum hermönnum og bílum
á vegum við bæi Palestínumanna og
byggðir gyðinga á Vesturbakkanum.
Óeirðirnar minntu á palestínsku
uppreisnina sem hófst árið 1987 og
hjaðnaði eftir friðarsamkomulagið
við ísraela í Ósló árið 1993.
16 ára Palestínumaður lést á
sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir
byssukúlu nálægt Ramallah á yfir-
ráðasvæði Palestínumanna á Vestur-
bakkanum. Ekki var vitað í gær hver
skaut hann og her Israels kvaðst
ekki hafa fengið upplýsingar um at-
vikið.
Tíu Palestínumenn særðust í
Ramallah og að minnsta kosti 27 í
Betlehem, þar af fímm alvarlega.
Um 19 særðust í óeirðum í öðrum
bæjum á Vesturbakkanum.
Palestínumenn efndu einnig til
allsherjarverkfalls á Vesturbakkan-
um í tilefni af uppreisnarafmælinu
og til að krefjast þess að ísraelar
leystu palestínska fanga úr haldi.
Hreyfing herskárra múslima, Ham-
as, sagði að stofnandi hennar, Ah-
med Yassin, sem er í stofufangelsi á
Gaza-svæðinu, hefði hafíð mótmæla-
svelti til að krefjast þess að ísraelar
leystu félaga hreyfingarinnar úr
haldi.
Palestínskir embættismenn segja
að hartnær 2.000 „pólitískir fangar“
taki nú þátt í mótmælasvelti sem
hófst í ísraelskum fangelsum fyrir
viku.
Námsmenn bratu einnig rúður í
nýju spilavíti í Jeríkó og létu þannig
í ljós óánægju sína með að leiðtogum
Palestínumanna skyldi ekki hafa
tekist að fá fangana leysta úr haldi.
Spilavítið var opnað í september
þrátt fyrir harða andstöðu
heittrúaðra múslima.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, hefur krafist þess
að palestínsk yfirvöld bindi enda á
óeirðimar og sagt að ólíklegt sé að
ísraelar flytji herlið sitt frá 5% Vest-
urbakkans í næstu viku, eins og
kveðið er á um í friðarsamkomulagi
hans og Arafats.
Palestínumenn líta hins vegar á
heimsókn Clintons sem stuðning við
stofnun Palestínuríkis og bíða hans
með mikilli eftirvæntingu. „Hún er
sigur fyrir okkur - viðurkenning af
hálfu öflugasta ríkis heims,“ sagði
Ali Mohammad, þrítugur Palestínu-
maður á Gaza-svæðinu.
Reuters
Verðlaunahafar í Ósló
JOHN Hume, leiðtogi flokks
hófsamra kaþólikka (SDLP), og
David Trimble, leiðtogi Sam-
bandsflokks Ulster (UUP), á
Norður-Irlandi voru kampakátir
þegar þeir komu til Ósló í gær-
morgun en í dag munu þeir fá
afhent friðarverðlaun Nóbels
fyrir störf sín í þágu friðar á N-
Irlandi.
Fyrrverandi yfírmaður norsku
N óbelsnefndarinnar
Kom í veg fyrir
að Gandhi fengi
friðarverðlaunin
Ósló. Reuters.
GUNNAR Jahn, yfirmaður norsku
Nóbelsnefndarinnar á árunum
1942-1966, kom í veg fyrir að Ind-
veijinn Mahatma Gandhi fengi friðar-
verðlaun Nóbels, samkvæmt dagbók
hans sem ekki hefur áður sést opin-
berlega og var Jahn aukinheldur
andsnúinn því að Rauði krossinn
fengi friðarverðlaunin á sínum tíma.
Dagbók Jahns, sem var bankastjóri
norska seðlabankans og leiðtogi and-
spymuhreyfingarinnai- í Noregi í síð-
ari heimsstyrjöldinni, hefur legið í
luktum hirslum Nóbelsstofnunarinn-
ar í fimmtíu ár.
„Dagbókin er eina beina heimildin
sem til er um viðræður nefndarmanna
um mögulega verðlaunahafa," segir
Geir Lundestad, forstjóri Nóbels-
nefiidarinnar. „Hún gefur afar skýra
mynd af framkomu Jahns - hann
virðist hafa verið úrillur maður.“
Arið 1947 vildu til dæmis tveir
meðlimir Nóbelsnefndarinnar veita
Gandhi friðarverðlaunin vegna frið-
samlegrar baráttu hans sem varð til
þess að Indland hlaut sjálfstæði írá
Bretum þetta ár.
Jahn, sem var andsnúinn því að
veita Gandhi verðlaunin, segist í dag-
bók sinni hafa sagt við nefndar-
meðlimi að Gandhi væri augsýnilega
„langbesta" manneskjan sem stungið
hefði verið upp á „og það er hægt að
láta afar mörg góð orð falla um Gand-
hi. En við megum ekki gleyma því að
þótt hann sé málsvari friðar þá er
hann einnig þjóðemissinni."
Orð hefur verið haft á því að sú
staðreynd að Gandhi skyldi aldrei
hljóta friðarverðlaun Nóbels sé tals-
verð skömm fyrir aðstandendur
þeirra. Sagnfræðingar segja hins
vegar að sú þakkarskuld sem Norð-
menn stóðu í við Breta eftir síðari
heimsstyrjöld hafi haft áhrif á afstöðu
Nóbelsnefndarinnar, auk þess sem
kynþáttafordómar gætu einnig hafa
haftáhrif.
„Eg var óánægðastur þegar verð-
launin féllu samtökum Rauða kross-
ins í skaut,“ skrifar Jahn í dagbók
sína. Sakaði hann leiðtoga Noregs-
deildar samtakanna um að nýta sér
verðlaunin til að auglýsa Noregsdeild
sína „sem ekkert hefur gert markvert
á alþjóðavettvangi" með „óskamm-
feilnum hætti“.
Rússum
boðið á af-
mælisfund
NATO
Brussel. Reuters.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ
bauð í gær Rússum að taka þátt í 50
ára afmælisfundi þess í Washington í
vor, eftir að ráðamenn þessara fyrr-
verandi andstæðinga í kalda stríðinu
sýndu með sér ný vinahót í
höfuðstöðvum NATO í Brussel í
gær.
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, og Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, komu
boðinu formlega á framfæri við rúss-
neska utanríkisráðherrann Igor
Ivanov á fundi Samstarfsráðs NATO
og Rússlands, en Ivanov sagði ekk-
ert um hvort Rússar myndu þiggja
boðið, enda er það pólitískt
viðkvæmt, þar sem á Washington-
fundinum verður formlega gengið
frá inngöngu þriggja fyrrverandi
aðildarríkja Varsjárbandalagsins og
þar með bandamanna Sovétríkjanna
- Póllands, Tékklands og Ungverja-
lands - í NATO. Rússnesk stjóm-
völd hafa harkalega beitt sér gegn
þessari stækkun hins vestræna varn-
arbandalags til austurs.
Rússneska ríkisstjórnin ræðir fjárlög fyrir næsta ár
Aðhald sagt í fyrirními
en herframlög aukin
Moskvu. Reuters.
JEVGENÍ Prímakov, forsætis-
ráðherra Rússlands, fullyrti í blaða-
viðtali í gær að rússneska ríkið yrði
ekki gjaldþrota þótt það ætti í
örðugleikum með að greiða skuldir.
Ríkisstjórnin ræddi í gær drög að
fjárlögum fyrir árið 1999, en um-
ræðumar um þau snúast fyrst og
fremst um hvemig unnt sé að draga
úr útgjöldum ríkisins. VamaiTnál-
ai'áðherranum, Igor Sergejev, tókst
þó að knýja fram hækkun framlaga
til hersins, en sú sneið af fjárlaga-
kökunni var þó minni en Borís
Jeltsín forseti hafði heitið áður en
efnahagur landsins hrandi.
Búist er við því að stjórn Príma-
kovs muni samþykkja fjárlaga-
drögin á næstu dögum, jafnvel í
dag, og leggja þau að því búnu
fram í dúmunni, neðri deild rúss-
neska þingsins. Prímakov hefur
sagt að fjárlög næsta árs verði
mjög aðhaldssöm og þau beinist
einkum að því að hindra óða-
verðbólgu.
Hvort sem um tilviljun var að
ræða eða ekki vakti það athygli að
samtímis því að ríkisstjórnin sat á
rökstólum um fjárlögin og utan-
ríkisráðherrann, Igor Ivanov, átti
fundi með ráðherram NATO-ríkj-
anna í Brassel tilkynnti kjarnorku-
deild rássneska hersins að tilraun
með að senda á loft nýja lang-
dræga stýriflaug, Topol-M, hefði
tekizt vel.
Verið er að skera niður fjölda
liðsmanna í rássneska hernum í
samræmi við nýjar aðstæður eftir
lok kalda stríðsins, en stefna Rússa
er að endurbæta kjarnorkuvopna-
mátt sinn með því að koma sér upp
nýjum og betri en færri kjam-
orkuflaugum. Topol-M-flauginni er
ætlað að verða uppistaðan í kjarn-
orkuvopnabúri og vörnum Rússa á
komandi öld.
Sergejev varnarmálaráðherra
tókst að fá samþykki meðráðherra
sinna fyrir því að herinn fengi í
sinn hlut 3,1% af útreiknaðri þjóð-
arframleiðslu, í stað 2,5% eins og
gert hafði verið ráð fyrir í fyrstu.
Jeltsin skotspónn launmorðingja
Rússneska lögreglan sagðist i
gær hafa handtekið mann sem
granaður er um að hafa haft uppi
áform um að ráða Borís Jeltsín,
forseta Rússlands, af dögum.
Jeltsín, sem mætti til vinnu í þrjár
stundir á mánudag og rak þá fjóra
ráðgjafa, er sagður á batavegi.
Hann fór í gær af sjúkrahúsinu,
þar sem hann hefur dvalið vegna
lungnabólgu sl. hálfan mánuð.
Hann flutti í sveitasetur norðan við
Moskvu.
Kraftmeiri, nú með 1400W mótor
Fislétt, aðeins 6.5 kg.
Biðstöðufesting fyrir rör og slöngu.
Og hinn frábæri Nilfisk AirCare®
síunarbúnaður með HEPA H13 síu.
Komdu og skoðaðu nýju
Nilfisk GM-400 ryksugurnar
/?Qnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
i