Morgunblaðið - 15.01.1999, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Menningarárið 2000
hringt inn á
gamlárskvöld
Björk syngur
með fjölþjóð-
legum ung-
mennakór
BJÖRK Guðmundsdóttir hefur
lýst sig reiðubúna til þess að
syngja eigin tónlist með kór
skipuðum ungmennum frá öll-
um níu menningarborgum Evr-
ópu árið 2000 næstkomandi
gamlárskvöld. Viðburðurinn
verður sýndur í beinni útsend-
ingu hérlendis og erlendis.
Stjórnandi kórsins verður
Þorgerður Ingólfsdóttir og Atli
Heimir Sveinsson tónskáld inun
annast útsetningu tónlistar.
Að sögn Þórunnar Sigurðar-
dóttur, stjórnanda Reykjavík
2000, er þetta stærsta sam-
starfsverkefni menningarborg-
anna níu. „Framkvæmdastjóri
menningarborga Evrópu, sem
hefur aðsetur í Brussel, mun
koma hingað til lands seinna í
þessum mánuði og verða með
okkur í því að undirbúa þetta
verkefni, enda er umfangið
gríðarmikið. Kórinn mun koma
hingað tvisvar, fyrst í kringum
gamlárskvöld og svo aftur síðla
sumars árið 2000 þegar hann
mun dvelja hér við æfingar áð-
ur en hann heldur í tónleika-
ferðalag til allra borganna
níu.“
Sendiherrar borga sinna
„Hugmyndin er sú að ungmenn-
in verði eins konar sendiherrar
sinna borga. Það má segja að
það sé lán í óláni að mörg af
fyrirhuguðum samstarfsverk-
efnum borganna hafi lent í ýms-
um hremmingum og jafnvel
dottið upp fyrir og því beina
þeir í Brussel augum mjög að
þessu verkefni.“
Þórunn segir að enn eigi eftir
að fá skriflegt samþykki frá öll-
um sljórnendum hinna borg-
anna fyrir þátttöku í verkefn-
inu og að verið sé að vinna í því
að skipuleggja hlut Bjarkar í
viðburðinum á gamlárskvöld í
samstarfi við umboðsmann
hennar.
--------------
Nítján
árekstrar
á átta tímum
NÍTJÁN árekstrar urðu í Reykja-
vík frá klukkan 7 til 15 í gær. Að
sögn lögreglu urðu ekki teljandi
slys á fólki en eignatjón varð veru-
legt. Mikil hálka var í höfuðborginni
í gær eftir snjókomu aðfaranótt
fimmtudags og frost í gær. Spáð er
norðanátt næstu daga með harðn-
andi frosti.
FRÉTTIR
Opinber heimsókn Halldórs Ásgrímssonar utanrfkisráðherra í Danmörku
Ráðherra kynnt danskt
hugvit og þekking
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristian Linnemann
FORSETI danska þjóðþingsins, Ivar Hansen, tók á móti Halldóri Ásgrímssyni í þinghúsinu.
HUGVIT, vísindi og þekking var á
dagskrá á fyrsta degi opinberrar
heimsóknar Halldórs Asgrímssonar
og Sigurjónu Sigurðardóttur konu
hans í Danmörku í gær, auk heim-
sóknar í danska Þjóðþingið. Skoðuð
voru mannvirki á Kastrup og við
Eyrarsund og Carlsberg-verksmiðj-
an heimsótt.
Nýja álman á Kastrup var skoð-
uð, bæði verslunar- og stjórnsvæði
hennar og síðan haldið að fram-
kvæmdunum við Eyrarsund, þar
sem Soren Langvad verkfræðingur
var einn af þeim sem tóku á móti
utanríkisráðherrahjónunum og
fóruneyti þeirra. Þrátt fyrir brælu
á miðunum var siglt út að tilbúnu
eyjunni í Eyrarsundi, þar sem
jarðgöngin frá Kastrup koma upp
og sjálf Eyrarsundsbrúin mun taka
við. Farið var yfir sjálfar fram-
kvæmdirnar, en einnig hverja þýð-
ingu þær gætu átt eftir að hafa á
mannlíf og efnahagslíf svæðisins.
I Carlsberg-samsteypunni var
bæði kynnt saga fyrirtækisins, sá
stuðningur sem fýrirtækið veitir
menningu og listum og starfsemi
þessa alþjóðlega fyrirtækis, sem
ekki lítur aðeins á sig sem ölgerð,
heldur hugvitsfyrirtæki. í móttöku í
þinghúsinu síðar um daginn tók Iv-
ar Hansen, þingforseti og þingmað-
ur Venstre, systurflokks utanríkis-
ráðherra, á móti Halldóri. Þar hitti
hann auk þess ýmsa aðra leiðtoga
þingsins.
Hittir Danadrottningu í dag
I gærkvöldi sátu hjónin svo
kvöldverð dönsku utanríksráð-
herrahjónanna. í dag hefst dag-
skráin með heimsókn Halldórs til
Margrétar Þórhildar Danadrottn-
ingar, en síðan mun hann heim-
sækja danska Ríkislistasafnið, eiga
viðræður við Niels Helveg Peter-
sen, starfsbróður sinn, hitta blaða-
menn og aðila sem eiga viðskipti við
ísland í móttöku í íslenska sendi-
ráðinu. Á morgun heimsækir utan-
ríkisráðherra verslanir sem selja ís-
lenskar vörur.
Flutningabifreið rann stjórnlaus á hús að Staðarfelli í Dölum
Glerbrotum
rigndi yfir
heimilisfólk
Mjólkurflutningabifreið frá Mjólk-
ursamsölunni rann niður brekku
hjá meðferðarheimili SÁA að Stað-
arfelli í Dölum í gærmorgun og
hafnaði á einu húsanna á bænum
með þeim afleiðingum að rúður
brotnuðu og glerbrotum rigndi inn í
stofu þar sem fólk var samankomið.
Að sögn lögreglunnar í Búðardal
hafði kastað snjóéli á svellrunna
vegi og var því mjög hált í gær.
Bifreiðin var að flytja mjólkurvörur
að bænum og var efst í bröttum af-
leggjara þegar bílstjóri hennar
komst ekki lengra, heldm- spólaði í
brekkunni. Hemlai’ héldu ekki og
fór bíllinn að renna aftur á bak.
Vegna örlítils hliðarhalla rann flutn-
ingabíllinn rólega út af afleggjaran-
um, niður brekku, sem er í stöllum,
og rak afturendann í húsvegg.
Sagði lögreglan að höggið hefði
ekki verið mikið. ÁJklæðning á
bílnum hefði krumpast og bifreiðin
rekist í þrjá litla glugga undir þak-
brún þannig að glerbrot féllu inn í
stofuna. Fram kom að bam hefði
verið í stofunni, en glerið fallið
beint niður og barnið verið það
langt frá glugganum að það sakaði
ekki.
Erfiðlega gekk að draga bílinn
frá húsinu vegna hálkunnar.
Fenginn var veghefill og þegar
keðjum hafði verið komið á öll hjól
flutningabílsins tókst eftir nokkr-
ar atrennur að koma honum aftur
upp sömu leið og hann rann niður.
Magnús Lárusson, forstöðumað-
ur á Staðarfelli, sagði að fjölskyld-
an hefði verið að borða morgunmat
í stofunni sem er sambyggð eld-
húsinu þegar bíllinn skall á veggn-
um. „Það er u.þ.b. fjögurra metra
lofthæð þar sem bfllinn rakst á
vegginn og tankurinn gægðist inn
um glugga upp undir rjáfri. Okkur
brá mikið. Maður veit alltaf af
þessum möguleika. Eg heyrði bfl-
inn fara framhjá húsinu. Skömmu
seinna lenti hann á veggnum og ég
vissi strax hvað var að gerast. Það
hefur stundum munað litlu að bflar
færu þama niður,“ sagði Magnús.
Hann sagði að það hefði rignt
inn glerbrotum og líklega hefði
veggurinn látið undan hefði hrað-
inn verið meiri á bílnum.
Hæstiréttur um ákvörðun viðurlaga af hálfu lögregluyfírvalda
Heimilt að vinna eftir
stöðluðum skrám
SAMKVÆMT dómi Hæstaréttar
sem kveðinn var upp í gær er eðli-
legt að lögregluyfirvöld vinni sam-
kvæmt föstum og stöðluðum skrám
við ákvörðun viðurlaga vegna um-
ferðarlagabrota eins og þeim sem
fram koma í umdeildri reglugerð
nr. 280/1998 um sektir og önnur
viðurlög vegna brota á umferðar-
lögum. Dómstólar séu hins vegar
ekki bundnir við slíkar skrár.
Mál þetta var áberandi í fjölmiðl-
um í fyrrasumar, enda hið fyrsta af
nokkrum sem kærð voru til dóm-
stóla. í málinu var Fjölnir Þor-
geirsson ákærður fyrir umferðar-
lagabrot með því að hafa ekið á 64
km hraða á klst. á mótum Njarðar-
götu og Hringbrautar í Reykjavík
þar sem leyfður hámarkshraði var
30 km á klst. Staðfesti Hæstiréttur
ákvörðun héraðsdóms um sakfell-
ingu, þó að teknu tilliti til vikmarka
við radarmælingar, sem næmu 3
km hraða á klst. Hvað snertir gildi
reglugerðar nr. 280/1998 sagði
Hæstiréttur eðlilegt að lögregluyf-
irvöld ynnu samkvæmt föstum og
stöðluðum skrám, s.s. þeim sem
þar kæmu fram, við ákvörðun við-
urlaga vegna umferðarlagabrota til
að gæta samræmis og jafnræðis við
ákvarðanir sínar. Hins vegar leiddi
af 2. gr. stjómarskrárinnar að
dómstólar yrðu ekki bundnir við
þannig skrár og bæri þeim að meta
viðurlög sjálfstætt á grundvelli um-
ferðarlaga og mætti þá m.a. líta til
ákvarðana lögregluyfirvalda á
þessu sviði.
Vítaverður akstur
að mati dómsins
í dómnum segir að ákærði hafi
ekið á ríflega tvöföldum leyfilegum
hámarkshraða í íbúðai’hverfi, þar
sem götur voru þröngar, gatnamót
varhugaverð og leikskóli barna í
nánd. Þótti akstur þessi mjög víta-
verður en það er skilyrði ökuleyfis-
sviptingar samkvæmt 1. mgr. 101.
gr. umferðarlaga. Því var hafnað
sem ákærði hélt fram að dómvenja
stæði til þess að svipting ökuréttar
kæmi aldrei til fyir en ökuhraði
færi meira en 50 km fram úr leyfð-
um hámarkshraða. Var ákvörðun
héraðsdóms um sviptingu ökurétt-
ar í einn mánuð og greiðslu 25.000
kr. sektar staðfest.
Málið fluttu Bogi Nilsson ríkis-
saksóknari af hálfu ákæruvaldsins
og Tómas Jónsson hrl. íyrir hönd
ákærða.