Morgunblaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999 51 * FRÉTTIR Lífeyrissj óðurinn Framsýn hefur hlotið starfsleyfí ráðuneytis LÍFEYRISSJÓÐURINN Fram- sýn fékk starfsleyfí fjármálaráðu- neytisins þann 17. dese'mber 1998, fyrstur starfandi lífeyrissjóða, seg- ir í fréttatilkynningu sem Morgun- blaðinu hefur borist. Ennfremur segir: „I lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu líf- eyrisréttinda og starfsemi lífeyris- sjóða, sem gildi tóku 1. júlí 1998 er kveðið svo á um að allir starfandi lífeyrissjóðir við gildistöku lag- anna verði að fá starfsleyfi fjár- málaráðuneytisins fyrir 1. júlí 1999 vilji þeir halda áfram starfsemi sinni. Samþykktir sjóðsins sem starfsleyfið byggir á tóku gildi 1. janúar 1999.“ Einnig segir: „Séreignarsjóður Framsýnar tók til starfa 1. janúar sl. Hann tekur við iðgjöldum til séreignarsparnaðar frá sjóðsfélög- um sameignarsjóðsins og öðrum þeim er þess óska. Séreignarsjóð- urinn býður upp á valmöguleika í ávöxtunarleiðum. Lífeyrissjóðurinn Framsýn býð- ur sjóðsfélögum sínum að tengja saman séreignarsparnað og líf- tryggingu. Boðið er upp á líftrygg- ingu frá einni milljón og upp í fjór- ar milljónir á mjög hagstæðum kjörum. Lítil fyrirhöfn er því sam- fara að taka líftrygginguna þar sem engar heilsufarsupplýsingar þarf að veita við töku hennar. Slíkt samspil séreignarsparnaðar og líf- tryggingar er mjög hagstætt ungu fólki sem vill byggja sér og sínum fjárhagslegt öryggi. Lífeyrissjóðurinn Framsýn er stærsti lífeyrissjóður landsins þeg- ar litið er til fjölda sjóðfélaga en um 117 þúsund sjóðfélagar eiga inneign í sjóðnum. Þegar litið er til heildareigna til greiðslu lífeyris er sjóðurinn annar í röðinni með um 37 þúsund milljónir til gi-eiðslu líf- eyris. Þegar Lífeyrissjóðurinn Fram- sýn var stofnaður þann 1. janúar 1996 stóðu níu stéttarfélög að stofnun sjóðsins^ auk Vinnuveit- endasambands Islands. Hlíf og Framtíðin í Hafnarfirði, Félag hársnyrtisveina, Bifreiðastjórafé- lagið Sleipnir, Iðja, félag verk- smiðjufólks og fjögur önnur stétt- arfélög sem nú hafa frá síðustu áramótum sameinast í eitt af stærstu stéttarfélögum landsins en þau eru Dagsbrún, Framsókn, Sókn og Félag starfsfólks í veit- ingahúsum. Avöxtun síðustu ára hjá Lífeyr- issjóðnum Framsýn hefur verið ein sú besta hjá lífeyrissjóðunum eða um 8%. Kostnaður við rekstur sjóðsins hefur farið lækkandi frá stofnun hans og er nú um 0,11% af eignum hans.“ HOLLVINASAMTÖK Háskóla ís- lands og einstök holhdnafélög hafa staðið fyrir fjölda opinna fyrirlestra á undanförnum misserum. Fyrir- lestrarnir hafa verið í lengi'i og skemmiá röðum, svo og stakir. Nú er komið að fyrMestri þar sem tekið er á einu þeirra mála sem hvað mest eru í umræðunni þessa dagana, þ.e. kvótakerfinu. Fiskur, eignir og réttlæti er heiti fyrirlestrar sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor i stjórnmála- fræði, heldur á vegum Hollvinasam- Skíðagöngu- kennsla fyrir almenning NÚ er liðin rétt rúm vika síðan út- breiðsluátak Skíðasambands Is- lands, „Skíðagöngukennsla fyrir al- menning", fór af stað. Þátttaka hefur verið góð á Norðurlandi og veður sæmilegt til þess. Metþátt- taka var á Dalvík en þar mættu 182 og fengu kennslu á gönguskíði. Einnig var góð þátttaka í Eyja- fjarðarsveit um síðustu helgi, segir í fréttatilkynningu. „Helgina 16.-17. janúar nk. verð- ur Skíðahelgin á Akureyri haldin í Hlíðarfjalli við Akureyri. Þar gefst Akureyringum kostur á að fá kennslu á gönguskíði sér að kostn- aðarlausu. Skíðasamband Islands hefur til umráða útbúnað fyrir 65 manns sem einnig er lánaður út endurgjaldslaust við kennsluna. Kennslan mun hefjast báða dag- ana kl. 14 og verður kennt í Hlíðai-- fjalli. Akureyringar hafa á síðustu árum komið upp frábærri aðstöðu til skíðagönguiðkana og státa nú af 5 km langri upplýstri göngubraut í Hlíðarfjalli. Auk þess er fullkomið taka Háskóla íslands laugardaginn 16. janúar nk. í Gyllta salnum á Hótel Borg og hefst hann klukkan þrjú síðdegis. Þar mun Hannes Hólmsteinn mæta gagnrýni Þorsteins Gylfasonar heimspekiprófessors á kenningar lagaprófessoranna Sigurðar Líndals og Þorgeirs Örlygssonar um eðli veiðiheimilda og túlkun þjóðareign- arákvæðis laga um stjórn fiskveiða. Kenningarnar hefur Þorsteinn sett fram í bókinni Réttlæti og ranglæti. Síðan mun Hannes Hólmsteinn gönguhús til staðar þar sem fólk getur slappað af og fengið sér kaffísopa eftir erfiði dagsins. Allir krakkar 12 ára og yngri sem mæta í skíðagöngukennsluna þessa helgi fá gjafakort í Skíðaskóla SRA frá Skíðaráði Akureyrai’. Samhliða skíðagöngukennslunni ætlar Skíðaráð Akureyrar að efna til maraþonskíðagöngu, sem mun ræða nýgenginn dóm Hæstai’éttar um að úthlutun veiðileyfa stríði gegn jafnræðisreglu og atvinnufrelsisá- kvæði stjórnarskrárinnar. Þor- steinn Vilhjálmsson, prófessor í eðl- isfræði og vísindasögu, mun fiytja andmæli við erindi Hannesar. Fund- arstjóri verður Steingrímur Her- mannsson sem á sæti í stjórn Holl- vinasamtakanna. Að fyrirlestrinum loknum verða fyrirspurnir og umræður. Fyrirlest,- urinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. hefjast kl. 15 á laugardag og standa í einn sólarhring. Með því vilja þeir vekja athygli á skíða- gönguíþróttinni sem og þeirri að- stöðu sem komið hefur verið upp á svæðinu. Fólk frá SRA mun ganga þessa göngu og verður gengið stanslaust þennan sólarhring," segii’ ennfremur í fréttatilkynn- ingu frá Norrænugreinanefnd SKÍ. Fyrirlestur um kvótakerfíð A U GLÝ5I N G A R flHHH FUMDIR/ MANNFAGNAÐUR Hestamannafélagið Fákur Framhaldsaðalfundur Hestamannafélagsins Fáks verður haldinn fimmtudaginn 21. janúar nk. kl. 20.00. Dagskrá: 1. Lagabreytingar. 2. Samvinna við Víðidalsfélagið um umgengn- isreglur á svæðinu o.fl. 3. Málningarmál. 4. Tillaga um stofnun húseigendafélags í Faxa- bóli. 5. Önnur mál. Stjórnin. FELAGSSTARF Kópavogsbúar — opið hús Opið hús er á hverjum laug- ardegi mílli kl. 10 og 12 í Hamraborg 1,3. hæð. Árni M. Mathiesen alþingismað- ur og Halla Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar og for- maður húsnæðisnefndar, verða í opnu húsi laugar- daginn 16. janúar. Allir bæjarbúar eru vel- komnir. Heitt kaffi á könn- unni. Miðar á þorrablót sjálfstæðisfélagann í Kópavogi sem haldið verður laugardaginn 23. jan. nk. verða til sölu milli kl. 10—14. Siálfstæðisfélaq Kópavoqs. V Vörður — Fulltrúaráð sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík Aðalfundur verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu laugar- daginn 23. janúar næstkomandi kl. 13.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Niðurstaða stjórnar um aðferð við val á fram- bjóðendum vegna alþingiskosninganna 8. maí næstkomandi. 3. Ávarp formanns Sjálfstæðisflokksins og for- sætisráðherra, Davíðs Oddssonar. Stjórnin. ATVINNUHÚ5NÆÐI Verslunarhúsnæði til leigu f=í--------—íwf——n— 5 < •u T_ jrLEmja. l- gSwgll’ifePÍM ~—! i&aLi. J RTföa Laustertil leigu 120 m2 verslunarhúsnæði í verslunarmiðstöðinni í Nóatúni 17. Upplýsingarveittar í síma 551 6199 og í síma 581 1284 á kvöldin. SMAAUGLYSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1 = 1791158'/2= Um. Frá Guðspeki- félaginu Ipgólfsstræti 22 Askriftarsími Ganglera er 896-2070 í kvöld kl. 21 heldur Jóhann Ax- elsson, prófessor, erindi um lif- andi klukkur I húsi félagsins, Ing- ólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15—17 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjón Gísla V. Jóns- sonar, sem ræðir um hinn hljóða hug. Á sunnudag kl. 17—18 er hug- leiðingarstund með leiðbeining- um fyrir almenning. Á fimmtudögum kl. 16.30— 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Guðspekifélagið hvetur til sam- anburðar trúarbragða, heim- speki og náttúruvisinda. Félagar njóta algers skoðanafrelsis. \r---7/ KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fyrsti fundur ársins í AD KFUM verður í kvöld kl. 20.30. Gestur fundarins er frú Vigdís Finnboga- dóttir, fv. forseti Islands, og segir hún frá störfum sínum að mannúðar- og menningarmálum erlendis. Upphafsorð: Sr. Halldór Reynis- son. Hugleiðing: Sr. Valgeir Ástráðsson. Konur eru boðnar velkomnar á fundinn. Lykilatriði Viltu bætast í hóp 27 milljóna manna, sem náð hafa frábærum árangri I megrun, bættri heilsu, aukinni orku og vellíðan? Hringdu og fáðu nánari upplýs- ingar og frian bækling. Uppl. í s. 561 3312 og 699 4527. KENNSLA FERÐAFÉLAG ® ÍSLANDS MORKINNI 6 - SlMI 568-2533 Sunnudagur 17. janúar kl. 10.00 Nýársferð f Herdísar- vík. Farið á slóðir Einars Ben. skálds með dr. Páli Sigurðssyni, prófessor, er mun segja frá dvöl hans í Herdísarvík. Farið verður á ströndina og litið inn í húsið. Kl. 11.00 Skíðaganga í nágr. Reykjavíkur. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Þorraferð og þorrablót Ferða- félagsins verður í Borgarfirði 30,—31. janúar. Gist á Hótel Reykholti. Pantið tímalega. Þýskunámskeið Germaniu hefjast 18. janúar. Boðið er upp á byrjendahóp, framhaldshópa og talhópa. Upplýsingar í síma 551 0705 frá kl. 17-19.30. EINKAMÁL Vill kynnast íslenskri konu Bandarískur, myndarlegur mið- aldra maður, í góðu starfi, vill kynnast fallegri, gáfaðri og að- laðandi íslenskri konu, (aldur 21—39), með vinskap, giftingu og fjölskyldu í huga. Getur heim- sótt hana á íslandi (á vini hér). Sendu svar merkt: „B — 7316" á afgreiðslu Mbl. með lýsingu á sjálfri þér, áhugamálum, metnaði og framtíðarplönum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.