Morgunblaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999 39
UMRÆÐAN
Strákagöng-i js1
íarðgöng
7,8km
Jarðgöng
á Tröllaskaga
í GREIN sem birt-
ist í Morgunblaðinu
18. nóvember síðastlið-
inn benti undirritaður
á skynsamlegri og arð-
samari vegtengingu
með jarðgöngum á
milli Sigluíjarðar og
Ólafsfjarðar en áður
hefur komið fram op-
inberlega. Þessi veg-
tenging er úr Holtsdal
í Fljótum að Kvíabekk
í Olafsfírði. Sparnaður
getur numið allt að 2,2
miljörðum kr. Að
kvöldi sama dags lýsti
samgönguráðherra því
yfír í fréttatíma sjón-
varps að búið væri að ákveða veg-
tengingu með jarðgöngum á milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar um
Héðinsfjörð. Að vísu gat ráðherra
þess að ekki yrði hægt að ganga
formlega frá þeirri ákvörðun í tíð
þessarar ríkisstjórnar. I byrjun
desember kom síðan yfirlýsing frá
Vegagerðinni í útvarpsfréttum um
Samgöngur
Samkvæmt útreikning-
um er kostnaður við
vegtengingar með jarð-
göngum úr Fljótum til
Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar, segir Trausti
Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðai' um Héðins-
fjörð _íýrst afdráttai'-
laus. I septembermán-
uði 1996 rituðum við
hjón vegamálastjóra
og viðkomandi sveitar-
stjómum bréf þar sem
við bentum á framtíð-
arlausn, sem gæfi
meiri arðsemi í sam-
göngumálum hér á ut-
anverðum Trölla-
skaga. Framtíðar-
lausnin fólst í gerð
jarðganga úr Fljótum
til Ólafsfjarðar, eins
og áður hefur komið
fram, og einnig veg-
tengingu með jarðgönum úr
Nautadal í Fljótum í Hólsdal í
Siglufirði. Eftir sorglega reynslu af
náttúruhamförum vegna snjóflóða
á Vestfjörðum á síðustu árum hafa
áherslur í snjóflóðaáhættumati
breyst mjög mikið síðan 1996. Af
þeim sökum hafa fyrirhuguð jarð-
göng á vegtengingunni um Héðins-
fjörð verið færð til þannig að lengd
og kostnaður við gerð þeirra hefur
aukist umtalsvert. Samkvæmt
meðfylgjandi útreikningum kemur
í ljós að okkar tillögur um vegteng-
ingar með jarðgöngum úr Fljótum
til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar eru
ekki dýrari en vegtengingin um
Héðinsfjörð og uppbygging Lág-
heiðaivegai’.
Draumalausn sem allir hags-
munaaðilar geta verið sáttir við
Trausti
Sveinsson
tengingu með jarðgangagerð úr
Fljótum í Ólafsfjörð. og Siglufjörð
era yfirgnæfandi þegar hagsmunir
allra íbúa á þessu svæði eru hafðir í
huga. Nefna má nokkur dæmi:
1. Héðinsfjörður verður áfram
ósnortin náttúruperla.
2. Vegtengingin frá Siglufirði að
Ketilási verður aðeins 10 km.
Styttist um u.þ.b. 15 km.
3. Núverandi vetrarakstur um Al-
menninga er oft viðsjárverður
og hættulegur. Einnig er vegur-
inn dýr í rekstri vegna snjó-
moksturs og viðgerða sökum
jarðskriðs. Með jarðgöngum frá
Siglufirði inn í Fljót hverfa þessi
vandamál.
4. Ótvíræður kostur fyrir Siglfirð-
inga er að losna við óþægilega
þungaumferð um bæinn, sem
óhjákvæmilega fylgir vegteng-
ingunni um Héðinsfjörð.
5. Vegleiðin frá Ólafsfirði og Dal-
víkurbyggð í Skagafjörð og suð-
ur verður 20 km styttri og auð-
veldari yfirferðar á vetrum en
Héðinsfjarðarleiðin.
6. Landbúnaðarbyggðin í Ólafsfirði
nýtur betri þjónustu í snjó-
mokstri fram að Kvíabekk á
vetrum (9 km).
7. Vegleiðin frá Siglufirði til Ólafs-
fjarðai' um Fljótin verður aðeins
15 km lengri en Héðinsfjarðar-
leiðin. Með þessari lausn fær
Siglufjörður öruggar og góðar
samgöngur, ekki bara austur inn
í Eyjafjörð, heldur líka vestur í
Skagafjörð og suður.
8. Búsetuskilyrði í Fljótum, sem og
á öllu svæðinu, munu batna til
muna vegna bættra samganga.
Siglufjörður, Ólafsfjörður og
Fljót munu liggja miðsvæðis á
nýju atvinnu- og þjónustusvæði
sem nær frá Hofsósi til Dalvík-
ur.
9. Fljótin, sem áður voru skilgreind
sem jaðarbyggð í Skagafirði,
verða skyndilega miðsvæðis á
utanverðum Tröllaskaga.
Byggðaþróunin getur snúist við.
Endurskoðunar er þörf - nýtt
arðsemismat nauðsynlcgt
Mikil fækkun hefur orðið á íbú:
um Fljótanna á síðustu árum. I
umræðunum sem fram fóru fyi-ir
sameiningu sveitarfélaganna í
Skagafirði nú í vor var því lofað að
hið nýja sameinaða sveitarfélag
myndi gera allt sem hægt væri til
að tryggja búsetu í jaðarbyggðum
þess, svo sem í Fljótum. Það er því
vel við hæfi nú að fara þess á leit
við sveitarstjóm Skagafjarðar-
byggðar að hún kanni til hlítar þau
rök sem fram hafa verið sett fyrir
réttmæti þessara tillagna og noti
vel þau tækifæri sem bjóðast til
eflingar og hagsbóta fyrir búsetu í
Fljótum. Það eru einnig vinsamleg
tilmæli til þingmanna kjördæmis-
ins að þeh' taki þessar áætlanir í
samgöngumálum til endurskoðun-
ar. Þetta er eitt mesta hagsmuna-
mál Skagfirðinga sem upp hefur
komið fyrr og síðar.
Sveinsson, ekki meiri
en við vegtengingu um
Héðinsfjörð.
að samkvæmt nýlokinni arðsemis-
úttekt væri uppbygging „vetrar-
vegar“ yfir Lágheiði og vegtenging
með jarðgöngum frá Siglufirði til
Ólafsfjarðar um Héðinsfjörð arð-
söm fjárfesting þegai' tillit væri
tekið til allra félagslegra þátta á
því svæði er samgöngubótanna
nyti mest. Samkvæmt öruggum
heimildum var þessi yfirlýsing gef-
in út án þess að mín tillaga væri
tekin með til samanburðar í arð-
semisúttektinni. Þetta segir okkur
sem fylgjumst með úr fjarlægð að
pólitískt samkomulag sé í fæðingu
um þessar vegaframkvæmdir.
Þegar litið er yfii- meðfylgjandi
kort sést fljótt að kostimir við veg-
Höíundur er bóndi í Bjarnnrgili í
Fljótuni.
Vegtenging #: Fljót—Ólafs-
fjörður(Holtsdalur-Kvíabekkur)
Jarðgöng 7,85 km 2.800 m.kr.
Vegskálar 0,3 km 180m.kr.
Vegir_______4,5 km 120m.kr.
Samtals 3.100 m.kr.
Vegtenging: Fljót-Siglufjöröur
(Nautadalur-Hólsdalur)
Jarðgöng 4,1 km 1.470 m.kr.
Vegskálar 0,3 km 180m.kr.
Vegir_______5,0 km 120 m.kr.
Samtals 1.770 m.kr.
ALLS: 4.870 m.kr.
Vegtenging 0: Siglufjörður-
Héðinsfjörður-Ólafsfjörður
Jarðgöng 10,2 km 3.700 m.kr.
Vegskálar 0,6 km 360 m.kr.
Vegir_______4,3 km IQOm.kr.
Samtals 4.160 m.kr.
Lágheiði 700 m.kr.
Samtals 4.860 m.kr.
Vegageröin: Forsendur vegna
kostnaðarútreikninga
Jarðgöng 360 m.kr./hver km
Vegskálar 600 m.kr./hver km
Vegir 25 m.kr./hver km
Framtíðarlausnin frá
1996 gefur meiri arðsemi
I umræðum um sameiningu
sveitarfélaga við utanverðan Eyja-
fjörð fyrir rúmum þremur árum
varð krafan um jarðgöng á milli
AUGLYSINGADEILD
Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is
mbl.is
\LLTXKf= 6/777/VM£7 fJÝTrT~
Prófkjör
Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999.
Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is
Kjósum
Vilhjálm H.
Vilhjálmsson
Sverrir Jakobsson sagnfræðingur
skrifar:
Sjálfstæðis-
flokkurinn er bú-
inn að stjórna
mennta- og at-
vinnumálum ís-
lensku þjóðarinn-
ar síðustu átta ár-
in. Þennan tíma
hafa kjör náms-
manna verið skert
svo um munar og Háskóli íslands
verið í fjársvelti. Skóli sem svo er
ástatt um stendur ekki undir þeim
væntingum og metnaði sem Islend-
ingar hljóta að gera til Háskólans
sem æðstu menntastofnunar þjóð-
arinnar.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hef-
ur reynslu af málefnum Háskólans
úr störfum sínum sem formaður
Stúdentaráðs og því maður sem
kemur með víðtæka þekkingu á
málefnum menntastofnana þjóðar-
innar í stjórnmálin. Styðjum Vil-
hjálm í 3. sæti Alþýðubandalagsins
í prófkjöri Samfylkingarinnar og
tryggjum þannig að forgangsraðað
verði í þágu menntunar við skipt-
ingu ríkisútgjalda á Alþingi.
► Meira á Netinu
Sverrir
Jakobsson
Albert á
Austurvöll
Jón Gunnar Gunnarsson, Garðsbiíð 1,
Homafirði, skrifar:
Alberti Ey-
mundssyni hef ég
verið samferða í
góð 40 ár. Aldrei
hef ég séð hann
skara eld að eigin
köku heldur hefm'
hann í gegnum tíð-
ina tekið að sér
ýmis störf og
verkefni er hafa
verið í þágu heildarinnar umfram
allt og mörg verið frekar vanþakk-
lát. Fómíysi hans og elja við að
hlúa að íþróttastarfi hér á Höfn er
vel kunn í íþróttahreyfíngunni.
Sveitarstjórnarstörf hans þekkja
allir þeir er hafa starfað á þeim
vettvangi síðustu áratugina. Eg
man ekki til að andstæðingar hans
hafi í nokkurn tíma efast um heið-
arleik, sanngirni og dómgreind
hans við ákvarðanatöku, ekki einu
sinni eftirá þegar við vitkumst
ávallt til mikilla muna.
Ég er ekki í vafa um að Albert
yrði einn af meiri sanngirnis- og
réttlætisfulltrúum er á Alþingi
setjast að loknum kosningum.
Verk hans í gegnum tíðina bera öll
þess merki.
►Meira á Netinu
Jón Gunnar
Gummrsson
Austurlands-
fjórðung með
i spilinu
Hrafnhildur Borgþórsdóttir, verslun-
armaður, skrifar:
Ég skora á sjálf-
stæðiskonur og
sjálfstæðiskarla á--
Austurlandi að
brjóta blað í sögu
Sjálfstæðis-
flokksinns á ís-
landi með því að
kjósa Ambjörgu
Sveinsdóttur í
fyrsta sæti í prófkjörinu á morgun.
Kona hefur aldrei skipað efsta
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins til
alþingiskosninga, og með því að
kjósa Arnbjörgu verða tvær flugur
slegnar í einu höggi. Hún hefur
fjögurra ára reynslu sem þingmað-
ur, og hefur staðið sig með prýði og
reynslan er mjög dýrmæt.
Kjósið Arnbjörgu Sveinsdóttur
til að vera fyrstu konuna sem skip-
ar efsta sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins til alþingiskosninga.
►Meira á Netinu
Hrafnhildur
Borghórsdótíir
Ungur maður
með reynslu!
Gunnar Alexander Ólafsson, fyrrver-
andi formaður Sambands ungrajafn-
aðarmanna, skrifar:
Það er mér mik-
ið gleðiefni að vita
að meðal þátttak-
enda í prófkjöri
Samfylkingarinn-
ar í Reykjavík er
ungur maður,
Magnús Árni
Gunnar MagnÚSSOn.
Alexander Magnús Árna hef
Olafsson ég þekkt J nokkur
ár og tel mig vera ríkari mann fyrir
vikið.
Ég kynntist Magnúsi Ái-na þeg-
ar hann gegndi starfi sínu sem for-
maður Sambands ungra jafnaðar-
manna, en það gerði hann af mikl- •,
um áhuga og átti auðvelt með að fá
fólk með sér til að takast á við
verkefni. Einnig naut hann trausts
langt út fyrir raðir ungra jafnaðar-
manna og var það án efa viður-
kenning á starfi hans innan Al-
þýðuflokksins að á flokksþingi Al-
þýðuflokksins árið 1994 var Magn-
ús Árni settur yfir utanríkismálin
ásamt Jóni Baldvini sjálfum.
Magnús Ámi er sá maður sem á
heiðurinn að því að hafa skrifað
ályktun um aðild að Evrópusam-
bandinu, sem síðar var samþykkt á
Sambandsþingi SUJ 1990. Þar með
var aðild að Evrópusambandinu
komin í fyi'sta sinn í stefnu stjóm-
málasamtaka.
► Meira á Netinu