Morgunblaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frávisunarkrafa ríkislögmanns í máli Sigurðar Gizurarsonar
Engar forsendur fyrir
framhaldi skaðabótamáls
Morgunblaðið/Ásdís
SIGURÐUR Gizurarson, fyrrverandi sýslumaður á Akranesi og hæstaréttarlögmaður, flytur mál sitt sjálfur í
Héraðsdómi Reykjavíkur og segir að verði skaðabótamáli hans vísað frá eins og ríkislögmaður krefst verði
ráðherrum opnuð leið til að brjóta stjórnarskrá lýðveldisins. Dómari er Hjörtur O. Aðalsteinsson, sem kveð-
ur upp úrskurð sinn 1. febrúar.
RÍKISLÖGMAÐUR, Jón G. Tóm-
asson, og Sigurður Gizurarson,
fyi-rverandi sýslumaður á Akra-
nesi, tókust á í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, þegar ríkislög-
maður ílutti kröfu um frávísun
skaðabótamáls Sigurðar á hendur
ríkinu fyrir að flytja sig úr embætti
sýslumanns á Akranesi til Hólma-
víkur síðastliðið sumar. Ríkislög-
maður hafði sýknu ríkisins til vara.
Frávísunarkröfuna byggði ríkis-
lögmaður m.a. á því, að úrskurður
dómsins skipti ekki máli fyrir stöðu
Sigurðar þar sem hann hefði ekki
lengur lögvarinna hagsmuna að
gæta þar sem hann hefði valið
lausn frá störfum í stað þess að
hlíta ákvörðun ráðuneytisins og
flytjast til Hólmavíkur. Sagði hann
að enginn skynsamlegur tilgangur
væri í því að halda málinu fram af
hálfu Sigurðar þar sem úrskurður-
inn myndi ekki hafa raunhæft gildi
fyrir réttarstöðu hans, enda væri
sú forsenda skilyrði fyrir úrskurði
dómstóla. Gagnrýndi hann einnig
framsetningu málsins af hálfu Sig-
urðar og sagði að í stefnu hans
væri ekki minnst á atburði sem
gerðust á 25 daga tímabili, frá því
þegar ráðherra tilkynnti Sigurði
flutninginn til þess þegar skaða-
bótamál hans var þingfest. Hafði
þá m.a. komið fram að Sigurður
hefði að eigin ósk valið lausn frá
störfum með ríflegar eftirlauna-
greiðslur og þar með hefði ríkið
fallið frá ákvörðun sinni um flutn-
ing hans til Hólmavíkur. Teldist
framsetning Sigurðar ekki í sam-
ræmi við einkamálalög þar sem
kveðið er á um skýrleika svo sam-
hengi verði ljóst. Þá væri sjö millj-
óna króna bótakrafa Sigurðar
órökstudd í stefnu hans og hvergi
væru viðhlítandi rök fyrir staðhæf-
ingum um miska er hann varð fyrir .
vegna ákvörðunar ríkisins.
Ólögleg ákvörðun
dómsmálaráðherra
Sigurður svaraði fyrir sig og
sagði að hann hefði verið skipaður
sýslumaður með skipunarbréfi frá
forseta Islands og forseti þyiíti að
undirrita ákvörðun ráðherra um
flutning hans til Hólmavíkur. Það
hefði hann ekki gert og því hefði
dómsmálaráðherra brotið 18. og 19.
grein stjómarskrárinnar með
ákvörðun sinni. Sagði hann að mál-
ið varðaði ekki bara einn lítinn
sýslumann heldur grundvallaratriði
stjómarskrárinnar. Vitnaði hann til
danska lögfæðingsins Pauls Ander-
sens, sem sagði að flutningur emb-
ættismanns til í embætti með þeim
hætti sem hér hefði verið fram-
kvæmdur jafngilti brottvikningu.
Sagði Sigurður að ef dómurinn
féllist á frávísunarkröfu ríkislög-
manns hefði ráðherram verið opn-
uð leið til að brjóta stjórnarskrá
lýðveldisins. Um þann þátt er varð-
aði ákvörðun sína að fara á eftir-
laun í stað þess að una ákvörðun
ráðherra og fara til Hólmavíkur
sagði Sigurður að sá kostur hefði
valdið sér stórfelldu tjóni, sem og
tveir aðrir nauðungarkostir, sem
honum stóðu til boða í stöðunni.
Sýslumannslaun Sigurðar á
Akranesi vora 450-500 þúsund
krónur á mánuði en eftirlauna-
greiðslur sem hann fær nú era 180
þúsund krónur á mánuði.
Dómari er Hjörtur 0. Aðalsteins-
son og mun úrskurður hans um
hvort málinu verður vísað frá eða
dómtekið verða kveðinn upp 1.
febrúar.
Húsnæði Gjald-
heimtunnar selt
Eimskip hef-
ur lýst áhuga
á húsinu
HÚSNÆÐI Gjaldheimtunnar í
Reykjavík við Tryggvagötu verður
auglýst til sölu næsta haust en hús-
næðið er í eigu ríkissjóðs. Að sögn
Þórhalls Arasonar, skrifstofustjóra
í fjánnálaráðuneytinu, hefur Eim-
skipafélag Islands hf. sýnt áhuga á
húsnæðinu sem er við hhð Eim-
skips.
Gjaldheimtan var lögð niður í lok
ársins 1997 og tók embætti Toll-
stjórans í Reykjavík þá við þeirri
innheimtu sem Gjaldheimtan hafði
annast. Hluti af þeirri starfsemi er
þar enn. Einnig er þar afgreiðsla
Ti-yggingastofnunar ríkisins á
meðan breytingar fara fram á hús-
næði hennar.
Að sögn Þórhalls er gert ráð fyr-
ir að húsnæði verði rýmt í Tollhús-
inu með haustinu og flyst þá inn-
heimtustarfsemin sem nú er í
gjaldheimtuhúsinu þangað. Þá
verður húsið væntanlega auglýst til
sölu á almennum markaði.
---------------
Prófkjör Samfylkingar
á Reykjanesi
Magnús Jón í
framboð
MAGNÚS Jón Árnason, fyrrver-
andi bæjarstjóri í Hafnarfirði, hef-
ur ákveðið að taka þátt í prófkjöri
Samfylkingar á Reykjanesi. Hann
segir í yfirlýsingu, sem hann sendi
frá sér í gær, að hann stefni á eitt
af efstu sætunum. Magnús Jón hef-
ur tekið virkan þátt í að leiða fé-
lagshyggjuflokkana saman í eitt
framboð.
Frestur til að tilkynna þátttöku í
prófkjörinu rennur út í dag. Próf-
kjörið fer fram fyrstu helgina í
febrúar.
Athugasemd
vegna próf-
kjörsgreina
í GREINUM um prófkjör
Framsóknarflokksins í Norð-
urlandskjördæmi vestra og
Sjálfstæðisflokksins í Austur-
landskjördæmi sem birtust í
Morgunblaðinu í gær og fyrra-
dag er sagt frá afstöðu manna
til einstakra frambjóðenda á
þann hátt sem ég undirritaður
blaðamaður get ekki staðið
við.
Annars vegar er um að
ræða fullyrðingu um að
Þórólfur Gíslason kaupfélags-
stjóri og fleiri á skrifstofum
kaupfélagsins séu stuðnings-
menn Ama Gunnarssonar.
Þórólfur hefur gert athuga-
semd við þessi ummæli eins og
fram kom í blaðinu í gær.
Hins vegar er um að ræða
eftirfarandi orð í grein um
prófkjör Sjálfstæðisflokksins á
Austurlandi: „Forystumenn
flokksins í kjördæminu skipt-
ast á milli þeirra [Ambjargar
og Alberts] en þó virðist meiri-
hluti formanna sjálfstæðisfé-
laganna hallast að stuðningi
við Albert Eymundsson."
Því miður hafa heimildir
mínar ekki reynst nægilega
traustar og ég biðst velvirð-
ingar á því að hafa skrifað um
afstöðu manna með þessum
hætti í umræddum greinum.
Helgi Bjarnason
Athugasemdir dansks farþega við flugferð
Svör Flugmálastjórnar
og Flugleiða stangast á
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„ÁSTÆÐAN fyrir því að ég skrifaði bréf til
Flugleiða og Flugmálastjórnar og óskaði skýr-
inga var að mér fannst atburðurinn í umræddri
flugferð langt handan við það sem eðlilegt getur
talist í annars alveg eðlilegu farþegaflugi, þó ég
geri mér líka grein fyrir að það er erfitt að skýra
nákvæmlega frá því sem gerðist," segir Joachim
Lahav verkefnisstjóri. „Ég hef aldrei áður lent í
neinu þessu líku og heldur aldrei áður gert fyrir-
spum af þessu tagi.“
I Morgunblaðinu á miðvikudag var skýrt frá
því að hann hefði gert athugasemdir við flugferð
með Flugleiðum 28. september. I svari við fyrir-
spurnum blaðsins segir Jens Bjamason, flug-
rekstrarstjóri Flugleiða, að flugstjórinn í um-
ræddu flugi hafi skömmu síðar farið í sjúkraleyfi,
sem ekki tengist fluginu. Af bréfi sem Lahav
fékk frá Flugmálastjórn virðist hins vegar sem
tengsl séu milli atviksins og þess að umræddur
flugstjóri hafi ekki flogið síðan. Fyrirspurn sína
sendi Lahav bæði Flugleiðum og Flugmála-
stjórn, en hefur aðeins fengið svar frá Flugmála-
stjórn.
Langt handan við
eðlilegt útsýnisflug
í bréfi 1. október til Flugleiða og Flugmála-
stjórnar segir Lahav að flugstjórinn hafi um kl.
12.35 tilkynnt að eftir fimm mínútur yrði flogið
yfir Reykjavík og síðan lent í Keflavík.
„Nokkram mínútum síðar, meðan flogið var yfir
Reykjavík, og án viðvöranar tók flugstjórinn
ki-appa hægri beygju, um leið og hann lækkaði
flugið og augnabliki síðar tók hann krappa vinstri
beygju, sem stóð lengi yfir, meðan vélin lækkaði
flugið ört. Við flugum yfir Reykjavíkurflugvöll og
áfram yfir sjóinn, alltaf á leiðinni niður og í
krappri vinstri beygju. Flugvélin var komin mjög
nálægt yfírborði sjávar. Flugstjórinn tók þá
stefnuna upp á við í viðeigandi hæð, lækkaði síð-
an flugið og lenti í Keflavík." Lahav lýsir því síð-
an að andrúmsloftið í flugvélinni hafi verið
þrungið spennu og margir farþegar mjög hrædd-
ir.
„Við hliðina á mér sat kona, sem þrýsti að sér
barni sínu og spurði ákaft hvað væri um að vera.
Sjálfum var mér mjög brugðið og sama var með
fleiri," segir Lahav í samtali við Morgunblaðið.
Flugmaðurinn gaf að sögn Lahavs enga skýringu
á atvikinu í hátalarann. Eftfr lendingu safnaðist
hópur farþega fyrir í ílugstöðinni til að spyrjast
fyrir um hvað gerst hefði og að því spurði Lahav
flugstjórann. „Við fengum skyndilega beiðni um
myndatöku frá jörðu,“ svaraði flugmaðurinn eftir
því sem Lahav man best. Flugstjórinn var að
sögn Lahavs brosandi, glaður og ánægður og bar
þess engin merki að neitt hefði komið fyrir.
Vildi vita hvernig flugmaðurinn
upplifði atburðinn
Um mánuði eftir fyrirspurn sína fékk Lahav
svar frá Flugmálastjórn um að málið væri í at-
hugun. Það tæki tíma því einn þeirra er viðriðinn
væri málið væri í leyfi, en ekki var sagt að það
væri flugstjórinn. Eftir að hafa ítrekað fyrir-
spurn sína fékk hann svo svar 21. desember frá
Flugmálastjórn, þar sem sein svör eru afsökuð.
Einnig segir: „Hér með tilkynnist að flugmaður í
flugi FI 213 frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur
28. september 1998 var leystur undan allri flug-
skyldu eftir það flug og hefur ekki verið við störf
síðan. Athugun á áðurnefndu flugi stendur enn
yfir.“
Af svarinu virðist sem samband sé milli áður-
nefnds atviks og þess að flugmaðurinn hafi ekki
verið við störf síðan, en í samtali við Morgunblað-
ið sagði Jens Bjarnason flugstjórann hafa farið í
sjúkraleyfi skömmu eftir atburðinn, en það
tengdist ekki umræddu fiugi. Lahav hefur enn
ekki fengið formlegt svar um að rannsókn væri
lokið og frá Flugleiðum hefur hann aldrei heyrt.
„Mér skilst á frétt í Morgunblaðinu að hvorki
starfsmaður Flugleiða né Flugmálastjómar hafi
neitt við atvikið að athuga," segir Lahav, sem
tekur undir að vissulega geti útsýnisflug verið
ánægjulegt sé allt með felldu. „Ég hafði ekki á
tilfinningunni að flugvélin væri undir fullri stjórn
þessar mínútur yfir Reykjavík, en treysti þó orð-
um Flugleiða og Flugmálastjórnar um að öryggi
farþega hafi ekki verið ógnað. Vel má vera að
engar reglur hafi verið brotnar, en kjarni málsins
er að ekki má fljúga þannig að farþegum finnist
þeir vera í hættu. Það er hægt að gera margt
rangt áður en kemur að hættumörkum, en ég
vildi gjarnan vita hvernig flugmaður vélarinnar
sér atburðinn."