Morgunblaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Stjdrnarher Sierra Leone hefur náð Freetown á sitt vald
Uppreisnarmenn
lýsa yfir vopnahléi
Abidjan, Freetown, Conakry, Róm, Genf. Reuters.
SAM Bockarie, leiðtogi hersveita
uppreisnarmanna í Sierra Leone,
sagði í gær að sveitir sínar myndu
frá og með mánudegi hefja vopna-
hlé sem vara myndi í eina viku. „Að
vikunni liðinni, og ef leiðtoga okkar
Foday Sankoh hefur ekki verið
sleppt úr haldi, þá munum við hefja
sókn okkar á nýjan leik,“ sagði
Bockarie í samtali við Reuters-
fréttastofuna.
Var greint frá því í Róm í gær að
uppreisnarmennirnir hefðu tekið
erkibiskup kaþólsku kirkjunnar í
Freetown í gíslingu.
Uppreisnarmenn höfðu fyrr um
daginn lýst bjartsýni sinni á að San-
koh, fangelsuðum leiðtoga þeirra,
yrði sleppt úr haldi innan skamms
og myndi þá vopnahlé fylgja í kjöl-
farið. Beðið var viðbragða Ahmads
Tejans Kabbahs, forseta Sierra Le-
one, við tilboði Sankohs frá því í
fyi-radag að boða til vopnahlés gegn
því að samtök uppreisnaimanna
hlytu viðurkenningu sem stjórn-
málaflokkur og honum sjálfum yrði
sleppt úr haldi og leyft að halda til
lands að eigin vali, sennilega Burk-
ina Faso.
Sankoh hefur verið í haldi stjórn-
arhersins í Sierra Leone í tvö ár og
var dæmdur til dauða í október síð-
astliðnum fyrir landráð.
Hersveitir Efnahagsbandalags
Vestur-Afríkuríkja (ECOWAS),
sem að mestu eru skipaðar níger-
ískum hermönnum, hafa nú náð öll-
um völdum í Freetown, höfuðborg
Sierra Leone, á nýjan leik en átta
dagar eru síðan uppreisnarmenn
gerðu áhlaup á borgina. Greindi
fréttamaður Reuters frá því að lík
lægju sem hráviði í miðborginni og
margar byggingar væru rústir ein-
ar eftir átök undanfarinna daga,
þ.á m. höfuðstöðvar Sameinuðu
þjóðanna og sendiráð Nígeríu.
Sögðust talsmenn Rauða krossins
hafa flutt allt starfslið sitt á brott
frá Freetown að beiðni stjórnvalda.
Vonast þeir hins vegar til að geta
snúið fljótlega aftur til að veita
borgarbúum bráðnauðsynlega að-
stoð, en margir eru særðir eftir
átökin í borginni eða hafa glatað
heimilum sínum.
Tveggja flokka rikisstjórn mynduð í Japan
Frjálslyndi flokkurinn
fékk innanríkisráðuneytið
Tdkýd. Reuters.
Reuters
TAKESHI Noda, nýr innanríkisráðherra Japans (t.v.), Keizo Obuchi
forsætisráðherra og fleiri ráðherrar í sanisteypustjórninni sem
mynduð var í gær.
KEIZO Obuchi, forsætisráðherra
Japans, breytti í gær stjórn sinni
og skipaði nýjan innanríkisráð-
herra eftir að hafa náð samkomu-
lagi við Frjálslynda flokkinn um
stjómarsamstarf.
Takeshi Noda, einn af forystu-
mönnum Frjálslynda flokksins, var
skipaður innanríkisráðherra en
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn,
flokkur Obuchis, hélt öllum hinum
ráðherraembættunum.
Samkomulag náðist um samstarf
flokkanna í fyrradag eftir tveggja
mánaða samningaviðræður um um-
bætur á stjómkerfínu og stefnuna í
efnahags- og varnarmálum. Litið
er á samkomulagið sem nýjan sig-
ur fyrir Obuchi, sem hefur oft verið
vanmetinn frá því hann tók við for-
sætisráðherraembættinu fyrir
hálfu ári og stendur frammi fyrir
því erfíða verkefni að leysa efna-
hagsvanda landsins.
Forsætisráðherrann féllst á
kröfu Frjálslynda flokksins um að
ráðuneytunum yrði fækkað úr 20 í
18. Menntamálaráðuneytið var
sameinað vísinda- og tækniráðu-
neytinu og bygginga- og jarðeigna-
ráðuneytin vora einnig sameinuð.
Eykur likur á umbótum
Obuchi myndaði samsteypu-
stjómina vegna þess að Frjálslyndi
lýðræðisflokkurinn hefur ekki
meirihluta í efri deild þingsins, sem
getur tafíð afgreiðslu fjárlaga og
hafnað lagaframvörpum. Stjórnina
skortir enn ellefu þingsæti til að
hafa meirihluta í deildinni en hún
telur sig geta tryggt sér þau at-
kvæði sem þarf með stuðningi ým-
issa smáflokka og óháðra þing-
manna.
Nokkrir fréttaskýrendur sögðu
að Frjálslyndi flokkurinn myndi
knýja fram erfiðar umbætur sem
era taldar nauðsynlegar til að
blása lífi í efnahaginn eftir hartnær
tíu ára stöðnun.
Reuters
Fer aldrei aftur til Jemens
BRETINN John Brooke sneri
aftur til Bretlands í gær eftir
að hafa verið leystur úr haldi
mannræningja í Jemen, sem
héldu honum í gíslingu í fimm
daga. Vopnaðir menn af jem-
enskum ættbálki rændu hon-
um hálfum mánuði eftir að
fjórir vestrænir gíslar biðu
bana í skotbardaga milli liðs-
manna herskárrar hreyfingar
múslima og stjórnarher-
manna.
Bretinn kvaðst ekki geta
kvartað yfir framkomu mann-
ræningjanna, hann hefði ving-
ast við þá og aldrei talið sig í
lífshættu - en hann myndi
aldrei fara aftur til Jemens.
Brooke, sem var í Jemen á
vegum bandarísks olíufyrirtæk-
is, vildi ekki greina frá því
hvers vegna honum var sleppt
og hvort olíufyrirtækið eða
jemensk sljórnvöld hefðu greitt
Iausnargjald. Hann kyssir hér
konu sína, Kathy, við heimkom-
una.
Rannsókn á veðurfari í Bandarrkjimum
Fleiri fellibyljum
spáð en í meðalári
London. Reuters.
BANDARÍKJAMENN geta
reiknað með að fleiri fellibyljir
en venjulega dynji á Bandaríkj-
unum á þessu ári, að sögn
breskra vísindamanna. Veð-
urofsinn mun hins vegar ekki
verða eins mikill og á síðasta ári,
þegar ofsaveður dundi sjö sinn-
um á Bandaríkjunum.
Byggja þeir Mark Saunders
og Chris Merchant, loftslags-
fræðingar við University Col-
lege í London, spá sína á kerfi
sem þeir hafa búið til svo segja
megi til um fjölda fellibylja vest-
anhafs. Hafa þeir rannsakað
tíðni fellibylja undanfarna ára-
tugi en með þeim hætti þykjast
þeir ná að greina mynstur í þró-
un þeirra og stefnu. Jafnframt
taka þeir tillit til hitastigs yfír-
borðs sjávar, auk vindhraða og
úrkomumagns í Vestur-Afríku,
en þessir þættir hafa allir áhrif á
hvirfilbylji í hitabeltislöndunum.
„Fellibyljir verða algengari á
árinu 1999 en í meðalári, en
samt fæn-i en árið 1998,“ sagði
Saunders í gær. Arið 1998 var
þriðja versta ár, hvað fellibylji
varðar, síðan mælingar hófust í
Bandaríkjunum árið 1871. Er
skemmst að minnast fellibylj-
anna Georgs og Mitch, en Mitch
var einn öflugasti fellibylur á
þessari öld og olli gífurlegu tjóni
og mannskaða í Mið-Ameríku-
ríkjunum Hondúras og Níkarag-
va.
Spá Bretarnir því einnig að
líklegra sé að fleiri fellibyljir
skelli á austurströnd Bandaríkj-
anna en á vesturströndinni.
Segjast þeir ekki geta sagt fyrir
um hvenær fellibyljirnir skella á
en vonast í framtíðinni til að
geta tilgreint hvaða ríki Banda-
ríkjanna verða fýrir þeim.
Imynd Díönu verði
skrásett vörumerki
Aðstoðarmaður Browns
hyggur á frama í fjölmiðlun
London. The Daily Telegraph.
FORRÁÐAMENN sjóðs, sem
stofnaður var í Bretlandi til
minningar um Díönu prinsessu,
vilja koma í veg fyrir að andlit
hennar eða „ímynd“ verði not-
uð af öðrum, óprúttnari selj-
endum. Vilja þeir i raun að and-
lit Dionu verði skrásett sem
vörumerki.
Díönusjóðurinn sótti nýlega
um einkaleyfí á notkun alls
fimmtíu og tveggja ljósmynda
af Di'önu en umsókninni var síð-
ar breytt þannig að nú eru það í
raun og veru skiptasljórar í búi
Díönu, m.a. móðir hennar og
systir, sem sækja um einkaleyf-
ið.
Engin fordæmi eru fyrir því
að svo margar ljósmyndir séu
Iagðar fyrir við einkaleyfisum-
sókn. Nær umsóknin m.a. til
notkunar ímyndar Díönu á sáp-
um, ilmvötnum, ýmsum snyrti-
vörum o.s.frv. Er markmið um-
sóknarinnar að koma í veg fyrir
að menn geti notað ímynd
Díönu án þess að greiða fyrir
afnotin, en talið er að margir
sjái sér hag í því að nota mynd-
ir, eða ímynd Diönu, til að selja
vörur sínar.
Gagnrýnisraddir segja að af-
ar erfitt væri að framfylgja svo
ströngu einkaleyfí og benda
aukinheldur á að slík einkaleyf-
isveiting gæfi lagalegt fordæmi
sem yrði til þess að frægt fólk
gæti í raun bannað notkun
mynda af sér.
London. Reuters.
CHARLIE Whelan, hinn litríki að-
stoðarmaður breska fjármálaráð-
herrans Gordons Browns, hyggur á
feril í fjölmiðlun, eftir að hafa starfað
um árabil sem fjölmiðlafulltrúi fyrir
Verkamannaflokkinn.
Sagði Whelan í samtali við dag-
blaðið The Mirror í gær að hann
myndi taka að sér stjóm útvarps-
þáttar hjá BBC er fjallaði um stjórn-
mál, jafnframt hygði hann á dálka-
skrif um knattspyrnu í ónefndu dag-
blaði og að síðustu kæmi einnig til
greina að hann tæki að sér stjórn
íþróttaþáttar í sjónvarpinu.
Whelan sagði nýverið starfi sínu
hjá Brown lausu eftir ásakanir um
að hann hefði lekið upplýsingum til
fjölmiðla um húsakaupalán það sem
varð Peter Mandelson, ráðherra við-
skipta- og iðnaðarmála, að falli.
Milljónamæringurinn Geofffey
Robinson, aðstoðarráðhema í fjár-
málaráðuneytinu, neyddist einnig til
að segja af sér vegna málsins en
hann mun hafa lánað Mandelson um
45 milljónir ísl. króna.
Pessi mál hafa valdið ríkisstjórn
Tonys Blairs miklum vandræðum á
undanförnum þremur vikum og
þóttu sýna, svo ekki varð um villst,
að hver höndin er upp á móti annarri
í stjórninni og ekki síst þótti sem hér
væri sannað að enn væri mikill met-
ingur á milli Blairs og Browns, sem
tókust á um leiðtogaembætti í
Verkamannaflokknum árið 1994, og
ekki síður stuðningsmannahópa
þeirra.
Þótt ekki væri sannað að Whelan
ætti aðild að málinu er því haldið
fram að Blair hafi krafist afsagnar
hans, en Mandelson var náinn sam-
starfsmaður og einkavinur breska
forsætisráðherrans. „Eg var orðinn
efni fréttaskrifa og gat þar af leið-
andi ekki sinnt starfi mínu,“ sagði
Whelan um afsögn sína.
Hefur hann fram að þessu neitað
að láta hafa sig út í skítkast. „Peter
er alger skipulagssnillingur," sagði
Whelan og fór um ráðherrann fyrr-
verandi fögi'um orðum. Gat hann þó
síðan ekki stillt sig um að skjóta
nokkrum skotum að Mandelson.
„Mér hafa að undanfomu verið boðin
störf hjá fjármálastofnunum í
London sem eru svo vel launuð að
einungis á nokkrum mánuðum gæti
ég verið búinn að gi’eiða upp húsa-
kaupalán Peters Mandelsons. En ég
hef bara ekki áhuga á þessum fúlg-
um fjár. Ég er nefnilega sósíalisti.“