Morgunblaðið - 15.01.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999 25
ERLENT
Deilt um samvinnu Rússa og Irana
Rússar æfír
vegna hótana
Bandar íkj anna
Moskvu. Reuters.
RUSSAR brugðust í gær
ókvæða við viðskiptaþvingunum
Bandaríkjamanna og hótunum
þeirra um frekari aðgerðir vegna
meints útflutnings Rússa á flug-
skeyþum og kjarnorkuþekkingu
til Irans. Sögðu stjórnvöld í
Moskvu að aðgerðir Bandaríkja-
manna skýi'ðust sennilega af
slakri frammistöðu bandarísku
leyniþjónustunnar.
Virtust rússnesk stjói-nvöld
alls ekki hafa í hyggju að verða
við kröfum Bandaríkjamanna og
draga úr samvinnu sinni við
Irani. Sagði talsmaður þess
ráðuneytis sem fer með kjarn-
orkumál að þvert á móti væri
ráðgert að þrefalda fjölda þeirra
Rússa sem starfa að byggjngu
kjarnorkuvers í Bushehr í Iran,
en því er ætlað að framleiða raf-
orku handa óbreyttum borgur-
um.
„Asakanirnar eru tilhæfulaus-
ar,“ sagði Vladimir Rakhmanin,
talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins, „við eigum ekki í
neinni samvinnu við írani um
viðkvæm kjarnorkumál." Segja
Rússar að alþjóðastofnanir hafí
lagt blessun sína yfír byggingu
kjarnorkuversins, enda eigi þar
einungis að framleiða raforku.
Bandaríkjamenn segja hins veg-
ar að Irönum sé einfaldlega ekki
treystandi fyrir kunnáttu á með-
ferð kjarnorku en þeir óttast
einmitt að raforkustöðin sé yfir-
skin, raunverulegt markmið
stjórnvalda í Teheran sé að afla
sér þekkingar á sviði kjarnorku-
vísinda.
Var haft efth- talsmanni
íranska utanríkisráðuneytisins í
gær að þarlend stjórnvöld for-
dæmdu aðgerðir Bandaríkja-
manna og að Iranir áskildu sér
allan rétt til að nota kjarnorku til
friðsamlegra nota.
Rússar gætu orðið
af miklum viðskiptmn
Bandaríkjamenn lögðu á
þriðjudag bann við allri aðstoð og
efnahagslegum samskiptum við
þrjár rússneskar vísindastofnan-
ir og stjórnvöld í Moskvu mót-
mæltu því harðlega þótt aðgerðir
Bandaríkjamanna væru raunar
að mestu leyti táknrænar.
A miðvikudag bættu Banda-
ríkjamenn hins vegar um betur
og hótuðu því að draga mjög úr
viðskiptum við Rússa hvað varð-
ar flutning gervitungla út í geim,
en Bandaríkjamenn hafa frá ár-
inu 1996 fengið Rússa til að
skjóta alls níu gervitunglum á
braut umhverfís jörðu fyrir sig.
Sagði talsmaður Krunichev-
geimferðastofnunarinnar að
Rússar gætu orðið af 270 milljón-
um dollara, tæplega 20 milljörð-
um ísl. króna, viðskiptum á þessu
ári gerðu Bandaríkin alvöru úr
hótununum. Hefði nefnilega ver-
ið vonast til að Bandaríkjamenn
fengju Rússa til að skjóta auka-
lega fjórum gervitunglum út í
geim á þessu ári en fyrir hvert
skot hefðu Rússar fengið greidd-
ar á milli 65 til 75 milljónir doll-
ara.
Júrí Lúzhkov, borgarstjóri í
Moskvu og líklegur forsetafram-
bjóðandi árið 2000, sagði mál
þetta skaða samskipti Bandaríkj-
anna og Rússlands. „Þetta er
mjög heimskulegt því Banda-
ríkjamenn grundvalla aðgerðir
sínar í raun og veru á sandi.“
Bandaríkjamenn vilja auka
heimildir Iraka til olíusölu
Washington, Bagdad, Moskvu. Reuters.
TALIÐ var að Bandaríkjamenn
myndu í gærkvöld stinga upp á því
á fundi öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna að Irökum yi'ði leyft að
selja eins mikla olíu og þeir vilja til
að geta fest kaup á mat og lyfjum
handa íbúum landsins.
Sagði ónafngreindur stjórnarer-
indreki að Bandaríkin hygðust gera
þetta að tillögu sinni til að hrifsa frá
Saddam Hussein Iraksforseta mögu-
leikann á „að nota velferð óbreyttra
borgara í írak til að afla sér samúð-
ar.“ Stjórnvöld í Bagdad sögðu hins
vegar í gær að ekki yrði hægt að
leysa Iraksdeiluna nema öllum við-
skiptaþvingunum gegn landinu yi'ði
aflétt og írökum greiddar skaðabæt-
ur vegna árása á landið frá lokum
Persaflóastríðsins árið 1991.
Enn skærur í írak
Skutu bandarískar herþotur flug-
skeytum á skotmörk í norðurhluta
íraks í gær, fjórða daginn í röð, að
sögn talsmanna bandaríska varnar-
málaráðuneytisins. Sagði talsmað-
urinn að skotið hefði verið á ratsjár-
stöð og einnig á stöðvar íraska hers-
ins þar sem Bandaríkjamenn gi'un-
ar að geymd séu flugskeyti.
Er þetta í áttunda skipti sem
skerst í odda yfir flugbannsvæðinu
frá því fjögurra daga flugskeyta-
árásum Breta og Bandaríkjamanna
á Irak lauk í desember.
HEFUR ÞÚ
GENGIÐ FRÁ
ÞÍNUM LÍFEYRIS-
SPARNAÐI?
Greiddu 2% viðbótariðgjaid af launum þínum
í Frjálsa lífeyrissjóðinn, elsta og stærsta
séreignarlífeyrissjóð landsins
Það er einfalt að hefja sparnaö í Frjálsa lífeyrissjóðnum. Veldu þér leið.
1. Þú sendir svarseðil bláa bréfsins sem þú fékkst í pósti.
2. Þú hringir í síma 540 5000.
3. Þú notar Internetið WWW. fjarvangur.is.
4. Þú ferð í Fjárvang Laugavegi 170, eða næsta útibú VÍS.
FRJÁLSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
er í vörslu Fjárvangs hf.
Nestlé Build-Up er bragögóöur drykkur sem inniheldur 1/3 af ráðlögöum
dagskammti (RDS) af 12 vítamínum og 6 steinefnum auk prótíns og orku
Build-Up fyrir alla
Góð aðterð til þess að auka neyslu vítamína og
steinefna þegar þú þarft á aukakrafti að halda.
Hentar börnum (eldri en 3ja ára) sem eldra fólki
og öllum þar á milli.
Build-Up á meðgöngu og
með barn á brjósti
Tryggir aö nægilegt magn næringarefna sé til
staðar á þessum mikilvæga tíma
Build-Up eftir veikindi
Sér til þess aö þú færö öll réttu næringarefnin til
þess aö ná skjótum bata
Build-Up - fljótlegur drykkur
Eitt bréf út í kalda eöa heita mjólk eöa
ávaxtasafa gefur þér fljótlegan og bragögóðan
drykk stútfullan af næringarefnum
Upplýsingar
um næringarinnihald:
f 38 gr. bréfi blönduöu
1284 ml. af mjólk
% af RDS
Orka kj 1395
kcal 330
Prótín 9 18,0
Kolvetni g 37,1
þar af sykur g 36,5
Fita g 12,4
þar af mettuö g 7,5
Trefjar 9 0,6
Natríum g 0,4
Kalíum mg 810
Vitamin
A-vítamín pg 300,0 38%
B1-vítamín mg 0,6 43%
B2-vítamín mg 1,0 63%
B6-vítamín mg 0,9 45%
B12-vítamín M9 1,7 170%
C-vítamín mg 23,0 38%
D-vítamín pg 1,8 36%
E-vítamin mg 3,3 33%
Biótin mg 0,06 40%
Fólín pg 84,0 42%
Níasín mg 6,2 34%
Pantótenat mg 3,0 50%
Steinefni
Kalk mg 607,0 76%
Joð pg 94,0 63%
Járn mg 5,5 39%
Magnesíum mg 132,0 44%
Fosfór mg 534,0 67%
Zink mg 6,3 44%
Nauösynlegl 1il vaxlar og viöhalds
veíja. viöheldurmýkl og heilbrigöi
hörunds. Ver slímhuö i munni. neíi,
hálsi og lungum. Eykurviönam gegn
sýkingum og bæfir sjonina. Hjalpar viö
myndun beina.'
B2-vítamín fRíböflavínj
Hjálpar viö aö nýla orkuna i fæöu.
hjálpar viö myndun motefna og rauöra
bloökorna. Nauðsyniegl lil aö viöhalda.
hörundi. nöglum. hari og goöri sjón.
Niacin (Níasm-Vrtamm B3j
Bælir bloðrasina og lækkar kóleslról í
bloði. Viöheldur laugakerfinu. lækkar
háan bloöþrýsting. hjálpar viö meltingu
og stuðlarað heilbrigöi huöar.
Zink
Mjög mikilvægt fyrir onæmiskerfið.
flýlir fyrir aö sar gröi og er mikilvægt
fyrir stööugleika bloðsms. Viöheldur
alkalirte jafnvægi likamans.
s ú k k u
a ö i
jaróaberja
v a n i I I u
bragölaust