Morgunblaðið - 15.01.1999, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sljórn ESB særð en
stjórnarkreppu afstýrt
Það kom á óvart, að 44% þeirra Evrópu-
þingmanna sem atkvæði greiddu skyldu
1 gær styðja tillögu um vantraust á fram-
kvæmdastjórn ESB. Með þessari
niðurstöðu, skrifar Auðunn Arnórsson,
var þó alvarlegri kreppu í stjórnkerfí
sambandsins afstýrt.
Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins (ESB)
stóð af sér slaginn við Evr-
ópuþingið í gær, en þó ekki
alls ólöskuð. Á óvart kom hve mikinn
stuðning tillaga um vantraust á
framkvæmdastjómina fékk, þótt
meirihluti hinna 626 fulltrúa á Evr-
ópuþinginu hafi fellt hana. Til að
hljóta samþykki hefðu tveir af hverj-
um þremur þurft að greiða van-
trausti atkvæði sitt.
Áður hafði þingið samþykkt að
sett skyldi á fót sérstök nefnd sem
fara á í saumana á starfsaðferðum
framkvæmdastjórnarinnar með tilliti
til þeirra spillingarásakana sem
fram hafa komið. Þá var einnig
samþykkt með miklum meirihluta að
visa frá ályktunum um vanti-aust á
hendur tveimur tUteknum meðlim-
um framkvæmdastjórnarinnar, sem
spiilingarásakanirnar hafa einkum
beinzt gegn, þ.e. Edith Cresson og
Manuel Marin.
Megintillagan um vantraust, sem
þingflokkur jafnaðarmanna hafði
borið upp - upprunalega í þeim til-
gangi að knýja fram stuðningsyfir-
lýsingu þingsins við framkvæmda-
stjórnina - var dregin til baka eftir
að ályktunin um hina sérskipuðu
spillingarrannsóknarnefnd hafði ver-
ið samþykkt. Seinni vantrauststillag-
an, sem gengið vai- til atkvæða um,
var borin upp af fulltrúum nokkurra
minni flokka á þinginu, en 232 þing-
menn greiddu henni atkvæði, þar á
meðal flestir fulltrúar þýzka jafnað-
armannaflokksins. 293 greiddu at-
kvæði á móti, 27 sátu hjá.
„Svik hvítþvegin" eða
skynsemislending?
„Jafnaðarmenn drógu í land með
hneykslanlegum hætti, andspænis
hinum yfirþyrmandi sönnunum fyrir
einkavinavæðingu, spillingu, misferli
og svik í framkvæmdastjói-ninni,“
sagði einn Evrópuþingmanna brezka
Ihaldsflokksins, Edward MacMillan-
Scott, eftir atkvæðagreiðslurnar.
„Pauline Green [formaður þing-
flokks jafnaðarmanna] og sósíalista-
flokkur hennar kaus í dag að hvítþvo
svik í nafni Evrópu (...) Þau hafa
svikið skyldu sína sem þingmenn, að
láta framkvæmdastjórnina sæta
pólitískri og opinbeiri ábyrgð,“ sagði
hann.
Santer létt
Öllu jákvæðari tónn var þó í mörg-
um þingmönnum, sem töldu þingið
hafa náð umtalsverðum árangri með
þvi að knýja fram ítarlega rannsókn
HLUTVERK EVROPUÞINGSINS I STJORNKERFI ESB
Evrópuþingið er eitt um það meðal stofnana Evrópusambandsins (ESB) að
halda fundi og umræður fyrir opnum tjöldum. Á því eiga 626 fulltrúar frá
aðildarríkjunum 15 sæti, kjörnir beinni kosningu til fimm ára kjörtímabils í
senn. Þingmenn skipa sér í þingflokka fremur eftir pólitískum línum en
þjóðerni. Einn þingforseti ferfyrir því og 14 varaþingforsetar.
Þingiö er fyrst og fremst umræðuvettvangur og völd þingmanna eru lítil
SÆTAFJOLDI A EVROPUÞINGINU RÆÐST AF IBUAFJOLDA HVERS LANDS
Þingsæti (fulltrúar í framkvæmdastjórn)
D U IHH □ IP5M IEL
Spánn Holland Grikkland Belgía Portúgal Svíþjóð Austurríki
64(2) 31 (1) 25(7) 25(7) 25(7) 22(7) 21 (7)
ra
Jacques
Santer
Forseti framkvæmdastjómar
FRAMKVÆMDASTJORN ESB
Ríkisstjórnir aðildarlandanna stinga upp á
meðlimum framkvæmdastjómarinnar,
samtals 20, og Evrópuþingiö þarf að
samþykkja þá. Undir þá heyrir um
15.000 manna embættismannakerfi
(helmingur þess fjölda eru þýðendur).
Framkvæmdastjórnin er eina stofnun
ESB sem hefur rétt til aö gera tillögur um
nýja löggjöf.
RAÐHERRARAÐIÐ
Ráðherraráðið, sem ráðherrar ríkisstjórna
aöildariandanna skipa, kemur að jafnaði
saman á mánaðarfresti í Brussel og tekur
ákvarðanir um nýja löggjöf, sem fram-
kvæmdastjórnin, Evrópuþingið og
embættismenn ráðherraráðsins hafa
undirbúið. Samsetning ráðsins hverju
sinni fer eftir því málefni sem til umræðu
er, s.s. efnahagsmál, utanríkismál. :ij&
á starfsaðferðum framkvæmda-
stjómarinnai', án þess að lama hana
og þar með stjómkerfi ESB f heild.
Jacques Santer, forseta fram-
kvæmdastjórnarinnar, var augsýni-
lega létt þegai’ atkvæðagreiðslan var
afstaðin. Hann hét þinginu að hvergi
yrði hikað við að hrinda því í fram-
kvæmd, sem þingið hafði ályktað að
gera skyldi til að gera hreint fyrir
dymm framkvæmdastjórnarinnar.
José Mai-ia Gil-Robles, forseti Evr-
ópuþingsins, gat þess á blaðamanna-
fundi að hugsanlega yrði vantrausts-
tillaga borin upp á ný í maí eða júní
nk., ef ekki yrði staðið við að hrinda
þeim umbótum tafarlaust í fram-
kvæmd sem farið hefur verið fram á.
„Eg tek nærri mér þá gagnrýni
sem þið hafið beint gegn okkur og ég
heiti því að gera allt sem ég get til að
staðið verði við hina ströngu
tímaáætlun sem gefin er til að gera
alvöru úr áætluninni," sagði Santer
með vísun til dagsetningarinnar 15.
marz, en í ályktun þingsins um spill-
ingarrannsóknamefndina nýju segir
að hún skuli skila þinginu skýrslu
fyrii’ 15. marz.
Santer sagðist taka allar spilling-
arásakanir persónulega inn á sig.
„Mér sárnar [þær], því í hvert sinn
er það Evrópa sem tapar,“ sagði
hann.
„Skilorð" til 15. marz
Þingið ákvað með 315 atkvæðum
gegn 198 að setja rannsóknamefnd-
ina á fót, sem mun fara í saumana á
því hvemig framkvæmdastjórnin
„kemst að og bregzt við misferli og
einkavinavæðingu, þar á meðal ýtar-
lega endurskoðun á því hvaða
starfsaðferðir eru viðhafðai’ við veit-
ingu allra dýrra verktakasamninga,"
eins og segir í ályktuninni.
Nefndinni var ekki gert að ljúka
starfi sínu innan ákveðiðs lrests að
öðru leyti en því að hún á að skila
þinginu skýrslu fyrh’ miðjan marz,
þar sem fram á að koma mat nefnd-
arinnar á hverjum og einum hinna 20
meðlima framkvæmdastjómarinnar.
Þannig má segja að framkvæmda-
stjómin sé „á skilorði" næstu tvo
mánuðina.
Fyrir lok sama frests vill þingið að
framkvæmdastjómin leggi fram yf-
irlýsingu um hagsmuni meðlima
hennar utan embættis. Framvegis
öskjunni á Evrópuþing-
inu í Strassborg þegar
vantraust á fram-
kvæmdastjórnina var
tekið fyrir. Urður
Gunnarsdóttir fylgdist
með umræðum og
ræddi við Evrópuþing-
menn að atkvæða-
greiðslu lokinni.
AHORFENDUR og blaða-
menn vom mættir snemma
til að tryggja sér sem best
sæti og sátu þar og spáðu í spilin
meðan þeir biðu eftir að þingstörf
hæfust. Töluverð spenna var í loft-
inu þótt enginn ætti í raun von á að
Evrópuþingið samþykkti vantraust
á framkvæmdastjórnina. Skömmu
fyrir ellefu fylltist þingsalurinn
skyndilega, hvert sæti var skipað,
nokkuð sem er sjaldgæf sjón á hinu
fjölmenna Evrópuþingi.
Þingmönnum er raðað niður eftir
flokkaíylkingum og var stemmning-
in vissulega ólík eftir því hvaða fylk-
ingum menn tilheyrðu. Það flækti
Reuters
PAULINE Green (fremst t.v.) fer fyrir þingmönnum jafnaöarmanna á Evrópuþinginu í að greiða atkvæði
gegn vantrausti á framkvæmdastjóm ESB í gær.
Stemmningin minnti
helst á íþróttakappleik
Það var handagangur í
málin síðan enn frekar að allar fylk-
ingarnar voru klofnar í afstöðu sinni
til þeirra mála sem taka átti fyrir.
Svo virtist sem þingmenn kysu jafn-
mikið eftir þjóðerni sem flokkslín-
Skeiðklukkan tifaði
Talsmenn fylkinganna gerðu ör-
stutta grein fyrir meirihlutaafstöðu
sinni og tifaði skeiðklukka yfir þeim
um leið og talsmennirnir tóku til
máls. Hafði hver og einn 200
sekúndur til að gera grein fyrir máli
sínu. Greinilegt var að menn vildu
eyða sem minnstum tíma í óþarfa
tal. Þó notuðu þingmenn að
sjálfsögðu tækifærið til að sýna af-
stöðu sína með því að berja í borð og
púa eða klappa og hrópa, allt eftir
því hvernig málflutningur talsmann-
anna lagðist í þá.
Hörðust voru viðbrögðin að
sjálfsögðu er Pauline Green, leiðtogi
fylkingar sósíalista, lýsti því yfir að
þeii’ drægju tillögu um vantraust á
framkvæmdastjórnina í heild til
baka. Sagði hún sósíalista hafa sett
tillöguna fram til að vekja fram-
kvæmdastjórnina til umhugsunar
áður en ásakanir um spillingu á
hendur einstaka meðlimum fram-
kvæmdastjórnarinnar komu fram.
Tillögunni hefði ekki verið ætlað að
vera yfirlýsing um vantraust á ein-
staka framkvæmdastjórnarmenn.
Markmiðið væri „heildstæð og sterk
Evrópa", markmið „allra“ hefði
náðst fram og því væri tillagan
óþörf. Mátti lesa út úr orðum henn-
ar að tillöguflutningur sósíalista
hefði farið úr böndunum. Aðrir þing-
menn báni þó upp áþekka tillögu í
staðinn.
Greidd voru atkvæði um hinár
ýmsu vantrauststillögur og breýt-
ingatillögur en tillaga Green um
óháða nefnd til að kanna spillingu
var að lokum sú eina sem var
samþykkt af þeim þrettán er voru