Morgunblaðið - 19.01.1999, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Borgin hætt að fóðra
fugla við Tjörnina
Álver á Austurlandi
Norsk
Hydro
enn með
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra segist ekki hafa fengið neinar
vísbendingar um annað en að Norsk
Hydro sé enn af fullum áhuga í
þeirri vinnu sem nú standi yfír við
athugun á byggingu álvers á Austur-
landi.
I vefútgáfu norska blaðsins Dag-
ens Næringsliv sagði í gær að vegna
óvissu með álverð myndi Norsk
Hydro fara sér hægt í fjárfestingum í
áliðnaði í framtíðinni. Iðnaðarráð-
heira segist áður hafa heyrt fréttir af
erfiðleikum fyrirtækisins vegna
lækkandi olíuverðs og álverðs. Hins
vegar hafi það enn ekki haft nein
áhrif á yfirstandandi vinnu við athug-
un á byggingu álvers í Reyðarfirði og
engin skilaboð komið frá fyrirtækinu
um annað en að það stæði að verk-
efninu með sama hætti og áður.
Reiknað hefur verið með að það
skýrðist um mitt ár hvort áfram yrði
unnið að undirbúningi álvers.
---------------
Eldur í
Valhöll í
Tálknafirði
Tálknafírði. Morgunblaðið.
RÉTT fyrir hádegið á sunnudag
kom upp eldur í miðstöðvarkjallara í
íbúðarhúsinu Valhöll í Tálknafirði.
Tvær íbúðir eru í húsinu og sakaði
íbúana ekki.
Slökkvilið var kallað út, en íbúar
hússins höfðu slökkt eldinn með
handslökkvitækjum þegar það kom á
vettvang. Mikill reykur varð af og
fylltist kjallarinn, en engar skemmd-
ir urðu í íbúðum hússins þar sem
kjallarinn er alveg lokaður af frá
þeim. Eldsupptök eru ekki kunn, en
þó leikur grunur á því að einhver bil-
un í kynditæki hafi orsakað brunann.
---------------
75 útköll
vegna veðurs
LÖGREGLAN í Reykjavík fékk 75
beiðnir um aðstoð vegna veðursins
um helgina. Mest var það vegna
lausra hluta eða þakplatna sem fuku
til og varð talsvert tjón vegna þeirra,
ekki síst á bifreiðum.
Meðal atvika úr dagbók lögregl-
unnar má nefna að aðfaranótt laug-
ardags var lögreglan kölluð til að-
stoðar vegna muna sem fokið höfðu
út úr íbúð í Húsahverfi og bíls í Mos-
fellsbæ er hurðir sviptust upp vegna
veðurs. .
Suðurlandsvegi var lokað rétt fyr-
ir kl. 5 á laugardagsmorgun vegna
veðurs og ófærðar og stuttu síðar
þurfti að hreinsa grjót sem brimið
hafði skolað upp á Sæbraut.
■ Úr dagbók/49
í KULDAKASTINU og rokinu
að undanförnu hafa fuglarnir
við Tjörnina verið fegnir að fá
það brauð sem að þeim er rétt
en borgaryfirvöld eru hætt að
sjá um að fóðra þá. Að sögn
Guðnýjar Olgeirsdóttur, umsjón-
armanns með tjarnarsvæðinu,
var ákveðið að hætta að gefa
fuglunum á síðasta ári til að
reyna að stemma stigu við fjölg-
un grágæsarinnar. „Þetta var
orðið það mikið og aðallega
gæsin seni þurfti á fóðrun að
lialda og fólk gefur henni áfram
EKKI liggur fyrir af hverju flug-
maður flugvélarinnar sem fórst í
Homafirði í byrjun ágúst beygði
ekki til aðflugs að flugvellinum
þegar komið var yfir radíóvitann
við Höfn. í skýrslu rannsóknar-
nefndar flugslysa um slysið eru
leiddar að því líkur að eldri sonur
þýska læknisins hafi stjórnað vél-
inni og faðirinn verið upptekinn við
fjarskipti.
Þrír menn, þýskur læknir og
tveir synir hans, fórust þegar
einkaflugfél þeirra fórst í Horna-
firði í byrjun ágúst í sumar. Þeir
voru að koma frá Reykjavík og
hugðust lenda á Höfn til að taka
eldsneyti til flugs til Færeyja.
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur
þannig að það er alltaf ákveðinn
kjarni við Tjörnina," sagði hún.
„Álftir og endur bjarga sér sjálf-
ar með því að leita í fjöruna yfir
veturinn og lifa hann því af.
Gæsinni hefur aðeins fækkað en
þetta var gert vegna þess að
gæsin réðst á nýgræðinginn við
Tjörnina. Hún spændi upp gróð-
urinn og át allt og nagaði
brumið af. Við plöntuðum viðju
og liún nagaði bæði börk og
brum þannig að kostnaðurinn
var mikill því hún er líka ágeng
í sumarblómin. Þess vegna var
nú sent frá sér skýrslu um rann-
sókn sína á slysinu. Að sögn Skúla
Jóns Sigurðarsonar, fram-
kvæmdastjóra slysarannsókna-
deildar Flugmálastjórnar, lá fyrir
að blindflugsskilyrði voru á leið-
inni og að Þjóðverjarnir undir-
bjuggu ferð sína vel, meðal annars
með veðurupplýsingum og kort-
um.
Svipuð flugreynsla
Þeir vora á réttri leið þegar
komið var yflr radíóvitann í Horna-
firði en af einhverjum ástæðum
beygðu þeir þá ekki til aðflugs að
Hornafjarðarflugvelli eins og þeir
áttu að gera og héldu beint áfram.
Þegar flugmennirnir vora komnir í
ákveðið að reyna að fækka
henni.“
Ólafur Nielsen líffræðingur
hefur fylgst með fuglalífinu og
séð um talningu við Tjörnina og
sagði hann að gæsinni hefði ekki
fækkað en að hún dreifðist víðar
á þá staði, þar sem henni væri
gefið. Hún væri komin í Hús-
dýragarðinn, Lækinn í Hafnar-
firði og Bakkatjörn á Seltjarnar-
nesi. „Þetta eru því milli 500 og
600 fuglar, sem dreifast á höfuð-
borgarsvæðinu og á innnesjum
yfir veturinn,“ sagði hann.
ógöngur við fjöllin var flugið ekki
hækkað heldur sveigt inn á milli
þeirra og síðan lenti vélin á kletta-
vegg í Vestrahomi.
Að sögn Skúla Jóns era í skýrsl-
unni leiddar að því líkur að eldri
sonurinn, sem var tvítugur að
aldri, hafi stjómað flugvélinni enda
faðirinn upptekinn við fjarskipti
um það leyti sem taka átti ákvörð-
un um að beygja til aðflugs inn á
flugvöllinn.
Þeir höfðu báðir flugréttindi og
réttindi til blindflugs og svipaða
ílugreynslu en talið er að þeir hafi
ekki haft mikla reynslu í blind-
flugsaðflugi við aðstæður eins og
vora í Hornafirði á þeim tíma sem
vélin fórst.
Almenningsvagnar
Fargjöld
hækka
um 10,3%
FARGJÖLD í strætisvagna Al-
menningsvagna bs. hækka 1. febrú-
ar næstkomandi um að jafnaði
10,3%. Pétur U. Fenger, fram-
kvæmdastjóri AV, segir að hækk-
unin sé einkum til komin vegna auk-
ins launakostnaðar.
Einstök fargjöld fyrir fullorðna
hækka úr 130 kr. í 150 kr., farmiða-
spjöld með tíu miðum úr 1.100 kr. í
1.200 kr., farmiðaspjöld með fimm
miðum sem seld era í vögnunum
hækka úr 650 kr. í 750 kr.
Einstök fargjöld barna hækka úr
55 kr. í 60 kr., 20 miða kort barna úr
550 kr. í 600 kr., fjögurra miða kort
bama sem seld eru í vögnunum úr
220 kr. í 250 kr.
Fargjöld í næturvagna hækka úr
220 kr. í 250 kr. Græna kortið, sem
gildir í þrjátíu daga, kostar eftir
sem áður 3.400 kr.
„Síðast var hækkað í október
1995 og menn eru að bregðast við
kostnaðarhækkunum sem orðið
hafa í rekstrinum síðan,“ segir Pét-
ur. „Þær hafa verið talsverðar, mest
hefur þó launavísitala hækkað. Ver-
ið er að setja hluta af þessum hækk-
unum út í verðlagið. Rétt um 40% af
kostnaði við rekstur Almennings-
vagna nást inn með fargjöldunum
og reynt er að koma í veg fyrir að
þetta hlutfall raskist mjög mikið.“
------♦-♦-♦---
Javier
Solana til
Islands á
fímmtudag
JAVIER Solana, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, kemur í
heimsókn til Islands næstkomandi
fimmtudag til viðræðna við íslensk
stjórnvöld.
Heimsókn Solana er liður í við-
ræðum hans við leiðtoga Atlants-
hafsbandalagsríkja vegna undirbún-
ings leiðtogafundar bandalagsins,
samkvæmt upplýsingum sem feng-
ust í utanríkisráðuneytinu. Er
reiknað með að ófriðurinn á
Balkanskaga verði meðal umræðu-
efna í viðræðum Solana við íslenska
ráðamenn. Munu Davíð Oddsson
forsætisráðherra og Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra eiga
sameiginlegan fund með Solana.
Heimsókn hans lýkur á fóstudaginn.
Gefum smá-
fug'lunum
SÓLSKRÍKJUSJÓÐURINN
hefur beðið Morgunblaðið að
hvetja landsmenn til að gefa
smáfuglunum þegar snjór þek-
ur jörð.
Rannsókn lokið á flugslysinu í Hornafírði
Líkur leiddar að því að
sonurinn hafi flogið
A ÞRIÐJUDOGUM
Heimili
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is