Morgunblaðið - 19.01.1999, Side 8

Morgunblaðið - 19.01.1999, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bjóðum börn /vji Eitt verðugasta verk- efni í nútíma stjórnmál ' um, segir Bryndís Hlöðversdóttir, er að , "'l l ftm- ■11 GpÍUhJO* NEI. nei. bara krossa rétt góði. Aðfluttir umfram brottflutta 1988-1998 Einstaklingar (allir) Hxi UTT '88 ’89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 Búferlaflutningar árið 1998 880 fleiri fluttust til landsins en frá því ÁRIÐ 1998 voru skráðar 59.955 breytingar á lögheimili einstaklinga í þjóðskrá, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu íslands. Innan sama sveitarfélags flutti 32.791, en á milli sveitarfélaga fluttu 18.920. Þá fluttu 4.562 til landsins og 3.682 frá því. Á árinu 1998 fluttust því 880 fleiri einstaklingar til landsins en frá því og þar af voru aðfluttir erlendir rík- isborgarar 1.113 fleiri en brottflutt- ir, en 233 fleiri íslendingar fluttust frá landinu en til þess. Árið 1997 var heildarfjöldi aðfluttra umfram brottflutta 69. Fleiri íbúar fluttust til höfuðborg; arsvæðisins en frá því, eða 2.183. í öðrum landshlutum vora brottflutt- ir fleiri en aðfluttir og fiuttu flestir frá Austurlandi, eða 359. Af einstök- um þéttbýlisstöðum fluttust flestir í Kópavog, eða 1.332, en flestir frá Akureyri, eða 141. Andlát KÁRI TRYGGVASON KÁRI Tryggvason, kennari og rithöfundur, lést á Landspítalanum sl. laugardag 93 ára að aldri. Kári fæddist að Víðikeri í Bárðardal 23. júlí 1905. Foreldrar hans voru Sigrún Ágústa Þorvaldsdóttir og Tryggi Guðnason, bóndi í Víðikeri. Kári lauk prófí frá héraðsskólanumað Laugum árið 1926, en hann sótti auk þess mörg kennaranámskeið m.a. við Háskóla ís- lands. Kári var bóndi í Víðikeri og kennari í Bárðardal frá 1928-1954. Hann kenndi við barnaskólann í Hveragerði frá 1954-1970, við upp- töku- og dvalarheimilið Dalbraut í Reykjavík 1970-1971 og skóladagheimilið Skipasundi 1971-1973. Kári skrifaði um 20 barnabækur og ljóða- bækur á sínum rithöf- undaferli. Fyrsta bók hans var ljóðabók fyrir börn, Fuglinn fljúg- andi, sem út kom árið 1943. Fyrsta barnabók hans, Dísa á Grænalæk, kom út árið 1951. Árið 1974 fékk Kári verð- laun frá Fræðsluráði Reykjavíkur fyrir barnabókina Úlla horfir á heiminn. Eftirlifandi eiginkona Kára er Margrét Björnsdóttir. Þau eignuð- ust fjórar dætur og lifa þrjár föður sinn. Skipuð í embætti héraðsdómara í Reykjavík UMSÓKNARFRESTUR um emb- ætti héraðsdómara rann út 25. nóv- ember 1998. Fyrsti starfsvettvangur væntanlegs dómara verður Héraðs- dómur Reykjavíkur. Dómsmólaráð- herra hefur ákveðið að skipa Gretu Baldursdóttur í embættið. Um embættið sóttu: Amfríður Ein- arsdóttir, aðstoðarmaðm- héraðsdóm- ara, Ásgeir Magnússon hæstaréttar- lögmaður, Brynjólfur Kjartansson hæstaréttarlögmaður, Friðjón Öm Friðjónsson hæstaréttarlögmaður, Greta Baldursdóttir, skrifstofustjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, Guðmund- ur Ki-istjánsson hæstaréttarlögmað- ur, Ingveldur Einarsdóttir, lögfræð- ingur hjá umboðsmanni Alþingis, Júlí- us B. Georgsson, settur héraðsdóm- ari, Már Pétursson, aðstoðannaðm- héraðsdómara, Sigrún Guðmunds- dóttir hæstaréttarlögmaður, Sigur- jóna Símonarsdóttir, aðstoðarmaður hæstaréttardómara, Þorgerður Er- lendsdóttir, settur héraðsdómari, og Þorsteinn Skúlason lögfræðingur. Sólarkaffi ísfirðingafélagsins Fagna komu sólar á Isafírði Kolbrún Sveinbjörnsdóttir Næsta föstudag, þann 22. janúar, stendur ísfirð- ingafélagið á höfuðborg- arsvæðinu fyrir árlegu Sólarkaffi á Broadway. Kolbrún Sveinbjöms- dóttir, skemmtanastjóri Isfirðingafélagsins, hefur séð um skipulagningu þessa árlega viðburðar. „Sólarkaffi er ómissandi liður í starf- semi ísfirðingafélagsins hér á höfuðborgarsvæð- inu og allt frá því félagið var stofnað árið 1945 hef- ur verið haldið upp á dag: inn með þessum hætti. í ár era brottfluttir Isfirð- ingar því að halda Sólar- kaffi í 54. skipti og gera sér glaðan dag.“ - Upp á hvað er verið að halda með Sólarkaffí? „Tilgangurinn er að fagna komu sólar á ísafirði. Þann 25. janúar sést loksins aftur til sólar á ísafirði og það kallar á hátíða- höld.“ Kolbrún segir að frá upphafi Sólarkaffis hafi kaffi og rjómapönnukökur verið á boðstólum en seinni árin hafi stundum verið bætt á kaffiborð- ið hinu og þessu. „Það eina sem verður að vera á borðum þennan dag era helst rjómapönnukök- umar. Þær tilheyra þessum degi og þannig er það líka á Isafirði. Þar held ég að rjómapönnukök- ur séu með kaffinu í hverju húsi. Þegar ég var lítil stelpa var flakkað milli húsa til að fá kaffi og rjómapönnukökur. Undanfarin ár hafa félaga- samtök boðist til að baka pönnu- kökur fyrir fyrirtæki á Isafirði svo þeir sem era að vinna fái líka rjómapönnukökur.“ - Er Sólarkaffí vel sótt hjá ís- fírðingafélaginu ? „Já það er óhætt að segja það. Undanfarin ár hefur okkur fjölg- að mikið og ekki óalgengt að við séum frá 600-900 sem hittumst þennan dag hér á höfuðborgar- svæðinu." Kolbrún segir að þótt brottfluttir ísfirðingar séu í meirihluta í þessum hópi þá hafi ýmsir aðrir bæst við um árin. „Á Sólarkaffi mæta til dæmis marg- ir sem eiga ættir að rekja til Isa- fjarðar og svo makar og fjöl- skyldur brottfluttra ísfirðinga. Reyndar þykir Sólafkaffið það skemmtilegt að Isfirðingar era farnir að fjölmenna frá Isafirði til Reykjavíkur þennan dag til að vera með okkur. Þá hefur sá siður einnig skapast að heilu árgangamir frá Isafirði ákveða að hittast þennan dag og þá kemur fólk jafnvel frá útlönd- um til að vera með.“ - Bjóðið þið upp á skemmtiat- riði? „Auðvitað og við skemmtum okkur langt fram á nótt. Við fá- um alltaf einhvern ræðumann til liðs við okkur sem segir skondn- ar sögur frá Isafirði. Það er eig- inlega hápunktur kvöldsins og í ár verður það Magnús Jóhann- esson ráðuneytisstjóri sem talar og það þarf varla að taka fram að hann er ísfirðingur. Við bjóðum stundum upp á heimatilbúin skemmtiatriði þó að oftar séu þau aðkeypt. ísfirð- ingurinn Rúnar Þór ætlar að troða upp ásamt bróður sínum, Heimi Má. Þá mun Guðni Þ. ► Kolbrún Sveinbjömsdóttir er fædd á Ísafírði árið 1947. Hún hóf að syngja með hljóm- sveit Ásgeirs Sigurðssonar á ísafirði árið 1967 og hefur æ síðan sungið með hljómsveit- um. Kolbrún er nú söngkona í hljómsveitinni Heiðursmenn. Hún rekur ásamt eigin- manni sinum fyrirtækið Iskort. Eiginmaður Kolbrúnar er Lúðvík Jóelsson og eiga þau fimrn böm. Guðmundsson, organisti í Bú- staðakirkju, leika á píanó. Omar Ragnarsson er oftast búinn að vera hjá okkur af öllum gestum og að þessu sinni ætlar hann að sprella eins og honum einum er lagið. Ámi Johnsen leiðir brekkusöng og Bergþór Pálsson syngur fyrir okkur. Þá er hefð fyrir því að koma gestum á óvart með sérstöku leyniatriði og það er auðvitað enn leyndarmál hvað það verð- ur. Þá mun hljómsveit Stefáns P. leika fyrir dansi fram eftir nóttu. Veislustjóri er Samúel J. Samúelsson en allir ísfirðingar þekkja hann undir nafninu Sammi á Bjargi.“ - Hvernig er starfsemi ísfirð- ingafélagsins háttað? „Við eram með öfluga starf- semi allan ársins hring. Á vorin stöndum við meðal annars fyrir messu og kirkjukaffi á eftir. Þá höfum við fengið ísfirskan prest til að messa og síðast var það sr. Lára Oddsdóttir sem messaði. Þá mættu um 300 kirkjugestir, bæði ungir sem aldnir.“ Kolbrún segir að brottfluttir Isfirðingar hittist yfirleitt í Eden í Hveragerði á haustin en Bragi Ein- arsson sem á Eden er Isfirðingur. Þá sér fé- lagið um að gefa út Vestanpóstinn. Rit- stjórar hans eru Guðfinnur Kjartansson og Bjarni Brynj- ólfsson. „Við sendum hann á ólíklegustu staði í heiminum þar sem Isfirðingar eru búsett- ir. Félagið á hús á ísafírði sem heitir Sóltún og það geta brott- fluttir Isfirðingar fengið leigt hvenær ársins sem er. Við létum gera húsið upp en fyrram eig- andi þess, Guðmundur frá Mos- dal, var mjög litríkur persónu- leiki og þetta er þekkt hús á ísa- firði.“ - Halda ísfírðingar saman? „Já þeir halda hópinn og era afskaplega samhentir. ísfirðing- ar eru einnig mjög sérstakir og skei-a sig því úr fjöldanum." Rjómapönnu- kökur í hverju húsi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.