Morgunblaðið - 19.01.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
AB Volvo kaup-
ir hlut í Scania
Stokkhólmi. Reuters.
AB VOLVO keypti minnihluta í al-
menningsvagna- og vörabílafram-
leiðandanum Scania SB í gær og
kvaðst íhuga samruna. Bollalegg-
ingar um að annar bílaframleiðandi
yfírtaki Volvo hurfu þar með í
skuggann.
Stærsti hluthafí Scania, In-
vestor AB, kvaðst ekki hafa áhuga
á samruna fyrirtækisins og Volvo
og að viðræður við fleiri bjóðendur
færu fram. Þar með er talið hugs-
anlegt að slegizt verði um yfirtöku
Scania.
Aðalframkvæmdastjóri Investor,
Claes Dahlback, kvað miður að
Volvo hefði torveldað viðræður,
sem farið hefðu fram, með því að
kaupa hlut í fyrirtækinu. Investor
á 45,4% í Scania og hyggst halda
áfram viðræðum við aðra vörubíla-
framleiðendur.
Forstjóri Volvo, Leif Johansson,
sagði seinna að hann hefði fallizt á
„alvarlegar viðræður“ við Da-
hlback. „Athugun okkar á ýmsum
leiðum sýndi að Scania er mjög
góður kostur fyrir Volvo,“ sagði
hann.
Verð hlutabréfa í Scania hækk-
aði um 24,50 sænskar krónur í
200,50 kr. og bréfa í Volvo um 2,50
kr„ í 222.
Ráðstöfun Volvo kann að vera
fyrsta skrefið í átt til stofnunar
næststærsta almenningsvagna- og
vörubílafyrirtækis heims. Áhugi
Volvo á Scania er sagður sýna að
fyrirtækið ætli að einbeita sér að
vörubíladeildinni, sem er í örum
vexti.
Hindrar
tilboð í Volvo
Aðgerðin getur einnig hindrað
framgang hugsanlegs tilboðs er-
lends fyrirtækis í Volvo, sem
sænska stjórnin og Volvo vilja
koma í veg fyrir til að auka ekki
landflótta fyi-irtækja frá Svíþjóð.
„Þetta getur þýtt að einhver,
sennilega Ford, hafí verið að því
kominn að gera opinbert tilboð í
Volvo til að ná fyrirtækinu undir
sig - sem stjórn Volvo vill afstýra,
ef til vill með stuðningi sænsku rík-
isstjómarinnar," sagði sérfræðing-
ur Arogon Securities, sem kvað
kaup á hlutabréfum í Scania draga
úr áhuga á samruna Volvo og ann-
arra fyrirtækja.
Fréttir um að Volvo eigi í við-
ræðum við Fiat og Ford hafa vald-
ið því að verð hlutabréfa í Volvo
hefur hækkað um meira en þriðj-
ung á einum mánuði.
Vaxandi verslun
á Netinu
910 millj-
arðaráár-
inu 1998
MIKILL vöxtur var í verslun á
Netinu á liðnu ári. í skoðanakönnun
sem framkvæmd var af Boston
Cunsulting Group og Shop. org.
kom í ljós að gera mætti ráð fyrir að
verslun á Netinu hefði numið um
910 milljörðum íslenskra króna. A
fyrri hluta ársins hafði verið gert
ráð fyrir að verslað yrði fyrir 308
milljarða króna. 845 verslanir á
Netinu tóku þátt í könnuninni.
Meira en helmingur þeirra net-
fyrirtækja sem tóku þátt í könnun-
inni hafa náð tryggri fótfestu á ein-
stökum sviðum verslunar og við-
skipta, svo sem fjármálum, fatnaði,
bóksölu og vélbúnaði. Má þar nefna
barnesandnoble.com, Dell, Sehwab
og Eddie Bauer.
í könnuninni kom í ljós að bílasal-
ar seldu bíla fyrir 700 milljarða
króna fyrstu sex mánuði ársins til
viðskiptavina sem tóku ákvörðun
um seljanda með aðstoð Netsins.
Bílanaust hf.
Kaupir öll
bréf í Fjöðr-
inni ehf.
BÍLANAUST hf. hefur keypt öll
hlutabréf í Bílavörubúðinni Fjöðr-
inni ehf. Með kaupunum hyggst
Bílanaust ná fram hagræðingu,
meðal annars með því að sameina
tölvubúnað og ski-ifstofuhald fyiúr-
tækjanna og flytja útibú sitt í Skeif-
unni 5 að Skeifunni 2, þar sem
Fjöðrin er til húsa, á næstu mánuð-
um.
Forráðamenn Bílanausts vonast
til að hægt verði að bæta sérhæf-
ingu félagsins og auka þjónustu við
viðskiptavini þess, svo og styrkja
stöðu þess í ört vaxandi samkeppni
á markaðnum, að því er kemur
fram í sameiginlegri tilkynningu
fyrirtækjanna.
I 567 2277
HSn&smnfl
Funahöfða 1 - Fax 567 3938 I
Ford Escort CLX 1,6, árg. 95, ekinn 66
þús. km, rauöur, 5 g, álfelgur, sóllúga,
geislasp., spólvörn,
VWGolf CL1,6,
blár,5 g. samlitur. Verð kr. 800.000. Sem nýr
Ford Explorer Executive 4,0, árg. 97,
ekinn 34 þús. km, d-blár, ssk., álfelgur,
rafm. í öllu, saml., 31“ dekk o.fl. Verð
Grand Cherokee Laredo 4,0, árg. 96,
ekinn 70 þús. km, grár, ssk., álfelgur,
ABS, líknarb., fjarsf. saml., r/r. Verð kr.
Dodge Caravan 3,3 V6, árg 98, ekinn 1
þús. km, d-grænn, ssk., líknarb., 7 manna.
Verð kr. 2.690.000. ATH. skipti.
Toyota Corolla Liftback GL11,6, árg. 93,
ekinn 94 þús. km, hvítur, 5g, álfelgur, saml.,
geislasp.Verð kr 850.000. ATH skipti.
Toyota Corolla 1,8 XLI 4x4 STW, árg.
96, ekinn 27 þús. km, dökkgrænn. Verð
kr 1.480.000. ATH.skipti.
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 19
„Afbragðsgóð
skemmtun"
- G.H.S. Dagur
„Stórkostleg"
-A.EDV
Bráðskemmtileg
synmg
- S.H. MBL
„Ekki faralH"
- Taugastrekktur
leikhúsgestur
„Grínið í
fyrirrúmi"
- G.H.S. Dagur
assft-
ÞJONN
í s ú p u n n i
Uppselt á allar sýningar 1998.
Ekkí míssa af súpunní
Pantaðu núna í síma
5 30 30 30