Morgunblaðið - 19.01.1999, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.01.1999, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 23 Námskeið um þátt- töku í vörusýningum Sýningar til að selja ÚTFLUTNINGSRÁÐ íslands stendur á föstudaginn, 22. janúar nk., fyrir námskeiði um skipulagningu og ft'amkomu á vöru- og þjónustusýningum. Sérstakur fyrirlesari á nám- skeiðinu er Brian Perkins, framkvæmdastjóri hjá Diversified Business Commun- ication, sem er eitt stærsta fyr- irtæki í heimi á sviði sýningar- halds. Fyrirtækið stendur m.a. að sýningunum Boston Seafood Show, European Seafood Ex- position og Seafood Processing Europe í Brussel og gefur út blöð og tímarit um sjávarútveg. Sýningar eru til að selja vöru Brian mun á námskeiðinu fjalla um hvemig fyrirtæki geta með þátttöku á vöru- eða þjónustusýningum hámarkað árangur sinn í markaðssetn- ingu. „Sýningar eru til þess að selja þá vöru sem fyrirtækin hafa upp á að bjóða,“ segir Bri- an í samtali við Morgunblaðið. „Fiestir nýta hinsvegar sýning- ar til að kynna aðeins einkenni og ímynd fyrirtækja sinna. Sýn- ingarnar sækja hinsvegar væntanlegir kaupendur og fólk ætti því að nýta tíma og krafta í sölu vörunnar. Vöru- og þjónustusýningar eru einn af fáu fjölmiðlum sem færir fyrir- tækjunum kaupandann í eigin perónu." Brian segir íyririestur sinn byggðan á rannsóknum og könnunum um hvemig megi bæta árangur fyrirtækja með þátttöku í sýningum. „Pá má alltaf bæta árangur fyrirtækj- anna á slíkum sýningum. Það er hinsvegar mikilvægt að vöra- og þjónustusýningar séu hluti af markaðsáætlunum fýrirtækj- anna, samhliða markaðssetn- ingu vörannar, söluáætlunum og auglýsingum. Þessu er víða ábótavant og þá er oft ekki á hreinu hver er hinn eiginlegi til- gangur sýninganna," segir Bri- an. Ennfremur mun Jón Þor- valdsson, kynningarráðgjafi, flytja erindi á námskeiðinu sem hann kallar: „Markviss fram- ganga á vörusýningum - hvað þarf til að skara framúr?“ Námskeiðið verður haldið á Hótel Sögu og hefst ki. 13:30. Þátttaka er ókeypis. Amerisk gæða framleidsla 30-450 lítrar Umboðs- menn um land allt RAFVORUR ARMULI 5 • RVK • SIMI 568 6411 __________ÚR VERINU______________ Meiri umsvif hjá Fiskmarkaði Tálknafjarðar en nokkru sinni Morgunblaðið/Finnur Pétursson SNÆBJÖRN Geir Viggósson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Tálknafjarðar við þorskkar af Þórhöllu BA 144, en fiskurinn var boðinn upp á FMT og kaupandinn var Toppfiskur í Reylqavík. Með Snæbirni Geir á myndinni eru þau Adam og Alexandra. TálknaJQörður. Morgunblaðið. Á FISKMARKAÐI Tálknafjarðar voru meiri umsvif á árinu 1998 en nokkru sinni áður í sögu fyrirtækis- ins. Hefur aldrei verið selt jafn mik- ið á einu ári. í samtali við Snæbjörn Geir Viggósson framkvæmdastjóra, kom fram að heildarsala á árinu var 1.114 tonn og hefur aldrei verið meiri yfir sama viðmiðunartímabil. Meðalverðið var 113,25 krónur á kíló. Vandað til frágangs á fiskinum Skýringuna á þessu háa meðal- verði má að hluta rekja til þess að vandað er til frágangs á öllum fiski og reynt að veita viðskiptavinum sem besta þjónustu. Það kom fram hjá Snæbimi, að hann teldi það löngu tímabært að við úthlutun afla- heimilda verði farið að taka mið af meðferð og gæðum afla hjá útgerð- um, þannig að þeir sem ganga vel um aflann fái viðurkenningu í aukn- um aflaheimildum, þar sem það eykur augljóslega arðinn af auðlind- inni að farið sé vel með fiskinn. Þorskur fyrir 73,4 milljónir Þegar skoðað er yfirlit vegna sölu hjá FMT, kemur í ljós að þorskur er í fyrsta sæti, bæði hvað varðar magn og verðmæti. Seld voru 659 tonn fyrir 73,4 milljónir. Næst kem- ur steinbítur, 190,7 tonn, sem seld vora á 22,6 milljónir. Af því u.þ.b. 30 tonn steinbítsflök. Þá kemur ýsa, 186,7 tonn, á 23 milljónir og því næst koma tegundir eins og skar- koli, ufsi og lax. Til gamans má geta þess að FMT seldi 10 tonn af eldis- laxi fyrir 2,3 milljónir, en laxinn er í fjórða sæti ef miðað er við sölu- verðmæti. Mest er að gera á markaðnum yf- ir sumarmánuðina og er skýringar- innar á því að leita í fjölda smábáta sem róa frá Tálknafirði yfir sum- artímann. Áætlar Snæbjöm, að af árssölunni fari u.þ.b. 85% í gegn yf- ir sumarið. Mest selt burt af staðnum Það er ekki mikið um það að fisk- vinnslufyrirtæki á Tálknafirði kaupi hráefni á markaðnum, þar sem þau eiga báta sjálf og era með fleiri báta í föstum viðskiptum. Af því leiðir að bróðurparturinn af fiskinum sem kemur á markaðinn er fluttur í önn- ur byggðarlög og er höfuðborgar- svæðið þar ofarlega á blaði, en aðrir staðir, eins og t.d. Raufarhöfn, hafa einnig fengið fisk frá Tálknafirði. . 1 "ilíl A EfTIR ÖLLUM PlNUM KHÖNUM ðgreiðsluafsláttur illum gleraugnaumgjörðum Gleraugnaverslun Hagkaups umst á réttum stað GLERAUGNAVERSLUN HAGKAUP Meira úrval kaup
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.