Morgunblaðið - 19.01.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 2 7
Vopnahlé
í Sierra
Leone
TALSMENN uppreisnar-
manna í Sierra Leone sögðust í
gær myndu virða vopnahlé frá
kl. sex að kvöldi mánudags að
íslenzkum tíma, jafnvel þótt
engar vísbendingar væru um
að hersveitir frá vestur-afrísk-
um nágrannaríkjum, sem stutt
hafa stjórnarher Sierra Leone
í baráttunni við skæraliða,
myndu virða það einnig. Tals-
maður ECOMOG-sveitanna,
sem Nígeríumenn fara fyrir,
sagði að létu skæruliðar ekki
verða úr því að virða boðað
vopnahlé yrði herförinni gegn
þeim haldið miskunnarlaust
áfram. Uppreisnarmenn, sem
eru bandamenn herfor-
ingjaklíkunnar sem áður
stjórnaði Sierra Leone, réðust
inn í höfuðborgina Freetown 6.
janúar en voru í síðustu viku
hraktir út úr flestum hverfum
borgarinnar upp í nærliggjandi
fjöll.
Fóstra játar
manndráp
ÁSTRÖLSK barnfóstra, Lou-
ise Sullivan að nafni, játaði við
upphaf réttarhalda yfir henni í
London í gær
að hún hefði
óvart orðið
sex mánaða
barni sem hún
hafði í umsjá
sinni að bana.
Sullivan, sem
er 27 ára,
hafði fram að
þessu haldið
þvf staðfastlega fram að hún
ætti ekki sök á andláti barns-
ins, Caroline Jongen, sem lézt
úr höfuðáverkum i apríl síðast-
liðnum. Málavextir þykja líkj-
ast mjög réttarhaldinu yfir
brezku barnfóstrunni Louise
Woodward í Bandaríkjunum,
en mál Sullivan vakti þó ekki
líkt eins mikla athygli.
CIA afhendir
njósnaskjöl
BANDARÍSK stjórnvöld hafa
fallizt á að afhenda þýzkum yf-
irvöldum skjöl sem bandaríska
leyniþjónustan CIA komst yfir
þegar allt var í upplausn í höf-
uðstöðvum austur-þýzku leyni-
þjónustunnar í kjölfar falls
Berlínarmúrsins í árslok 1989.
Talið er að í skjölunum sé m.a.
að finna nafnalista með nöfnum
njósnara og uppljóstrara sem
störfuðu fyrir austur-þýzku
ieyniþjónustuna. Þýzka stjórn-
in hafði árum saman reynt að
fá bandarísk stjórnvöld til að
afhenda gögnin, en þau voru
treg til, að sögn vegna ótta um
að upp um þeirra eigin njósn-
ara kæmist.
Heimsmet í
kviksetningu
ENGLENDINGURINN Geoff
Smith, nefndur „moldvarpan“,
hefur sett nýtt heimsmet í að
lifa af „kviksetningu". Hann
hefur verið grafinn í jörðu í
kassa sem líkist líkkistu í heila
142 daga, að því er brezk dag-
blöð sögðu frá í gær. Hann mun
ætla sér að liggja neðar foldu
átta daga í viðbót til að rúnna
metið upp í 150 daga. Loft, mat
og drykk fær Smith til sín í
gegn um mjótt rör.
Sullivan
ERLENT
Sektarkennd þjak-
ar Margaret Cook
London. The Daily Telegraph.
Robin Cook Margaret Cook
FYRRVERANDI eiginkona Robins
Cooks, utanríkisráðherra Bret-
lands, viðurkenndi um helgina að
hún myndi finna til sektarkenndar
neyddist Cook til að segja af sér
vegna endurminningabókar henn-
ar, þar sem hún lýsir Cook sem
drykkfelldum og tilfínningaiausum
manni sem ítrekað hélt fram hjá
henni.
Sagði Margaret Cook að fyrrver-
andi eiginmaður sinn væri „greind-
ur, staðfastur og hugrakkur" mað-
ur og að hún fyndi til „nokkurra
óþæginda og sektarkenndar"
vegna þeirra erfíðleika sem hún
hefði valdið honum með uppijóstr-
unum sinum. „Og þessi óþægindi
myndu magnast verulega ef hann
glataði ráðherrastólnum."
Helgarblaðið The Sunday Times
héit áfram að birta úrdrætti úr bók
ráðherrafrúarinnar fyrrverandi
um helgina og kom þar m.a. fram
að Peter Mandelson, fyrrverandi
ráðherra iðnaðar- og viðskipta-
mála, hvatti hana óafvitandi til að
skrifa bók um hjónabandið með
Cook. Taldi Margaret Cook sér
óhætt að tjá sig um hjónabandið
eftir að Mandelson trúði henni fyr-
ir því að hann teldi enga hættu á
að Cook yrði að segja af sér emb-
ætti þótt ijóst væri að fjölmiðlar
myndu gera harða
hríð að honum í kjöl-
far skilnaðarins.
Rifjaði Margaret
Cook upp að Mandel-
son, sem neyddist til
að segja af sér ráð-
herrastóli á Þorláks-
messu, tók að sér
starf milligöngu-
manns þegar verið
var að ganga frá
skilnaði hennar og
Cook og var Mandel-
son í stöðugu sam-
bandi við hana um
tíma. „Hann beitti
persónutöfrum sínum
sem mest hann mátti
til að hafa mig góða.
Ríkisstjórnin vildi að ég héldi mér
saman enda vissu leiðtogar hennar
að ég gæti valdið miklum vandræð-
um.“
Okkur veitist sú ánægja
að tilkynna að við höfum
tekið við umboðum og
sölu ásamt þjónustu á
öllum þrek- og
æf ingatækjum og tólum
frá HREYSTI ehf.
PROFORM
WESLO
SCHWINN
IMAGE
VECTRA
Fassi
Við bjóðum viðskiptavini HREYSTI
og alla aðra velkomna í stærstu
og glæsilegustu þrektækjaverslun
landsins
ÖRNINNP9
----Þrektækjadeild---------
Skeifunni 11, Sími 588 9 89 0
NU ER TIMI TIL AÐ KOMA SER I
Þrektæki
Göngulhlaupabrautir
Æfingastöðvar - Fjölþjálfar
Pressubekkir - Magaþjálfar
Þrekhestar - Þrekhjól
Spinninghjól - Lyftingasett
Lyftingabekkir og lóðasett
Handlóð - Sippubönd
- Ökklaþyngingar
o.m.fl.