Morgunblaðið - 19.01.1999, Side 40
. t 40 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Menningarhús á
landsbyggðinni
í UPPHAFI ársins
kynnti ríkisstjórnin at-
hyglisverð áform um
uppbyggingu menning-
armiðstöðva úti um
landið. Þessum áform-
um ber að fagna, enda
er lista- og menningar-
líf einn af hornsteinum
hvers samfélags og öfl-
ug starfsemi á þessum
sviðum er ein af for-
sendum þess að byggð
blómgist úti um landið.
Hér er því um að ræða
mikilvægt markmið
sem stjómarflokkamir
hafa sett sér og miðar
að því að treysta byggð
og búsetu fólks á lands-
byggðinni.
Ekki menningarhús
á Vesturlandi!
Þegar ríkisstjómin kynnti þessi
áform var lögð áhersla á að byggja
upp menningarhús á fímm stöðum í
jafn mörgum kjördæmum landsins.
Jafnframt er gert ráð fyrir að vem-
legur kostnaður verði vegna þessa,
meðal annars vegna byggingar-
framkvæmda. Helstu rök fyrir vali
á þessum stöðum munu vera fjar-
lægð frá höfuðborgarsvæðinu og að
viðkomandi staðir em kjarnasvæði í
viðkomandi kjördæmum. Það vekur
hins vegar athygli að á sama tíma er
ekki gert ráð fyrir að ráðast í slíka
uppbyggingu á Vesturlandi, sem
þar með situr eftir eitt landsbyggð-
arkjördæma. Greinarhöfundur
gerði athugasemd við þetta þegar
málið var kynnt í þingflokki fram-
sóknarmanna. Þrátt fyrir þessar at-
hugasemdir er ekki gert lítið úr
mikilvægi málsins og þeim áform-
um sem uppi eru annars staðar á
landinu.
Góð aðstaða
fyrir hendi
Það er ljóst að uppbygging menn-
ingarmiðstöðvar er ekki síður mikil-
væg á Vesturlandi en í öðrum lands-
hlutum. Hins vegar kemur upp sú
spurning hvar slík
menningarmiðstöð ætti
að vera staðsett í kjör-
dæminu. Landfræði-
lega séð væri Borgar-
nes og nági-enni líklega
heppilegasti staðurinn
þar sem það svæði er
miðsvæðis í kjördæm-
inu. Hins vegar má
benda á að í Reykholti
hafa heimamenn og
aðrir aðilar byggt upp
glæsilega menningar-
miðstöð sem hefur gert
heimamönnum kleift að
efla mjög menningar-
starf að undanfórnu.
Reykholt er ein elsta
menningarmiðstöð
landsins og býr yfír mikilli sögu á
því sviði.
Þess vegna væri eflaust óheppi-
Menning
Það er ljóst, segir
Magnús Stefánsson, að
uppbygging menning-
armiðstöðvar er ekki
síður mikilvæg á Vest-
urlandi en í öðrum
landshlutum.
legt gagnvart uppbyggingunni í
Reykholti að byggja upp menning-
arhús í Borgarnesi, frekar ætti að
skjóta styrkari stoðum undir menn-
ingarmiðstöðina og starfsemi henn-
ar í Reykholti.
Vegna fjarlægðar frá höfuðborg-
arsvæðinu beinast því sjónir að
Snæfellsnesi þar sem eru nokkrir
þéttbýlisstaðir með yfir 4.000 íbúa
og má vekja athygli á því samstarfi
sem íbúar á því svæði hafa átt á
lista- og menningarsviðinu. I Ólafs-
vík er stórt og glæsilegt félagsheim-
ili, sem er líklega fullkomnasta og
best búna félagsheimili á lands-
byggðinni. Sveitarfélagið byggði fé-
lagsheimilið, sem var tekið í notkun
árið 1987 og heimafólk hefur síðan
lagt mikið af mörkum við að fjár-
magna fullkominn búnað í húsið.
Með því að hagnýta þessa góðu að-
stöðu sem er fyrir hendi má auð-
veldlega ná þeim markmiðum sem
ríkisstjórnin hefur sett varðandi
uppbyggingu menningarhúsa á
landsbyggðinni. Kostnaður vegna
þessa væri lítill en aukið menningar-
starf á þessu svæði myndi skipta
norðanvert Vesturlandskjördæmi
miklu máli. Byggðin í þessum hluta
kjördæmisins hefur staðið höllum
fæti undanfarin ár, en ýmsir mögu-
leikar og sóknarfæri geta snúið
þeirri þróun við ef tekst að nýta þau.
Vesturland verði með
Af framansögðu er niðurstaðan
sú að ríkisstjómin ætti að beita sér
fyrir þvi að Vesturland fái að fljóta
með í þeim jákvæðu áformum sem
fram hafa verið sett um uppbygg-
ingu menningarlífs á landsbyggð-
inni. Menningarhús í félagsheimil-
inu Klifi í Ólafsvík og það að styrkja
stoðir menningarmiðstöðvarinnar í
Reykholti skiptir miklu máli varð-
andi búsetuskilyrði á Vesturlandi
og myndi virka á jákvæðan hátt á
þróun búsetu í kjördæminu. Slíkar
áherslur eru skynsamlegar og
hljóta að falla vel að markmiðum
ríkisstjórnarinnar í þessum efnum,
að auki væri um lágmarkskostnað
að ræða fyrir ríkissjóð þar sem að-
staðan hefur nú þegar verið byggð
upp að mestu leyti. Það að Vestur-
land verði ekki talið með í þeim
áformum sem uppi eru virkar nei-
kvætt á búsetuþróun í kjördæminu
og eru ekki góð skilaboð til fólks í
kjördæminu. Það er því mikilvægt
að samstaða náist um að Vesturland
verði með í þeirri mikilvægu fór
sem ríkisstjórnin hefur lagt upp í
með það að markmiði að efla menn-
ingarstarfsemi á landsbyggðinni.
Höfundur er alþingismaður Fram-
sóknarflokks í Vesturlandskjör-
dæmi.
Magnús
Stefánsson
Blessaður karlinn
hann Víkverji
VIKVERJI Morgun-
blaðsins er skemmti-
legur þáttur, einn af fá-
um nafnlausum pistlum
í gegnum árin sem hafa
kunnað að fara með þá
ábyrgð að skrifa undir
dulnefni.
Víkverji er glaðlynd-
ur náungi og því kær-
kominn gestur í morg-
unkaffi á heimilum
landsmanna, veltir upp
sjónarmiðum, tekur
undir skoðanir eða
hafnar þeim á þeim
nótum að engan meiðir.
Auðvitað finnur mað-
ur að þekkingu Vík-
veija eru takmörk sett
og bundin því mannlega hjarta sem
pennanum stýrir.
Hvort Víkverji er tvíhöfði eða
ekki, skrifaður af einum manni eða
fleirum skiptir ekki máli. Víkverji
er persóna sem oft fjallar um mál
með athyglisverðum hætti. Víkverji
kann að vera kona, þær fara oft í
skrifum og málflutningi fram af
meira næmi og hógværð.
Miðvikudaginn 6. janúar sl. gerir
Víkverji að umræðuefni þingsálykt-
un sem við flytjum þrír þingmenn
Guðni
Ágústsson
Framsóknarflokksins,
um að komið verði á fót
landsliði hestamanna,
er komi fram við opin-
berar móttökur o.s.frv.
I þessari grein Vík-
verja kemur í ljós að
hann þekkir lítið til
hestamennsku og enn
síður hvar hún er mest
stunduð í landinu og
blessaður karlinn skil-
ur ekki inntak tillög-
unnar og reynir að
gera hana tortryggi-
lega. Hann virðist
haldinn nokkrum for-
dómum í garð sveita-
manna og gerir tals-
vert úr því að þre-
menningarnir sanni að flokkur
þeirra sé dreiíbýlisflokkui'.
Hvar er Mekka
hestamennskunnar?
Hestamennska er ekki síður
íþrótt og tómstundagaman þeirra
sem í þéttbýli búa. A höfuðborgar-
svæðinu einu eru um 10 þúsund
hross og ætla má að 7-8 þúsund
manns stundi hestamennsku þar. í
Reykjavík eru flest hross í einu
sveitarfélagi, hátt í 4 þúsund sam-
Landslið
Hvers vegna kemur
Víkverji eins og álfur
út úr hól, spyr Guðni
Agústsson, þegar
færustu reiðmenn
okkar hafa vakið
heimsathygli?
kvæmt forðagæsluskýrslum. Marg-
ir af fremstu hestamönnum landsins
búa á höfuðborgarsvæðinu, þar er
reiðhöllin, þar verður næsta lands-
mót hestamanna í Víðidalnum
o.s.frv. Þangað munu koma 4-5 þús-
und erlendir gestir vegna lands-
mótsins, hesturinn trekkir.
Sú ómerkilega umræða gegn
sveitum, gegn bændum sem niður-
rifsöfl ástunduðu hér á tímabili
heyrir vonandi fortíðinni til. Margir
þéttbýlisbúar eiga sterkar taugar
og tilfinningar í sveitirnar og vilja í
dag telja sig sveitamenn og eru
stoltir af. Heimsborgarar úti í Evr-
ópu, sem bundist hafa tryggðabönd-
Félag sam-
kynhneigðra
stúdenta
í UNDIRBÚNINGI
er stofnun Félags sam-
kynhneigðra stúdenta
(FSS) við Háskóla ís-
lands. Stofnun þess
markar tímamót því
þetta er í fyrsta sinn
sem slíkt félag er
stofnað við íslenskan
háskóla. Undanfarna
mánuði hefur hópur
háskólastúdenta hist á
óformlegum fundum til
þess að ræða stöðu
samkynhneigðra við
Háskólann. Mikill
áhugi virðist vera á
málefninu og hefur
hópurinn farið ört
stækkandi síðustu misseri. í kjöl-
farið hefur verið ákveðið að stofna
formlega nemendafélag innan Há-
skólans sem lætur til sín taka mál-
efni sam- og tvíkynhneigðra.
Vettvangur
samkynhneigðra
Víðast hvar við erlenda háskóla
þykja félög samkynhneigðra sjálf-
Háskólinn
Stofnun félagsins
markar tímamót, segir
Páll Freyr Jónsson, því
þetta er í fyrsta sinn,
sem slíkt félag er
stofnað við íslenskan
háskóla.
sagður hluti af háskólamenning-
unni. Samkynhneigðir á háskóla-
aldri finna oft fyrir félagslegri ein-
angrun og er félaginu ætlað að
koma til móts við þarfir þessa
fólks. Skemmtistaðir hafa verið
um við íslenska hestamenn og hest-
inn, klæðast lopapeysum, eiga ís-
lenskan hund og telja sig sveita-
menn, jafnvel íslenska. Svona snýst
nú tískan sitt á hvað. Margt fólk í
höfuðborginni skammast sín ekki
fyrir að teljast til sveitamanna. Það
er reyndar áhyggjuefni hvernig
sveitimar eru að fara. Þar öriar að
vísu á sókn á ný, en ef íslensk
bændamenning tapast er skarð fyr-
ir skildi. íslenski bóndinn, sem í eðli
sínu er ættjarðarvinur í góðri merk-
ingu þess orðs, þarf að ná stolti sínu
og una glaður við sitt.
Júrí Resitov, sendiherra Rúss-
lands, sagði við greinarhöfund eftir-
minnileg orð sem segja mikið um
aðalsmerki íslenskra bænda í gegn-
um söguna. Hann sagði: „A Islandi
býr gott fólk en sveitafólkið er þó
best, íslenskir bændur sameina
þetta tvennt sem er svo mikilvægt
að vera, hvort tveggja í senn þjóð-
ernissinni og heimsborgari." Oft
hafa útlendingar hrifist af frelsi og
fasi bóndans, jafnvel afdalabóndinn
var líkari heimsborgara á erlendri
grund en íslenskum erfiðisvinnu-
manni. Ég er þakklátur fyrir að
Framsóknarflokkurinn hefur alla
tíð lagt upp úr að landið allt verði
byggt en jafnframt er flokkurinn
stjórnmálaafl sem á erindi til allra
Islendinga, hvar sem þeir búa.
Hvað kostar landslið
hestamanna?
Víkverji býsnast yfir þeim kostn-
aði sem fylgja myndi landsliðinu og
skilur ekkert hvernig slík starfsemi
verði rekin. Hann spyr utangátta:
„Hvað þarf margra ára þjálfun
stóðs og landsliðs áður en um boð-
helsti vettvangur sam-
kynhneigðra háskóla-
stúdenta en eðlilegra
má teljast að fólk geti
hist og rætt sín mál án
þess að þurfa að gera
það á skemmtistöðum
um helgar. Samkyn-
hneigðir háskólastúd-
entar eiga margt sam-
eiginlegt umfram kyn-
hneigð sína og félagið
því kjörinn vettvangur
fyiir þá. Það er því rík
ástæða fyrir þennan
hóp að stofna með sér
félagsskap þar sem
stúdentar geta leitað
stuðnings skilnings-
ríkra jafningja.
Aukin fræðsla
Félag samkynhneigðra stúdenta
hefur að markmiði að vera sýnilegt
afl innan Háskólans og vera í for-
svari þegar málefni samkyn-
hneigðra ber á góma. Það mun
standa að aukinni fræðslu og um-
ræðu innan Háskólans og vinna að
réttindabaráttu í samvinnu við
önnur nemendafélög HÍ. Menning-
ai-viðburðir og aðrar uppákomur
verða á vegum félagsins eftir því
sem aðstæður leyfa. Síðast en ekki
síst mun félagið vera óþvingaður
vettvangur íýrir fólk til að hittast
og kynnast öðrum á sama reki.
Stofnfundur í dag
Félag samkynhneigðra stúdenta
verður fonnlega stofnað þriðjudag-
inn 19. janúar. Stofnfundurinn
markar upphaf þemadaga á vegum
jafnréttisnefndar Stúdentaráðs,
sem nefnast „hinsegin dagar“, þar
sem málefni homma og lesbía
verða í brennidepli. Félagið vill
bjóða alla háskólastúdenta sem
áhuga hafa á þessum málum vel-
komna í hópinn.
Höfundur er einn af stofnendum
FSS.
lega sýningarvöru verður að
ræða“? Hvers vegna kemur Vík-
verji eins og álfur út úr hól þegar
færustu reiðmenn okkar hafa vakið
heimsathygli? Sjónvarpsstöðvar
sýna vikulega þætti sem sýna sam-
spil og snilli knapa og hests. Hest-
arnir eru til reiðu og knaparnir
einnig. Síðan yi'ði gerður verktaka-
samningur við færa reiðmenn sem
tækju þetta að sér.
Nú þjóta menn um landið með
heilu stóðin í hestakerrum og þykir
ekkert mál, kerrum sem taka 5-8
hesta eða vel útbúnum flutningabíl-
um. Hægt væri t.d. að semja við fé-
lag tamningamapna um að annast
þessa þjónustu. Ég fullyrði að hér er
ekki verið að ræða um háar upp-
hæðir og aðeins brot af því tilstandi
öllu sem fylgii' móttökum og hátíð-
um.
Islenski hesturinn er mikill segull.
Hingað koma margir ferðamenn
eingöngu af ást til hestsins. Það er
talið að 20 þúsund erlendir ferða-
menn komi árlega og fari í lengri og
styttri hestaferðir um landið. I
könnun, sem gerð var meðal er-
lendra ferðamanna, kemur í ljós að
27% þeirra nefna hestinn sem það
eftirminnilegasta frá íslandsferð-
inni. Ekki myndi vegur hestsins
minnka ef hann fengi nýtt hlutverk
við hátíðlegar athafnir. Að lokum
þetta: Skrautreiðin niður Almanna-
gjá á Þingvöllum yrði nýtt ris á
góðri ferð til íslands og slík sýning
gæti trúlega staðið undir sér, því
ferðamenn myndu glaðir greiða
gjald fyrir hina tignarlegu reið.
Höfumlur er alþingismaður.
Páll Freyr
Jónsson