Morgunblaðið - 19.01.1999, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
„Af frjálsum vilja“ í Hindisvík
Reiðfært á
tæpri klukkvi-
stund
t Tamningaaðferðin „Af frjálsum vilja“ nýtur
mikilla vinsælda og stöðugt bætast menn í
þann hóp sem kynnir sér aðferðina á nám-
skeiði hjá Ingimari Sveinssyni fyrrum kenn-
ara á Hvanneyri. Valdimar Krístinsson kíkti
inn á námskeið sem haldið var í hestamið-
stöðinni Hindisvík í Mosfellsbæ um helgina.
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
INGIMAR Sveinsson hyggst nú heimsælga hestamenn og kenna „Af frjálsum vilja'
ÞAÐ var mikill hugur í þeim
fimmmenningum sem höfðu fengið
Ingimar til að halda námskeiðið og
eins og allir sem sótt hafa þessi nám-
■^r-skeið voru þeir yfír sig hrifnir og
undrandi á hvílíkt kraftaverk þessi
aðferð væri svo notuð séu orð eins
þátttakandans. Eins og venjan er á
þessum námskeiðum var hver þeir
með sinn hestinn og þegar blaða-
mann bar að garði var Magnús
Bjamarson kominn á bak glæsileg-
um Kirkjubæing sem hann hafði
eignast nýlega í einhverjum skipt-
um. Hafði lítillega verið átt við fol-
ann og hann tvisvar búinn að henda
fyrri eiganda og Magnús hafði sjálf-
ur farið einu sinni á bak honum og
^fengið flugferð. Sá blesótti hrekkti
hnakkinn í fyrstu en síðan ekki sög-
una meir og Magnús reið honum um
alla skemmuna án nokkurra vand-
kvæða á þriðja og síðasta degi nám-
skeiðsins. Ingimar sagði þetta ár-
angur af tæplega klukkustundar
tamningu í heildina þessa þrjá daga.
Krafsaði sig upp veggina
Næsti hesturinn sem farið var á
bak var svartur foli frá Hindisvík.
„Alveg stjömuvitlaus í upphafi,"
sögðu tamningamennimir en Ingi-
mar sagði hann bara svona hræddan.
Þegar þeir nálguðust stíuna sem
hann var hafður í byrjaði hann að
krafsa sig upp eftir veggnum og
verulegum vandkvæðum bundið að
koma múl á hann í upphafí. í tveim-
ur homum skemmunnar em litlir
pallar í ríflega metershæð og stökk
sá brúni upp á einn pallinn þegar
verið var byrja að eiga við hann inni í
skemmunni. I lokin elti sá brúni
bæði Ingimar og tamningamanninn
Stefán Þórisson eins og hundur um
allan skemmuna. Stefán sem þarna
steig sín fyrstu skref við tamningar
sagðist ekki hafa verið hræddur við
Líflegt á Þingeyrum
Benedikt og
Magnús með fjöl-
breytt námskeið
STARFSEMIN á Þingeyrum í
Austur-Húnavatnssýslu verður
lífleg í vetur eins og til stóð að
yrði á síðasta ári. Þá setti hita-
sóttin strik í reikninginn þar sem
megnið af starfseminni féll niður.
Nú hefst starfsemin 30. og 31.
janúar með frumtamninganám-
skeiði þar sem Magnús Lámsson
mun kenna. Nemendum verður
gefinn kostur á að koma með
trippi með sér eða fá þau lánuð á
staðnum.
Framhaldsnámskeið verður
haldið 27. til 28. mars þar sem
nemendur komi með reiðfær
hross með sér en 14. mars verður
Magnús á Þingeymm og býður
upp á einkatíma þar sem hann
ráðleggur um þjálfun hrossa.
Benedikt Þorbjömsson verður
með námskeið 5. til 7. febrúar, 12.
til 14. febrúar og 26. til 28. febrú-
ar. Yfirskrift námskeiðanna er
„Bætt samskipti - betri tamning".
Verður þar bent á leiðir til að ná
fram aga sem byggist á trausti og
því að maðurinn hlusti á hestinn.
Þá mun Benedikt kenna nýstár-
legar aðferðir við vinnu í hendi
sem síðar em yfirfærðar í reið-
mennsku. Þá verður Benedikt
með einkatíma 12. febrúar.
Samtök hrossabænda verða
með sölusýningu á Þingeyram 10.
apríl og í vor verður boðið upp á
reiðkennslu fyrir börn og ung-
linga.
Að síðustu er að nefna nám-
skeið fyrir útlendinga 17. til 23.
mars, sem er hluti af því sem kall-
að er vetrarheimsókn á íslenskan
hestabúgarð. Kennari verður
Magnús Lámsson og verður
kennt á ensku.
Þá verður boðið upp á Þing-
eyratölt eins og undanfarin ár þar
sem keppt verður um farandbikar
sem veittur er þeim sem nær
bestum samanlögðum árangri í
þeim þremur mótum sem boðið er
upp á.
SÉRVERSLUN
HESTAMANNSINS
Háaleitisbraut 68 C . Austurver
Sími 568 4240
íþróttir á Netinu
^mbl.is
_ALLTXKe e/TTHV'AO HÝTT
að fara á bak enda undir góðri og ör-
uggri handleiðslu Ingimars.
,Adrenalínið var að sjálfsögðu á fullu
en ég óttaðist aldrei þótt ég væri að
fara í fyrsta skipti á bak ótömdum
hesti. Ég hef verið að gutla í hesta-
mennsku síðan 1991 og þá alltaf á
þægum tömdum hestum. Ég átti
ekki von á svo skjótum árangri þótt
búið hefði verið að segja mér hversu
áhrifarík þessi tamningaaðferð er.
Mér sýnist tamningmenn vera að
gera sömu hluti á mánuði þar sem
hér hefur verið gert á þremur dög-
um“ sagði Stefán hæstánægður með
þá nýju kunnáttu sem hann var að
afla sér. Félagar hans tóku undir all-
ir sem einn og einn í hópnum, Björn
Baldursson, sagðist vera búinn að
vera yfir tuttugu ár í hestamennsk-
unni og hann sæi ekki betur en að nú
hefði hann meðtekið meiri og gang-
legri þekkingu en hann hefði aflað
sér í öll þessi ár.
Þetta mun fyrsta námskeiðið hér á
landi sem Ingimar heldur fyrir utan
Hvanneyri og má segja að nú hafi
þessi fræðsla hleypt heimdraganum
eftir að hann hætti kennslu á Hvann-
eyri og fór á eftirlaun. Venjulega eru
átta þátttakendur á hverju nám-
skeiði en voru nú fimm eins og áður
segir. Ekki það að fleiri hefðu ekki
áhuga heldur hitt að Ingimar vildi
ekki hafa fleiri af því þetta var fyrsta
námskeiðið við nýjar aðstæður.
Verklegi hlutinn fór fram í reið-
skemmunni í Hindisvík og var tæp-
lega helmingur reiðvallarins
skermaður af. Sagði Ingimar þetta
hafa tekist með ágætum, aðstaðan
prýðileg og nemendurnir áhugasam-
ir. Fyrr á þessu var Ingimar pantað-
ur til Danmerkur þar sem hann
kenndi frændum vomm Dönum að-
ferðina við góðar undirtektir.
Fyrir þá sem ekki hafa heyrt um
þessa aðferð má upplýsa að hún felst í
því að vinna traust hestsins með þeim
hætti að tamningamaðurinn lætur
hestinn hlaupa í hring sem er um það
bil 15 metrar í þvermál. Þegar hest-
urinn gefur ákveðin merki með eyr-
um og munni getur tamningamaður-
inn farið að nálgast hestinn. Ef hest>
urinn reynist ekki alveg tilbúinn rek-
ur tamningamaðurinn hann áfram og
bíður eftir að hesturinn gefi aftur
merki og reynir þá á nýjan leik. Hest-
urinn er meðhöndlaður í 15 til 20 mín-
útur í hvert skipti og eftir þrjú skipti
em hrossin orðin mjög hænd að
manninum og elta hann án þess að sé
haldið í taum. Sá brúni sem fyrr var
getið um var erfiðastur þeirra fola
sem teknir vora í þessum hópi. Hann
var örlítið viðkvæmur en sætti sig við
allt það sem gert var við hann. Ingi-
mar var fljótur að leiðrétta nemand-
ann ef eitthvað var ekki rétt gert og
sást þá vel að folinn brást alltaf við
eins og hann átti að gera.
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
GALSI frá Sauðárkróki á landsmótinu á Melgerðismelum, knapi er
Baldvin Ari Guðlaugsson sem á tíu prósent í hestinum.
Kaupin á Galsa í uppnámi
SAMTÖK hrossabænda víða um
land hafa fundað undanfarna daga
vegna fyrirhugaðra kaupa á stóð-
hestinum Galsa. Þrátt fyrir hátt verð
virðist nokkur áhugi fyrir kaupum á
hestinum. Eins og staðan var í gær
þá em þrenn hrossaræktarsamtök
búin að samþykkja að kaupa hluti í
hestinum. Dalamenn eru hættir við
þátttöku í kaupunum og setur það þá
hugmynd sem unnið hafði verið eftir
í uppnám. Hrossaræktarsamtök
Suðurlands vora ákveðin í að kaupa
21,67% í hestinum. Skagfirðingar
sem vom búnir afsegja kaup em nú
aftur komnir inn í myndina en nú
með 10,83% eiganarhlut í stað
21,67% eins og upphaflega var talað
um og Austurhúnvetningar kaupa
10,83%. Vesturhúnvetningar eru
mjög tvístígandi eftir þessa ákvörð-
un Dalamanna og þeir setja það skil-
yrði að hlutur vegna sæðistöku verði
í samræmi við eignarskipti en ekki
þannig að núverandi eigandi Andre-
as Trappe fái 50%.
Kristinn Guðnason formaður
hrossaræktarsamtaka sagði að á
fundi hjá samtökunum nýlega hafi
verið tryggt að 11 deildir af 19 innan
samtakanna séu búnar að staðfesta
þátttöku í kaupunum með því að
tryggja sölu á folatollum til sex ára.
Einnig sé sá möguleiki fyrir hendi
að einstaklingar geti tryggt sér
eignaraðild í gegnum deildir sam-
takanna. Með þessum hætti taka
sjálf samtökin ekki mikla áhættu.
Sjálfur kvaðst Kristinn ekki í vafa
um að fengur væri í þessum hesti en
hann viðurkenndi að verðið væri
mjög hátt.
Miklar vangaveltur hafa verið um
kosti og galla Galsa á undanförnum
vikum og er þar verið að togast á um
annarsvegar vilja, geðslag og gang-
rými og hinsvegar efasemdir um
gæði töltsins og fótaburðinn. Einnig
er bent á að afkvæmin veki litla at-
hygli í útliti enn sem komið er hvað
sem síðar kann að verða. Fjögur af-
kvæmi hafa verið sýnd undan Galsa
enn sem komið er en ekkert þeirra
hlotið háar einkunnir enda allt fjögra
vetra trippi. Tvö era rétt yfir 7,70 í
aðaleinkunn en eitt þein-a með 7,63
og það fjórða með 7,29.
A þessari stundu virðast áform um
kaupin geta farið á hvom veginn
sem er.