Morgunblaðið - 19.01.1999, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 19.01.1999, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Seytt rúgbrauð Matur og matgerð ✓ Islendingar borða talsvert mikið af rúgbrauði segir Kristín Gestsdóttir, en henni fínnst seyddu brauðin oft of sæt, einkum þau heimabökuðu. HÉR áður fyrr var lítill eða enginn sykur eða önnur sætuefni sett í seydd rúgbrauð, enda verða seydd brauð sæt án þess að sætuefni séu sett í þau. Þegar rúgbrauð er bakað við lágan hita í langan tíma brotnar sterkja komsins niður og sykur myndast. Hliðstætt því sem gerist í eplum sem geymd eru við of hátt hitastig, þau verða mjölmikil og sæt. Sama gerist með kartöflur sem eru geymdar við of lágt hitastig. Við könn- umst mörg við það að ef hitinn í kartöflugeymslunni fer niður undir frostmark verða kartöfl- umar sætar. Aður en Islending- ar fengu bakarofna vom bökuð pottbrauð við glæður á hlóðum þegar hinn eiginlegi eldur var kulnaður og glóðin sat eftir, en mór og svarð var sett yfir til að halda hitanum, sem mátti ekki verða of mikill. Potti var hvolft yfir brauðið í bakstrinum og þannig er nafnið til komið. Brauðið var bakað að afliðnum degi þegar eldamennsku var lokið og var það tilbúið að morgni áður en skarað var í eld- inn og hann glæddur á ný. Auðvelt er að baka seydd rúgbrauð en það tekur langan tíma, þ.e. um hálfan sólarhring. Það er bakað við lágan hita í lokuðu íláti, t.d. góðri dós, mjólkurfemum eða bökunar- potti, ég nota ferkantaða glæra skál með loki, þá er auðveldlega hægt að fylgjast með bakstrin- um. Nú þegar þorri er á næsta leiti getur verið gott að eiga rúgbrauð í frysti og borða með þorramatnum. Rúgbrauð með hveiti og sírópi 8 bollar rúgmjöl 4 bollar hveiti 5 tsk. matarsódi __________7 tsk, salt______ __________1 dl síróp_______ 1 lítri súrmjólk 1. Setjið rúgmjöl, hveiti, matarsóda og salt í skál. 2. Penslið desilítramál með matarolíu og hellið sírópi í það og setjið saman við mjölið. Oli- an vamar því að sírópið festist við málið. Setjið súrmjólk út í og hrærið saman. Best er að nota hrærivél, en deigið á að vera það lint að hægt sé að taka það í sleif. 3. Smyrjið fimm mjólkur- femur, skiptið deiginu jafnt í þær. Klippið álpappír og þrýst- ið þétt ofan á deigið, gott bil á að vera ofan á. Lokið femunum og bakið brauðin í blástursofni við 95-100°C í um 8 klst. en í ofni án blásturs við 100-105°C. Athugið: Gott er að setja ör- lítið vatn í lítið álmót eða annað létt ílát og leggja ofan á deigið. Gufan frá vatninu varnar því að brauðið myndi harða skorpu. Þetta getur verið svo- lítið erfitt ef brauðin eru bökuð í mjólkurfernu, en þá má setja skál með vatni á botn bak- arofnsins Rúgbraud úr rúgmjöli með eða ún sykurs 1 kg rúgmjöl 2 msk. þurrger 2 tsk. salt 8 dl fingurvolgt vatn úr krananum 2 msk. púðursykur, ef ykkur hentar 1. Setjið rúgmjöl, þurrger, salt og púðursykur ef þið notið hann í skál og blandið saman. 2. Setjið fingurvolgt vatn út í og hrærið eða hnoðið deig. 3. Smyrjið það ílát sem þið ætlið að baka í, setjið deigið í það, fyllið að 4/5. Þrýstið vel niður og leggið álpappír ofan á. 4. Bakið við 100-105° í ofni án blásturs, en í blástursofni við 95-100°. Baksturstími 14 klst. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sammála í VELVAKANDA sl. fóstudag var grein sem hét „Öryrkjar í góðæri". Ég er svo hjartanlega sammála þessum manni sem skrif- aði þetta. Ég er sjálf ör- yrki og finnst svivrða hvemig farið er með okk- ur. Við báðum ekki um þetta. Vil ég að við berj- umst fyrir bættari kjörum. Ég hef unnið fyrir mér alla mína ævi og aldrei þurft að vera á bótum en er að upp- lifa það nú og það er ekki eitthvað sem maður kýs sér. Dóra Skúladóttir. Fuglakorn FUGLAVINUR hafði samband við Velvakanda og sagði að það hefði verið útilokað undanfarið að fá fuglakorn keypt í verslun- um í miðbæ og vesturbæ. Alls staðar sé sama svarið - verslanirnar séu búnar að panta þetta kom en það komi ekki í búðimar. Vili fuglavinur fá að vita hvernig standi á þessu. Tapað/fundið Max-galli í óskilum HINN 12. janúar sl. fannst Max-galli í Hlíðunum sem greinilega hafði fokið af snúm. Eigandi gallans getur fengið hann afhent- an gegn greinargóðri lýs- ingu. Upplýsingar í síma 568 9708. Úlpa týndist í Laugardal ÚLPA, dökkblá Karl Kani- úlpa, vattemð, týndist úr geymsluhólfi í Skautahöli- inni í Laugardal fimmtu- daginn 7. janúar. Þeir sem kannast við að hafa séð úlpuna hafi samband í síma 588 6471. Dýrahald Pjakkur óskar eftir hcimili PJAKKUR, sem er 9 vikna fress, bráðskemmti- legur og kassavanur, óskar eftir góðu heimili. Upplýs- ingar í síma 588 2422. ^ Morgunblaðið/RAX A skautum. BRIDS IJm.vjiín (iuOiniiiiflur 1‘áll Arnarson „HVERNIG er hægt að spila kerfi sem meinar manni að melda á svona spil?“ Reykjavíkurmótið í sveitakeppni stendur sem hæst um þessar mundir og spilið í dag kom upp í þriðju umferð. Sá sem vitnað er til hélt á suðurhendinni; þrett- án rauðum spilum, sem hann gat aldrei sagt frá! Vestur gefur; AV á hættu. Vestur ♦ KG95 VG7 ♦ 7 + Á87432 Norður + ÁD764 V 106 ♦ 82 + D1096 Austur * 10832 V ÁK4 ♦ KD10 + KG5 Suður + - VD98532 ♦ ÁG96543 *- Norður vakti á tveimur spöðum, Tartan, sem sýnir veik spil með fimmlit í spaða og láglit til hliðar. Austur ákvað að passa og suður varð að gera það einnig, því allar sagnir hans í rauðum lit yrðu túlkaðar sem kröfusagnir. Og suður þóttist vita að makker ætti lauf til hliðar og sá fram á mikil vandræði ef hann freistaðist til að segja. Vestur sagði auðvitað pass einnig og norður fékk fjóra slagi í tveimur spöðum og AV 200 í dálkinn. Á hinu borðinu fóru NS í fimm tígla yfir fjórum spöðum AV!! Fimm tíglar fóru tvo niður, doblaðir, sem gaf AV 300. Það reyndist því 3ja IMPa ávinningur að spila tvo spaða i norður. Annars spiluðu margir fjóra spaða doblaða í AV. Sá samningur lítur ekki út fyrir að vinnast, eins og legan er, en reyndar þarf góða vörn til að taka spilið einn niður. Segjum að suð- ur spih út tígulás og meiri tígh. Líklega freistast sagnhafi til að spila trompi einu sinni. Nú er vörnin sú að taka tvo slagi á ÁD í spaða og spila þeim þriðja. Þá lekur spilið einn niður. Ef norður spilar hins vegar hjarta til baka, þá hirðir sagnhafi slagina þrjá á lauf og víxltrompar svo upp í tíu slagi. Víkverji skrifar... NÚTÍMAFÓLK á erfitt með að sætta sig við að vera innilokað vegna ófærðar, að ekki sé talað um, ef bæði verður rafmagnslaust og símasambandslaust, eins og varð á köflum sums staðar á landinu um helgina. En þrátt fyrir alla tækni og nýjungai- i samgöngum verða þessi mannanna verk að lúta í lægra haldi, þegar veðurofsinn kemur til sögunnar. Hitt er svo annað mál, að okkur hættir til að gera of mikið úr veðri, þegar eitthvað bjátar á. Alþekkt er, að fólk á höfuðborgarsvæðinu kann- ast stundum ekki við lýsingar út- varpsstöðva á aðstæðum, þegar ein- hver vandamál kom upp í umferð- inni að vetrarlagi. Sl. laugardag var Víkverji að hlusta á hádegisfréttir Ríkisút- varpsins. Þar var því lýst, að það væri „blindöskubylur" á Akureyri. Víkverja varð litið út um gluggann á Fosshóteli KEA og varð ekki var við slíkt veður þar fyrir utan. Það vakti einnig athygli, að flug til og frá Akureyri hefði getað hafizt fyrr, ef miðað er við upplýsingar, sem fengust hjá Flugfélagi íslands, ef snjómokstur á flugvellinum hefði ekki tekið svo langan tima. Var ekki byrjað nógu snemma á sunnudags- morgni? XXX FIRLÝSING Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra, um að ríkis- sjóður mundi á þessu ári greiða meira niður af innlendum skuldum en til stóð hefur að vonum vakið mikla athygh og yfirleitt fengið já- kvæðar undirtektir eins og við mátti búast. Þó hefur Víkverji heyrt at- hugasemdir þess efnis, að eðlilegra hefði verið að nota umframfé til þess að greiða hraðar niður erlend- ar skuldir. En vissulega má segja, að það sé til marks um batnandi tíð, að álita- málið sé ekki hvort hægt sé að greiða niður skuldir heldur hvaða skuldir. XXX SITT sýnist hverjum um þær hugmyndir Sjálfstæðismanna í Reykjavík að efna ekki til prófkjörs vegna komandi þingkosninga. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft for- ystu um prófkjör frá upphafi hafa alltaf verið skiptar skoðanir innan flokksins um það, hvort þau væru skynsamleg leið til að velja fram- bjóðendur á lista. Sumir líta á próf- kjör ekki sízt sem mikilvægan und- irbúning að kosningabaráttu og að vel heppnað prófkjör geti gefið byr í seglin í upphafi kosningabaráttu eins og segja má t.d. um prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjaneskjör- dæmi sl. haust. Á hinn bóginn eru það vissulega rök, að prófkjörin eru mjög kostn- aðarsöm og fjáraustur í því sam- bandi hefur legið undir þungri gagnrýni. Spurningin um prófkjör eða ekki prófkjör verður alltaf sama álitamálið og verið hefur frá því að almenn og víðtæk prófkjör voru tekin upp í fyrsta sinn fyrir þingkosningarnar 1971. Prófkjör höfðu áður farið fram á vegum Sjálfstæðisflokksins en þá voru þau bundin við stofnanir innan flokks- ins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.