Morgunblaðið - 19.01.1999, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 57
í DAG
Arnað heilla
ÁRA afmæli. í dag,
þriðjudaginn 19. janú-
ar, verður fímmtugur Jón
Eiríksson húsasmíðameist-
ari, Birkibergi 6, Hafnar-
firði. Eiginkona hans er
Erla Jónsdóttir. Þau taka á
móti gestum í Oddfellow-
húsinu að Staðarbergi 2-4 í
Hafnarfirði í dag frá kl. 20.
Ljósm. Oddgeir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 4. júlí í Keflavíkur-
kii'kju af sr. Ólafi Oddi
Jónssyni Helga Oddsdóttir
og Hjalti P. Sigurðsson.
Heimili þeirra er að Suður-
braut 2, Hafnarfirði.
Ljósm. Oddgeir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 29. ágúst í Y-Njarð-
víkurkirkju af sr. Baldin
Rafni Sigurðssyni Þorbjörg
Þórarinsdóttir og Haraldur
Gislason. Heimili þeiiTa er að
Hjallavegi 3, Reykjanesbæ.
Með morgunkaffinu
EN f kvöld? Láttu það
ganga.
HVAÐ segirðu, Ólafur?
Tapaðirðu skrifborðinu í
veðmáli?
ÞÚ getur þó huggað þig
við að þjónustustúlkurnar
á veitingastaðnum voru
ekki sem verstar.
AF hverju ertu ekki
farinn í skólann, strákur?
SKAK
Ilin.vjón Margeir
Pótursson
STAÐAN kom upp á opnu
móti í Stavangri í Noregi
um áramótin. Bjarke
Kristensen (2.425), Dan-
mörku, hafði hvítt og átti
leik, en Per-Ove Egeli
(2.330), Noregi, var með
svart.
19. Hxf7! - Be7 20. Hafl! -
Dxd2 21. Dc8+ - Hd8 22.
Dxe6 - Db4 23. Dc6+
- Hd7 24. e6 - Dd6
25. exd7+ - Dxd7 26.
Hxe7+ - Kxe7 27.
Hf7+ og svartur
gafst upp, því hann
tapar drottningunni.
Tékkinn Igor Stohl
sigraði með yfirburð-
um á mótinu, enda
var hann langstiga-
hæsti keppandinn. 1.
Stohi 8 v. af 9 mögu-
legum, 2.-4. Ki-isten-
sen, Gullaksen og
Fossan 5Vz v. o.s.frv.
HVITUR leikur og vinnur.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tiikynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
HÖGNI HREKKVÍSI
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert kraftmikill og
skapandi einstaklingur og
nýturþín best ef þú hefur
nóg að starfa. Þú hefw
sterkt aðdráttarafl.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Vertu ófeiminn við að leita
aðstoðar ef þér finnast verk-
efnin vera að vaxa þér yfir
höfuð. Þú munt fá umbun
fyrir vel unnin störf þótt síð-
ar verði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér býðst einstakt tækifæri
og þarft að gæta þess að
hugsa þig ekki of lengi um
því þá gæti það runnið þér úr
greipum. Taktu áhættu.
Tvíburar , _
(21. maí - 20. júní) Aa
Aðrir eru ki-öfuharðir á tíma
þinn svo þú verður að gera
það upp við þig hvað skiptir
máli og hvað ekki. Gættu
þess að vanrækja ekki eigin
þarfir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef þú vilt koma málum þín-
um á framfæri þarftu að gefa
þér góðan tíma og leggja þig
svo allan fram til sannfæra
þá sem vöidin hafa. Þá muntu
uppskera vel.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hafðu hemil á neikvæðum
hugsunum sem leita á hug-
ann og reyndu heldur að gera
gott úr öllu. Þú færð góðar
fréttir sem gleðja alla fjöl-
skylduna.
Meyja
(23. ágúst - 22. septcmber) vOhL
Þú ert með hugann við allt of
margt og þarft að geta verið í
næði til að koma jafnvægi á
hlutina. Raðaðu hlutunum
svo eftir mikiivægi þeirra.
(23. sept. - 22. október) m
Ef þú gerir einhverjum
greiða muntu fá það launað
þúsundfalt. Gættu þess bara
að sýna öðrum þann trúnað
sem þú vilt njóta sjálfur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú átt það til að vaða áfram
og hunsa tilfinningar þínar
og annarra. Láttu það nú eft-
ir þér að fylgja hjartanu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) ÍÍLf
Stattu fast við skoðanir þínar
þótt það kosti átök. Taktu
ekki þátt í illu umtali og
trúðu ekki öllu þvl sem þú
heyrir sagt um aðra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) <míB
Það eru bjart í kringum þig
og þú hefur í nógu að snúast.
Fólk laðast að þér og nú er
rétti tíminn til að taka hönd-
um saman og vinna góð verk.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) Cáb
Ef þú ert jákvæður og horfir
fram á við reynist þér auð-
veidara að gera þær breyt-
ingar sem þurfa að verða í lífi
þínu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þrátt fyrir annir skaltu gefa
þér tíma til að sinna sjálfum
þér og þínum nánustu. Þú vilt
helst vera sá sem gefur en
þarft að læra að þiggja.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRETTIR
Danskennsla í Árseli
og Fjörgyn
ELDMÓÐUR hefur hafið dans-
kennslu í félagsmistöðvunum Fjörg-
yn í Grafarvogi og Árseli í Árbæ þar
sem kennt er jazz-funk, free-style,
R&B dans, latin-style, Grease o.fl.
söngleikir. Námskeiðin eru fyrir
börn á aldrinum 9-11 ára og 12 ára
og eldri.
Leiðbeinendur eru Birna Björns-
dóttir og Eydís Eyjólfsdóttir en þær
hafa margra ára reynslu í dansi, eró-
bik, módelkennslu, danssýningum og
uppsetnigu söngleikja, segir í frétta-
tilkynningu.
Námskeiðin hefjast 19. janúar í
Grafai-vogi og 2. febrúar í Ái-bæ.
Þakkir
Ollum sem glöddu mig með gjöfum, skeytum,
viðtölum og heimsóknum, á áttræðisafmæli
mínu, 31. desember, sendi ég innilegar þakkir
og bið þeim blessunar á nýju ári.
Hjörtur Einarsson,
Gröf, Dalasýslu.
ecco
Kuldaskór m/rennilás
Litir: Svartir m/gulu. Stæröir: 22-35. Tegund: 70151-2. Verö 6.595.
Mikið úrval af barnakuldaskóm
D0MUS MEDICA
vlð Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Símí 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Sj álfstæðisfélögin
í Reykjavík
Þorrablót
Hið árlega þorrablót sjálfstæðismanna í Reykjavík
verður haldið í Valhöll
laugardaginn 23. janúar nk.
Blótið hefst kl. 20 en húsið verður opnað kl. 19.
Blótstjórn verður í höndum Ingu
Jónu Þórðardóttur, borgarfulltrú og
heiðursgestur verður Einar Oddur
Kristjánsson, alþingismaður.
Fjöldi skemmtiatriða, meðal annars
flytur Ómar Ragnarsson gamanmál,
Grettir Björnsson og félagar leika
fyrir dansi, happdrætti o.fl. o.fl.
Miðasala í Valhöll, sími 515 1700.
Miðaverð kr. 2.500.
Hittumst hress í góðra vina hópi.
Þorrablótsnefhdin
Inga Jóna Þórðardóttir,
borgarfulltrú.
Einar Oddur Kristjánsson,
alþingismaður.
1 1
Fréttir á Netinu óD mbl.is /\LL7y\f= €F/TTH\/y\LD tJÝTl