Morgunblaðið - 26.01.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 13
FRÉTTIR
Arnbjörg Sveinsdóttir sigurvegari 1 prófkjöri sjálfstæðismanna á Austurlandi
„Ég reiknaði með því að
mjórra yrði á mununum“
ARNBJÖRG Sveinsdóttir alþingis-
maður frá Seyðisfirði varð hlut-
skörpust í prófkjöri sjálfstæðis-
manna á Austurlandi og er hún
fyrsta konan sem skipar fyrsta sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins í alþingis-
kosningum. I öðru sæti í prófkjörinu
varð Albert Eymundsson, skólastjóri
á Hornafirði, og í þriðja sæti Ólafur
Aki Ragnarsson, sveitarstjóri á
Djúpavogi, en auk Ai'nbjargar buðu
þeir sig fram í fyrsta sætið í próf-
kjörinu.
Alls tóku 2.005 þátt í prófkjörinu
og hlaut Arnbjörg 936 atkvæði í
fyrsta sætið, eða 47,9% gildra at-
kvæða. Albert hlaut 680 atkvæði í
fyrsta sætið, eða 34,8%, og Ólafur
AM 293 atkvæði,
eða 15%.
Arnbjörg sagði
í samtali við
Morgunblaðið að
úrslitin í prófkjör-
inu hefðu verið
mjög ánægjuleg
og gott að niður-
staðan hefði verið
jafn afgerandi og
hún var. Sagðist
hún vera ánægð
með listann í
heild.
„Ég reiknaði
frekar með því að
það yrði mjórra á
mununum, en það
var mjög ánægjulegt að þetta skyldi
vera í þessum dúr. Varðandi niður-
stöðuna hafa menn verið að mynda
sér skoðanir á misjafnan hátt og
skoðanirnar eru jafn margar og
mennirnir eru margh-. Sumir hafa
kvennasjónarmiðin uppi, aðrir bú-
setusjónarmiðin og vonandi ein-
hverjir hvað ég hef verið að gera og
kynni sín af mér, en allt hjálpast
þetta að,“ sagði Ambjörg.
Albert Eymundsson sagði útkom-
una í prófkjörinu ekki hafa komið á
óvart.
jF Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi 1999
Atkvæði greiddu 2.005 Auðir seðlar og ógildir voru 52 1. sæti 1.-2. sæti 1.-3. sæti 1.-4. sæti 1.- 5. sæti SAM- TALS Hlutfall
1. Arnbjörg Sveinsdóttir 936 1.608 82,3%
2. Albert Eymundsson 680 931 1.432 73,3%
3. Ólafur Áki Ragnarsson 293 644 968 1.466 75,1%
4. Aðalsteinn Ingi Jónsson 21 525 883 1.148 1.439 73,7%
5. Jens Garðar Helgason 2 180 486 994 1.438 1.438 73,6%
6. Hilmar Gunnlaugsson 16 354 744 1.025 1.345 1.345 68,9%
7. Kári Ólason 5 96 287 694 1.037 1.037 53,1%
Samfylkingin á
Norðurlandi vestra
Fjórir stefna
á fyrsta sæti
ÁTTA frambjóðendur bjóða sig
fram í prófkjöri Samfylkingar á
Norðurlandi vestra sem fram fer
13. febrúar nk.
Fjórir stefna á fyrsta sætið, en
það em Anna Kristín Gunnarsdótt-
ir, kennari á Sauðárkróki, Signý
Jóhannesdóttir, formaður verka-
lýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, Jón
Bjarnason, skólastjóri á Hólum í
Hjaltadal, og Kristján Möller, fyrr-
verandi forseti bæjarstjórnar á
Siglufirði.
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
fyrrverandi alþingismaður frá
Siglufirði, stefnir á annað sætið.
Björgvin Þór Þórhallsson, kennari
á Blönduósi, stefnir á 2.-3. sæti.
Pétur Vilhjálmsson Hvammstanga
stefnir á 3. sætið og Steindór Har-
aldsson, hótelstjóri á Skagaströnd,
stefnir á 3.-4. sæti.
Arnbjörg
Sveinsdóttir
Albert
Eymundsson
„Ég er mjög sáttur við þennan lista
og þetta fólk, og ég held að það hafi
komið í ljós í þessari kosningabaráttu
og eins og staðið var að henni, að við
erum búin að vinna mjög góða heima-
vinnu til undirbúnings fyrir alþingis-
kosningamar. Það hefur verið mjög
jákvæð umræða um allan hópinn í
heild og við höfum kynnt okkur betur
en áður þekkist hér. Þess vegna er
meðal annai’s þessi mikli áhugi á
prófkjörinu. Ég er sannfærður um að
það á eftir að skila sér í betri árangri
ef ekkert kemui' upp á hjá okkur eða
Ólafur Áki
Ragnarsson
öðrum. Mér
finnst einnig já-
kvætt við niður-
stöðuna að ég
held að það þurfi
enginn að fara
sár út úr þessu og
hver og einn get-
ur verið sæmdur
af sinni stöðu,“
sagði Albert.
Olafur Áki
sagði að það
hefði verið Ijóst
að hann var að
keppa við stórt
svæði; Arnbjörgu
sem sitjandi
þingmann og Albert sem kæmi frá
svæði þar sem þingmaður var fyrir
og snemma hefði komið í ljós að
menn ætluðu að halda honum.
„Þetta var mjög skemmtileg bar-
átta og ekkert annað en gaman að
taka þátt í henni. Ég stefndi á fyrsta
sætið en gerði mér fulla grein fyifir Jiví
hvemig þetta gæti farið og raunveru-
lega að ég gæti farið mun neðar. En
ég skynjaði þessa strauma á Homar-
fjai-ðarsvæðinu nokkuð snemma,
þannig að ég er tiltölulega sáttm- við
minn hlut,“ sagði Ólafur Aki.
Ný íslensk útvarpsstöð
títsendingar
títvarps Islands
hefjast í febrúar
ÚTVARP ísland er heiti nýrrar
íslenskrar útvarpsstöðvar, sem
hefja mun útsendingar fyrri
hluta næsta rhánaðar. Það er ís-
lenska fjölmiðlafélagið ehf., sem
stendur að baki stöðinni, sem
leika mun eingöngu íslenska tón-
list allan sólarhringinn. Mun
stöðin flytja efni jafnt frá Hauki
Morthens til Bubba frænda hans
og frá Ellý Vilhjálms til Bjögga
Halldórs, að því er segir í frétta-
tilkynningu Islenska fjölmiðlafé-
lagsins ehf.
Útvarp ísland mun heyrast á
Faxaflóasvæðinu og er verið að
vinna að uppsetningu útsending-
artækja um þessar mundir og
mun Fjarskiptastofnun úthluta
stöðinni FM-senditíðni í kjölfar
þess. Útvarpsstjóri er Jón Axel
Ólafsson og dagskrárstjóri er
Ágúst Héðjnsson.
Útvarp ísland hyggst eiga gott
samstarf við íslenska tónlistar-
menn og hagsmunasamtök þeirra,
en stöðin mun standa fyrir fjöl-
breyttum uppákomum og við-
burðum tengdum íslensku tónlist-
arlífi og stefnir á að sinna grósku-
miklu menningar- og upplýsinga-
hlutverki í framtiðinni.
HAC.
Þessi eiiítið grófi búgarðastíll er upprunninn í rómönsku Am«
þessum stíl eru eftirmyndir gamalla húsgagna, sem framleidt
að þau fá mjög persónulegt yfirbragð. Þetta Ijær hverjum hlu
iiðinna tíma. Engir tveir hlutir eru eins!
HACIENDA hilluskápur úr gegnheilli,
fornfáðri furu, B102 x H196 x D41 sm,
kr. 89.940,-
jsgogp i
>ann ratt
idi andblæ
HACIENDA borðstofuborð úr gegnheilli,
fornfáðri furu, með innlögðum hand-
gerðum flisum, B90 x L160 sm, kr. 55.970,-
BERMUDA stóll kr. 8.880
HACIENDA skenkur úr gegnheilli, fornfáðri
furu, B144 x H98 x D50 sm, kr. 79.960,-
89
HUSGAGNAHÖLUN
MEXICO kommoða ur fornfáðri býflugna-
vaxborinni, gegnheilli furu, B88 x H88 x
D40 sm, kr. 49.310,-
-þar sem urvalid er metra!
Bíldshöfði 20 - 112 Reykjavík Simi 510 8000