Morgunblaðið - 21.02.1999, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Búið að frysta um 4.500 tonn af Japansloðnu það sem af er vertíðinni
Vertíðin hefur valdið
verulegum vonbrigðum
LOÐNUFRYSTING hefur gengið
illa það sem af er vertíð, enda þykir
loðnan of smá til að hægt sé að
vinna verulegt magn fyrir Japans-
markað. Aðeins er búið að frysta
um 4.500 tonn eða um fjórðung
þess sem fryst var á allri síðustu
vertíð. Framleiðendur segjast þó
enn ekki hafa gefíð upp alla von um
að úr vertíðinni rætist. Lítil loðnu-
veiði hefur verið síðustu daga en
væntanlega skýrist um miðja
næstu viku hvort loðnufrystingu
fyrir Japansmarkað verður hætt.
A síðustu vetrarloðnuvertíð voru
fryst um 18 þúsund tonn af loðnu
fyrir Japansmarkað en þá þótti
vertíðin undir meðallagi vegna
mikils hlutfalls smáloðnu í fram-
leiðslunni. Loðna sem borist hefur
á land á þessari vei’tíð er jafnvel
ennþá smærri og flokkast mjög
illa. Sú væna loðna sem menn von-
uðust eftir hefur enn ekki látið sjá
sig og vertíðin því valdið veruleg-
um vonbrigðum. Þannig hefur að-
eins verið fi-yst loðna í stærðar-
flokk með 60 stk. eða meira í kílói
en fyrir vertíðina þótti sýnt að jap-
anskir kaupendur myndu aðeins
kaupa loðnu í stærðarflokknum
50-60 stk. í kílói vegna mikilla
birgða af smáloðnu í Japan frá síð-
ustu vertíð. Þeir hafa eigi að síður
keypt þá loðnu sem þegai- er búið
að frysta á vertíðinni. Rætist ekki
úr vertíðinni á næstu dögum má
búast við að það komi hart niður á
þeim fyrirtækjum sem byggja
rekstur sinn að stórum hluta á
vinnslu uppsjávarfíska.
Enn getur allt gerst
Steindór Gunnarsson, markaðs-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna hf., segir að enn sé verið
að frysta smáloðnu fyrir Japans-
mai'kað en búast megi við að Jap-
anar hætti að taka við slíkri fram-
leiðslu innan skamms. Hann segir
þungt hljóð í framleiðendum en
þeir hafi þó ekki enn gefið upp alla
von um að rætist úr vertíðinni.
„Það getur enn allt gerst og menn
verða tilbúnir að frysta loðnu
þangað til yfii' lýkur. Nú hafa
15-20% loðnunnar losað hrognin
og líklega er um hálfur mánuður í
hrygningu. Það getur margt gerst
á þeim tíma. Það hefur verið það
lítið magn af loðnu við suður-
ströndina að ég trúi ekki öðru en
að það gangi stærri loðna að land-
inu.“
Steindór segir að þrátt fyrir
miklar birgðir af smáloðnu í Japan
vilji japanskir kaupendur í lengstu
lög halda evrópskri loðnu inni á
markaðnum þar sem hún þykir
betri vara. „Ef Kanadaloðnan verð-
ur allsráðandi á markaðnum
minnkar sjálfki'afa neysla á loðnu í
Japan. Þeir renna einnig hýru
auga til loðnuvertíðarinnar í Nor-
egi en enn sem komið er veit eng-
inn um stærð loðnunnar þaðan,
enda hefst vertíðin þar ekki fyrr en
í mars,“ segir Steindór.
Hjá framleiðendum íslenskra
sjávarafurða hf. hafa þegai' verið
fryst um 2.700 tonn af loðnu á
Japansmarkað, allt í smæstu
stærðarflokka. Pétur ísleifsson,
deildarstjóri hjá ÍS, segist telja að
japanskir kaupendur muni kaupa
meira af smáloðnu, þrátt fyrir
birgðir í Japan. Framleiðendur
muni því halda áfram að frysta, svo
framarlega sem Japanar kaupi
framleiðsluna.
Mikil vonbrigði
Hjá Vinnslustöðinni hf. í Vest-
mannaeyjum er nú búið að frysta
um 500 tonn af loðnu en þar voru
fryst um 7 þúsund tonn á vertíðinni
í fyrra. Þorbergur Aðalsteinsson
markaðsstjóri segir vertíðina vera
mikil vonbrigði og miklu lélegri en
vertíðina í fyri'a sem þó hafí þótt lé-
leg. Hann segir viðbúið að frysting-
unni ljúki hvað úr hverju, þó séu
vonir bundnar við að skipin komi
með stærri loðnu í næstu viku.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
ILLA farin málverk og innanstokksmunir hjá Galleríi Borg en þar
kviknaði eldur í fyrrinótt. Tjónið var mikið í sýningarsalnum.
EIGANDI Gallerís Borgar, Pétur Þór Gunnarsson, var á vettvangi í
fyrrinótt og fylgdist með starfi slökkviliðsins.
MIKIÐ tjón varð í eldsvoða í
Galleríi Borg í Síðumúla í
Reykjavík aðfaranótt laugar-
dags. Slökkviliðið var kallað út
klukkan 1.50 og logaði þá út um
glugga í gallerunu. Slökkvistörf-
um Iauk á rúmum klukkutíma.
Þegar slökkviliðið kom á stað-
inn logaði eldur út um glugga og
var mikill reykur og eldur á
Vetnisþorpið
fsland á
MSNBC
FRÉTT á fréttavef NBC-
fréttastöðvarinnar um Vetnis-
þoi'pið ísland náði fímmta sæti
í kosningu um tíu athyglisverð-
ustu fréttirnar. Notendur
vefjarins velja athyglisverð-
ustu fréttirnar á hverjum degi
og er þeim gefín einkunn frá 1
til 7 eftir mikilvægi.
í fréttinni sem fylgir segir
frá tilraunaverkefni Daim-
lerChrysler, Shell, Norsk
Hydro og Vistorku um að
knýja samgöngutæki og físk-
veiðiflota landsins með vetni.
Þar segir að áhugi íslendinga á
málinu sé ekki tilkominn vegna
loftmengunar í þessu strjálbýla
landi heldur vegna stefnu
stjómvalda um að draga úr út-
blæstri lofttegunda sem valda
gróðurhúsaáhrifum.
Stórtjón í
Galleríi Borg
fyrstu hæðinni þar sem Gallerí
Borg er til húsa. Málverk sem
stóðu í rekkum á gólfi brunnu og
vegna hitans Iáku önnur málverk
niður og varð því stórfjón á
myndverkum sem þarna voru. Þá
fór talsverður reykur upp á aðra
hæð og sömuleiðis í áfast fimm
hæða hús og var slökkviliðið tals-
verðan tíma að reyklosa húsið.
Slökkvistarfinu lauk um þijúleyt-
ið en vakt var við húsið til klukk-
an 5.
Ekkert var vitað um eldsupp-
tök í gær en rannsóknadeild Iög-
reglunnar kannar málið.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður
Gagnrýni á frumvarp til
skaðabótalaga óréttmæt
JON Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður segir að gagnrýni
Alþýðusambands Islands og Efl-
ingar - stéttarfélags á frumvarp til
breytinga á skaðabótalögum, á
þeim forsendum að gert sé ráð fyr-
ir að lífeyrissréttur launafólks og
gi’eiðslur úr sjúkrasjóðum verka-
lýðsfélaga komi til skerðingar á
bótum, eigi ekki rétt á sér og sé að
hluta byggð á misskilningi. Hann
segir mjög brýnt að frumvarpið
verði afgreitt, þannig að þær laga-
breytingar sem gerðar voru 1993
til skerðingar á skaðabótum gangi
til baka.
„I þessu frumvarpi er komið til
móts við þau sjónarmið að tjónþol-
ar eigi að fá fullar bætur fyrir lík-
Brýnt að
frumvarpið
verði afgreitt
amstjón. Það er aðalatriði máls-
ins,“ segir Jón Steinar.
Hann bendir á að launþegar eigi
ekki rétt á greiðslum úr sjúkra-
sjóðum verkalýðsfélaga nema þeir
eigi ekki skaðabótarétt annars
staðar. „Að því er snertir frádrátt
hluta bóta úr lífeyrissjóðum er á
það að benda að tjónþolar öðlast
ekki rétt til bóta úr lífeyrissjóðum
nema örorkuhlutfall þeirra sé orðið
mjög hátt, yfirleitt 50% eða hærra.
Það er því í mjög fáum tilvikum
sem á þetta reynir. Áður en skaða-
bótalög tóku gildi árið 1993 höfðu
dómstólar að jafnaði, þegar tjónin
voru svona mikil og fólkið átti rétt
á bótum úr lífeyrissjóði, tekið fram
að við ákvörðun tjónsbóta hefði
verið tekið tillit til þess að það ætti
rétt á bótum úr lífeyrissjóði. Þess
vegna er það fyrirkomulag sem
frumvarpið gerir ráð fyrir um
lækkun bóta að hluta, það er að
segja sem nemur mótframlagi
vinnuveitanda í lífeyrissjóð, að
mínu mati alveg í takt við það rétt-
arástand sem var meðan rétturinn
gekk út á það að greiða tjónþolum
bætur að fullu, það er að segja fyr-
ir 1993.“
Þenslan ógnar
verðstöðugleika
► Mikill uppgangur hefur verið í
efnahagslífinu undanfarin ár, svo
mikill að óttast er að þenslan sé að
komast á hættustig. /10
Hægrimenn
tilkynna þjófnað
►Vinstriöflin í Evrópu hafa sótt
inn á miðjuna síðustu árin með
góðum árangri. /22
Nýjar áherslur með
nýjum mönnum
► í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Örn
Bernhöft hjá heildversluninni
H.Ó. og Bernhöft. /26
Sumir eru bara
ofvirkir
► Svafa Grönfeldt er ein af
ofurkonunum, ráðgjafi hjá Gallup,
kennari í HÍ, leiðbeinandi fjölda
útskriftarnema, móðir og
eiginkona, sem er að ljúka
doktorsnámi. /30
► l-20
Yoga er lífsstíll
► Sumarið 1996 lenti Dada með
vefjai’höttinn á kollinum á
Keflavíkurflugvelli, kominn til að
kenna íslendingum yoga og
hugleiðslu. /1&10-12
Á þjóðvegum
Evrópu
► Óskar Hansson ók flutningabíl
fyrir fyrirtækið NIAT bv
Breukelen um hálfs árs skeið. /6
Rótari rótaranna
►Ágúst Ágústsson, Gústi rótaii,
hefui' um langt skeið verið
samstai’fsmaður helstu
tónlistarmanna landsins. /14
c
FERÐALOG
► 1-4
Rhodos
►Þar sem fjölbreytileikinn ræður
ríkjum. /2
Kraká
► Miðborgin er sögulegur arfur
mannkynsins. /4
Db/lar
► l-4
Trooper hleypir lífi í
jeppamarkaðinn
► 120 Isuzu Trooper-jeppai’ á
einum og hálfum mánuði. /1
Reynsluakstur
► Corsa með 1,2 lítra vél kemur á
óvart. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-20
Upplýsingakerfið
Axel fer víða
► Sett upp í færeyskum
skólum./!
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir W4/8/bak ídag 42
Leiðari 28 Brids 42
Helgispjall 28 Stjörnuspá 42
Reykjavíkurbréf 28 Skák 42
Viðhorf 32 Fólk í fréttum 46
Skoðun 32 Útv/sjónv. 44,54
Minningar 34 Dagbók/veður 55
Myndasögur 40 Mannl.str. 17b
Bréf til blaðsins 40 Dægurtónl. 18b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6