Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 17 LISTIR ‘iQíkJgSs* www.simi.is Morgunblaöið/Árni Sæberg EINNI mynda Kristjáns komið fyrir í Hallgrímskirkju. RIJNAR Óskarsson með bassaklarínettuna. Bassaklar- ínettu- leikur í Hásölum RÚNAR Óskarsson bassaklar- ínettuleikari heldur tónleika í Há- sölum Hafnarfjarðarkirkju mánu- daginn 22. febrúr kl. 20.30. A tónleikunum verða leikin verk eftir Isang Yun, Elínu Gunnlaugs- dóttur, Theo Loevendie, Claudio Ambrosini, Eric Dolphy og Wayne Siegel. Allt eru þetta verk frá þess- ari öld, það elsta er djassspuni eftir E. Dolphy og það yngsta er verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, sem hún samdi fyrir Rúnar og verður frumflutt á tónleikunum. Rúnar Óskarsson lauk einleikara- og kennaraprófí frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík vorið 1993. Þaðan lá leiðin tO Hollands þar sem hann nam hjá George Pietersonog Walther Boeykens. Auk þess að leika á klarínettu hefur Rúnar und- anfarin ár verið í bassaklarínettu- námi hjá manninum sem hvað mest- an þátt hefur tekið í að hefja bassaklarínettuna til vegs og virð- ingar, Hari-y Sparnaay, og lauk Rúnar einleikaraprófi á bassaklar- ínettu frá Sweelinck Conservatori- um í Amsterdam í júní sl. Eftirlæti margra tónskálda Bassaklarínettan er ekki gamalt hljóðfæri. Fyrstu eintökin voru gerð um 1750 en það er ekki fyrr en á þessari öld sem farið var að skrifa eitthvað að ráði fyrir hljóðfærið. Síðastliðin 30 ár hefur vegur bassaklarínettunnar sem einleiks- hljóðfæris vaxið hratt og er hún nú orðin eftirlæti margra tónskálda sem nýta sér óspart þá gífurlegu möguleika sem hljóðfærið hefur upp á að bjóða umfram flest önnur blásturshljóðfæri, segir í fréttatil- kynningu. Kristján Davíðsson sýnir í Hallgrímskirkju SÝNING á málverkum eftir Krist- ján Davíðsson verður opnuð í Hall- grímskirkju í dag eftir messu. Kri- stján hefur lánað kirkjunni tvö gríðarstór og litsterk olíumálverk til þess að prýða kirkjuna á fóst- unni. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann leggur sinn skerf til styrktar Hallgrímskirkju, því á unglingsár- unum vestur á fjörðum lék hann á fiðlu og mandólín í Þingeyrar- kirkju á tónleikum til þess að safna fé til byggingar Hallgrímskirkju í Reykjavík. Kristjáni var þegar í bernsku margt til lista lagt, og kenndi hann sjálfum sér á hljóð- færi í héraðsskólanum á Núpi. Æ síðan hefur tónlistin verið ríkur þáttur í lífi hans, segir í fréttatil- kynningu. Myndhst Kristjáns hefur farið víða, og voru myndir hans m.a. á sýningu í Róm í tengslum við heim- sókn forseta íslands og biskups þangað í haust. Málverk hans má sjá á sérstökum samsýningum þessa dagana, bæði í Listasafni ís- lands og í Gerðubergi. Sýningin stendur til fimmtu- dagsins 15. apinl. RAÐSTEFNA 23. febrúar 1999 A T M Sveigjanleiki, hraði og gæði í marsmánuði nk. mun Landssíminn opna nýja gagnaflutningsþjónustu sem byggir á ATM tækni. í tilefni þessara tímamóta boðar Landssíminn til ráðstefnu um ATM fjarskipti þriðjudaginn 23. febrúar nk. kl. 13 -17. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík. Hægt verður að taka þátt í ráðstefnunni á Akureyri í húsi Háskólans að Glerárgötu 36 með hjálp ATM sambands milli Reykjavíkur og Akureyrar. Notaður verður fjarfundabúnaður sem þróaður hefur verið fyrir ATM samband. Fluttir verða fyrirlestrar um ATM taeknina, þá þjónustu sem hægt er að bjóða með ATM, verðlagningu þjónustunnar og reynslu nokkurra fyrirtækja sem hafa notað ATM í tilraunarekstri. Ráðstefnustjóri verður Þórarinn V. Þórarinsson, stjórnarformaður Landssímans. Ráðstefnugjald er 5.000 kr. Skráning fer fram í síma 550 7700 eða með tölvupósti til atm@simi.is, eigi siðar en á hádegi mánudagsins 22. febrúar. RAÐSTEFNA UM ATM 23. febrúar 1999 DAGSKRÁ 13:00 Opnunarávarp frá Akureyri Halldór Blöndal, samgönguráðherra 13:10 Yfirlit yfir ATM tæknina Davíð Gunnarsson, verkfræðingur hjá Landssíma Islands hf. 13:35 The Benefits of ATM in the Business Environment - ATM Services FrédéricThépot, Fore Systems Inc. 14:25 Ouality of Service in Data Networks -IPvs. ATM Peter Feil, Deutsche Telekom Berkom 15:10 Kaffihlé 15:40 Nýting ATM og annarra háhraða fjarskipta frá sjónarhóli Flugleiða Öm Orrason, verkfræðingur hjá Flugleiðum hf. 16:00 Kostir háhraða fjarskipta fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni Bjami Hjarðan forstöðumaður nekstrardeildar Háskólans á Akuneyri 16:15 Hagkvæmni ATM fjarskipta Sævar Freyr Þráinsson, forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu landssfmans \ ' ■ • y* i6:35 Fyrirspumir og umræður H7:oo\ LéttarveitingarJ * ori/lame Náttúrulegar sænskar snyrtivörur ______Gæða snyrtivörur__ i á góðu yerði. ____ 29 ár á fslandi. ' Sími 567 7838 - fax 557 3499 e-maii raha@islandia.is V www.xnet.is/oriflame
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.