Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ 32 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 .1-- --- | Fj ölmiðlar og neytendur Það gerir mann ekki upplýstan að kann sampykki eða hafni tiltekinni fullyrðingu, heldur pað að hann reyni eftir megni að komast að því hvers vegna hann samþykk- ir eða hafnar einhverju. “ Eftir Kristján G. Arngrímsson Fjölmiðlar eru upp- lýsandi í þeim skiln- ingi að þeir veita upplýsingar. En þeir eru ekki upplýsandi í þeim skilningi sem fram kemur hér að ofan og var skilningur þýsks fræðimanns um miðbik 18. aldar. Líklega gætum við mikið lært af honum. Nýverið gagnrýndi Páll Skúlason, rektor Háskóla ís- lands, fjölmiðla - sérstaklega sjónvarp - fyrir að koma fram við áhorfendur eins og óvirka neytendur sem hefðu engan áhuga á að öðlast skilning á um- hverfi sínu og þeim öflum sem mótuðu það. Páll spurði: „Hverjir skyldu uinunnc hafa hag af því VIÐHORr að fóik öðlist ekki skilning á þvf sem er að gerast í heim- inum? Hvaða öfl eru það sem vilja halda fólki í ánauð ólæsis og skilningsskorts og hindra um leið að það beri ábyrgð á eigin lífi, öðlist sjálfsvirðingu og metnað til að breyta heiminum til hins betra?“ Páll hvatti til þess að farið yrði afskaplega varlega í að leita svara við þessum spurningum. Málið er sannarlega flókíð, ekki síst vegna þess að það getur vel verið að sú mynd sem Páll dreg- ur upp sé raunveruleg niður- staða án þess þó að nokkur hafi beinlínis ætlað sér að svona færi. Þessi niðurstaða kann vel að vera afleiðing þess hvemig fjöl- miðlar - og þá sérstaklega sjón- varp - virka í raun, alveg óháð því hvað stjórnendur þeirra ætla sér. Það sem ræður ferðinni er þá einfaldlega frásagnarfonn miðilsins, en ekki innihald (eða innihaldsleysi) fréttanna. Það eru gömul ósannindi að mynd segi meira en þúsund orð. Gallinn við sjónvarp sem frétta- miðil er ekki síst sá, að það er algerlega háð myndum (sjón- varp án mynda er einfaldlega ekki sjónvarp). Auðvitað eru myndir oft það sem best segir fréttina - til dæmis fréttir af eld- gosum - en ef nánar er að gáð kemur í ljós að sennilega eru myndir oftar en ekki til trafala í fréttum. Myndir eru áhrifameiri en orð, en þær eru ekki þar með sannari. En í sjónvarpsfréttum þarf - formsins vegna - að mynd- gera allt. Og það er líka mynd- gering á frétt þegar þulur les hana án myndskreytingar - þá getur svo smávægilegt atriði sem hárgreiðsla fréttaþularins orðið að stórmáli og getur dreg- ið alla athygli frá innihaldi frétt- arinnar. Ekki svo að skilja að hár- greiðsla skipti engu máli. Hár- greiðsla er mikilvæg. En ekki í þessu tilviki. Maður er bara svo vanur því að hún skipti máli í sjónvarpi. Sjónvarp er nefnilega fyrirtaks afþreyingarmiðill, og þegar maður er að horfa á Fri- ends þá skiptir hárgreiðslan á Jennifer Aniston máli. Banda- rískt sjónvarpsefni, annað en fréttir, er það besta sem fyrir- finnst í heiminum. En banda- rískar sjónvarpsfréttir eru hins vegar eitthvert versta sjón- varpsefni sem til er. Hvernig stendur á þessu? Vegna þess hversu afgerandi afþreyingarmiðill sjónvarpið er fer maður smám saman að taka sjónvarpsfréttum eins og öðru sjónvarpsefni: sem afþreyingu. Og við þessu eiga sjónvarps- fréttastofur einfaldlega ekkert svar. Þær verða að dansa með eða hætta starfsemi. Útkoman verður sú, að frétta- tímar bandarískra sjónvarps- stöðva eru einnar og hálfrar klukkustundar (mínus auðvitað um 10 mínútur af auglýsingum) sjónvarpsleikrit um frétta- mennsku, þar sem þulurinn er í aðalhlutverki og fréttamenn í aukahlutverkum. Atburðimir sem fjallað er um eru hins vegar ekki annað en söguþráður og vettvangur atburðanna er sviðs- myndin. Þátttakendur vita að þetta er leikrit. En bæði fréttamenn og áhorfendur láta sem um alvöru sé að ræða. Það er þessi tví- skinnungur sem veldur því að bandarískar sjónvarpsfréttir eru skelfilegt sjónvarpsefni. Eina ljósið í þessu myrkri er sú stað- reynd að það vita allir (frétta- menn og áhorfendur) að þetta er allt tilgerð. Er nema von að menn verði kaldhæðnir? Hér skiptir meginmáli að ástæðan fyrir þessu er alls ekki endilega óheilindi ráða- og fréttamanna sjónvarpsstöðv- anna, heldur er það miklu frem- ur eðli sjónvarpsins sem fjölmið- ils sem leiðir til þessarar óhugn- anlegu niðurstöðu. Flestir sem starfa við sjónvarpsfréttir vita að þar er allt í plati - blóð er al- veg eins á myndum frá Kosovo og í þætti um Bráðavaktina. En fréttamennirnir eru ekki viljandi að reyna að gabba áhorfendur. Það er því sannarlega nauð- synlegt að fara varlega í að álasa þeim sem stýra fjölmiðlun- um. Það sem Páll Skúlason var- aði við er að miklu leyti afleiðing tiltekinnar tækni sem setur manni mjög ákveðnar skorður. En þá vaknar reyndar önnur spurning: Er enginn ábyrgur, úr því enginn beinlínis ætlaði sér að þetta yrði útkoman? Állt í einu er spurningin orðin siðferðisleg. Er maður einungis ábyrgur fyrir því sem maður ætlar sér að gera, eða ber manni að axla ábyrgð á afleiðingum gerða sinna, jafnvel þótt maður hafi alls ekki ætlað þær? Geta þeir sem stýra sjónvarpsfréttum vikist undan ábyrgð með réttu á þeim forsendum að ytri aðstæð- ur setji þeim óviðráðanlegar skorður? Svo kaldranalega sem það hljómar, þá er það kannski huggun harmi gegn, að traust almennings (í Bandaríkjunum að minnsta kosti) á fréttamiðlum fer sífellt minnkandi, að því er fram kemur í fjölmiðlaritinu Columbia Journalism Review. Þetta er líklega til marks um að fólk gerir sér grein fyrir því að sjónvarpsfréttir eru ekki sér- staklega áreiðanlegar. (En lík- lega er rétt að taka fram, að traust bandarísks almennings á dagblöðum er reyndar enn minna en traust hans á sjón- varpsfréttum.) SKOÐUN VEIÐIGJALD TIL LAUSNAR AUÐLIND A V AND A sjAvarútvegsins HÖFUNDUR þessara lína hóf um- ræðu um auðlindaskatt á málþingi um inngöngu í efnahagsbandalög í ársbyrjun 1962, en gerði fyrst fulla grein fyrir hugmyndinni í Fjár- málatíðindum 1975. Nývakin um- ræða gefur tilefni til yfírlits og endurmats í ljósi breyttra að- stæðna. Hugmyndin var reist á sérstöðu ís- lensks þjóðarbúskapar á auðlindagrunni sjáv- ar, sem veitt hefur sjávarútvegi yfirburða framleiðni og færi á tekjumyndun og hagn- aði umfram aðra at- vinnuvegi, um leið og útvegurinn átti þess þröngan kost að færa út kvíamar án þess að spilla færum sínum í bráð og lengd. Hug- myndin fól í sér fulla virðingu fyrir atvinnu- frelsi og jafnræði í markaðskerfi, án úti- lokunar neinna frá nytjum almenn- inga á grunni hefðarréttar og um leið án beinnar skírskotunar til sameignar þjóðarinnar. I þessu fólst tilefni hagkvæmrar gjaldheimtu, um leið og Ijóst varð, að eins konar auðlindaskattur hafði lengi verið innheimtur í formi brenglandi verndartolla. Þurfti því að færa æskilega aðstöðujöfnun samkeppnisatvinnuvega yfir í beina gjaldtöku fyrir verðmæt af- not auðlindarinnar en þeir stæðu að öðru leyti jafnt á grundvelli gengis, sem réðist af almennu efnahagsjafnvægi. Ekki hafði náðst nægur skilningur fyrir þessu sam- hengi, þegar tollverndin var aflögð, né við endurteknar útfærslur fisk- veiðilögsögu. Hefur það reynst annmarki í gengismálum, svo að aðrar útflutnings- og samkeppnis- greinar hafa orðið íyrir skakkafóll- um í góðæri sjávarútvegs. Reynt var að spyrna við fótum með verð- jöfnunarsjóði sjávarafurða, en það varð aldrei máttugt tæki og með það hringlað, uns lagt var niður. Loks rak nauður til þess að tak- marka veiðar með kvóta til ein- stakra útgerða. Vonuðu fylgjendur veiðigjalds þá, að gjafakvóti yrði veittur aðeins tímabundið, meðan sjávarútvegur efldist af friðun, en nú er Ijósara orðið, að einnig órétt- mætir hagsmunir ala af sér fylgi. Nú er gerð krafa um skýrari rétt- argrundvöll stjórnkerfis fiskveiða. Greinir eru með þeim, sem vilja byggja sem mest á hefðarrétti og hinum, sem vilja leysa úr málum út frá meginreglum laga og lýðrétt- inda. Til nútímaþarfa er enn merku landnámi ólokið inn til hálendisins og út til þess hafsvæðis, sem þjóðin hefur náð tökum á með samfélags- Mikið úrval af fallegum rúmfatnaii Skólavördustíg 21, Reykjavík, kíiiií 551 4050 legu átaki. Tilraunir til að skil- greina efnislegan séreignarrétt á auðlindum sjávar eru unnar fyrir gýg, svo innbyrðis háðar sem þær eru. Verður því að horfast í augu við, að þær eru varanlega samfé- lagslegar. Því er lífsnauðsynlegt að tryggja yfir þeim ævarandi umráð þjóðarinnar, sem þetta land byggir, svo að þær verði ekki arð- nýttar utan frá, sem hætt er við, ef bein eða óbein séreignartök nást á henni. Sameign- arákvæðið er sett til að tryggja þennan samfé- lagslega rétt. Akvæðið kemur sumum lög- fræðingum spánskt íyrir sjónir, þar sem ekki megi ráðstafa eigninni né skipta henni upp. Þeir mættu að ósekju kanna fræði- lega, hvort hér sé ekki um annars konar inn- tak að ræða en hið hefðbundna. Einn kostur sameignarákvæðisins er að taka af skarið um, að óheimilt sé að skipta út andvirði auðlindar- innar milli landsmanna, enda yrði það eyðslueyrir í hendi margra, um leið og veiðirétturinn safnaðist á fárra hendur líkt og nú gerist. Gall- inn er þó sá, að almennum lögum Aðlögunin verður að miðast við skýrt mark- mið um stjórnkerfi að henni lokinni, segir Bjarni Bragi Jónsson. Um árabil verður að gera ráð fyrir, að kvótakerfinu verði haldið, um leið og vaxandi þungi stýring- arinnar færist yfir á veiðigjald. má breyta með nýjum lögum, og því það eitt tryggt að taka ákvæðið í stjómarskrá. Hagræn sérstaða sjávarútvegs felst í því, að frjáls aðgangur að auðlindinni leiðir til minnkandi hreins afrakstursauka á hverja aukalega sóknareiningu. Lengi vel bæta nýjar einingar einhverju við sjálfbæran afla, en með vaxandi kostnaði á einingu, svo að ekki er lengur hagkvæmt. Að endingu bætist ekkert við, en fiskistofninn fer að rýrna, svo að hætt er við lak- ari afla frá ári til árs. Útvegsmenn með ný og öflug tæki geta þó máske gengið svo á hlut annarra, að sóknarauki verði þeim arðbær, þótt svo sé ekki á þjóðhagslegan kvarða. Kjarni málsins er misræmi milli einkahags, sem mælist við meðalafla á sóknareiningu, og þjóðarhags, sem mælist við jaðar- afla eða afrakstursauka. Þjóðhags- lega arðsamur sjávarútvegur er því rekinn á bili, þar sem hann skilar talsverðri rentu, arði umfram það að umbuna vinnuafli, fjármagni og framtaki hæfílega. Lausn auðlinda- vanda sjávanitvegsins felst í því að stöðva vöxt sóknar við þetta mark. Það verður gert með öðru hvoru að upphefja einkahag af meiri sókn með veiðigjaldi eða beinum höftum á sóknina. Hið fyrra er að sjálf- sögðu hagstæðara fyrir þjóðar- heildina og er eitt til lengdar í sam- ræmi við atvinnufrelsi og jafnræði, sem Hæstiréttur setti á oddinn. Hið síðara veitir forréttindi, brenglar tekju- og eignaskiptingu og teflir rétti byggðarlaga til lífs- bjargar í tvísýnu. Kvótakerfið hefur fært að hönd- um svo margháttaða, óeðlilega hagsmuni, að meiriháttar aðlögun þarf til að vinda ofan af því. Þar ber hæst myndun stóreigna í verð- lögðum kvóta, óhóflegt aflaverð, tilfærslu vinnslu til flotans og fjár- festingar í trausti hennar, og aukið tekjumisræmi milli sjómanna og landvinnslufólks. Þessu hefur verið til kostað fyrir stjórnkerfi, sem leiðir til mikils brottkasts afla og tryggir ekki fiskvernd sem skyldi. Aðlögunin verður að miðast við skýrt markmið um stjórnkei-fi að henni lokinni. Um árabil verður að gera ráð fyrir, að kvótakerfinu verði haldið, um leið og vaxandi þungi stýringarinnar færist yfir á veiðigjald. Meta þarf, til hve langs tíma kvótinn teljist hafa verið veittur. Til mála kemur að kaupa upp slíkan kvótarétt til einfóldunar á kei'finu. Aukinn eða nýjan kvóta á að mega leigja eða selja til sama endingartíma, annaðhvort fullu gjaldi frá byrjun eða gjaldið sé lát- ið hækka í áfóngum í fulla hæð þess. Fullt gjald miðist við athugun á umræddu misræmi meðal- og jaðarafraksturs, tilraunir með hæð þess og þróun markaðsvirðis kvóta til samræmis við gjaldið. Það hlýt- ur að verða mismunandi eftir teg- undum og ástandi veiðistofna. Sjávarútvegurinn býr við miklar sveiflur í árferði og á því rétt á því, að útjöfnun þeirra hafi vissan for- gang fyrir upptöku auðlindaarðs. Oryggiskei'fi í líkingu við verðjöfn- unarsjóð má endurreisa í krafti auðlindaforræðis samfélagsins með álagningu sveigjanlegs veiðigjalds, er þjóni þannig fleirþættum til- gangi. Hugsanlega mætti gjaldið sveiflast yfir í beinar verðbætur, þegar verst áraði. Síður er vert að taka upp jöfnun aflabragða, þar sem kvótinn á að miðast við að nást og varla ástæða til að auka hvatn- ingu til sóknar, ef afli tregðast. Gjaldheimta til hins opinbera tæki samkvæmt þessu þá fyrst við, er sveiflujöfnun hefði verið sinnt. Skýr markmið þarf þó að setja um, hvernig markmið þessi vegist á og náist tfl langs tíma litið. Svipaðar öryggiskröfur kalla á, að ákveðið gjald verði á lagt sam- hliða kvóta, fremur en að uppboð sé látið ráða, en útgerðir gætu þá staðið uppi verkefnalausar og byggðfr þar með án atvinnu. Þar sem arðurinn hefur flætt yfir í hlutaskiptin, er það og sjálfsögð ör- yggis- og réttlætiskrafa, að veiði- gjald sé tekið af óskiptu aflaverð- mæti. Að liðnum nokkuiTa ára reynslutíma ætti að taka á ný til skoðunar, hvort leysa mætti kvóta- úthlutun af hólmi eða gera hana sveigjanlegri í trausti á áhrif veiði- gjaldsins til sóknaitakmörkunar. Þá fyrst mundi freistingin til að fleygja nýtanlegum afla hverfa. Með markvissri kerfisuppbyggingu og fiskveiðistjórn eftir hagrænum jafnt sem líffræðilegum viðhorfum ætti að mega treysta mun betur á sjávarútveginn sem meginstoð lífs- bjargar þjóðarinnar, meðan unir lífi og byggðum í þessu landi. ► Meira á Netinu Höfundur er hagtræðingur og fyrrum efnahagsrádunautur. Bjarni Bragi Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.