Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 líí LISTIR Leikriti Brynju Benediktsdóttur vel tekið á Grænlandi Island er landið - með Guðríðar sögu Kaupniannahöfn. Morgunblaðið. SAGAN á útjaðrinum, á Islandi, Grænlandi og Norður-Ameríku, hingað til mest sögð af körlum, en nú sögð af konu, segir í umsögn í Information um sýningu á Guðríðar sögu Brynju Benediktsdóttur í Nuuk á Grænlandi. I umsögninni um sýninguna, sem Brynja bæði samdi og leikstýrir, kemst Erik Lund gagnrýnandi að þeirri niður- stöðu að sýningin, sem í Nuuk var leikin á sænsku af leikkonunni Tristan Gribbin, eigi brýnt erindi við Dani, svo vonandi komi sýning- in þangað, eftir að hafa verið sýnd svo víða annars staðar. „Norður-atlantísk farandsýning, sem hefur þegar slegið í gegn, er nú loksins komin aftur til þess lands, þar sem drjúgur hluti leiks- ins á heima,“ segir í inngangi grein- arinnar um Guðríðar sögu og um leið bent á að Brynja Benedikts- dóttir sé eiginlega einnig komin heim. Rifjað er upp að hún hafi unnið í þrjátíu ár við Þjóðleikhúsið, en reki nú sitt eigið leikhús, Skemmtihúsið, í hjarta höfuðborg- arinnar. Utan Islands sé hún þó þekktust fyrir hið verðlaunaða leik- rit, Inuk, sem fjalli um Grænlend- inga og sem hún hafi ferðast með til tuttugu landa. „Nú er Grænland aftur á dag- skrá. I þetta skiptið með mjög gamla en um leið mjög nútímalega einnar konu sýningu," og bent á að sá sem vilji skilja ríkjasambandið danska ætti að láta eftir sér að sjá þessa sýningu, sem sprottin sé úr tveimur Islendingasögum, Græn- lendingasögu og Eiríks sögu rauða. „Ríkjasambandið er í raun örlaga- samband, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, orðið til löngu áður en íyrstu ríkin voru mynduð með því að draga undarlegar bein- ar línur á landakort, síðan kallaðar ríkjamæri.“ Sjónarhorn kvenna Rakið er að rammi sýningarinnar sé einfóld en áhrifamikil sviðs- mynd, gamalt kort yfir norðrið, sem á íVz klukkustundar ferð leikkonunnar Tristan Gribbins í tíma og rúmi verði hluti af leik- reynslunni. „Af'tur og aftur bendir hún á kortið, eftir því sem verkinu vindur fram og löndin, ekki ríkin, fá nöfn eftir fólkinu, sem byggir þau og þeim atburðum, sem gerast. Þess vegna geta þættirnir tveir, sem rúma alla söguna, fangað og haldið utan um sögu Guðríðar Þor- bjarnardóttur og ferðir hennar um heiminn - fimm hundruð árum fyrir ferðir Kólumbusar." Erik Lund rekur síðan sögu Guð- ríðar, sem fæddist á íslandi, bjó á Grænlandi og síðan í Norður-Am- eríku, þar sem hún varð fyrst til að fæða evrópskt barn, en fer síðan á efri árum í pflagrímsför um Dan- mörku til Rómar. „Á íslenskan hátt fór hún út í heim og á íslenskan hátt snýr hún aftur til íslands. Sem nunna á íslandi lýkur hún lífsferð- inni, sem frá sjónarhorni konunnar veitir okkur nýja innsýn í lífið á út- jöðrum íslands, Grænlands og Norður-Ameríku, sem hingað til hefur íyrst og fremst verið rakið af körlum. Rammi leikritsins, sem nú er til í þremur útgáfum, á íslensku, sænsku og ensku, er þessi heims- hluti í upphafi mannkynssögunnar, þegar þeim lýstur saman Þór og Kristi." Síðan segir að einhver útgáfn- anna þriggja hljóti á endanum að berast á danskt svið, því Dönum sé nauðsyn á að sjá þetta verk um elstu rætur sínar. Það sé í raun grunsamlegt að leikferð til Dan- merkur komi ekki fyrr en eftir sýn- ingar í höfuðborgunum Reykjavík, Þórshöfn, Dyflinni, Stokkhólmi og nú síðast Nuuk. „Að vísu liggur Danmörk nokkuð utan við þennan leik. En fyrir sjónarhornið er það hollt að fá hér hlutverk sem út- kjálkasvæði og áfangastaður á leið- inni að hinu endanlega takmarki. Gömul nýlenduveldi hafa á stund- um þörf fyrir slíkt innsæi. Og hér er auk þess hægt að fá það á svo skemmtilegan hátt að það gerir ekki hætishót til að fá það rifjað upp.“ Heimsferðir óska eftir íslenskum flugfreyjum Heimsferðir og Sabre Airways óska eftir íslenskurn ilugfreyjum til að íljúga frá íslandi 2-3 daga í viku í sumar á hinum nýju Boeing 737-800 þotum Sabre Airways. Sabre Airways mun annast þjálfun viðkomandi í Bretlandi og í Keflavfk. Viðkomandi verða staðsettir á íslandi í sumar. Fyrsta flug hefst 30. mars og lýkur í október. Viðkomandi verða að geta unnið allt tímabilið. Umsækjendur eru beðnir um að skila skriflegum umsóknum á ensku með mynd, til Heimsferða með upplýsingum um málakunnáttu, menntun og fyrri störf. Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið sem flugfreyja áður, en er ekki skilyrði. Eingöngu er tekið við skriflegum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað og er farið með sem trúnaðarmál. Umsóknir sendist til: Heimsferðir, Austurstræti 17, 101 Reykjavík, merkt: Flugfreyja/flugþjónn. Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is Fréttagetraun á Netinu mbl.is ALLTAf= e/TTH\SA£> A/ÝT7 ISPifei,- Kaupmannahöfn Árósar Álaborg Malmö Stokkhólmur Gautaborg Osló Bergen Stavanger Amsterdam Ziírich París 22380 22.600 22.870 22.380 23.570 23.550 24.660 24.660 24.660 29.830 29.490 29.590 Lágmarksfyrirvari er 7 dagar. Síðasta heimflug 29. maí. Flugvallarskattar innlfaldir í verði. Söluskrifstofa SAS Laugavegi 172 Sími 562 2211 Netfang sasis@itn.is Út í vorið með SAS Frábær tilboð á fargjöldum Vorfargjöld SAS eru ótrúlega hagstæð. Þau gilda fyrir ferðatímabilið frá 3. apríl til 29. maí og er flogið með SAS á laugardögum. Hámarksdvöl er einn mánuður. Allar nánari upplýsingar fást á næstu ferðaskrifstofu eða hjá SAS. SAS Scandinavian Airlines
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.