Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
NÚ á að gera stórt.
'án hiíiéÉMK skípta máLL
Magnari: 2 x 33W rns
útvarp neð 24 stöðva ninnl
briggja diska spilari
Tvöfalt segulband
Hátalarar tviskiptir: 50W
pouer
Magnan: 2 x 50W rns
útvarp neð 24 stöðva ninni
þriggja diska spilari
Tvöfalt segulband
Hátalarar tviskiptir: 8ow
pouer bass
Magnari: 2 x íoow rns
útvarp neð 24 stöðva ninni
Þriggja diska spilari
Tvöfalt segulband
Hátalarar tviskiptir: i20w
pouer bass
power
Magnari 2 x i2ow rns
útvarp neð 24 stöðva ninni
26 diska spLLari
Tvöfalt segulband
Hátalarar tviskiptir: 150U
pouer bass
gg ' P- M W&0*\
[8lsS"
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 1999
Foreldrar
bera ábyrgð
á uppeldi
Edda Sóley Óskarsdóttir
Landssamtok
foreldra, Heimili og
skóli, munu hinn 16.
aprfl nk. úthluta foreldra-
verðlaunum, en slík verð-
laun hafa verið veitt í
tvígang áður, fyrst árið
1996. Þessi samtök voru
stofnuð 1992 til þess að
bæta uppeldis- og mennt-
unarskilyrði barna og eru
verðlaunin liður í þeirri
viðleitni. Edda Sóley
Oskarsdóttir er fram-
kvæmdastjóri samtak-
anna. Hver tilnefnir þá
sem koma til greina við
verðlaunaafhendingu?
- Hver sem er: Allir
þeir sem hafa stuðlað að
því að efla tengsl milli
heimila og skóla og auka
virkni foreldra, kennara
og nemenda í mikilvægu
samstarfi koma til greina sem
verðlaunahafar í umræddri verð-
launaafhendingu. Skila þarf til-
nefningum fyrir 12. apríl nk. Til-
gangur Heimilis og skóla er ekki
aðeins að stuðla að bættum
menntunar- og uppeldisskilyrðum
bama heldur einnig að bæta hag
fjölskyldnanna í landinu. Það er
gert til dæmis með því að vekja
athygli á því sem vel er gert í
samstarfi heimila og skóla og
veita viðurkenningar fyrir góð
störf.
Er mikil þörf á starfsemi af
þessu tagi?
- Já, það er mikil þörf á þessu,
við hjá samtökunum veitum öllum
upplýsingar sem til okkar leita og
beitum okkur fyrir því að sjónar-
mið foreldra og bama séu virt
þegar reglur em settar og ákvarð-
anir teknar sem varða skóla, upp-
eldis- og fjölskyldumál. Við sjáum
um fræðslu til foreldrafélaga og
foreldraráða og við viljum auka
ábyrgð og áhrif foreldra og
styrkja þá í uppeldishlutverkinu.
Þetta era frjáls félagasamtök sem
allir geta gengið í, hvort sem þeir
era foreldrar eða ekki. Aðeins ef
þeir vilja veita umræddum mál-
efnum lið.
Eru margir í þessum samtök-
um?
- Við eram tæplega 6.000 fé-
lagsmenn á öllu landinu. Samtökin
hafa verið í samnorrænu foreldra-
starfi og hafa gerst aðilar að sam-
tökum foreldra í Evrópu. A Norð-
urlöndunum era svona samtök tal-
in svo mikilvæg að stjórnvöld
skipa fulltrúa í þau. í Noregi er
gert ráð fyrir þeim í sjálfum
grannskólalögunum.
Hvaða verðlaun eru
veitt hérlendis af þessu
tagi?
- Mér er ekki kunn-
ugt um önnur verðlaun
en umrædd foreldra-
verðlaun Landssam-
taka foreldra, Heimilis
og skóla. Þau verðlaun felast í því
að dregið er fram hið jákvæða í
foreldrastarfinu eða starfi grann-
skólanna. Með því móti vörpum
við Ijósi á jákvæða þætti grunn-
skólans eða í samstarfi heimila og
skóla. Af því geta allir lært og séð
hvað er að gerast hjá öðrum og
leitað leiða til að gera eitthvað
sambærilegt.
Hefur samstarf heimila og
skóla aukist á síðari árum?
- Já, tvímælalaust hefur það
gert það, sem betur fer. Það þarf
að kynna vel fyrir foreldrum þann
rétt og þær skyldur sem þeir bera
gagnvart grannskólanum og börn-
um sínum þar. Og það þarf að
►Edda Sóley Óskarsdóttir er
fædd 28. júh' 1956 í Reykjavík.
Hún lauk stúdentsprófi árið
1976 frá Menntaskólanum við
Tjörn og meinatæknaprófi frá
Tækniskóla íslands 1980. Hún
starfaði sem meinatæknir í tíu
ár á Landakotsspítala en nú er
hún framkvæmdastjóri Lands-
samtaka foreldra, Heimilis og
skóla. Hún er gift, Stefáni
Hjálmarssyni tæknifræðingi og
eiga þau þijú börn.
hvetja foreldra til þess að taka
virkan þátt í starfsemi skólans,
þannig að foreldrar geti verið með
í skólaumræðunni. Foreldrar bera
ábyrgð á uppeldi bama sinna, en
þeir hljóta að þurfa að gera það í
samstarfi við skólann. Barnið eyð-
ir mörgum klukkutímum á dag í
skólanum og við sem foreldrar
þurfúm að vita hvað fram fer í lífi
bamsins, öðravísi getum við ekki
haldið tengslum við það.
Vilja skólayfírvöld auka enn
samstarf við heimili og foreldra?
- Já, ég tel að það sé tvímæla-
laust vilji skólayfirvalda að auka
þetta samstarf. Mismunandi er
eftir skólum hvað þetta samstarf
er orðið öflugt.
Annast þessi samtök eitthvert
forvarnarstarf fyrir böm?
- Heimili og skóli hafa kynnt
verkefnið Fyrirmyndarforeldr-
amir og einn þátturinn í því er
foreldrasamningur þar sem for-
eldrar á bekkjargranni geta sam-
stillt afstöðu sína varðandi neyslu
fíkniefna, eftirlitslausra sam-
kvæma barna og ekki síst útivist-
artíma. Verkefnið er
hugsað þannig, eins og
flest annað sem Heimili
og skóli koma að, að
þetta er verkefni sem
foreldrarnir vinna í
hópum og miðar að því
að vekja þá til frekari
umhugsunar, hvetja þá til að móta
afstöðu og styrkja þá sjálfa í upp-
eldishlutverkinu. Það verður
aldrei of oft sagt að það era for-
eldrarnir sem bera ábyrgð á upp-
eldi barna sinna.
Hvað ber hæst í starfsemi sam-
takanna um þessar mundir?
- Við ætlum að gangast fyrir
erindrekanámskeiði í lok þessa
mánaðar, með því er fyrirhugað
að miðla af reynslu og þekkingu
sem safnast hefur fyrir hér hjá
okkur og fá foreldra víðsvegar af
landinu til nánara samstarfs við
okkur, þannig að þeir geti frætt
foreldra á sínum heimaslóðum um
það sem við höfum orðið áskynja.
Foreldrar
þurfa að vita
hvað fram fer
í lífi barnsins