Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Margir undir smásjánni
Enska landsliðið
í knattspyrnu
Útlend-
ingur
ráðinn?
Ekki er lengur loku fyrir það
skotið að útlendingur verði
fenginn til að þjálfa enska landslið-
ið. Kevin Keegan hefur verið ráðinn
þjálfari liðsins tímabundið, eða í
næstu fjóra leiki, en eftir það á ann-
ar þjálfari að taka við. Ýmsir kunnir
enskir þjálfarar hafa verið nefndir
til sögunnar í því sambandi, en sí-
fellt fleiri hallast að því á Englandi
að tími sé kominn til að róa á
ferskari mið erlendis.
„Við urðum að bregðast skjótt
við, svo ekki væri óvissa hjá leik-
mönnum varðandi leiki okkar í und-
ankeppni EM,“ segir David Davies,
framkvæmdastjóri enska knatt-
spymusambandsins, til úrskýringar
á hinni tímabundnu ráðningu. „Eftir
þessa fjóra leiki verðum við hins
vegar að ráða mann til langframa
og að mínu viti er Ijóst að sviðið
verður rýmra en áður hefur verið
talið,“ sagði Davies ennfremur og
vísaði þar til þess að hingað til hefur
aðeins Englendingur verið talinn
koma til greina í starfið.
Óneitanlega verður listi líklegra
landsliðsþjálfara öflugri, ef aðrir en
Englendingar eru einnig nefndir til
sögunnar. Þannig eru nefndir nú
Skotinn Alex Ferguson hjá
Manchester United, landi hans Ge-
orge Graham hjá Tottenham,
Hollendingurinn Ruud Gullit hjá
Newcastle og írinn Martin O’Neill,
stjóri Arnars Gunnlaugssonar hjá
Leicester City.
Áður hefur Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, marg-
sinnis verið nefndur til sögunnar, en
hann sagðist sjálfur ekki telja for-
svaranlegt að ráða útlending til
starfans.
Vandinn er hins vegar sá að allir
þessir þjálfarar - og margir fleiri
raunar til - eru samningsbundnir
félögum sínum og að auki hefur at-
hyglin og pressan á enska landsliðið
að undanförnu ekki gert starfið sér-
lega eftirsóknarvert. Á hinn bóginn
gæti það allt verið breytt í júní,
Keegan gæti hafa hrist upp í hlut-
unum í leikjunum fjórum.
Keegan sjálfur telur mikilvægt að
ráða þjálfara sem fyrst. „Ráðning
mín gefur sambandinu tíma og frið
til að finna rétta manninn. Þetta er
frábært starf fyrir metnaðarfullan
þjálfara og án efa hið stærsta í
ensku knattspyrnunni. Hins vegar
kom það bara á röngum tíma fyrir
mig, ég verð að standa við gerða
samninga. Vonandi fæ ég annað
tækifæri seinna - þá verður það
ekki í hlutastarfi," sagði Keegan.
Reuters
BÚLGARINN Krassimir Balakov hjá Stuttgart er hér að kljást við Steffen Freund, leikmann Dortmund, sem nú er genginn í raðir enska
liðsins Tottenham.
Fylgst verður með stórstjörnunum Mario Basler
og Krassimir Balakov í þýsku knattspyrnunni
BOLTINN er byrjaður að rúlla á knattspyrnuvöllum í Þýskalandi á
ný eftir að leikmenn hafa verið í vetrarfríi síðan í nóvember.
Þjóðverjar hafa verið langeygir eftir að sjá stjörnurnar leika listir
sínar á knattspyrnuvöllunum. Það er athyglisvert að 45% af leik-
mönnum 1. deildariiðanna eru útlendingar og getur það verið
skýringin á því hvers vegna ekki eru eins margir snjallir ungir
þýskir leikmenn í sviðsljósinu og áður.
Margar stórstjömur verða í
sviðsljósinu og fylgjast knatt-
spyrnuunnendur í Þýskalandi vel
með leikmönnum eins og Mario
Basler hjá Bayern Múnchen og
Búlgaranum Krassimir Balakov
hjá Stuttgart. Hinn gamalkunni
þjálfari Max Merker, sem skrifar
reglulega greinar í Bild um knatt-
spyrnu, segir að Mario Basler sé
„dýrasta skeiðklukka" heims.
Höfðar hann þar til leti Marios,
sem tekur sér góða hvfld á milli
spretta. Basler hefur ýmist verið
utan eða innan þýska landsliðsins -
er um þessar mundir ekki í lands-
liðshópi Þjóðverja. Hann getur
leikið frábærlega, en dottið niður
þess á milli. Basler bíður eftir að
samningur hans við Bæjara verði
framlengdur, en Franz Becken-
bauer, forseti Bayern, ætlar að
bíða og sjá hverju fram vindur hjá
leikmanninum, sem hefur átt það
til að gleyma sér á diskótekum
fram undir morgun.
Búlgarinn Balakov er að koma
úr átta vikna keppnisbanni, sem
hann var dæmdur í eftir gróft brot
á leikmanni Wolfsburg. Reyndar
eru allir leikmenn Stuttgart undir
miklum þrýstingi, því að vitað er
að þeir léku sér að því að leika illa
til að losna við þjáífara sinn Win-
fried Scháfer, sem var látinn fara
frá félaginu eftir mikið fjaðrafok
rétt íýrir vetrarhlé.
Schafer hefur sagt að Balakov
sé einn mesti auh sem hann hefur
þjálfað og getur svo farið að þessi
ummæli verði honum dýrkeypt,
því að í starfslokasamningi hans
við Stuttgart stendur að hann
megi ekki tjá sig um Stuttgart og
leikmenn liðsins opinberlega. For-
ráðamenn Stuttgart íhuga nú að
rifta samningnum. Stuttgart þarf
að borga Scháfer um níu millj. ísl.
kr. á mánuði á meðan hann er at-
vinnulaus, en það er sagt að hann
sé ekki að flýta sér að finna sér
aðra atvinnu.
BERTI Vogts
Vogts
býður
Gladbach
aðstoð
BERTI Vogts, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Þýskalands í
knattspyrnu, hefur boðið Bor-
ussia Mönchengladbach aðstoð
sína en félagið er í neðsta sæti
þýsku 1. deildarinnar. Vogts
lék með félaginu á si'num tíma.
„Mér iínnst það vera skylda
mín að bjóða félaginu aðstoð
mína því ég á því svo mikið að
þakka,“ segir Vogts. Hann lét
þess ekki getið í hverju aðstoð-
in gæti verið fólgin.
A áttunda áratugnum varð
Vogt® fimm sinnum þýskur
meistari með Gladbach auk
þess sem það vann í tvígang
Evrópukeppni félagsliða á
þeim árum. „Eg er Berti Vogts
þakklátur fyrir þann hlýhug
sem hann sýnir félaginu og
væri honum þakklátur ef hann
gæti lagt sitt lóð á vogarskál-
ina tii þess að bjarga félaginu
frá falli,“ sagði Wilfried Jac-
obs, forseti Gladbach-Iiðsins.
Þjóðverjar eiga tvo í NBA
ÞJÓÐVERJAR eru mjög stoltir
af því að eiga nú tvo leikmenn í
NBA-deiIdinni í Bandaríkjun-
um. Detlef Schremp sem leikið
hefur við góðan orðstír 14 leik-
tímabil er ánægður að loksins
er kominn landi hans í þessa
hörðu keppni þeirra bestu. Dirk
Nowitzki heitir kappinn og er
20 ára gamali, 2,11 sm á hæð.
Þær komu honum verulega á
óvart, Ieikreglumar sem gilda á
æfingum hjá stórliðunum í
NBA. Þannig verða nýliðarnir
að færa reynslumiklum leik-
mönnum vatn og allt sem þeir
biðja um, á æfingum og ferðum.
Nowitzki sem leikur nú með
Dallas Mavericks var samt fljót-
ur að læra leikreglur atvinnu-
mennskunnar. Hann verður að
safna boltunum saman á æfing-
um og aflienda lcikmönnum
boltana fyrir æfingar. Þá gilda
reglur um hvar hver situr í
rútubifreiðinni að og frá leikj-
um. Þegar Nowitzki ætlaði að
fá sér sæti í búningsklefanum
dauðþreyttur eftir eina æfing-
una var stóllinn hans skyndi-
lega horfinn. Þegar hann leit í
kringum sig sá hann að Shawn
Bradley hafði vantað stól undir
töskuna sína svo Dirk Nowitzki
mátti bara standa. „Þetta tekur
auðvitað svolítið á taugarnar,"
viðurkennir leikmaðurinn ungi,
„en mér er sagt að þetta sé
hluti af uppeldi alvöru NBA-
leikmanns og sætti mig því við
þessa meðferð. Ég varð meira
að segja að læra hvernig ég á
að borða með hníf og gaffli svo
og hvernig ég rétti fram hend-
ina og heilsa þegar stórlaxarnir
vilja heilsa mér.“
Dirk Nowitzki er fæddur í
Wurzburg í Þýskalandi og byij-
aði íþróttaferilinn í handbolta
en vegna hæðar sinnar skipti
hann fljótt um grein og sneri
sér að körfunni. Myndir af leik-
mönnum LA Lakers héngu
alltaf í barnaherbergi hans en
nú hefur móðir hans tekið þær
allar niður og þar hanga nú
myndir af nýju verðandi stjörnu
Dallas, Dirk Nowitzki. Detlef
Schremp segir aðspurður að
Nowitzki eigi vissulega mjög
bjarta framtíð en hann þurfi
svo sannarlega að hafa fyrir
hlutunum og það byggist al-
gjörlega á honum sjálfum hvað
úr ferli hans verði. Schremp
íhugaði að koma jafnvel til
besta liðs Þýskalands í vetur,
Alba Berlin, og leika með þeim
þar til deilum leikmanna og eig-
enda liðanna Iyki. Nú segir
Schremp að loksins þegar besti
leikmaður allra tíma, Michael
Jordan, er hættur gætu þeir hjá
Seattle Supersonics loksins orð-
ið NBA-meistarar og þá geti
hann kannski farið að hugsa
um að hætta. Schremp, sem er
35 ára gamall, ætlar að gerast
bandarískur ríkisborgari þegar
ferlinum lýkur.