Morgunblaðið - 21.02.1999, Side 16
16 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fiðlu- og
píanótónleikar
í Salnum
STEINUNN Birna Ragnarsdóttir,
píanóleikari, og Martynas Svégzda
von Bekker, flðluleikari, halda tón-
leika í Salnum í Kópavogi þriðju-
daginn 23. febrúar kl. 20.30. Flutt
verður sónata fyrir fiðlu og píanó
op, 45 eftir Edvard Grieg,
Intermezzo eftir Robert Schumann,
Sherzo eftir Johannes Brahms, Kol
Nidrei op. 47 eftir Max Bruch,
Poéme op. 25 eftir Emest Chausson
og Tzigane eftir Maurice Ravel.
Samstarf þeirra Martynas og
Steinunnar Birnu hófst fyrir
nokkrum árum. Pau koma reglulega
fram á tónlistarhátíðum erlendis og
verða m.a. gestir „Nogent sur Mar-
ne“ listahátíðarinnar í næsta mán-
uði þar sem koma fram margir
þekktustu listamenn Evrópu í flest-
um listgreinum.
Steinunn Birna hefur komið fram
á fjölmörgum tónleikum hérlendis
undanfarin ár, þ. á m. á vegum
Listahátíðar Reykjavíkur, Tónlist-
arfélagsins, Kammermúsikklúbbs-
ins og Styrktarfélags íslensku óp-
erunnar. Hún hefur gert þætti fyrir
RÚV um píanóleikara, sögu þeii-ra
og túlkun. Einnig hefur hún leikið á
geislaplötum. Steinunn Birna mun
koma fram sem einleikari með Sin-
fóníuhijómsveit íslands árið 1999
og leika píanókonsert eftir Jórunni
Viðar og verður flutningurinn gef-
inn út á geislaplötu. Steinunn Birna
starfar aðallega við tónlistarflutn-
ing og einnig við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Hún er stofnandi og
listrænn stjórnandi Reykholtshá-
tíðar.
Martynas Svégzda von Bekker er
fæddur í Vilnius árið 1967. Amma
hans, Elena Strazdas Bekeriene,
var heimsþekktur fíðluleikari og
nam m.a. hjá J. Thibaud. Hún var
við störf í París á tímum Fritz
Kreislers. Afi hans var hljómsveit-
arstjóri Vilnius-fílharmoníuhljóm-
sveitarinnar um árabil og naut mik-
TILKYNNING
Hef hætt rekstri læknastofu minnar á Háaleitisbraut 11-13
frá sl. áramótum.
Mun framvegis sjá sjúklinga á göngudeild Landspítala
samkvæmt skriflegri tilvísun lækna. Tilvísanir sendist til
undirritaðs á bæklunarskurðdeild Landspítalans.
Höskuldur Baldursson, læknir,
sérfræðingur í bæklunarsjúkdómum.
Dagskráin þín er komin út
17. febrúar-2. mars
Bráðavaktin
tekur breytingum.
Mikki Mús
í nýrri
teiknimynd.
Kíkt inn hjá
Fóstbræðrum.
í Dagskrárblaðinu þínu.
/ allri sinni mynd!
Morgunblaðið/Arni Sæberg
STEINUNN Birna Ragnarsdóttir, og Martynas Svégzda von Bekker á æfingu,
illar virðingar. Martynas nam fíðiu-
leik hjá ömmu sinni frá unga aldri
og kom fyrst fram sem einleikari
með hljómsveit aðeins sjö ára gam-
all. Sautján ára vann hann fyrstu
verðlaun í alþjóðlegri tónlistar-
keppni í Rússlandi. Árið 1986 vann
hann fyrstu verðlaun í Tónlistar-
keppni Litháens og gerðist í fram-
haldi þess nemandi prof. Katlius í
Moskvu. Hann hefur einnig numið
hjá Igor Oistrach og Pickeisen og
fleiri þekktum listamönnum. Mar-
tynas vann til verðlauna í Brahms-
keppninni í Hamborg og hefur kom-
ið fram á fjölmörgum tónleikum
viða um Evrópu og í Rússlandi.
Hann hljóðritaði einleiksverk fyrir
fiðlu eftir litháísk tónskáld fyrir
franska hljómplötufyrirtækið
DANTE. Sú geislaplata kom út
1997. Martynas var nýlega kjörinn
listrænn sendiherra heimalands
síns. Hann hefur verið gestur Reyk-
holtshátíðarinnar frá stofnun henn-
ar.
I desember sl. kom út geislaplata
Steinunnar Birnu og Martynas
Svégzda er nefnist Con espressione.
Rist í tré
MYJVPLIST
Hafnarborg
Sverrissalur
RIST I TRE
SIGURLAUGUR ELÍASSON
Opið alla daga frá 12-18. Lokað
þriðjudaga. Aðgangur 200 krónur f
allt húsið. Til 1. mars.
„ÚR króniku" nefnir Sigurlaug-
ur Elíasson sýningu sína að þessu
sinni, en hún samanstendur af
miklum fjölda smámynda frá 1996
ásamt andlitum sem rist eru í
fjörusprek og eru gerðar 1988,
1989 og 1996.
Smámyndimar bera svip af því
sem menn nefna „vignettur"; titil-
mynd í bók; teikning eftir eða yfir
kafla í bók, bókahnútur, stafrós.
Þetta munu þó vera sjálfstæðar
myndir í „mini-mini“ formi, og hef
ég sjaldan séð minni myndir sem
bera heitið tréristur. Alitamál er
hvort hér sé rétt farið að hlutun-
um, því að þegar formið er jafn
knappt grípa grafíklistamenn
gjarnan til tréstungutækninnar,
sem ber fagheitið „xylografí“, og
felst í því að skorið er í sérstaka
tréstokka. Þeir samanstanda svo af
hörðum viði sem límdur er saman
þannig að menn eru að skera í
enda viðarins, í þessu til-
viki yfirleitt sortulyngsvið
sem er afar harður. Verk-
færin eru þá nokkuð önn-
ur en í tréristunni og líkj-
ast helst eirstungutólum
og flugbeitt, þá er kostur-
inn að mögulegt er að ná
fínustu línum í kross og
þvers, sem mun síður er
gerlegt þegar skorið er í
krossviðarplötur úr
mjúku efni og langvegur-
inn aðalatriðið. Það kem-
ur líka fram að línumar í
þessum myndum Sigur-
laugs eru nokkuð óskýrar
og þokukenndar á þann
veg að sjálf teikningin
kemst ekki nægilega til
skila. Línurnar þurfa
beinlínis að skína og glóa í
dýpt sinni til að njóta sín til fulls.
Ekki bætir úr skák að myndimar
em svo þétt hengdar upp að þær
renna saman í eina dökka heild
sem erfitt er að rýna í.
Portrettmyndimar eru mun að-
gengilegri og í þeim meiri fjöl-
breytni enda gengur listamaðurinn
út frá veðruðu fjöruspreki sem
hann ristir mismikið í með skurð-
arjárni sínu. Þessar myndir eru af-
ar misjafnar og virðist nokkuð til-
viljunarkennt hvaða árangri hann
PORTRETT, rist í fjörusprek.
nær hverju sinni. Einfaldar og tjá-
sterkar myndir bera hér af sakir
uppmnaleika og slagkrafts og er
hér sú í horni suðurveggs gott
dæmi þar um og í slíkum myndum
birtast bestu eðliskostir Sigurlaugs
sem grafíklistamanns. Hefði ég
viljað vísa til fleiri mynda og lesa í
þær en því miður era þær ónúmer-
aðar og allur samanburður þannig
út í hött.
Bragi Ásgeirsson
Listadagar
í Öldutúns-
skóla
Morgunblaðið/Ásdís
VERK Elínar Arnarsdóttur, Helga Einarssonar, Rakelar Eddu Guð-
mundsdóttur og Inga Þórs Þórssonar, sem var fjarverandi þegar
ljósmyndin var tekin, er ein þeirra mynda sem kemur til með að
prýða veggi skólans.
FJÖLLISTAMAÐURINN Örn
Ingi stýrði listadögum í
Öldutúnsskóla sem stóð yfir dag-
ana 10.-16. febrúar sl. Markmið
listdaganna var að efla vægi
verk- og Iistgreina og þar með
skajpandi starf nemenda.
A siðasta degi hátíðarinnar
sýndu hóparnir afurðir sínar.
Leiklistarhópurinn var með leik-
sýningu. Textflhópurinn sýndi
sín verk, en í honum voru stúlkur
sem höfðu hannað og saumað
búninga eftir þemanu Sköpunin -
frá myrkri til birtu: Vatn - jörð -
dýr - maður. Þá komu einnig
fram dansarar, sem sýndu bæði
afríska dansa og samkvæmis-
dansa, auk þess sem söngvarar
stigu á pall og spilað var á gítar.
Auk þess voru ýmis listaverk til
sýnis á göngum skólans.