Morgunblaðið - 21.02.1999, Qupperneq 20
MORGUNBLAÐIÐ
20 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
Stúdentar af hug-
sjdn eða hagsýni?
Hefja stúdentar háskólanám með hug-
sjónaglampa í augum eða líta þeir á það
sem arðbæra fjárfestingu? Þessari spurn-
ingu reynir Stefán Sigurðsson hagfræð-
ingur að svara í rannsókninni „Stúdentar
af hugsjón?“ Stefán rekur í þessari grein
helstu niðurstöður sínar um leið og hann
kynnir netútgáfu rannsóknarinnar.
NÁMSMENN í Háskóla ís-
lands eru öflugur og áber-
andi hagsraunahópur í ís-
lensku samfélagí. Staða
þeirra og viðhorf eru mikið til um-
ræðu opinberlega enda reka há-
skólanemar hagsmunafélag sem
vinnur að því að bæta stöðu þeirra
og réttindi. í umræðu íslensks sam-
félags má greina ákveðnar skoðanir
um það hvemig staða háskólamanna
sé og hver einkenni þeirra séu eftir
því hvaða nám þeir stunda. Skipta
laun að loknu námi viðskiptafræði-
nema meira máli en guðfræðinema?
Eru heimspekinemar fremur reknir
áfram af hugsjón en laganemar? Er
goðsögnin um háskólanemann sem
sækir sér menntun til þess að auðga
andann án tillits til fjárhagslegs
ávinnings sönn?
Áður hefur verið gerð tilraun til að
reikna út arðsemi háskólanáms mið-
að við laun í ákveðnum atvinnugrein-
um og niðurstöður þeirra útreikn-
inga hafa verið heimfærðar upp á
arðsemi námsgreina í háskólanum.
Þessir útreikningar hafa yfirleitt
sýnt þá niðurstöðu að háskólanám sé
ekki nema í fáum tilvikum arðbær
ijárfesting. Ef raunin væri að aðeins
nám í ákveðnum fijgum innan há-
skólans skilaði arði benti það til þess
að fjölmargir háskólanemar væru
hugsjónafólk sem gerði ekki ráð fyr-
ir arðsemi af þeim beina og óbeina
kostnaði sem fylgi háskólanámi.
Markmið rannsóknarinnar „Stúdent-
ar af hugsjón?“ var að nálgast hug-
mynd háskólanema sjálfra um stöðu
sína, hverjar forsendur þeirra væru
við upphaf náms og hver viðhorf
þeirra væru til náms og atvinnulífs.
Rannsóknin byggist á skoðanakönn-
un sem gerð var meðal 1000 nýnema
við Háskóla íslands. Nemarnir voru
spurðir fjölmargi-a spuminga sem
vörðuðu þjóðfélagsstöðu þeirra,
ástæðu fyrir háskólanámi, viðhorf til
réttindamála og forsendur um kostn-
að og ábata við háskólanám þeirra.
Upplýsingar um fjárhagslegar for-
sendur voru siðan notaðar til þess að
reikna út arðsemi þeirrar ákvörðun-
ar stúdentanna að fara í háskólanám.
Leita ekki hamingjunnar
Hvað veldur því að fólk ákveður að
hefja háskólanám? Vill það auðga
andann, undirbúa sig fyrir framtíð-
arstarf eða tryggja sér vel launaðar
stöður að námi loknu? í skoðana-
könnuninni voru nýnemar spurðir
um þá þætti sem vógu þyngst i
ákvörðun þeirra að hefja háskóla-
nám. Af sautján þáttum sem nýnem-
um var boðið upp á merktu flestir við
þætti sem tengdir voru væntingum
um framtíðar atvinnuþátttöku. Yfir
70% nýnema svöruðu að það að
„námið er góður grunnur fyrir ýmis
störf', „áhugavert starf krefst há-
skólamenntunar" og „námið er nauð-
synlegur grunnur fyrir ákveðið
starf' hefði haft „mikil og frekar
mikil áhrif* á þá ákvörðun að hefja
háskólanám. Aðrir þættir sem höfðu
einnig mikif áhrif á nýnema voru til
dæmis „mér finnst gaman að vera í
námi“, „námið gefur möguleika á
starfi erlendis" og „vel launað starf
krefst háskólamenntunar". Á hinn
bóginn var athyglisvert að sjá að að-
eins um 15% nýnema sögðu að þátt-
urinn „háskólamenntun eykur ham-
ingju“ hefði haft „mikil og frekai'
mikil áhiif' á þá ákvörðun að hefja
háskólanám.
Konum finnst skemmtilegra
að læra en körlum
Töluverðan mun mátti sjá á
áherslum miUi kynja þegar spurt var
um ástæðu þess að háskólanám var
hafið. Til dæmis sögðu 75% kvenna
að þátturinn „mér finnst gaman að
vera í námi“ hefði haft „mikil og
frekar mikil áhrif ‘ á ákvörðun þeirra
að hefja háskólanám, á móti 48%
karla. Annað dæmi um áberandi
mun á viðhorfum kynjanna kom
fram í þáttunum „háskólanám eykur
lífsþroska“, „námið er undirbúning-
ur undir lífið“ og „háskólamenntun
eykur hamingju“. Marktækt stærra
hlutfall kvenna en karla sagði þessa
þætti hafa haft „mikil eða frekar
mikil áhrif* á þá ákvörðun að hefja
háskólanám.
Guðffæðinemar ólíkir
viðskiptafræðinemum
Nokkuð mismunandi viðhorf mátti
greina milli nýnema mismunandi
deilda þegar spurt var um ástæður
þess að háskólanám var hafið. Hæst
hlutfall í viðskipta- og hagfræðideild
sagði til dæmis að það að „áhugavert
starf krefst háskólamenntunar“ hefði
haft „mikil og frekar mikil áhrif ‘ á þá
ákvörðun að hefja háskólanám eða
84%. Mun færri voru sama sinnis í
guðfræðideild eða aðeins 50%. Þátt>
urinn „mér finnst gaman að vera í
námi“ vóg hins vegar þyngst í þeirri
ákvörðun guðfræðinema að hefja há-
skólanám. Viðskipta- og hagfræði-
nemar settu þann þátt hins vegar í
áttunda sæti yfir það sem hafði „mikil
og frekar mikil áhrif ‘ á þá ákvörðun
að hefja háskólanám. Það að fá „vel
launað starf* var hins vegar í þriðja
sæti þeirra þátta sem nemar í við-
skipta- og hagfræðideild sögðu hafa
haft „mikil og frekar mikil áhrif ‘ á þá
ákvörðun að hefja háskólanám. Þátt-
urinn var einnig hátt skrifaður meðal
nema í verkfræðideild og lögfræði-
deild eða í fjórða sæti. Þátturinn var
hins vegar rnjög lágt á lista meðal
guðfræðinema eða í ellefta sæti yfir
þá þætti sem skiptu mestu máli í
ákvörðun þeirra að hefja háskólanám.
Hræðast ekki atvinnuleysi
Þegar nýnemai' voru beðnir um að
forgangsraða þáttunum „áhugavert
starf', „laun“ og „atvinnuöryggi“ eft-
ir mikilvægi kom í ljós að „áhugavert
starf* að loknu háskólanámi skipti
meirihluta nýnema mestu máli,
„laun“ næstmestu máli og „atvinnu-
öryggi“ minnstu máli. Athyglisvert
er að hærra hlutfalli karla en kvenna
fannst laun skipta „mestu máli“, aft-
ur á móti töldu konur fremur en
karlar áhugavert starf skipti „mestu
máli“ og að laun skiptu „minnstu
Vænt arðsemi deilda við fjárfestingu í háskólanámi
Verkfræðideild I i
Viðskipta- og hagfræðideild
I-V" ■ é i 1
i i i 1 ! i 1
Raunvísindadeild f i
Heimspekideild I n
Félagsvísindadeild II I
Læknadeild U H
i ! | j pf 't |
Laqadeild 1
Guðfræðideild | j
0% 2% 4% 6% 8% 10% 12% 14% 16% 18%
Þeir þættir sem höfðu „mikil og frekar mikil áhrif ‘
á þá ákvörðun að hefja háskólanám
Áhhaskólamenntunar I" ......— ~ ' 3
Námið er nauðsynlegur i....-........................ - 3
grunnurfyrirákv stkrf _______■ 1 ... ■ • • ■ - -- . i
grunnu^rirýmilstðrf j
Námið gefur möguleika
_______á starfi eriendis
Vel launað starf krefst
____háskólamenntunar
Fræðilegur áhugi á
____________greinlnoi
Námið gefur alhliða
______undirt). undir lífið
Háskólanám eykur
___________lífsþroska
Mér finnst gaman að
____________yerajnám!
Námsárangur í
_.....framhaldsskóla
Áhugavert starf stóð
_______ ekkitijboða
Óvissa um hvað
_______éq vildi gera
Vel launað starf
____ stóð ekki til boða
Menntun fjölskyldu
minnar
Háskólamenntun eykur
____________ hamingju
Menntun félaga
minna
Fékk ekki inngöngu í
annað nám
Raðtafla sem sýnir hvaða þættir höfðu mest áhrif innan deilda á þá ákvörðun að hefja háskólanám 1 Viðskipta- 1 | og hagfr.d. Lagadeild Heimspeki- deild Lækna- deild Raunvís,- deild Guðfræði- deild Félagsvís. -deild Verkfræði- deild
Námið er qóður qrunnur fyrir ýmis störf 1 1 1 6 2 4 2 1
Áhuqavert starf krefst háskólamenntunar 2 3 4 3 4 7 1 2
Nauðsynlequr qrunnur fyrir ákv. starf 4 2 9 1 1 1 3 3
Mér finnst qaman að vera í námi 8 5 2 4 6 6 4 5
Námið gefur möguleika á starfi eriendis 5 9 7 2 5 9 9 6
Vel launað starf krefst háskólamenntunar 3 4 8 7 8 11 5 4
Fræðilegur áhugi á greininni 9 8 6 5 3 2 7 10
Námið gefur alhliða undirb. undir lífið 6 6 3 8 9 3 6 7
Háskólanám eykur lífsþraska 7 7 5 9 7 5 8 8
Til þess að skoða svör deilda nánar hefur verið sett upp raðtafla með
þeim níu þáttum sem 50% og fleiri nýnema töldu að hefðu haft „mikil og
frekar mikil áhrif'’ á þá ákvörðun að hefja háskólanám. Númerið í fyrsta
dálkinum vísar til þess hvar í röðinni þættirnir voru meðal nýnema allra
en í öðrum dálkum má finna hvar í röðinni þessir þættir voru innan
einstakra deilda.
Væntingar um ráðstöfunartekjur eftir háskólapróf
miðað við mismunandi menntun
200
60 •<-------------------*--------1---------1---------'--------1
0-2 ár 2-4 ár 5-7 ár 8-1 Oár 11-20 ár 21-30ar >31 ár
Væntingar um ráðstöfunartekjur eftir háskóiapróf
miðað við starfsvettvang
60 <—---------i---------'----------•---------•------—------------
0-2 ár 2-4 ár 5-7 ár 8-10 ár 11 -20 ár 21-30 ár >31 ár