Morgunblaðið - 21.02.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 21
máli“. Þessi staðreynd er talsvert
merkileg þegar litið er til þess að
rannsóknir hafa sýnt að konur með
háskólapróf hafa áberandi lægri
laun á vinnumarkaði en karlar. Sam-
kvæmt því hefði ekki verið óeðlilegt
að laun skiptu hærra hlutfalli
kvenna meira máli en karla vegna
þess að þær vildu leiðrétta stöðu
sína á vinnumarkaði með tilliti til
launa.
Konur hjá hinu opinbera en
karlar hjá einkaaðila
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar telja karlar almennt að
þeir fái starf í samræmi við menntun
sína að loknu því námi sem þeir
leggja stund á eða rúm 89%. Aðeins
rúmur helmingur hefur hins vegar
ákveðið starf í huga að námi loknu.
Nokkuð jöfn skipting er á milli þess
hvað margir nýnemar ætla að starfa
hjá „hinu opinbera“ eða „einkaaðila“.
Báðir hópar eru um 42%, en 16% ný-
nema hafa hins vegar hug á að starfa
„sjálfstætt“ að loknu námi. Svör
kynjanna eru nokkuð ólík að þessu
leyti. Hæst hlutfall karla ætlar að
starfa hjá einkaaðila eftir háskóla-
próf en hæst hlutfall kvenna ætlar að
starfa hjá hinu opinbera. Rannsóknir
meðal háskólamenntaðra starfs-
manna hafa sýnt, að þetta er í sam-
ræmi við raunveruleikann, karlar
starfa fremur hjá einkaaðila en kon-
ur starfa fremur hjá hinu opinbera.
Bent hefur verið á þessa skiptingu
sem eina ástæðu launamunar á milli
kvenna og karla, þar sem laun séu
lægri hjá hinu opinbera en hjá einka-
aðila auk þess sem launamunur á
milli kvenna og karla sem vinna hjá
einkaaðila sé minni heldur en launa-
munur kynja hjá hinu opinbera.
Þessar niðurstöður um mismun á
viðhorfi kynjanna meðal nýnema til
launa sinna eru því ekki til þess
fallnar að auka bjartsýni á að launa-
munur milli kynja á vinnumarkaði
hverfi á næstu árum.
Heimspekinemar
sjálfstæðastir
I fjórum deildum af átta býst hæst
hlutfall aðspurðra við að starfa hjá
einkaaðila, það er í verkfræði-, lög-
fræði-, raunvísinda- og viðskipta- og
hagfræðideild. I hinum deildunum
fjórum, heimspeki-, lækna-, guð-
fræði- og félagsvísindadeild, býst
hins vegar hæst hlutfall við að starfa
hjá opinberum aðila. Stærst hlutfall
nema í viðskipta- og hagfræðideild
ætlar að starfa hjá einkaaðila að
loknu námi eða 76% en stærst hlut-
fall hjá hinu opinbera í guðfræðideild
eða 100%. Athyglisvert er að sú deild
þar sem flestir ætla að starfa „sjálf-
stætt“ að loknu námi er heimspeki-
deild eða 27%.
Nýnemar í Háskóla fslands eru
ekki „stúdentar af hugsjón"
I rannsókninni kemur í ljós að ný-
nemar búast við fjölbreyttum ábata
af námi sínu. Þegar þeir eru spurðir
hvort þeir líti á nám sitt sem arð-
bæra fjárfestingu segist mikill meiri-
hluti telja að svo sé eða 91%. Yfir
80% af nemum í öllum deildum há-
skólans líta á nám sitt sem arðbæra
fjárfestingu. Stærst er hlutfallið í
verkfræðideild eða 100% en lægst í
heimspekideild eða rúm 84%. I þessu
sambandi er mjög athyglisvert að
stærstur hluti nýnema telur stuðn-
ing ríkisins við námsmenn í háskóla-
námi eiga að vera „meiri en nú“ eða
70%, þrátt fyrir að mikill meirihluti
telji nám sitt vera arðbæra fjárfest-
ingu.
Væntingar um
12,2% arðsemi
Þegai- arðsemi fjárfestingar ný-
nema í háskólanámi er skoðuð kem-
ur í ljós að hún er að meðaltali já-
kvæð um 12,2%, standist hún þær
forsendur sem nýnemar gefa sér.
Með öðrum orðum nýnemar vænta
þess að uppskera 12,2% arðsemi við
þann fórnarkostnað að stunda ekki
fulla vinnu á veturna á meðan á námi
stendur auk beins kostnaðar eins og
við bækur, skólagjöld óg námslán.
Nýnemar búast þar af leiðandi við
hárri ávöxtun fjárfestingar í háskóla-
námi auk fjölbreytts ábata eins og til
dæmis áhugaverðara starf að loknu
námi. Ef hægt væri að meta þessa
þætti til fjár inn í ábataþátt matsins
myndi það án efa bæta arðsemi fjár-
festingarinnar töluvert. I þessu sam-
bandi má benda á að meirihluti ný-
nema tekur áhugavert starf fram yf-
Fyrri rannsóknir á arðsemi
menntunar eru villandi
ir laun að loknu námi, auk þess sem
þátturinn „vel launað starf krefst há-
skólamenntunar" var aðeins í sjötta
sæti yfir þá þætti sem hæst hlutfall
merkti við að hefðu haft „mikil og
frekar mikil áhrif ‘ á ákvörðun þeirra
að fara i háskólanám.
Karlar búast við hærri
launum en konur
Bæði kyn líta almennt á háskóla-
próf sitt sem arðbæra fjárfestingu.
Konur búast við 11-17% lægri laun-
um en karlar, bæði miðað við að þær
fari út á vinnumarkaðinn með stúd-
entspróf og með háskólapróf. Hins
vegar er ekki mikill munur á vænt-
ingum um fjárhagslega arðsemi há-
skólanáms milli kynjanna. Karlar
búast við 12,7% ávöxtun en konur
12%. Konur virðast hins vegar hafa
ákveðið að hefja háskólanám af fjöl-
breyttari ástæðum en karlar, sem
gæti bent til þess að þær sækist í
meira mæli eftir því að fá ýmsan
persónulegan ábata frá námi sínu
sem hvergi kemur fram í fjárhags-
legu arðsemismati. I þessu sambandi
má rifja upp að stærra hlutfall
kvenna en karla telur „áhugavert
starf ‘ eftir háskólanám mikilvægara
en góð „laun“ auk þess sem þær bú-
ast fremur við að vinna hjá hinu op-
inbera þar sem rannsóknir hafa sýnt
að lægri laun eru almennt í boði.
Verkfræðinemar búast við
hæstri arðsemi náms síns
Verkfræðinemar búast við hæstri
arðsemi við fjárfestingu í háskóla-
námi sínu eða 17,0%. Nemar í við-
skipta- og hagfræðideild koma þar á
eftir með 16,1% og þar á eftir raun-
vísindadeild en nemar í deildinni
vænta 15,4% arðsemi við fjárfest-
ingu í háskólanámi. Þessar deildir
skera sig úr hvað varðar háar vænt-
ingar um arðsemi. Á eftir þessum
deildum koma heimspekideild, fé-
lagsvísindadeild, lagadeild og lækna-
deild, allar með vænta arðsemi há-
skólanáms síns á bilinu 10-11%.
Guðfræðinemar hafa áberandi
minnstar væntingar nýnema um arð-
semi náms síns eða 7,1%.
Andstæðurnar guðfræðinemar
og verkfræðinemar
Nýnemar hafa mismunandi bak-
grunn eftir kyni, aldri og hvaða
deildum Háskólans þeir tilheyra.
Nýnemar í guðfræðideild eru til
dæmis að meðaltali elstir, hæst hlut-
fall þeirra er í sambúð eða giftir og
þai’ eru fleiri nemar með börn á
framfæri en í öðrum deildum. Guð-
fræðinemar búast við lægstri ávöxt-
un fjárfestingar í háskólanámi sínu
eða 7,1%. Nýnemar í verkfræðideild
eru hins vegar yngstir, flestir meðal
þein-a eru einhleypir, lægst hlutfall á
börn og lægst hlutfall tók sér frí að
loknum framhaldsskóla. Verkfræði-
nemar búast við hæstri ávöxtun fjár-
festingar í háskólanámi sínu eða
17%. Hinar deildirnar raðast hins
vegar á milli þessara tveggja deilda
hvað varðar þjóðfélagsstöðu og
væntingar um arðsemi.
Stúdentar af hagsýni
Það fer ekki á milli mála þegar
niðurstöður rannsóknarinnar eru
skoðaðar að almennt meðal kynja og
deilda háskólans eru nýnemar ekki
„stúdentar af hugsjón" heldur mun
fremur af hagsýni. Nýnemar búast
auk fjárhagslegs ábata við öðrum
fjölbreytilegum hagnaði sem myndi
bæta arðsemi háskólanáms þeirra
töluvert ef hægt væri að vega það
inn í tekjulið útreikninga á arðsemi.
Það er því að minnsta kosti rangt að
tala um háskólafólk sem hugsjóna-
fólk, hvort sem uppskeran verður
eins góð fjárhagslega þegar upp er
staðið og við var búist.
Um rannsdknina
Rannsóknin Stúdentar af hug-
sjón? eftir Stefán Sigurðsson hag-
fræðing var upprunalega styrkt af
Nýsköpunarsjóði námsmanna sum-
arið 1996, en að auki komu til styrkir
frá menntamálaráðuneytinu og
fyrirtækjum. Haustið 1996 var skoð-
anakönnunin sem rannsóknin byggir
á framkvæmd meðal 1000 nýnema í
öllum deildum Háskóla íslands. Dr.
Guðmundur K. Magnússon prófess-
or var tilsjónarmaður rannsóknar-
innar frá upphafi. Rannsóknin hefur
komið út hjá Hagfræðistofnun HI en
fyrir áhugasama er hægt að nálgast
netútgáfu hennar á slóðinni
www. aet.is/studentarafhugsj on.
NIÐURSTÖÐUR um væntingar
nýnema voru bornar saman við
rannsóknir á launum háskóla-
fólks og fyrri arðsemisrannsókn-
ir á háskólanámi. Fyrri arðsem-
isrannsóknir á þessu sviði eiga
það allar sammerkt að þær
byggjast á rauverulegum tölum
en ekki væntingum eins og í
þessu tilviki var gert. Sérstak-
lega voru bornar saman þær for-
sendur sem lagðar voru til
grundvallar í útreikningum við-
komandi arðsemisrannsókna
miðað við þær forsendur sem
stúdentar gefa sér.
Svör nýnema í rannsókninni
um væntingar til framtíðarinnar
endurspegla niðurstöður rann-
sókna sem gerðjir hafa verið á
stöðu háskólafólks á vinnumark-
aði. Hér er vísað til atriða eins og
að laun hækka með menntun,
karlar hafa hærri Iaun en konur,
BS-próf gefur hærri laun en BA-
próf á vinnumarkaði, laun hækka
á vinnumarkaði með lengd há-
skólanáms og þeir sem ætla að
vinna hjá hinu opinbera hafa mun
lægri tekjur en þeir sem starfa
sjálfstætt eða hjá einkaaðila.
Að bestu vitund höfundar hafa
verið gefnar út þijár rannsóknir
um arðsemi menntunar á Islandi.
Þær rannsaka allar raunarðsemi
fjárfestingar í menntun en skoða
ekki væntingar eins og gert hef-
ur verið hér að framan. Niður-
stöður þeirra rannsókna stangast
allar á við væntingar nýnema í
meginatriðum. Það má skýra að
hluta til með vafasömum einfóld-
unum í forsendum við arðsemis-
mat í þessum rannsóknum.
I rannsókn Hagfræðistofnunar
frá 1991 eru bankamenn látnir
standa fyrir viðmiðunarhóp allra
þeirra sem hafa stúdentspróf,
sem verður að teljast hæpin for-
senda. Launavæntingar nýnema á
milli deilda eru mjög ólíkar, bæði
með tilliti til stúdentsprófs og há-
skólaprófs, og því geta kannanir
sem miða marga hópa háskóla-
manna við einn viðmiðunarhóp
þeirra sem hafa stúdentspróf gef-
ið mjög skakkar niðurstöður um
raunverulega arðsemi náms. Vel
getur hugsast að bankamenn séu
ágætis viðmiðunarhópur laun-
þega með stúdentspróf fyrir
ákveðna menntun, til dæmis við-
skipta- og hagfræðinga. Það er
hins vegar hæpið að þeir séu góð-
ur viðmiðunarhópur fyrir grein
eins og hjúkrunarfræði, þar sem
hópur eins og sjúkraliðar ætti ef-
laust betur við.
í rannsókn BHM frá 1997 gefa
skýrsluhöfundar sér þá forsendu
að háskólafólk fari í þriggja ára
BA- eða BS-nám á Islandi og bæti
svo við sig tveggja ára MA- eða
MS-námi erlendis á fullum náms-
lánum. í ljósi þess að rannsóknir
hafa sýnt að aðeins um þriðjung-
ur þeirra sem tekur grunnhá-
skólanám heldur áfram í fram-
haldsnám* verður að telja for-
sendu rannsóknarinnar um sex
ára háskólanám að meðaltali
hæpna. Þessi forsenda hefur mik-
il áhrif á niðurstöðu skýrslunnar
þar sem hún hækkar fórnar-
kostnað vegna tapaðra tekna á
meðan á námi stendur sem og
upphæð námslána. Ef gengið er
út frá upplýsingum um ineðal-
námslán nema í Háskóla íslands
frá Lánasjóði íslenskra náms-
manna taka háskólanemar tölu-
vert lægri námslán en rannsókn
BHM gerir ráð fyrir. I rannsókn
BHM er heldur ekki gert ráð fyr-
ir að háskólafólk sé með tekjur
yfir sumartímann eða með námi.
Sú forsenda verður að teljast
inikil einföldun. Þessar stærðir
hafa mikil áhrif í útreikningum á
arðsemi náms vegna þess hve
snemma á ævinni þær falla til,
vegna þess að ávöxtun fjár-
magnsins er fórnað í lengri tima.
Skýrslan gæti vegna þessara van-
kanta gefið verulega ranga mynd
af arðsemi háskólanáms þar sem í
henni er allt í senn gert er ráð
fyrir of löngum námstíma, þar af
leiðandi of miklum fórnarkostn-
aði við meðalháskólanám, of há-
um lánum og engum tekjum á
sumrin eða samhliða námi.
I rannsókn Hagfræðistofnunar
frá 1997 gefur höfundur sér
ákveðnar forsendur um fremur
lág sumarlaun á meðan á námi
stendur og miðar ekki við tekjur
með námi. Þetta er varasöm ein-
földun því auk þess sem gæði
gagna rannsóknar á arðsemi
menntunar ein mikilvæg hafa
forsendur matsins mjög mikið að
segja um lokaniðurstöðu, til
dæmis geta 20.000 króna hærri
sumarlaun á meðan á háskóla-
námi stendur, eða 5.000 króna
tekjur á mánuði á meðan á námi
stendur, gert það að verkum að
arðsemi náms breytist úr nei-
kvæðri í jákvæða.
Væntingar nýnema eru í
nokkrum meginatriðum í algeru
ósamræmi við niðurstöður fyrri
arðsemisrannsókna. Það er niður-
staða rannsóknarinnar Stúdentar
af hugsjón? eftir að farið hefur
verið yfir forsendur þessara arð-
semisrannsókna, að ekki sé hægt
að bera niðurstöður um vænta
arðsemi og arðsemi háskólanáms
saman að neinu viti því enn hafi
ekki verið gerð nægilega um-
fangsmikil og nákvæm rannókn á
raunverulegri arðsemi menntun-
ar. Niðurstöður þessarar rann-
sóknar ættu að geta vísað veginn
um hveijar forsendur slíks mats
ættu að vera.
★
Þriðjungur háskólamenntaðra lýkur
fleiri en einni prófgráðu samkvæmt
könnun Félagsvísindastofnunar,
Háskólamenntun og atvinna: Könnun
meðal háskólamanna, frá mars 1992.
Konudagsblómaúrvalið
er hjá okkur
Málsverður á
Naustinu
fylgir konudags-
blómvendinum
frá okkur
Einnig óvæntur
glaðningur frá
Snyrtivöruversluninni
PS. Þú getur sparað þér sporin!
Heimsendingarþjónusta, símar 561-3030 og 551 9090
blómaverkstæði
INNA
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
Næg bílastæði, Bílastæðishúsið Bergstaðir. Ekkert stöðumælagjald um helg