Morgunblaðið - 21.02.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 27
„Umboð og inn-
flutningsleyfi
gengu kaupum og
sölum en hér voru
þau notuð til hins
ýtrasta.“
umboð heldur voru þau nýtt til hins
ýtrasta."
Örn segir að á þessum tíma hafí
sól fyrirtækisins risið hvað hæst og
hafði það þá vörugeymslur á fjórum
stöðum. Vörur þær sem fluttar voru
inn á vegum heildsölunnar voru afar
fjölbreyttar, allt frá títuprjónum til
bíla og vefnaðarvöra til kókómalts.
Einu vörarnar sem félagið flutti
aldrei inn voru landbúnaðar- og raf-
vörur. „Þeir fluttu inn bíla sem hétu
Standard. Þetta var árið 1946. En
þessi innflutningur borgaði sig ekki.“
Fyrirtækinu skipt upp
Þessum ei’fíðu tímum viðskipta-
hafta lauk ekki fyrr en viðreisnar-
stjórnin tók við. „Þá fer loks að birta
til og höftin að hverfa. Þegar við
gengum í EFTA breyttust viðskipta-
hættir svo mjög að faðir minn kunni
ekki á þá,“ segir Örn. Ólafur Haukur
félagi Guido lést um þetta leyti en
sonarsonur hans og nafni tók við
hans hlut. Erfiðleikar komu upp í
rekstri fyrirtækisins m.a. vegna þess
að það var rekið í samræmi við
gamla tíma. Öm kom til fyrirtækis-
ins árið 1971. „Byggt var yfír fyrir-
tækið í Vatnagörðum árið 1983 - á
kolvitlausum tíma. Þá var farið að
di’aga af fyrirtækjum í landinu og
margar verslanir lögðu upp laupana.
Þá var verðlagsráð til, sem ég tel að
hafi haldið verðinu í landinu uppi.
Það vann gegn verðlækkun, vil ég
segja,“ segir Öm. Þeim félögum
tókst þó að rétta úr kryppunni með
því að selja húsið í Vatnagörðum.
A árinu 1994 varð sá vendipunktur
í rekstri heildsölunnar H. Ölafsson
og Bernhöft að þeir Örn og Ólafur
Haukur skiptu fyrirtækinu upp,
enda voru áherslur þeirra frænda
orðnai’ ólíkar. Örn hélt nafninu og
umboðum fyi’ir efnavöruna og hús-
gögnin en Ólafur Haukur tók yfir
vörar í neytendaumbúðum. A sama
tíma gengu til liðs við Öm sonur
hans Sigurður Örn, Paul Hansen og
Helgi Jónasson. „Við skiptum yfir-
stjórn fyrh’tækisins bróðurlega á
milli okkar en höfum allir okkar sér-
svið. Sigurður er aðalsölumaður fyr-
irtækisins og Helgi er fjármálastjóri.
Paul sér um afgreiðslu á öllum pönt-
unum enda eru flutningar hans sér-
svið. Hann vann í mörg ár hjá Eim-
skip áður en hann kom hingað. En
það er svo í svona litlu fyrirtæki eins
og þessu að allir verða að geta geng-
ið í störf hinna. Það gerir starfið fjöl-
breyttara og skemmtilegra," segir
hann. Sjálfur sér Örn um tollskýrsl-
ur, innflutningsskjöl og tölvukerfi
fyrirtækisins. Með auknum umsvif-
um hafa fleiri verið ráðnir til fyrir-
tækisins og eru þar nú starfandi sex
manns.
Breyttir tímar
Nýr kafli í sögu fyrirtækisins
hófst með nýjum mönnum. Enn sem
fyrr flytur fyrirtækið inn efnavörar,
svo sem bragð- og ilmefni og sykur
fyrir framleiðslufyrirtæki, en eftir að
einkaleyfi Afengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins til sölu á áfengi var
aflétt fengu þeir umboð fyrir Frapin-
koníak, mai'gar tegundh’ af hvítvín-
um og rauðvínum, kampavín, freyði-
vín og bjór. Einnig flytja þeh' mikið
inn af húsgögnum, aðallega fyi’ir
skrifstofur og hillukerfi fyrir vöru-
geymslur. „Við flytjum m.a. inn
skrifstofuvörur frá belgísku versl-
anakeðjunni GDM, en hún er rekin á
svipaðan hátt og IKEA. Viðskipta-
vinur þarf yfirleitt ekki að bíða nema
í hálfan mánuð frá því hann pantar
vöru, sem þá er í Belgíu, þangað til
hann hefur fengið hana afhenta. Nú
orðið sendum við fólki mynda- og
verðlista og það getur fundið verðið
út frá gengisskráningu og bætt virð-
isaukaskatti við. Einnig sendum við
nú myndir af vörum um Netið, þar
sem hægt er að skoða vörurnar nán-
ar. Við teljum að í framtiðinni verði
þetta stór þáttur í viðskiptum. Með
þessu spörum við pappír og leggjum
okkai’ skerf til umhverfisverndar.“
Þá segir Örn að á döfinni sé að opna
heimasíðu þar sem viðskiptavinir
geta skoðað vörur og verð.
„Við seljum flestar vörurnar beint
til þeirra sem nota þær. Þó erum við
með nokkrai’ vörutegundir, t.d.
tölvuborð, sem við seljum til endur-
sölu. Við leggjum höfuðáherslu á
sölu og dreifingu vörunnar en liggj-
um ekki með lager sjálfir og erum
ekki með útkeyrslu. Við viijum helst
ekki sjá vöruna enda viljum við
dreifa henni á sem hagkvæmastan
hátt.“ Vörur til stórra viðskiptavina
eru því geymdar á vöruhótelum frá
því þær koma til landsins þar til
þeim er komið til kaupenda. Afengið
er geymt á frílager og þai’f því
hvorki að leggja út fyi’ir vörunum né
tollum og gjöldum fyrr en þær eru
seldar. „Um leið og varan er sótt á
hótelið eru gjöldin greidd. Varan fer
síðan beint þaðan til kaupandans."
„Við finnum fyrir miklum meðbyr
núna og seljum mikið,“ segir Örn
enn fremur.
Þá viðgekkst drengskapur
Allar aðstæður til reksturs heild-
sölu hafa því breyst mikið frá því
faðir Arnar og félagi hans stofnuðu
fyi’h’tæki sitt á fyrri hluta aldarinn-
ar. „Þá viðgekkst drengskapur í við-
skiptum," segir Örn og bætir við að
því miður sé hann ekki eins hátt
skiifaður nú.
- Hver er galdurinn við að halda
fyrirtæki svo lengi í rekstri?
„Galdurinn er að eiga góða við-
skiptavini og að vera með vöru sem
þeim líkar. Það gengur heldur ekki
að skella hurðum.“
Uið gefuni boltenn
■ á þig!
Lýsing býður þér á landsleik íslands
og Bosníu í körfubolta miðviku-
daginn 24. febrúar. Nánari upp-
lýsingar á slóðinni www.Iysing.is
i / . !
I vQinn m
Lyjlí IVi 111
kj
I JJ , ,
'W
* J J i /
■uiallorca
l\Hallorca
)U% . .. m
y
t i / i \
1 » I f.. ..
„tiír«tia**«*,'‘k*wr
/Bi/lu
^*!íC
15.000 kr. afsláltitr fyrir þá \ „„
sem ferðast cittir t ferðirtil;
Portúgals -12. og 22. apríl, 1. mat.
Malforca ■ 12. apríl, 14. ntai.
Faxafcni 5 • 108 Reykjavik • Simi 568 2277 • Fax 568 2274 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is j 8Q0 7722
Akranes ísafjörður Akureyri Selfoss Keflavík
Kirkjubraut 3 Vesturferðir, Aðalstræti 7 Ráðhústorg 3 Suöurgarður hf., Austurvegi 22 Hafnargötu 15
S: 431 4884 -Fax: 431 4883 S: 456 5111 • Fax: 456 5185 S: 462 5000 • Fax: 462 7833 S: 482 1666 «Fax: 482 2807 S: 421 1353 *Fax: 421 1356
Borgames Sauðárkrókur Höfn Vestmannaeyjar Grindavík
Vesturgarður, Borgarbraut61 Skagfiröingabraut 21 Jöklaferðir, Hafnarbraut Eyjabúð, Strandvegi 60 Flakkarinn, Víkurbraut 27
S: 437 1040'Fax: 437 1041 S: 453 6262/896 8477 • Fax: 453 5205 S: 478 1000 «Fax: 478 1901 Sími 481 1450 S: 426 8060 -Fax: 426 7060
rfcKulK
fl