Morgunblaðið - 21.02.1999, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
starfmu, vöruþekkingu, stuðning yf-
irmanna og fjölbreytni starfa. „Pað
hefur sýnt sig að mjög einhæf störf
hafa mjög letjandi áhrif á þjónustu-
viljann og einhæfnin virðist eiga
sérstaklega illa við íslendinga, sem
flesth- ei-u litlir smákóngar.
Einnig kom í ljós, hvort sem það
er séríslenskt einkenni, að mikið
vinnuálag eykur þjónustuviljann.
Þjónustufyrirtæki eiga því ekki að
hafa áhyggjm- af því, þótt fyrir-
tækið sé undirmannað, ef það er
einungis á álagstímum. Það eflir
bara landann!“ segir hún.
„Hins vegar verða fyrirtækin að
breyta þjónustumenningunni innan
frá, ef þau ætla að ná forskoti og
þar er ábyrgð stjómenda mikil.
Þessi langtímarannsókn sýnir
einnig, að sé vinnuálagið viðvarandi
þannig að fólk getur rétt leyst
vandamálin frá degi til dags, þá
missir fyrirtækið samkeppnisfor-
skot. Astæðan er sú að samkeppnis-
fyrirtækin sem eru með viðráðan-
legt vinnuálag geta hagað stjórnun
sinni þannig, að starfsmenn séu
stanslaust að leita nýrra leiða en
brosa jafnframt framan í viðskipta-
vinina."
Ég vinn bara hér!
Svafa segir, að margar rannsókn-
ir hafi sýnt fram á beint samband á
milli sterkrar þjónustumenningar
og hagnaðar. Ekki sé nóg að
stjórnendur dragi vagninn heldur
þurfi að virkja starfsmenn, þannig
að þeir hafi í huga hvað þeir geti
gert fyrir fyrirtækið en ekki öfugt.
„Það þarf að útrýma hugsunarhætt-
inum „ég vinn bara hér“, sem
starfsfólk sumra fyrirtækja er hrjáð
af. Það þarf að vera sameiginlegt
verkefni stjórnenda og starfsfólks
að tryggja að þau geti öll verið stolt
af að vinna hjá fyrirtækinu. Eða
hverjir vilja vinna hjá fyrirtæki sem
er þekkt fyrir lélega þjónustu?“
spyr hún.
„Ég hef orðið vör við það í
ráðgjafastörfum mínum, að starfs-
menn hugsa ekki út í þetta fyrr en
þeir eru spurðir.“
Þá segir hún að það skipti máli að
tryggja starfsfólki góða vinnu-
aðstöðu. Ekki sé skilningur á því
hjá öllum yfirmönnum eins og þeim
sem sagði: Hvað meinarðu eigin-
lega? Er þetta fólk ekki á launum?
Hún bætir við, að rannsóknir sýni
að laun séu ekki endilega aðalat-
riðið, heldur skipti önnur atriði
meira máli.
Hún bendir ennfremur á að
vinnuviðhorf hafi breyst verulega á
undanfórnum árum og lýsir því
þannig, að starfsmenn séu ekki
lengur „vinnuafl“ heldur „mannauð-
ur“. Hún tekur fram, að áður fyrr
hafi samkeppnisforskot fyrirtækja
falist í nýrri tækni og auknum gæð-
um. Nú geti flest fyrirtæki náð
þessum þáttum á svipuðum for-
sendum. „Það eina sem fyrii-tæki
getur keppt á núna er hversu gott
starfsfólk það hefur. Þess vegna
neyðast fyrirtækin til að líta á okk-
ur sem mannauð en ekki vinnuafl.
Með aukinni þekkingu, menntunar-
stigi, bættum aðstæðum og lifsgæð-
um höfum við það betra og gerum
meiri kröfur til lífsins. Þess vegna
gerum við líka meiri kröfur til fyrir-
tækisins og viljum fá meira út úr
því en bara brauð og smjör,“ segir
hún.
Stjórnun er fullt starf
Svafa segir að þó svo að mörg
fýrirtæki séu að reyna að efla
stjórnun sé ennþá ríkjandi að
stjórnendur séu fyrst og fremst sér-
fræðingar á sínu sviði, sem stjórni í
framhjáhlaupi. „Þó er að færast í
vöxt að menn eru gerðir að
stjórnendum vegna eiginleika sinna
en ekki vegna þess að þeir hafi
ákveðna menntun. Menn eru fyrst
og fremst að horfa á hvort viðkom-
andi sé leiðtogaefni og eru að átta
sig á, að það skiptir meginmáli að
hafa hvetjandi stjórnendur frekar
en eftirlitsstjómendur. Það kemur í
framhaldi af því að menn stjórna
mannauðnum öðru vísi en vinnuafl-
inu. Vinnuaflinu er meira stjórnað
með eftirliti og beinum fyrirmælum
en mannauðurinn sættir sig ekki við
slíkt, heldur vill hann hvatningu og
sanngirni.
Talað er um að eini stjórnunar-
stíllinn sem á við sé að menn
stjórni eftir aðstæðum, þ.e. hvetja
þegar það á við og aga þegar það á
við. Þess vegna er svo erfitt að
vera nútíma stjórnandi. Það er eins
og að vera kona, sem þarf að hugsa
um heimilið, ala upp börnin, vera
fullkomin á öllum sviðum en er líka
að vinna. Af því að stjórnendur eru
oft beðnir um að gera ósamrýman-
lega þætti eins og að veita
toppþjónustu en hafa ekki mann-
afla til þess þá eru streitueinkenni
yfirleitt mjög viðvarandi hjá
stjórnendum.“
Finna þarf jafnvægið
Svafa segir að undanfarin 2 M>
hálft ár hafi verið óvenju erilsöm
meðal annars vegna doktorsritgerð-
arinnar. Nú sé kominn tími til að
hægja á. „Ég get ekki haldið svona
áfram, en þegar mér tekst að skipu-
leggja vel þá gengur þetta upp.
Þegar vinnuálagið er farið að raska
jafnvægi milli vinnu og einkalífs
endurtekið þá er það orðið slæmt.
Ég finn að það er að gerast. Ég vil
gjarnan halda áfram að kenna og
blanda atvinnulífinu inn í kennsl-
una. Þannig verð ég betri ráðgjafi
því ég þarf alltaf að vera lesa mér til
og hef nýjustu þekkinguna. Að
sama skapi verð ég miklu betri
kennari, því þá er ég með íslenskt
atvinnulíf í kollinum þegar ég miðla.
Framtíðin er sú að geta fundið
þarna jafnvægi," segir Svafa Grön-
feldt.
Spyr síðan: „Erum við ekki ann-
ars búnar? Ég á nefnilega að vera
mætt í saltkjöt hjá vinafólki...“ og er
þar með rokin út í kuldann.
SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
Síðasta sendinq af
uttarjökkum vetraríns
Kr. 7.900
31
__.<
Stjörnuspá á Netinu mbl.is
/U-UTAf= e/TTHV/AÐ /VÝTl
Aætla má að nú þegar séu u.þ.b. 3000 konur á íslandi sem taki inn að staðaldri
M[CTlOpClCBíjö\\/ítamln, ætluð konum 40 ára og eldri. Þökkum frábærar
viðtökur og munið að taka ávallt hylkið inn með máltíð og einu glasi af vatni.
fTlenopace.
Ellen Helgadóttir
bókari
Menopace vakti strax áhuga minn fyrir
traustvekjandi samsetningu nauðsynlegra
fæðubótarefna, auk hinna samvirkandi
þátta, sem styrkja líkamsstarfsemina í að
mynda gammalinóleumsýru, sem er svo
góð fyrir hormónajafnvægið.
Ég hef tekið eitt hylki á dag i tvö ár og
get því hiklaust maelt með Menopace.
Menopace erþróað af sérfræðingum til að hjálpa konum við að
takast á við breytingaraldurinn.
Menopace inniheldur öfluga blöndu af 20 vítamínum og steinefnum.
Menopace er mjög auðvelt í meðförum, aðeins 1 hylki á dag með máltíð
Menopace hentar einnig konum sem taka inn hormónalyf.
Menopace er fáanlegt í 30 og 90 daga skömmtum.
Guðbjörg Gísladóttir
hjúkrunarfræSingur
Menopace er fyrirbyggjandi aðgerð sem
getur fært okkur vellíðan og styrk um og
eftir tíðarhvörf. Ég hef notað Menopace
hylkin i eitt og hálft ár og fann fljótt fyrir
mun betra jafnvægi og minni sveiflum á
tiðarhringnum.
Hvet því konur 40 ára og eldri til þess að
taka inn Menopace reglulega.
V'ít'*
Ef þú kaupir 90 daga pakkningu
af Menopaœ þá fæst 1 glas af
Orku Omega 3
frá Fiskafurðum-Lýsisfélagi
f/[enopace
CNKAPití OAGlte
Fanný Jónmundsdóttir
leiöbeinandi Brian Tracy Intemational
Menopace hylkin eru mjög hentug fyrir
nútímakonuna. Þau innihalda ríkulega
skammta af helstu vitamínum og steinefnum
sem eru nauðsynleg konum fyrir og eftir
tíðarhvörf.
Hvet ailar konur til að finna leiðir til
heilbrigðara lífernis á þessu frábæra
tlmabili.
GILDIR UT FEBRUAR
ORKU OMEGA 3
inniheldur ekki Aog D
vitamin og er þvi frábært
viöbótarefni með
Menopace hylkjunum,
engin hætta á
ofskömmtum á þessum
fituuppleysanlegu
vítaminum.
VITABIOTICS
- þar sem náttúran
og vísindin vinna saman
Hringdu eftir bækiingi í síma 588 2334
VITABIOTICS
Breytingaskeiðið getur verið besti tími ævinnar
fJ[JÍÍ Ofluga vítamín- og steinefnablandan j
Góður valkostur til að viðhalda heilsu og lífsþrótti, fyrir og eftir breytingaraldur.
Námskeið og ráðgjöf um breytingaraldurinn hjá INNSÝN sími - 551 5555
Fæst aðeins í lyfjaverslunum.