Morgunblaðið - 21.02.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 3B
Dagbók
Háskóla
*
Islands
DAGBÓK Háskóla íslands 21.-27.
febniar.
Mánudagnr 22. febníar:
Linda Kiistmundsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur, MS, flytur fyrirlest-
urinn: „Upplifun foreldra af því að
búa með einstaklingi sem hefur ver-
ið greindur með „borderline“ per-
sónuleikaröskun á málstofu í hjúkr-
unarfræði. Málstofan verður haldin
kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæð í Eir-
bergi, Eiríksgötu 34.
Breski fornleifafræðingurinn dr.
Colleen E. Batey er staddur á ís-
landi á vegum Fornleifastofnunar
íslands. Hún mun halda fyrirlestur
um „Kumlarannsóknir á Skotlandi
og Orkneyjum". Fyrirlesturinn sem
verður á ensku verður haldinn í
Odda, stofu 101, kl. 17.30.
Jón Kr. Arason prófessor HÍ
heldur áfram fyrirlestri sínum sem
nefnist: „Nýtt af Witt baugum
kroppa" á málstofu í stærðfræði.
Málstofan fer fram í stofu 258 í VR-
II og hefst kl. 15.25.
Miðvikudagur 24. febrúar:
Á Háskólatónleikum í Norræna
húsinu miðvikudaginn 24. febrúar
leikur gítardúettinn Dou-de-mano
en hann skipa gítarleikararnir Hin-
rik Bjamason og Rúnar Þórisson. Á
tónleikunum verða flutt suður-am-
erísk tónlist eftir Astor Piazzolla (f.
1921, d. 1992), Leo Brouwer (f.
1939) og Celso Machado (f. 1953).
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30. Verð
aðgöngumiða er 400 kr. Ókeypis
fyrir handhafa stúdentaskírteina.
Jón Daníelsson, viðskipta- og
hagfræðideild HI, London School of
Economics, fjallar um: „Upplýs-
ingaflæði milli tilboða pg verðs á
gjaldeyrismörkuðum“ á málstofu
viðskipta- og hagfræðideildar. Mál-
stofan fer fram á kaffístofu á 3. hæð
í Odda og hefst kl. 16.15.
Fimmtudagur 25. febrúar:
Elfa Þorsteinsdóttir lögfræðingur
verður með rabb á vegum Rann-
sóknastofu í kvennafræðum við Há-
skóla íslands. Yfírskrift rabbsins að
þessu sinni er: „Konur og mannrétt-
indi“. Rabbið fer fram í stofu 201 í
Odda kl. 12.00-13.00.
Þriðji fundur í fundaröð um nám
og starf verkfræðingsins fjallar um
„Alþjóðlegt starfsumhverfi í námi
og starfi verkfræðingsins“. Fundur-
inn verður haldinn í fundarsal VFÍ
að Engjateigi 9 kl. 16.15. Frummæl-
endur: Þorsteinn Helgason prófess-
or, Svavar Jónatansson fram-
kvæmdastj. Almennu verkfræðistof-
unnar, Páll Ólafsson, sérlegur ráð-
gjafí á LV. Guðmundur V. Guð-
mundsson, verkfræðinemi. Fundar-
stjóri: Sigurður Erlingsson, prófess-
föstudagsfyrirlestri Líffræðistofn-
unar. Fyrirlesturinn er haldinn í
stofu G-6, Grensásvegi 12, kl. 12.20.
Námskeið á vegum Endurmennt-
unarstofnunar HI vikuna 22.-27.
febrúar
22. feb. kl. 9.00-16.00. Samskipti á
kvennavinnustað. Kennari: Þórkatla
Aðalsteinsdóttir sálfræðingur.
22. feb. kl. 9.00-16.00. Eftirlit með
framkvæmdum. Kennarar: Pétur
Ingólfsson og Torfí Hjartarson
verkfræðingar hjá VSÓ ráðgjöf.
22. og 24. feb. kl. 16.00-19.00.
Notkun ABC (Activity Based Cost-
ing) aðferða til að bæta árangur í
rekstri. Kennari: Páll R. Pálsson
viðskiptafræðingur hjá SKÝRR hf.
23. og 25. feb. kl. 16.30-19.30. Að-
ferðafræðin og tæknin. Kennarar:
Jóna Pálsdóttir hjá Islenska
menntanetinu og Guðrún Geirsdótt-
ir lektor.
Þri. 23. feb.-23. mars kl. 16.00-
19.00 (5x), alls 15 klst. Tölfræðileg
líkanagerð. GLM, log-linear, logit-
og tobit-líkön. Kennari: Helgi Tóm-
asson tölfræðingur.
24. og 25. feb. kl. 8.30-12.30. Gerð
gæðahandbókar samkvæmt ISO
9000. Kennari: Haukur Alfreðsson
rekstrarverkfræðingur hjá Fyrirtak
ráðgjafarþjónusta ehf.
24. feb. kl. 8.30-12.30. Tölvuvædd
skjalastjórn. Kennarar: Hörður
Olavson framkv.stj. Hópvinnukerfa
ehf. og Jóhanna Gunnlaugsdóttir
bókasafnsfr. hjá Gangskör sf.
24. og 25. feb. kl. 12.30-16.30. Un-
ix 2. Kennari: Helgi Þorbergsson
Ph.D., dósent HÍ.
24. og 25. feb. kl. 8.30-12.30.
Öryggi í gagnaflutningum. Kennar-
ar: Heimir Þór Sverrisson hjá
Teymi hf. og Gísli Heimisson hjá
Landsbréfum hf.
25. feb. kl. 16.00-19.30. Skattfram-
tal rekstraraðila. Kennarar: Ragnar
M. Gunnarsson og Jón Ásgeir
Tryggvason hjá ríkisskattstjóra og
Ragnar Guðgeirsson endurskoðandi
KPMG hf.
26. feb. kl. 9.00-16.00. Tölvusjón -
myndvinnsla með „LabVIEW".
Kennari: Andrés Þórarinsson, raf-
magnsverkfræðingur hjá Vista.
27. feb. kl. 9.00-13.00, 1. og 4.
mars kl. 16.00-20.00. Uppeldisleg
samskipti í fjölskyldum. Kennari:
Dr. Sigurlína Davíðsdóttir lektor við
HÍ.
Sýningar
Þjóðarbókhlaða. 1. Sýning á rann-
sóknartækjum og áhöldum í læknis-
fræði frá ýmsum tímum á þessari
öld. Sögusýning haldin í tilefni af 40
ára afmæli Rannsóknardeildar
Landspítalans (Department of Clin-
ical Biochemistry, University
ABS
Alvöru flotefni
Högni Hoydal, færeyski lands-
stjómarmaðurinn, flytur fyrirlestur
sem ber yfirskriftina „Fullveldisætl-
an landstýrisins“ á fundi um sjálf-
stæði Færeyja í boði rektors Há-
skóla íslands. Fundarstjóri verður
Sigurður Líndal lagaprófessor, en
hann hefur undanfarið veitt fær-
eysku landstjóminni ráðgjöf í þessu
máli. Fundurinn verður haldinn í
Hátíðarsal Háskólans og hefst kl.
16.15.
Guðmundur Jónsson lektor mun
halda fyrirlestur sem hann nefnir:
„Hagvöxtur og hagþróun", á mál-
stofu hagfræðiskorar og sagn-
fræðiskorar. Málstofan fer fram í
stofu 422 í Árnagarði og hefst kl.
16.15.
Sigurður R. Sæmundsson tann-
læknir flytur fyrirlestur um:
„Tauganet" á málstofu í læknadeild.
Málstofan fer fram í sal Krabba-
meinsfélags Islands, Skógarhlíð 8,
efstu hæð og hefst kl. 16.00 með
kaffíveitingum.
Föstudagnr 26. febrúar:
Jón S. Ólafsson sérfræðingur flyt-
ur fyrirlestur um: „Setið og mýið“ á
" ABS147
OFTIIROC ABS 154
M ABS316
Smlðjuvagur 72,200 Kðpavogur
Stmi: 5641740, Fax: 5541769
Hugljómun
sjalfsþekkingar
„Enlightenment intensive”
í Báfjöllum 12.-15. maí.
Hver ert þú?
Skráning og upplýsingar í síma 562 0037.
Hospital of Iceland) og að 100 ár em
liðin frá því að Holdsveikraspítalinn
í Laugamesi var. reistur. (The
Leper Hospital at Laugarnes,
Reykjavík). Sýningin stendur frá
10. október og fram í mars.
2. Bríet Bjarnhéðinsdóttir - Ör-
sýning í forsal þjóðdeildar. Kvenna-
sögusafni Islands barst nýlega að
gjöf málverk Gunnlaugs Blöndal af
Bríeti Bjamhéðinsdóttur frá 1934.
Gefandi er Guðrún Pálsdóttir,
tengdadóttir Bríetar. I tilefni af því
hefur verið sett upp örsýning um
Bríeti í forsal þjóðdeildar Lands-
bókasafns Islands - Háskólabóka-
safns. Þar er málverkið til sýnis
ásamt skrifborði Bríetar og gögnum
úr fórum hennar. Sýningin stendur
frá 8. febrúar til 31. mars. Sýningin
er opin mánudaga til föstudaga kl.
8:15-19 og laugardaga kl. 10-17.
Stofnun Árna Magnússonar,
Ámagarði við Suðurgötu. Frá 1.
september til 14. maí er handrita-
sýning opin þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga kl. 14.00-16.00.
Unnt er að panta sýningu utan
reglulegs sýningartíma sé það gert
með dags fyrirvara.
Orðabankar og gagnasöfn
Öllum er heimill aðgangur að eft-
irtöldum orðabönkum og gagna-
söfnum á vegum Háskóla Islands og
stofnana hans.
Islensk málstöð. Orðabanki. Hef-
ur að geyma fjölmörg orðasöfn í
sérgreinum:
http://www.ismal.hi.is/ob/
Landsbókasafn Islands - Há-
skólabókasafn. Gegnir og Greinir.
http://www.bok.hi.is/gegnir.html
Gagnasafn Orðabókar Háskólans:
http://www.lexis.hi.is
Rannsóknagagnasafn Islands.
Hægt að líta á rannsóknamerkefni
og niðurstöður rannsókna- og þró-
unarstarfs: http://www.ris.is
]J jjllSÍÆ OrtuiöJÚS -
Starfsmannafélög og einstaklingar, sem áhuga hafa á að eignast gullfallegan og
vandaðan heilsársbústað með öllum hugsanlegum þægindum:
Hitaveita, rafmagn, kalt vatn, heitur pottur í verönd.
Bústaðurinn stendur á besta stað á Suðurlandi í kjarrivöxnu landi.
Fjarlægð frá Reykjavík ca 120 km.
Upplýsingar gefur:
Heimir Guðmundsson, byggingameistari,
Þorlákshöfn, sími 892 3742.