Morgunblaðið - 21.02.1999, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 4
FÓLK í FRÉTTUM
Danskur djass á Múlanum í kvöld
Þessi norræni
lagræni djassst
Danska djasstríóið Kind of Jazz hefur leik-
ið víða þessa helgi í boði íslenskra djass-
unnenda. Hildur Loftsdóttir hitti Qle, Nils
og Mikkel sem eru alltaf á ferð og flugi.
DJASSTRÍÓIÐ danska Kind of Jazz
var hresst á Reykjavíkurflugvelli og
hlakkaði til að fljúga í fallega veðrinu
til Akureyrar. Mikkel Find trommari
er í fyrsta sinn á Islandi en Ole
Rassmussen, „Óli bassi“, og Nils Raae
píanóleikari léku á Akureyri og víðar
1987 undir nafninu Frit lejde og hafa
leiltið saman í fimmtán ár. Það var
1990 sem Kind of Jazz varð til þegar
þeir fengu Mikkel til liðs við sig.
Tónleikar þeirra í Reylgavík hefj-
ast kl. 21 í kvöld á Múlanum, Sóloni
Islandusi.
Samhljómurinn höfuðatriði
- Hvernig virkaði djassdúett sem
samanstóð af bassa og píanói?
Ole: Heldurðu að það hafi verið leið-
inlegt? Segðu það bara!
Nils: Maður spilar öðruvísi þegar
það eru engar trommur. Spila-
mennskan er fjölbreyttari og takt-
fastari.
Ole: I dúett spilar maður á mjög sér-
stakan máta og við kunnum vel hvor
inn á annan. Sem tríói hefur okkur
aftur tekist að skapa sérstæðan
hljóm. Við fengum nýlega umsögn í
Berlingske Tidende um tónleika í
Copenhagen Jazzhouse þar sem lögð
var sérstök áhersla á að samleikur
okkar væri býsna þéttur og góður.
Okkur fannst mun skemmtilegra að
lesa það en ef hver um sig hefði verið
sagður einstakur hljóðfæraleikari.
- En vilduð þið breyta um stíl þeg-
ar þið tókuð Mikkel inn?
Ole: Aðallega laða að fallegar konur!
Nils: Já, við vildum breyta stflnum
og líka fá meiri kraft í hljóminn. í
tríói skapast auðvitað meiri mögu-
leikar í tónlistinni. Mikkel hlustaði
grannt í byrjun og það tók hann ekki
langan tíma að aðlagast sveitinni.
- Mikkel, hvernig fannst þér að
byrja að spila með mönnum sem
þekktu hvor annan út og inn?
Mikkel: Mér fannst gaman að byrja í
nýrri hljómsveit, en ákvað að sjá til
hvað yrði. Eg er í annairi hljómsveit
sem hefur eins ólíkan stfl og hugsast
getur og var ekki viss um að þetta
yrði svona langlíf og skemmtileg
samvinna. Ég hafði heyrt í dúettinum
og líkaði þessi noiTæni lýríski djass-
stfll. Núna á tríóið í mér hvert bein
og mér þykir mjög vænt um það.
Sérstaklega þennan sérstæða hljóm.
Rauði þráðurinn er laglínan
- Hvernig skilgreinið þið ykkar
hljóm?
Ole: Við höfum þennan skandinav-
íska djasshljóm, hvemig sem hann
annars er. I flestum okkar lögum
einbeitum við okkur að laglínunni.
Hún er sterkur rauður þráður í
gegnum tónsmíðarnar hans Nils.
- Og íspunanum líka?
Ole: Já, þar gætir líka mjög sterkra
áhrifa frá laglínunni. Sem tríó með
LeIkrIt FYrIb A«-La
Ekki missa af þessu
skemmtilega íslenska
fjöiskylduleikriti
Sunnud. 21.02 kl. 14.00 Uppselt
Sunnud. 28.02 kl. 14.00 Örfá sæti laus
Sunnud. 28.02 kl. 16.30 Nokkur sætl laus
Sunnud. 07.03 kl. 14.00
Sunnud. 07.03 kl. 16.30
Ósóttar pantanir seldar
tveimur dögum fyrir sýningu.
Miðapantanir í síma 551 1475
alla daga frá kl. 10-19.
Miðasalan opnar kl. 13.00.
MIKKEL, Nils og Ole eru Kind of Jazz; glaðir Danir á ferð um Frón.
sérstæðan hljóm verður nýtt lag
mjög snemma „okkai-“ lag. Við
Mikkel hugsum stundum með okkur
þegar Nils lætur okkur fá nýtt lag að
það sé nú ekki jafngott og þessi
gömlu! Svo breytist lagið á einni æf-
ingu úr nýju lagi eftir Nils í lag sem
smellpassar inn í dagskrána hjá okk-
ur. Ég veit ekki hvernig það gerist,
það bara gerist.
Nils: Það er líka mjög auðvelt að
semja lög fyrir þetta tríó, því Ole og
Mikkel eru fljótir að heyra hvaða
möguleika lagið hefur og gefa því
sérstakan hljóm. Ég þarf því að
skrifa mjög takmarkaðar leiðbein-
ingar á nótnablöðin.
Ole: En það kemur bara af því að
vinna saman í mörg ár og að spila
endalaust saman. Svo hljómar maður
líka betur ef manni líðui- vel. Ég ef-
ast aldrei um að þeir styðja mig þeg-
ar ég er ekki í góðum gír, og það er
því mjög mikilvægt að geta stutt
hver annan.
Nils: Við spjöllum saman eftir tón-
leika um hvemig lögin hljómuðu og
hvernig þau geta orðið betri. Það er
því spennandi hvernig lögin þróast á
hljómleikaferðalögum.
Islensk þjóðlög
- „Kind of Jazz“ er frekar óráðið
nafn. Eruð þið að spila djass eða ekki?
Ole: Við emm ekki hreinir djassarar
eins og t.d. Oscar Peterson Trio. En
spuninn, takturinn og reglumar eru
úr djasshefðinni, svo nafnið er viðeig-
andi og hentugt. Við spilum lögin hans
Nils, djassstandarda og svo norræn
þjóðlög. I kvöld leikum við nokkur ís-
lensk þjóðlög sem Nils hefur útsett.
- Hvaða lög eru það?
Nils: Það em einhver lög með löng-
um og flóknum titlum! Þau heita
Sofðu unga ástin mín og Móðir mín í
kví kví. Svo man ég ekki hvað hin
heita. Jú, Vísur Vatnsenda-Rósu.
Mikkel: Það verður gaman að sjá
hvað ykkur Islendingum finnst um
lögin í okkar meðfömm!
- Mikkel, ég heyrði að þú syngir
líka. Ætlarðu að syngja fyrir okkur á
íslensku?
Mikkel: Ég er nú ekki búinn að æfa
mig að syngja á íslensku, því miður,
eins og mér finnst annars gaman að
hlusta á heimstónlist. Ég syng alla
vegana tvö lög á tónleikunum, en
ekki á neinu tungumáli, þetta era
frekai' bara hljóð.
Ole: Já, ég man þú varst svolítið
feiminn að syngja fyrst, og þá sagði
Nils þér að syngja almennilega út
því það hljómaði svo vel.
Nils: Mér finnst það gefa lögunum
miklu meira líf.
- Eruð þið allir yfírmáta glaðir yf-
irþví að spila á íslandi?
Nils: Já, ég er mikið búinn að hlakka
til að kojna.
Mikkehí Danmörku er erfitt að fá
vinnu þessa mánuðina, þannig að það
er frábært að komast í tónleikaferð-
lag, og þar að auki til íslands.
- Það verður þá gaman íkvöld?
Ole: Þetta er tónlist til að hlusta á og
ef fólk gerir það þá er það yfirleitt
ánægt. Ég vona að það verði gaman
hjá sem flestum í kvöld.
^8 !TZog HTm Em
Karin Herzog TE
SILHOUETTE 1 ^3
-
,oaiOCM*Mð'C*r^5 Sg
■ •0" w»", ., >‘sr
I
■ ffHMi trsSMZXe-.Vz.-. j Hre [þtffi I
J
mro©(§ smá
MIKLA?
Skiptir ekki máli
SILHOUETTE
er alltaf lausnin!
Það verkar kröftugar og dýpra.
Þetta frdbícra krem nota kcþpcndurnir um
íingfrú Rcykjavík þcssa Aacyaua
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynningar í vikunni:
Mánudagur kl. 14—18:
Hraunbergs Apótek, Breiðholti.
Hagkaup, Kringlunni.
Þriðjudagur og miðvikudagur kl.
Hagkaup, Kringlunni.
Fimmtudagur kl. 14—18:
Apótekið Suðurströnd.
Hagkaup, Skeifunni.
Föstudagur kl. 14—18:
Grafarvogs Apótek, Hverafold.
Hagkaup, Skeifunni.
Laugardagur kl. 14—18:
Hagkaup, Smáratorgi.
Dreifing: Solvin, s. 899 2947.
14-18:
Veður og færð á Netinu
vg> mbl.is
-ALLTAF e/TTHVAO NYTT
• •
I KVOLD
sunnudag
DIVINGRuiHorta
FLAT SPACE MOVING
Rui Horta
KÆRA LÖLÓ
Hlíf Svavarsdóttir
Næstu sýningar
27. febrúar og 7. mqrs
• f
Midasala: 568 8000
————————— ..............—
„Framúrskarandi
DV um Flat Space Moving
((
„Spennandi áhorf frá upphafi til enda.“
Moigunblaðið um Dlving
W 0 i Ý. y r | c I k f: tiftlð
Landsbanki íslands
Islenski dansflokkurinn