Morgunblaðið - 21.02.1999, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ
50 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
fFELAGAR!
Frestur til að sækja um
NÁMUSTYRKI
I rennur út 14. MARS.
Viltu skipta?
Tökum qömlu vélina upp í nýja
Nikon, Canon, Mínolta, Olympus,
Landsins mesta úrval af
myndavélum og fylgihlutum?
í
FOÍO
VA
Skipholti 50b
sími 553-9200, fax 562-3935
Konica, Rícoh, Samsung, Sigma
Myndavélaviðgeröir
í heimsendingu
REYKJAVIK • KOPAVOGUR SIMI 55 44444
Fákafen I I • Langirimi 21 • Smiðjuveg 6
Rvk.VESTURBÆR SÍMI 562 9292 Hringbraut I 19
HAFNARFJÖRÐUR SÍMI 565 2525 • Hjallahraun
FÓLK í FRÉTTUM
Margrét Eir er í stóru hlutverki í Rent
Mjög spennt að koma heim
Söngkonan Margrét
Eir verður í stóru
hlutverki í Rent sem
sett verður upp á
næstunni. Hún er bú-
sett í New York og
segir Sunnu Osk
Logaddttur hvað á
daga hennar hefur
drifið í stuttu spjalli.
GÆSAHÚÐ fór um
marga sem heyrðu
söngkonuna Margréti
Eiri Hjartardóttur flytja upp-
hafslag söngleiksins Hársins
sem sýnt var í Loftkastalan-
um fyrir nokkrum árum. Var
henni strax skipað í röð okk-
ar bestu söngkvenna og hún
lofuð í bak og fyrir. Síðan þá
hefur lítið heyrst frá Margréti Eiri
en það þýðir ekki að hún hafi setið
auðum höndum.
Um þessar mundir býr Margi'ét
Eir í New York. Hún útskrifaðist sl.
vor, eftir þriggja og hálfs árs nám,
með BFA-gráðu í leikhústónlist og
leiklist frá Emerson College í
Boston. Meðan á náminu stóð tók
hún þátt í uppfærslum skólans og
var mjög vel látið af frammistöðu
hennar þar í blöðum.
Eftir að hún lauk námi flutti hún
til New York til að freista gæfunn-
ar. En hvað hefur hún fengist við
síðan hún kom til New York?
„Eg hef ekki ennþá fengið neitt
að gera sem snýr að leiklist, ég hef
ekki verið hér nógu lengi til þess. í
raun hefur mestur tími minn farið í
að aðlagast umhverfinu, New York
er mjög stór borg og hér er margt.
að gerast.“
Eins og er vinnur Margrét á veit-
ingastað en hún hefur einnig farið í
nokkur áheyrnarpróf.
Er mikil samkeppni?
„Já, hún er rosalega mikil. Það er
líka mjög erfitt að fá umboðsmann,
sérstaklega vegna þess að ég er
óþekkt og með litla reynslu."
En stórt verkefni bíður nú Mar-
grétar, reyndar ekki í New York
heldur hér heima. Hún mun leika
Joanne í bandaríska söngleiknum
„Rent“ sem verður sýndur í Loft-
kastalanum í samstarfi við Þjóðleik-
húsið.
Hvað kemur til að þú tekur þátt í
þessari sýningu?
„í október á síðasta ári var
hringt í mig og ég beðin að koma
heim í prufu fyrir „Rent“. Eg fékk
hlutverk og ég er mjög spennt að
koma heim og taka þátt í sýning-
unni.“
Hefur þú séð sýninguna?
„Já, ég sá hana í Boston og hún
er alveg stórskemmtileg. Tónlistin
er frekar rokkuð og sýningin sjálf
er mjög töff, og hún hefur hlotið
frábærar viðtökur alls staðar.“
Aðspurð segist Margrét ekki vita
hvað taki við hjá sér eftir að þessu
verkefni er lokið. Það er alls óráðið
hvort hún kemur heim og auðgar
flóru ungra íslenskra leikara eða
hvort hún heldur áfram að reyna
fyrir sér í stórborginni New York.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
EIRÍKUR F. Greipsson og Guðríður Kristjánsdótt-
ir taka á móti gestum með hákarli og brennivíni.
LÝÐUR Árnason, læknir á Flateyriog vinir hans
ákváðu að klæða sig öðruvísi en aðrir gestir.
■■II.I.HJIUHI'UH.L.Iir
Fótafimir
Flateyringar
HINN árlegi Stútungur Flat-
eyringa var haldinn í íþrótta-
húsi Flateyrar. Gúð aðsókn var
á Stútung, á annað hundrað,
bæði heimamenn og víðar að.
Hefðbundin skemmtiatriði
voru flutt og raknir atburðir
liðins árs í óbundnu og bundnu
máli.
Einnig var valin næsta Stút-
ungsnefnd fyrir árið 2000 og er
óhætt að segja að val hennar
var ekki með hefðbundnum
hætti, þetta skiptið voru menn
látnir þreyja þrautir sem fólust
í ýmsum samkvæmisleikjum.
Þeir sem duttu úr leik voru
valdir varamenn. Þegar veita
átti verðlaunin, sem var vegleg
koniaksflaska, kom í ljós að
innihald hennar var borði sem á
stóð Stútungsnefnd. Þótti
"íevWrnklfílHl
STÚTUNGSKNÖRRINN var hlaðinn af gómsætum þorramat.
mönnum þetta skemmt-
leg nýlunda.
Annað óvænt
skemmtiatriði varð
einnig til að vekja hlát-
urtaugar heimamanna,
þareð aðkeypt atriði
brást á síðustu stundu.
Að Ioknum skemmtiat-
riðum og góðuin mat.,
var rými skapað fyrir
danshæfni og fótafimi
heimamanna langt fram
á nótt.
NÆSTA Stútungsnefnd lát.in þreyja par-
ísartvist. Þau héldu að þetta væri sam-
kvæmisleikur.