Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 49. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Kristinn Sleðaferð í Seljahverfí ÞEGAR snjóar fínnst ungum jafnt sem öldnum gaman að renna hverfið má jafnan fínna fólk sem klætt hefur sig í hlýrri gall- sér á skíðum eða skella sér í sleðaferð. I brekkunni við Selja- ann og þar voru til að mynda þessi feðgin. Líbýustjórn sett tímamörk vegna Lockerbie-máls Fær 30 daga til að framselja mennina Sameinuðu þjóðunum. Reuters. Eins og kóngur í ríki sínu FULLTRÚI á lögþinginu á Filippseyjum, sem situr í fangelsi fyrir að hafa haft kyn- mök við stúlku undir lögaldri, á fullan rétt á því að leika tennis og reka fyrir- tæki úr fangaklefa sínum, að því er lög- maður hans heldur fram. Yfirvöld gera sig nú líkleg til að afnema þau sérréttindi sem þingmaðurinn Romeos Jalosjos hefur notið en lögmaðurinn heldur uppi vörn- um og segir ekkert, óeðlilegt við aðbúnað þingmannsins. Eftir að kvartanir tóku að berast dóms- málayfirvöldum á Filippseyjum ákváðu þau að rannsaka hvort nokkurt sannleiks- korn væri í staðhæfingum þess efnis að Rómeó Jalosjos hefði verið leyft að setja á stofn tennisklúbb, stýra hamborgarastað úr fangaklefa sinum, byggja sér lítið íbúðarhús innan fangelsisrimlanna og dvelja í risastórum fangaklefa með loft- kælingu og baðkari. Gagnrýna dóms- málayfírvöld jafnframt að fangelsisyfir- völd hafi leyft Jalosjos að leggja undir sig svæði sem eðlilega myndi rúma 796 fanga. Þykir mörgum óeðlilegt að Ja- losjos skuli fá að lifa eins og kóngur í ríki sínu innan fangelsismúranna. Rene Saguisag, lögmaður Jalosjos, neitar því reyndar að klefi skjólstæðings síns sé með loftkælingu og baðkari og segir að allir fanganna hafi jafnan að- gang að íbúðarhúsinu. Tennisvöllinn seg- ir hann hafa þegar verið til staðar þegar Jalosjos var settur á bak við lás og slá og að hamborgarastaðurinn, sem Jalosjos rekur í fangelsinu, sé hluti af „endurhæf- ingarmeðferð" sem fangayfirvöld reki fyrir lögbrjóta. Fljúgandi kýr og undarleg slys HELDUR óvenjulegt bílslys kostaði banda- rískan ökumann lífið í vikunni en ökumað- urinn lést þegar fljúgandi kýr Ienti á bíl- rúðu hans. Lögreglan í Kaliforníu greindi frá því að eins og hálfs árs gömul kvíga, sem vó 340 kg, hefði ráfað upp á þjóðveg í mikl- um stormi siðastliðið miðvikudagskvöld 80 km norðaustur af San Fransisco. Öku- maður Mercedes-Benz bifreiðar, sem var á leið norður, ók á kúna sem olli því að hún tókst á loft og endasentist í veg fyrir Toyota pallbO sem var á leið suður. Kvíg- an lenti beint á framrúðu ökutækisins og banaði bflstjóra þess með fallþunga sínum en skall síðan strax í kjölfarið í veg fyrir aðra bifreið sem var á leið suður. „Eg held að slysin gerist ekki öllu stórfurðulegri," sagði Chris Linehan, full- trúi lögreglunnar í Kaliforníu. „Dýr verða vissulega fyrir bflum en það þekk- ist nú varla að þau fljúgi langar leiðir og lendi á annarri bifreið." Gat Linehan sér þess til að kýrin hefði drepist samstundis við fyrsta áreksturinn. BRETAR og Bandaríkjamenn gáfu Líbýu- stjórn á fóstudag þrjátíu daga frest til að framselja tvo menn sem grunaðir eru um að hafa staðið á bak við sprengingu í flugvél Pan Am-flugfélagsins árið 1988 yfir Lockerbie í Skotlandi, en 270 manns fórust í tilræðinu, þar af ellefu á jörðu niðri. Ekki kom hins veg- ar fram hvað myndi gerast ef stjórnvöld í Trípólí neituðu að verða við kröfum vestur- veldanna. Fulltrúi ættingja þeirra sem létust í Lockerbie tóku tímamörkunum illa og sögðu verið að skaða tilraunir til að leysa málið farsællega. Fréttir af tímamörkunum bárust i sama mund og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sam- þykkti að endumýja viðskiptabann gegn Líbýu sem verið hefur við lýði um árabil vegna þess að Líbýustjórn hefur neitað að framselja þá Lamen Khalifa Fhimah og Abdel Basset Ali al- Megrahi, sem grunaðir eru um ódæðisverkið. Abuzed Omar Dorda, sendifulltrúi Líbýu hjá SÞ, benti hins vegar á að tímamörkin kæmu ekki frá öryggisráðinu og væru því ekki fullgild. Sagði hann að krafa Líbýu væri enn sú að viðskiptabanni SÞ yrði aflétt að íúllu gegn framsali mannanna, en ekki aðeins lyft í bráða- birgðaskyni. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, sagði 30 daga frest hæfilegan en hann segir að Líbýustjóm hafi fengið svar við öllum spurningum sínum varðandi framsal mannanna og að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu leng- ur að mennirnir yrðu framseldir. Líbýa hafði um árabil neitað að framselja mennina nema gegn því að réttað yrði yfir þeim í hlutlausu landi en ekki í Bretlandi eða Bandaríkjunum, eins og þarlend stjórnvöld gerðu kröfu um. Á síðasta ári ákváðu Banda- ríkjamenn og Bretar hins vegar að samþykkja að réttað yrði yfir Líbýumönnunum í Hollandi og komst þá skriður á málið. Segir vopna- hlé að fara út um þúfur ÓSTÖÐUGT vopnahlé milli stríðandi fylkinga í Kosovo er við það að fara út um þúfur, að sögn yfirmanns eftirlitssveita Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í héraðinu. Haft er eftir William Walk- er, yfirmanni ÖSE, á heimasíðu BBC að bæði Serbar og skæruliðar Frelsishers Kosovo (UCK) hafi gerst sekh- um að rjúfa þá samninga sem þeir gerðu í viðræðunum í Ram- bouillet í Frakklandi sem lauk á þriðjudag. „Deilendur samþykktu báðir að virða vopnahlé í Kosovo. Þetta vopnahlé hefur hins vegar ít- rekað verið rofið og eins og mál standa nú er varla hægt að segja að vopnahlé sé til staðar," sagði Walker í gær. Hafa menn nú miklar áhyggjur af vaxandi spennu í héraðinu en bardagai- munu hafa átt sér stað í nágrenni höfuðborgarinnar Pristina í gær. William Walker að upplýsingar séu tiltækar Togast á um HVALINN Verslun með villandi nafni 30 FSugkappar i kappaksfri Kjórir fílagar fr4 Ulanbflugi fftru 1 bjTjun ársiru f nnnkalUA* evintýra- ferð, þpgar þeir tóku aj aér að fljúga með akipuleggjendur og fréttamenn I kappakatrinum fnega Ktn kenndur hefur verlð vid Parfs-Dakar, þótt upp- haflð núorðid ad I Granada i Spáni. Flugkappamir héldu dagbók yfir ferðir •Inar acm SoRIa Sigurgeiraddttir skrSði þessa frSaðgn eflir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.