Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 41 MINNINGAR heiður breyst mikið. Hún þurfti að spyrja í þaula um hagi og heilsu og ekki síður að ræða pólitíkina í þaula og lýsa skoðunum sínum og á henni og stjómmálamönnunum. Að leiðarlokum er margt að þakka og margs að minnast. Við vottum Palla og Þórunni, Baldvini og Ingu, Helgu Mæju og Áma Páli, Hrafni og öllum bamabömunum og bamabarnabörnunum innilega sam- úð okkai’. Þeirra missir er mestur. Guð veri með ykkur. Arnbjörg og Garðar Rúnar. Elsku amma okkar. Nú ert þú farin forfeðranna til og situr nú sjálfsagt og ræðir fall kommúnism- ans við Lenín og Marx. Einar fyrstu minningar mínar af þér elsku amma mín og systur minnar sjálfsagt líka, era um manngæskuna sem alltaf var í öndvegi hjá þér og var ég ekki búinn að taka mörg skrefin á lífsins braut þegar við marseruðum um bæinn með kröfuspjöldin syngjandi og hrópandi: „Island úr Nató, her- inn burt.“ Á þessum tíma var þetta háleitt markmið með mannúð í huga og jöfnun allra þegna landsins sem og heimsins og setningar eins og „Oreigar allra landa sameinist" vora fólki eins og þér sem morgun- bæn. í mínum huga varst þú alltaf mikil og góð manneskja og man ég enn hvað ég hlakkaði til þegar þú komst til mömmu í lagningu fyrir helgina því það var nánast óbrigðult að ég fékk að fara með og vera hjá þér yfir helgina. Var hver þessara helga sem h'til jól fyrir mér enda séð til þess að mér leiddist aldrei og sátum við saman daginn út og inn og spiluðum og átum gott og fífluð- umst hvort í öðra og svindluðum hvort sem betur gat enda hefur enginn annar viljað spila við okkur sökum þessa. En allt vill lagið hafa og var þetta okkar mesta ánægja og að reyna að standa hitt að einhverju stórsvindlinu. Það breyttist lítið samskiptamunstrið þó að við elt- umst bæði og var alltaf jafn gott að koma í Möðravallastrætið enda sem manns annað heimili og alltaf séð til þess að öllum þörfum okkar systk- inanna yrði fyrir séð. Á áranum sem við stunduðum nám í Gagn- fræðaskólanum gátum við lengt há- degið mikið með að spara okkur sporin upp á Brekku og vera hjá þér og matast og tala um málefni líðandi stundar eða grípa í spil svo eitthvað sé nefnt. Þú varst okkur alltaf mjög kær og þó að þessi síð- ustu ár hafi heimsóknum okkar til þín fækkað þá varstu okkur alltaf ofarlega í huga og fengum við nú oft samviskubit þegar of langt leið á milli heimsókna í Möðró. Þú varst bara alltaf svo hress og kát þrátt fyrir ýmis líkamleg mein að við bjuggumst ekki við að þú færir fyrr en einhvern tímann á nýrri öld. Var fréttin að kveldi 19. febrúar því nokkurt áfall fyrir okkur en þar sem við vissum að þú heldur hlakk- aðir til dagsins stóra, frekar en að kvíða hans gleðjumst við fyrir þína hönd og þökkum þér fyrir allt sem þú hefur fyrir okkur gert og kveðj- um þig, elsku amma okkar, með söknuði og virktum. Megir þú hvfla í friði. Skúli Þór Pálsson, Ragnheiður Pálsdóttir. • Fleiri minningargreinar um Ragnheiði Pálsdóttur bíða birtingar og munu biriast, í blaðinu næstu daga. Kransar Rauðihvammur Kistuskreytingar v/Suðurlattdsveg, lIORvik. Brtíðatvendir Skreytingar við á7/ t /i * L>»*f Alvöru skreytinga- verkstaði ANDRES GUNNLAUGUR ÓLAFSSON + Andrés _ Gunn- laugur Ólafsson fæddist á Laugabóli í Mosfellsdal 27. ágúst 1938. Ilann varð bráðkvaddur á heim- ili sínu 17. febrúar síðastliðinn og fór útför lians fram frá Fossvogskirkju 26. febrúar. Skyndilega og ótímabært hefui- dauð- inn kvatt dyra, maður í blóma lífsins er hrifinn burt. Svo mörgu er ólokið, ótal hugmyndir að gerjast, byggingar, lagfæringar heima fyrir, breytingar á starfsemi Blómamið- stöðvarinnar, en svona era örlögin. Margt flaug í gegnum huga minn er Valgerður hringdi hinn 17. febrúar síðastliðinn og sagði að hann Andrés, eða Addi eins og hann var kallaður, væri dáinn, hefði orðið bráðkvaddur heima á Laugabóli þá um kvöldið. Adda kynntist ég fyrst þegar ég kom í Brúarlandsskóla veturinn 1949-50. Þá var hann einn af stóra strákunum en ég fjóram árum yngri og jafnaldri Erlings bróður Adda. Það var alltaf gaman að koma að Laugabóli því Olafur faðir þeirra átti alltaf svo flotta bfla. Eins vai- það síðan með þá Laugabólsbræður er þeir höfðu aldur til og höfðu þeir gaman af bílum og bflaviðgerðum. Ekki lágu leiðir okkar saman fyrr en mörgum árum seinna er ég hafði stofnað fyrirtæki mitt hér í sveitinni og var Áddi einn af mínum fyrstu viðskiptavinum og leiddi það af sér traust vináttubönd sem stóðu til hinstu stundar. Það var 1973 að nokkrir áhuga- menn um handknattleik, Bernhard Linn, Davíð Sigurðsson, Níels Hauksson og undirritaður, stofnuðu deild innan UMFA. Vantaði okkur einn í hópinn og leituðum við þá til Adda, báðum hann að taka að sér það erfiða verkefni að vera gjaldkeri hjá fyr- irtæki sem hafði engan fastan tekjustofn en marga gjaldaliði og tók Addi það að sér. Addi var taustur, maður fylginn sér og yfirveg- aðm-. Var gott að hafa hann sem bakhjarl. Unnum við síðan saman að uppbyggingu íþróttastarfs innan UMFA í fimm til sex ár og væri hægt að skrifa heila bók um þann kafla í lífi okkar. Nokkur atriði era mér mjög minnis- stæð, t.d. 17. júní-hátíðahöld með öllu sem þeim fylgir, svo sem útveg- un skemmtiatriða, dansleikjahaldi og sælgætis- og pylsusölu. Hlógum við oft að því hvað Addi var lipur pylsusali. En 17. júní gaf okkur tekjur til rekstrar UMFA. Einnig tókum við okkur til og endurbyggð- um og innréttuðum aðstöðu fyrir æskulýðsstarf í kjallara Brúarlands ásamt Hestamannafélaginu Herði og unglingastarfi Lágafellskirkju. Nutu þar sín kraftar, útsjónarsemi og smekkvísi Adda. Addi lagði áherslu á að UMFA fengi Klöru- stofu, en þar höfðu flestir okkar lært að lesa og draga til stafs hjá Klöra Klængsdóttur. Með okkur unnu þama meðal annarra þeir sr. Bh-gir Ásgeirsson og Hreinn Ólafs- son, bróðh- Adda. Eftir samstarf okkar innan UMFA hélt vinátta okkar áfram og voru þá konurnar okkar meira með. Komu þær á laggirnar matarklúbbi þar sem þær Vala, Hulda og Krist- jana matreiddu hinar girnilegustu krásir til að freista okkai- karlanna. Hefur þetta verið góður vinahópur, ÚTFARARSTOFA OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AUAIXraÆTI 4B • 101 REYKJAVÍK LIKKISTUVINNUSTOFA F.YVJNDAR ÁRNASONAR . . t, ú 1899 Y . Blómostofa Fríðjtnns Suöurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar íyrir öll tilefni. Gjafavörur. Crfisdrykkjur A VcttÍA9ohú/i« GRiH-inn Sími 555 4477 ^fakarsto^ /SLAMD& í Útfararstofa íslands sér um: Útfararstjóri tekur að sér umsjón ótfarar í samráði viö prest og aöstandendur. - Flytja hinn látna af dánarstað i likhús. - Aðstoða víð val á kistu og likklæðum. - Undirbúa lik hins látna í kistu og snyrta ef með þarf. Útfararstofa íslands útvegar: - Prest. ! - Dánarvottorð. i - Stað og stund fyrir kistulagningu og ótför. J - Legstað í kirkjugarði. i - Organista, sönghópa, einsöngvara, ’ einleikara og/eða annað listafólk. - Kistuskreytingu og fána. - Blóm og kransa. - Sálmaskrá og aðstoðar við val a sálmum. - Líkbrennsluheimild. . - Duftker ef líkbrennsla á sér stað. - Sal fyrir erfidrykkju. - Kross og skilti á leiði. ' - Legstein. - Flutning á kistu út á land eða utan af landi. - Flutning á kistu til landsins og frá landinu. útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa islands - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík. Sími 581 3300 - allan sólarhrínginn. en nú er traustur vinur fallinn frá. Við Kristjana fóram með Adda og Völu margar ferðir um landið, í Þórsmörk, yfir hálendi íslands, norður á Strandir og um Vestfirði. Alltaf var jafn gott að ferðast með þeim, Addi var gætinn og þaulvanur ferðamaður og naut hann þar reynslu sinnar frá því að hann starf- aði með björgunarsveitinni Kyndli um árabil. Ein er þó sú ferð sem aldrei gleymist en það er ferð okkar á síð- astliðnu sumri til Þýskalands, af- mælisferð Adda, en hann varð 60 ára í ferðinni. Við ókum um hin gróðursælu og fallegu héruð við Mósel og Rín og fannst okkur hjón- um gaman að sjá hrifningu þeirra Adda og Völu yfir þeim miklu rækt- unarmöguleikum sem þarna eru. Þau þurftu að skoða, snerta og njóta þeirra ávaxta sem þarna uxu. Við Kristjana skynjuðum þetta á allt annan hátt vegna þátttöku þeirra. Þótt hann hafi verið ánægð- ur með ferðina var hann samt feg- inn að vera kominn heim tíu dögum seinna, því heima fannst Adda best. Fyrir hönd okkar félaga er stofn- uðum handknattleiksdeild UMFA vil ég þakka þér, vinur, fyrir sam- starfið. Á þessum tímamótum viljum við Kristjana þakka fyrir vináttu þeirra hjóna og vottum Völu og allri fjöl- skyldunni innilegustu samúð okkar. Þeirra huggun er minningin um góðan eiginmann, föður og afa. Blessuð sé minning Andrésar Ólafssonar. Ingólfur Árnason. Með sorg í hjarta og söknuði kveð ég kæran vin, Andrés G. Ólafsson. Óhætt er að segja að tilveran sé undarlegt ferðalag þar sem við fá- um í engu ráðið um upphaf eða endalok. Kynni mín af Andrési hófust fyrir tæpum fimmtán áram þegar ég hóf störf hjá Blómamiðstöðinni, ’sölu- samtökum blómaframleiðenda. Þar var Andrés stjómarmaður, en í stjóm Blómamiðstöðvarinnar var hann meira og minna í 24 ár, auk þess að reka ásamt fjölskyldu sinni Garðyrkjustöðina Laugaból í Mos- fellsdal. Það var ekld fyrir tilviljun að Andrés var af félögum sínum val- inn til forystu í Blómamiðstöðinni, heldur vegna þess að þar fór traust- m’ maður svo af bar. Traustur er eitt það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um Andrés Ólafsson. Við höfum um langt skeið verið nánir samstarfsmenn, hann lengst af sem stjórnarformaður og ég sem næstráðandi hans. Aldrei bar skugga á það samstarf þótt oft væri unnið að erfiðum málum. Alltaf var hægt að treysta því að Andrés stæði við orð sín og hvikaði hvergi. Andrés bar hag Blómamiðstöðvar- innar mjög fyrir brjósti og var boð- inn og búinn að leggja hönd á plóg- inn í stóra og smáu. Eg tel að ekki sé á neinn hallað þegar ég fullyrði að enginn einn maður hefur unnið meira og öflugara starf fyrir fyiir- tækið. Mörg fleiri orð gæti ég haft um störf og mannkosti Andrésar Ólafssonar, en læt hér staðar numið því ég veit að það hefði verið honum mjög á móti skapi. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast og starfa með Andrési og á ég margar góðar minningar um samverastundir okk- ar sem aldrei munu gleymast. Erfitt er að sætta sig við að fá ekki aftur í . þessu lífi að heyra hans kumpán- legu kveðju eða að ræða málin yfir kafflbolla, en leiðir munu liggja saman síðar. Óvænt og ótímabært fráfall hans kemur illa við okkur samstarfsfólk og vini, en þó er sorg og missir fjölskyldu hans mestur. Konu hans, börnum og fjölskyldu allri bið ég guðs blessunar á erfiðri stundu. Sigurður Moritzson. • Fleiri minningargreinar um Andrés Gúnnlaug Ólafsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. + Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkaerrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, VIKTORIU EGGERTSDÓTTUR, Langholtsvegi 142. Guðlaug E. Konráðsdóttir, Sigríður Unnur Konráðsdóttir, Ægir Vigfússon, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður og afa, EINARS FRIÐFINNSSONAR bryta, Borgartanga 1, Mosfellsbæ. Friðfinnur Einarsson, Þórunn Ingibjörg Einarsdóttir og fjölskyldur. + Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU SIGURGEIRSDÓTTUR, Efstasundi 29. Gunnar Klængur Gunnarsson, Móeiður Gunnlaugsdóttir, Rannveig Gylfadóttir, Jón Gunnar Gylfason, Margrét Gylfadóttir, Steingrímur Leifsson, Runólfur, Katla, Klængur, Urður, Theódór, Hrafn, lllugi og Úlfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.