Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN Landspítalans) og 1996 (Heilsuefl- ing) má sjá að fólk neytir áfengis heldur oftar en áður en algengast er að neyta áfengis nokkrum sinn- um í mánuði. Dagleg áfengisneysla er nánast óþekkt. Afengisneysla í ölvunarskyni er enn eitt af ein- kennum íslenskra di-ykkjusiða. Rannsóknir á áfengis- og vímu- efnaneyslu unglinga síðustu ár benda til þess að ungt fólk neyti 1 áfengis oftar en áður. Unglinga- | drykkja hefur því aukist og unga fólkið drekkur bjór á svipaðan hátt og fullorðna fólkið drakk sterkt áfengi í ölvunarskyni á sínum ung- dómsárum. Flest bendir til þess að aukin áfengisneysla ungs fólks sé alvarlegasta afleiðing þess að bjór- inn var leyfður. Eins og minnst var á hér að i framan eru líkur á miklum breyt- ingum á áfengismálum á næstu ár- I um. Þessar breytingar munu að- * eins að litlu leyti byggjast á ís- lenskri löggjöf. Þátttaka Islands í evrópska efnahagssvæðinu og er- lend áhrif munu hafa fullt eins mik- il áhrif á þróunina. Fvi’irkomulag á áfengissölu er ákveðið með reglu- gerðum sem settai' eru í Brussel. Einstakar þjóðir ráða ekki nema að takmörkuðu leyti stefnunni á Iáfengismálum. Dæmi um það eru þær breytingar sem nú þegar hef- ur þurft að gera á ATVR svo einkasalan fái staðist. Ríkisvaldið og bæjarfélög geta þó enn ráðið tilteknum þáttum í áfengisvörnum eins og fjölda áfengisútsalna og vínveitingaleyfa og reglum um áfengiskaupaaldur svo dæmi séu tekin. Afengisauglýs- ingar eru að hluta til utan yfín'áða- svæðis íslenskra aðila. Samkvæmt I íslenskum áfengislögum eru allar 1 auglýsingar á áfengi bannaðar en § samt blasa þær við íslenskum sjón- varpsáhorfendum þegar þeir horfa á erlenda íþróttaviðburði. Svipaða sögu er að segja um verðlag. Evr- ópa er að verða einn markaður og það mun koma fram í verðlagi. Danir lækkuðu verð á áfengi vegna þess að fólk fór til Þýskalands og keypti áfengi. Verð á áfengi í Finn- Ilandi og Svíþjóð mun smám saman lækka til samræmis við verð í öðr- um löndum Evrópusambandsins. Norðmenn munu laga sig að verð- lagi í Svíþjóð og áfengisverð á Is- landi mun án efa taka mið af verði í nágrannalöndunum. A síðasta ári voru gerðar tals- verðar lagabreytingar á sviði áfengismála. Ný áfengislög gengu í gildi, lögum um gjald af áfengi var breytt og sett vora lög um áfengis- Iog vímuvarnaráð. Lög um gjald af áfengi eru merkileg fyrir þær sakir að þar er mörkuð sú stefna að beita mismunandi gjaldtöku á einstaka flokka áfengis og hafa þannig áhrif á neysluna eftir því hvort um er að ræða bjór, létt vín eða sterkt áfengi. Hér á landi hefur ekki verið greint á milli flokka hvað aðgengi varðar. I flestum löndum eru t.d. lægri aldurstakmörk fyrir kaup á bjór og léttu víni en á sterku áfengi. Grundvallarbreyting var gerð á forvömum því að hið nýja áfengis- og vímuvarnaráð er ekki pólitískt ráð eins og áfengisvarna- ráð heldur embættismannaráð. Akvarðanh' ráðsins verða því ekki teknar út frá pólitísku gildismati heldur sem stjómsýsluaðgerðir. I upphafi aldarinnar sameinaðist almenningur í baráttu gegn áfengi. Að vera bindindismaður var tengt ákveðinni sjálfsvitund og táknaði ákveðna lífsskoðun og lífsstíl. Nú á dögum hefur áfengi ekkert samein- ingargildi, nema um misnotkun sé að ræða. Þá tengist hún sjálfsvit- und og er undirstaða félagslegra fjöldahreyfinga. Þannig hafa skilin á milli alkóhólista og annarra orðið skýi'ari. Sala á bjór breytti því ekki að enn er mikill munur á íslenskum og suður-evrópskum drykkjuvenjum. Afengisneysla er því ekki aðeins spurning um framboð heldur er hún einnig tengd menningarlegum þáttum. Einn aðalmunurinn á milli áfengisneyslu á Islandi og í flestum öðmm Evrópulöndum er neysla áfengra drykkja með mat, sem er enn sjaldgæf á íslandi og leiðir til minni heildarneyslu. Þrátt fyrir al- menna tilhneigingu til þess að laga sig að alþjóðlegum venjum og sið- um virðast drykkjusiðir enn fylgja sérstökum menningarlegum skil- yrðum, sem er þáttur sem skiptir máli fyrh' forvarnir og meðferð. Hins vegar em íslendingar ef til vill að líkjast öðmm Evrópuþjóð- um í viðhorfum. I framtíðinni verð- ur ekki hjá því komist að taka tillit til þess að Island er hluti af Evr- ópska efnahagssvæðinu. Mikilvægt verður að fylgjast með þróun áfengisneysluvenja og viðhorfa því að stefnumótun í áfengismálum verður að hafa hljómgmnn meðal almennings. Þegar leyfð var sala á bjór var það mikilvæg áfengispóli- tísk ákvörðun af því að í kjölfarið breyttist heildarsýn á áfengis- vandamálin. Flestir neyta áfengis og hafa af því ánægju en almenn- ingur á rétt á því að reynt sé að draga úr skaðsemi áfengis. Miklu fleiri fjölskyldur eiga í vanda vegna áfengis en ólöglegra vímuefna. Þeir era líka miklu fleiri sem búa við skert lífsgæði vegna áfengisneyslu en neyslu nokkurs annars vímuefn- Höfundur er yfirfélagsfræðingur d geðdeild Laiidspítalans og vinnur við áfengisrannsóknir. , Ævintýraferðin (mars og apríl býður lcelandic SuperJeep Safari upp á spennandi helgarferðir um heillandi vetrarríki hálendisins þar sem m.a. verður gengið á skíðum á sjálfum Langjökli. Ferðast verður á öflugum jeppum að jöklinum. Bjóðum einnig fjölbreyttar dagsferðir fyrir erlenda gesti _ ICELANDIC. SuperJeep . - i?. Sfmi 552 2040 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 35 FRETTIR Skákkeppni stofnana og fyrirtækja 1999 SKÁKKEPPNI stofnana og fyrir- tækja 1999 hefst þriðjudaginn 2. mars nk. kl. 20.00 í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Tefldar verða níu umferðir efth’ Monrad-kerfi með 30 mín. umhugs- unartíma. Hver sveit skal skipuð þremur skákmönnum sem verða að vera starfsmenn viðkomandi fyrir- tækis eða stofnunar. Tefldar verða níu umferðir með 30 mín. umhugs- unartíma. Dagskráin verður sem hér segir: 1.-3. umferð þriðjudaginn 2. mars kl. 20, 4.-6. umferð þriðju- daginn 9. mars kl. 20, 7.-9. umferð þriðjudaginn 16. mars kl. 20. Hrað- skákmót þriðjudaginn 23. mars kl. 20. Hvert fyrirtæki getur sent fleiri en eina sveit til þátttöku og skal þá sterkasta sveitin nefnd A, næststerkasta sveitin B o.s.frv. Rétt til þátttöku eiga einungis starfsmenn fyi-irtækjanna og stofnananna. Þátttökugjald í keppninni er 6.000 kr. fyrir hverja sveit. Sendi fyrirtæki fleiri en eina sveit til keppni er þátttökugjald fyrir hverja umframsveit 4.000 kr. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Skráning fer fram í síma Taflfé- lags Reykjavíkur. Einnig er hægt að skrá sig með netpósti trey@is- holf.is Bókaðu til Benidorm oo tryggðu þér 40. kr. afslátt fyrir fjölskylduna meðan enn er laust www.jeepsafari.co Opið í dag Bókaðu í síma 562 4600 milli kl. 13 og 16 í dag Við tiöfum nú tengið viðbótargistingu á Levante-ströndinni Benidortnferðir Heimsferða hafa fengið ótrúlegar viðtökur og nú þegar er uppselt í 8 brottfarir á þennan vinsæla áfanga- stað. Hjá Heimsferðum getur þú valið um góða gististaði í hjarta Benidorm, spennandi kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða og fyrir fjölskyldumar verður bamaklúbburinn starfræktur í allt sumar. Bókaðu meðan enn er laust og tryggðu þér frábært sumarleyfi á Benidorm í sumar. Uppselt í 8 brottfarir Bókaðu meðan enn er laust Verð kr. 27.155 Flugsæti til Aiicante, ef bókað er fyrir 10. mars Verð kr. 39.855 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, Picasso/Acuarium, 19. maí, 2 vikur með 40.000 kr. afslætti. íslendingahótelið Picasso Barnaklúbbur Heimsferða Eítthvað spennandi fyrir börnin alla daga í bar- naklúbbi Heimsferða Verð kr. 49.990 M.v. 2 í íbúð, Picasso/Acuarium, ef bókað er fyrir 10. mars, 23. júní Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.