Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bankastjóri Landsbankans vill auka hlut bankans á Austurlandi Vilja bæta áhættu- dreifingu útlána Gæsluvarð- haldi hafnað HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur hafnað kröfu ríkislögreglu- stjóra um gæsluvarðhald yfir Níg- eríumanni sem tengist öðrum Níg- eríumanni sem nú er í haldi vegna gruns um ávísanafals. Krafist hafði verið gæsluvarðhalds í viku. Nígeríumaður var í byrjun síð- ustu viku úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 4. mars þar sem erlendar ávísanir sem hann lagði í banka reyndust falsaðar en maðurinn hafði fengið andvirði þeirra greitt. Ekki hefur tekist að ná nema litl- um hluta þeirra rúmu 11 milljóna króna sem manninum voru greidd- ar út. Hann hefur neitað áburði um að hafa falsað ávísanir. Lést eftir bílslys KONAN sem slasaðist í hörð- um árekstri við Norðurá í Akrahreppi 18. febrúar lést sl. fimmtudag. Hún hét María Steingrímsdóttir til heimilis að Asvegi 12, Dalvík. María var 64 ára gömul þegar hún lést. Hún lætur eftir sig eiginmann og fjórar uppkomnar dætur. „VIÐ teljum æskilegt að bæta áhættudreifingu útlána bankans með því að hún endurspegli sem mest skiptingu þjóðarframleiðsl- unnar og í þeim efnum höfum við mikið rými til að auka lánveitingar í ýmsum atvinnugreinun, til dæmis orkufrekum iðnaði,“ segir Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Lands- banka Islands hf., en hann ræddi m.a. þessi framtíðaráform bankans á kynningarfundi á Eskiftrði í fyrra- kvöld. Halldór J. Kristjánsson segir Landsbankann stærsta viðskipta- bankann á Austurlandi með um 70% innlána og 80% útlána og nemi út- lánin um 7 milljörðum króna. Hann sagði bankann hafa áhuga á að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem heimamenn vildu helst ráðast í, það væri skylda bankans. Hann sagði um 35% af útlánum bankans í dag tengjast sjávarútvegi en ekki nema um 1% orkufrekum iðnaði og væri áhugi á að auka þau, svo og útlán í upplýsinga- og þekkingariðnaði. Út- lán í orkufrekum iðnaði ættu að vera 10-12% ef þau ættu að endur- spegla hlutfall útflutningstekna landsmanna í þessari grein og yrðu þá 8 til 10 milljarðar króna í heild. Þau gætu þó aldrei orðið meiri en 2,5 til 3 milljarðar í einstökum verk- efnum. Aukinn hlutur í orku- frekum iðnaði „Landsbankinn hefur þess vegna mikið rými til að auka lánveitingar sínar í orkufrekum iðnaði, upplýs- ingaiðnði, fjölmiðlun og taka með auknum hætti þátt í fjármögnun þessara vaxtarbrodda og um leið ná betri áhættudreifingu í útlánum. Þátttaka okkar í uppbyggingu á orkufrekum iðnaði á Austurlandi myndi því falla mjög vel að þessum áherslum. Við viljum sem stærsti viðskiptabankinn á Austurlandi og með yfirgnæfandi hlut taka mynd- arlega þátt í því með öðrum að koma að fjármögnun nýrrar iðn- greinar hver sem hún verður, til dæmis orkufrekum iðnaði," sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði vöxt bankans í útlánum einkum beinast að þessum nýju sviðum um þessar mundir. Þá kom fram í máli Halldórs á fundinum að efla á þjónustu bank- ans á Austurlandi meðal annars með því að hafa fulltrúa frá Lands- bréfum á Eskifirði og sömuleiðis fulltrúa Landsbankans - Framtaks sem einkum á að sinna aðstoð við uppbyggingu lítilla og meðalstórra fyrii-tækja í fjórðungnum. Kynning- arfundurinn var haldinn í tilefni þess að Kristján Einarsson hefur tekið við af Arna G. Jenssyni sem svæðisstjóri bankans á Austurlandi með aðsetur á Eskifirði. Fundinn sóttu um 220 manns. Skýrsla nefndar utanríkisráðherra um alþjóðavæðingu Stöðugleiki for- senda framfara Morgunblaðið/Jónas Fór fullhlaðin út af veginum JAFNA þarf hagsveiflur, tryggja stöðugleika með því að beita ríkis- fjármálum og peningamálum með markvissum hætti enda er stöðug- leiki hin raunhæfa forsenda fram- fara í nútíma markaðsbúskap í al- þjóðlegu efnahagsumhverfi, er með- al þess sem fram kemur í skýrslu nefndar utanríkisráðherra um það hvernig best verði staðið að því að efla útflutnings- og samkeppnis- greinar landsmanna. í niðurstöðum nefndarinnar segir að ríkisfjármálastefnan verði að miða að því að lækka opinberar skuldir og opinber útgjöld sem hlut- fall af landsframleiðslu. Lagt er til að heildarútgjöld og skuldir hins opinbera verði innan við þriðjungur af landsframleiðslu árið 2010 og að samneyslan verði innan við fimmt- ungur á þeim tíma. „Slíkur árangur myndi án efa efla mjög traust á ís- lensku efnahagslífi, þjóðarbúskap- urinn yrði betur í stakk búinn til að mæta ófyrirséðum áföllum og raun- vaxtastigið yrði líklega litlu hærra en í helstu viðskiptalöndum,“ segir m.a. í skýrslunni. Þá segir að efla verði markaðsbú- skap og samkeppni í þjóðarbú- skapnum. Verði sérstaklega hugað að þeim sviðum þar sem þróun sé skammt á veg komin, svo sem í orkubúskap og fjarskiptum. Jafn- framt verði stefnt að því að virkja markaðsöflin í þágu aukinnar fram- leiðni og afkasta í opinberam rekstri og haldið verði áfram á braut einka- og markaðsvæðingar í fjármálum þjóðarinnar. Segir að skipulagsbreytingar af því tagi myndu án efa skila sér í bættum lífskjöram landsmanna á næstu ár- um. Aukin þátttaka útlendinga í íslensku atvinnulíil Einnig er lagt til að efla þær stoð- ir atvinnulífsins sem vinna í þágu ís- lensks útflutnings og þátttöku út- lendinga í atvinnurekstri hérlendis. Þurfi líka að tryggja íslenskum út- flytjendum öragg og greið við- skiptatækifæri með rafrænum hætti. Nefndin kemst að þeirri niður- stöðu að til að tryggja stöðugleika þurfi stjóm ríkisfjármála að miða að því að halda jafnvægi í þjóðarbú- skapnum, halda þurfi uppi nægileg- um þjóðhagslegum sparnaði til að spoma gegn viðskiptahalla og að verðbólga verði ekki meiri en 1-2%. V ÖRUFLUTNIN G ABIFREIÐ með tengivagni fór út af þjóðveg- inum við Skarphól í Mýrdal full- hlaðin fiski skömmu fyrir hádegi í gær. Ekki urðu meiðsli á mönn- um. Vöruflutningabifreiðin var á leið til höfuðborgarinnar með fiskfarm og fór samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu í kjölfar snjóruðningstækis. Svo virðist sem bifreiðin hafi farið út af veg- inum sökum lélegrar færðar. Björgunarsveitarmenn voru kall- aðir út til að bjarga fiskinum. Lögreglumenn frá Kirkjubæjar- klaustri skoðuðu vettvang óhappsins í gær. 6.000 skatt- framtöl á Netinu FRESTUR til að skila skatt- framtali á Netinu rennur út á miðnætti. Talsvert hefur verið um að menn hafi nýtt sér þessa nýju þjónustu ríkis- skattstjóra. Klukkan tólf á há- degi í gær höfðu 6.096 skilað skattframtali sínu á Netinu. Netsíðan er mikið sótt þessa dagana og sem dæmi má nefna að um 300 manns skiluðu skattframtölum sín- um á milli klukkan tíu á föstu- dagskvöld til tólf á hádegi í gær. Með blaðinu í dag fylgir aug- lýsingablað frá Elko „Lága verðið 1 árs“. Þeir sem hafa Viðskiptakort BYKO eíga nú kost á enn lægra verði í aimik£>J FfltUí trf wmAókntTiB á txsfcb&>ty,m& | Með blaðinu í dag fylgir aug- lýsing frá Byko „Þeir sem hafa Viðskiptakort Byko eiga nú kost á enn lægra verði í Elko“. Blaðinu í dag, utan höfuðborg- arsvæðisins, fylgir auglýsinga- blað frá Vöku-Helgafelli: „Fjölbreyttur Bókaklúbbur iyrir alla fjölskylduna!" Togast á um hvalinn ► Frá því Islendingar hættu hvalveiðum hefur umræðan um að hefja veiðar á ný fengið byr undir báða vængi með jöfnu milli- bili. /10 Síðustu leifar nýlenduveldis ► Stjórnvöld í Indónesíu léðu í síðasta mánuði máls á því í fyrsta skipti að veita Austur-Tímor sjálfstæði. /12 Hugbúnaður og heilbrigðisþjónusta ► Skiptir miklu að upplýsingar séu tiltækar. /20 Verslun með villandi nafni ► í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Einar Ei- ríksson í Sportleigunni./30 ► l-24 Flugkappar í kappakstri ►Með íslandsflugi í Granada- Dakar-rallinu./l & 12-14 Það er enginn barna- leikur að passa ► Rauði krossinn gengst fyrir barnfóstrunámskeiðum fýrir til- vonandi barnapíur. /4 í ruggustól með barnabörnin á hnján- um ► Fanný Jónmundsdóttir í við- tali. /8 C FERÐALÖG ► l-4 Norðurljós ► Ný ferðaskrifstofa í London selui’ íslandsferðii-. /2 Magasleðar ► Sleðaferðm era ekki bara fyrir börn. /4 D BÍLAR ► l-4 Leiðréttingartæki fyrir hraðamæla. /2 ►Verkfræðiskrifstofan Samrás sækir um einkaleyfi. /2 Reynsluakstur ►Fagi’ar línur og fölskvalaus akstursánægja á Alfa Romeo 166. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► l-24 Upplýsingakerfið AXEL fer víða ►Nýlega sett upp í færeyskum skólum. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir V2J418/bak I dag 50 Leiðari 32 Brids 50 Helgispjall 32 Stjörnuspá 50 Reykjavíkurbréf 32 Skák 50 Skoðun 34 Fólk í fréttum 54 Viðhorf 37 Utv/sjónv. 52,62 Minningar 38 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Mannl.str. 18b Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 22b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.