Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Fósturfaöir minn, STEINGRÍMUR SIGURSTEINSSON, Bjarmastíg 3, Akureyrí, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 2. mars kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Fyrir hönd aðstandenda, Daggeir Pálsson. + Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, MAGNÚSAR ÞORLEIFSSONAR viðskiptafræðings, Jökulgrunni 15, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 2. mars kl. 15.00. Ida Sigríður Daníelsdóttir og fjölskylda. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur stuðning í veikindum, samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR INGVA THORSTENSEN. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á 11E og gjör- gæsludeild Landspítalans. Guð veri með ykkur öllum. Guðríður Vestmann Guðjónsdóttir, Anna Margrét Sigurðardóttir, Ágúst Gunnarsson, Tryggvi Daníel Sigurðsson, Kristín S. Thorstensen, Vilhelm Gunnarsson og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför AÐALHEIÐAR B. RAFNAR, Miðleiti 7, Reykjavík. Halldóra J. Rafnar, Baldvin Tryggvason, Ingibjörg Þ. Rafnar, Þorsteinn Pálsson, Ásdís J. Rafnar, barnabörn, barnabarnabörn og systkini hinnar látnu. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem studdu okkur og styrktu við fráfall ÓLAFS JÓNSSONAR, Ártúni við Sleitustaði í Skagafirði. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem stóðu að björgunarstarfi sunnudaginn 14. febrúar. Þórveig Sigurðardóttir börn, tengdabörn og barnabörn. + Bróðir okkar, SIGURÐUR SKÚLASON frá Mörtungu, lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum, Kirkjubæjarklaustri, fimmtu- daginn 25. febrúar. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Steingrímur Skúlason, Ragna Skúladóttir, Sigrfður Skúladóttir. RAGNHEIÐUR PÁLSDÓTTIR + Ragnheiður Pálsdóttir var fædd hinn 7. nóv- ember 1922 í Víði- dal á Fjöllum. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri hinn 19. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Ragn- heiðar voru þau hjónin Páll Vigfús- son, f. 27. október 1889 í Hnefílsdal á Jökuldal, d. 2. apríl 1961, og fyrri kona hans María Ingi- björg Stefánsdóttir, f. 4. ágúst 1887 í Möðrudal á Fjöllum, d. 7. október 1929, þau bjuggu í Víði- dal á Fjöllum og á Grund á Jök- uldal. Ragnheiður var þriðja barn þeirra hjóna af sex og er elsta systir hennar Arnfríður látin. Arnfríður var f. 29. maí 1919 í Víðidal, d. 31. janúar 1998, hún var gift Aðalsteini Helgasyni f. 23. september 1910 á Króksstöðum í Eyjafirði, d. 3. janúar 1991. Hin fjögur alsystk- ini Ragnheiðar sem eftir lifa eru: (1) Vigfús Agnar, f. 29. ágúst 1920 í Víðidal, hans kona var Una Björg Sörensdóttir, f. 16. apríl 1924 á Kvíslarhóli á Tjörnesi, d. 24. nóvember 1977. (2) Stefán Arnþór, f. 3. desem- ber 1923 á Grund, giftur Gunn- þórunni Hvönn Einarsdóttur, f. 1. apríl 1934 á Hvanná á Jökul- dal. (3) Gestur Aðalgeir, f. 13. ágúst 1925 á Grund, giftur Kristínu Halldórsdóttur, f. 1. nóvember 1927 á Skottustöðum í Svartárdal. (3) Þórólfur, f. 6. desember 1926 á Grund, giftur Svanhvíti Krisfjánsdóttur, f. 11. mars 1927 á Patreksfírði. Ragn- heiður átti sex hálfsystkini, börn Páls og seinni konu hans, sem var Margrét Sigríður Bene- diktsdóttir, f. 27. desember 1903 á Reyðarfírði, d. 14. janú- ar 1965, þau bjuggu á Grund á Jökuldal, á Aðalbóli í Hrafn- kelsdal og á Syðri-Varðgjá í Eyjafírði. Tvö af hálfsystkinum Ragnheiðar eru látin, Hulda, sem var elst af þeim, og Garðar. Hulda var f. 2. mars 1932 á Grund, d. 5. janúar 1987, hún var gift Braga Leopoldssyni, f. 15. september 1932. Þau skildu. Garðar var f. 10. janúar 1942 á Aðalbóli, d. 12. nóveinber 1995, hann var ógiftur. Hin fjögur hálfsystkini Ragnheiðar sem eftir lifa eru: (1) Erla, f. 10. febrúar 1933 á Aðalbóli, gift Erni Oskarssyni, f. 18. nóvem- ber 1940 á Akureyri. (2) Unnur, f. 12. ágúst 1935 á Aðalbóli, giftist Valdimar Erni Jónssyni, f. 26. maí 1930 í Hafnarfírði, d. Nú er hún Ragnheiður vinkona okkar öll. Það er okkur hjónum mikil harmafregn, svo nátengd lífs- hlaupi okkar sem hún var. Orlögin höguðu því svo til að á heimili henn- ar og Sigurðar kynntumst við ung að árum og höfum átt samleið síðan. Ragnheiður átti marga góði kosti, en einn af þeim var að að henni lað- aðist ungt fólk. Því var það svo að það var oft líf og fjör í Möðruvalla- strætinu þegar unga fólkið kom þar saman. Atti þetta sérstaklega við á árunum um og upp úr 1970, þegar hennar eigin börn voru á unglings- árum og voru að komast til þroska. Vinir barna hennar voru ávallt vel- komnir á heimilið og var það satt að segja óspart nýtt. Ragnheiður fylgdist vel með velferð alls hópsins og fannst sumum hún vera óþarf- lega spurul um hvaðeina, en þótti svo gott að vita af athygli hennar og umhyggju. Auðvitað var það svo þannig að hún gerðist trúnaðarvin- kona alls unga fólksins þrátt fyrir aldursmuninn. Alltaf var hægt að treysta Rænku. Oft var hún hvassyrt, eins og hún átti vanda til, en alltaf skein samt í hjartalagið. 21. september 1997. (3) Sævar, f. 16. ágúst 1943 á Aðalbóli, gift- ur Guðfínnu Asu Jó- hannesdóttur, f. 7. mars 1946 á Siglu- firði. (4) Alda, f. 24. janúar 1946 á Syðri- Varðgjá, gift Stefáni Óskarssyni, f. 1. sept- ember 1944 á Akur- eyri. Ragnheiður Pálsdóttir eignaðist sitt fyrsta barn í Reykjavík 8. nóvem- ber 1949, Pál Richard Larsen Sigurðsson, bifvélavirkjameistara á Akur- eyri, hann giftist Þórunni Páls- dóttur, hárgreiðslumeistara á Akureyri, f. 6. maí 1945 á Siglu- firði. Fósturdóttir Páls, dóttir Þórunnar og fyrri eiginmanns hennar, er Hanna Sigríður Sig- urðardóttir, hárgreiðslumeistari í Reykjavík, f. 8. desember 1967 á Akureyri. Börn Páls og Þórunnar eru, (1) Skúli Þór, iðnnemi á Akureyri, f. 14. janúar 1972. Sambýliskona Skúla er Ólöf Ólafsdóttir, gullsmiður á Akur- eyri, f. 16. maí 1974 á Akureyri, barn Skúla er Eyþór Mar, f. 5. desember 1993. (2) Ragnheiður, menntaskólanemi á Akureyri, f. 8. nóvember 1976. Sambýlismað- ur Ragnheiðar er Helgi Aðal- steinsson, háskólanemi á Akur- eyri, f. 19. júlí 1973 á Akureyri. Arið 1952 giftist Ragnheiður Sig- urði Baldvinssynin f. 26. septem- ber 1915, á Hálsi í Öxnadal. For- eldrar hans voru Guðbjörg Helga Sveinsdóttir, f. 9. september á Neðri-Rauðalæk, d. 21. október 1924, og Baldvin Sigurðsson, f. 5. ágúst 1872 á Myrká, d. í ágúst 1940. Þau bjuggu á Hálsi í Öxna- dal og á Höfða við Akureyri. Ragnheiður og Sigurður eignuð- ust þijú börn og sonur Ragnheið- ar varð fóstur- og uppeldissonur Sigurðar. Börn þeirra eru: (1) Baldvin Halldór, kjötiðnaðar- og matreiðslumeistari á Akureyri, f. 26. maí 1953 á Akureyri, hann er giftur Ingu Þórhildi Ingimundar- dóttur, bankastarfsmanni á Akureyri, f. 15. apríl 1946 á Brekku í Presthólahreppi. Barn þeirra er Jón Ingi, nemi á Akur- eyri, f. 25. mars 1981. (2) Hrafn, landflutningaafgreiðslumaður í Reykjavík, f. 8. desember 1958 á Akureyri, hann giftist Nönnu Stefánsdóttur, garðyrkjumeist- ara á Akureyri, f. 23. júní 1963 á Akureyri. Börn þeirra eru: Stef- án, f. 11. maí 1983 á Akureyri, Sunna, f. 23. apríl 1989 á Akur- eyri. Hrafn og Nanna skildu. (3) Helga María húsfreyja á Akur- eyri, f. 29. janúar 1961 á Akur- eyri, barn hennar frá fyrstu sam- Á þessum árum ráku Ragnheiður og Sigurður Alþýðuhúsið á Akur- eyri (Allann). Auðvitað virkjaði hún unga fólkið í kringum sig í það stúss allt saman og var oft rösklega tekið á, við undirbúning skemmtana og frágang á eftir. Fátæku skólafólki var þetta líka kærkominn vasapen- ingur, þegar við fengum vinnu á böllunum. Ragnheiður var mikill mannvin- ur. Ef hún gat rétt hjálparhönd þeim sem áttu í erfíðleikum eða áttu um sárt að binda, var hún fljót til, en jafnan svo að ekki bar mikið á. Hún var alltaf sannfærður sósíalisti og virkur félagi í Alþýðubandalag- inu. Nærri má geta um að oft fóru fram fjörugar pólitískar umræður á heimilinu, þegar við Sjálfstæðis- mennirnir komum í heimsókn. En því fór fjarri að þær umræður hefðu einhver áhirf á vináttuna. Ragn- heiður var samt alltaf sannfærð um að við hlytum að vera sósíalistar inn við beinið og huggaði sig við það. Eitthvað var nú farin að daprast trú hennar á Alþýðubandalagið í seinni tíð og þótti henni flokkurinn vera farinn að nálgast kratana full mikið. búð: Sigurður nemi á Akureyri, f. 1. janúar 1979 á Akureyri. Hún giftist Pétri B. Hansen bónda á Þverá í Eyjafirði, f. 23. október 1960 í Danmörku. Börn þeirra eru: Róselia, f. 27. októ- ber 1984 á Akureyri, María, f. 11. júlí 1988 á Akureyri. Helga og Pétur skildu. Sambýlismað- ur Helgpi er Árni Páll Halldórs- son, tannlæknir á Akureyri, f. 23. nóvember 1959 í Keflavík. Barn þeirra er Halldóra, f. 19. ágúst 1995 á Akureyri. Þegar Ragnheiður var á fyrsta árinu fluttist hún með foreldrum og systkinum sínum frá Víðidal á Fjöllum og niður á Grund á Jökuldal. Þar Jbjó hún næstu tíu árin, fyrst með for- eldrum sínum báðum. Móður sína missti Ragiiheiður þegar hún var aðeins 7 ára gömul. Seinni kona Páls, Margrét, gekk henni og systkinum henn- ar svo í móðurstað. Þegar Ragnheiður var orðin 11 ára gömul flytja Páll og Margrét með fjölskylduna frá Grund og upp í Aðalból í Hrafnkelsdal, þar sem þau búa næstu tólf ár- in, þá flytja þau norður í Eyja- fjörð og hefja búskap á Syðri- Vargjá og búa þar 1958, þá flyta þau til Akureyrar og búa þar síðustu æviárin. Ragnheið- ur var í nokkur ár í Reykjavík og vann þá við veitinga- og framreiðslustörf. I Reykjavík eignaðist hún sitt fyrsta barn, þá 27 ára gömul. Þar kynnist hún svo Sigurði Baldvinssyni og þau flytja saman norður til Akureyrar. Þau giftu sig árið 1952 og stofnuðu heimili á Akureyri þar sem þau bjuggu svo alla sína hjúskapartíð. Fyrst niðri á Eyri í Gránufé- lagsgötu 18, svo keyptu þau sér íbúð í Möðruvallastræti 5, efri hæð í tvíbýlishúsi. Þar bjuggu þau svo saman eftir það og ólu þar upp börnin, þar til þau fluttu úr foreldrahúsum til að stofna heimili og heíja sjálf bú- skap. Ragnheiður vann við ým- is störf á Akureyri, fyrir utan heimilisstörfín. Hún vann í mörg ár í Skóverksmiðjunni Ið- unni. Hún rak Alþýðuhúsið í mörg ár með miklum myndar- brag. Síðan gerðist hún kaup- maður og rak Tóbaksbúðina á Akureyri í nokkur ár. Manninn sinn missti Ragnheiður svo fyr- ir nokkrum árum, Sigurður lést 23. júlí 1995 eftir erfíð veikindi. Eftir það bjó Ragnheiður oftast ein, stundum bjuggu börnin hennar hjá henni tímabundið, í hjúskaparfríum, nú síðast elsti sonurinn, sem var hjá henni þegar hún skyndilega veiktist og var flutt á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri þar sem hún lést. Útför Ragnheiðar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudag- inn 1. mars og hefst athöfnin klukkan 14. Þegar móðir mín var til lækninga og háði sitt lokastríð á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri, átti faðir minn athvarf hjá þeim hjónum í Möðruvallastrætinu. Hann fór oft norður til að geta verið sem mest hjá móður minni meðan á sjúkra- húslegunni stóð. Stutt er frá Möðruvallastrætinu að sjúkrahús- inu og gott að geta verið hjá góðum vinum er stund gafst. Þá var mikið spjallað um gamla tíð og vini af Jök- uldal og sameiginlegar minningai- Sveins og Sigurðar úr Fjörunni á Akureyri. Oft var minnst á hvað þetta hefðu verið góðar stundir, þrátt fyrir erfitt tilefni. Þau voru hins vegar mörg dæmin um að Austfirðingar og gamlir sveitungar af Dal áttu athvarf við svipaðar að- stæður hjá þeim hjónum. Þó að samverustundunum fækk- aði í seinni tíð vorum við alltaf jafn velkomin í Möðruvallastrætið. Ragnheiður kom líka stundum aust- ur, til að heimsækja Stefán bróður sinn og Tótu Hvönn mágkonu sína. Þá kom hún líka og stoppaði einn til tvo daga á Seyðisfirði, síðast nú fyr- ir tveimur árum. Ekki hafði Ragn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.