Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ „Umhverfis jörðina“ með Skólakór Kársness „UMHVERFIS jörðina“ er yfir- skrift tónleika Skólakórs Kárs- ness sem verða í Salnum í kvöld, sunnudag, kl. 20.30. Tónleikarnir eru í tónleikaröð- inni Tíbrá sem Kópavogsbær stendur fyrir. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og verða flutt um 30 lög frá 25 löndum. Þar má heyra mörg lög sem hafa ekki áður verið sungin hér á tón- leikum, allt frá lögum frum- byggja í Astralíu til nýrra ís- lenskra kórlaga, gamalt og nýtt í bland við glens og al- vöru, segir í fréttatilkynningu. Drengjakór Kársnesskóla flyt- ur ameríska kúrekasöngva, Guðrún S. Birgisdóttir leikur á flautu og strengjasveit skipuð ungum kórsöngvurum leikur með í einu verki. I Skólakór Kársness eru rúmlega 60 kórfélagar á aldr- inum 10-16 ára en í Drengja- kórnum syngja um 30 hressir strákar. Stjórnandi er Þórunn Björnsdóttir og Marteinn H. Friðriksson leikur undir á pí- anó. Miðasalan verður opin tón- leikadaginn frá kl. 14 í anddyri Tónlistarhúss Kópavogs, miða- verð er 1.200 krónur. SKÓLAKÓR Kársness syngur í Salnum í kvöld. Morgunblaðið/Golli Þorsteiim Gauti leikur á fyrstu píanótónleikunum í Salnum „Eitt glæsilegasta píanó- verk þessarar aldar“ SÓNATA opus 26 eftir Samuel Barber, þrjár etýður Chopins opus 10 nr. 4, 6 og 8, Tunglskinssónata Beethovens, Gnossía eftir Eric Satie og þrjár prelúdíur eftir Ge- orge Gershwin í flutningi Þor- steins Gauta Sigurðssonar munu hljóma í Salnum í Kópavogi á þriðjudagskvöld á fyrstu píanótón- leikum hússins. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Tíbrá. Morgunblaðið/Þorkell ÞORSTEINN Gauti Sigurðsson á æfingu í Salnum. í fréttatilkynningu frá Salnum segir að það séu tíðindi þegar ís- lenskur píanóleikari tekur sér það fyrir hendur að flytja sónötuna eft- ir Barber, eitt glæsilegasta píanóv- erk þessarar aldar. Sónatan er skrifúð 1948 og Vladimir Horovitz frumflutti hana 9. desember 1949 í Fyrstu verðlaun á sýningu Ljósmyndarafélags ísland Ljósmynd: Fríöur Eggertsdóttir Svipmyndir Hverfisgötu 18, sími 552 2690 Barnamyndir • brúðarmyndlr • fjölskyldumyndlr HOFUNDAR VITJI HANDRITA Dómnefnd Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka 1999 hefur lokið störfum og kom- ist að þeirri niðurstöðu að ekkert þeirra handrita sem bárust í samkeppnina stand- ist þær kröfur sem dóm- nefhdin gerir til verðlauna- handrita. Stjórn sjóðsins hefur af þessum sökum ákveðið að íslensku barna- bókaverðlaunin verði ekki veitt í ár. Um leið og höfund- um er þakkað fyrir að taka þátt í samkeppninni eru þeir beðnir að vitja handrita sinna sem fyrst til Vöku-Helgafells, Síðumúla 6, Reykjavík. Þar eru þau afhent gegn því að gefinn sé upp titill handrits eða dulnefni höfundar. Havana á Kúbu. „Sónatan er tíma- mótaverk nýrra strauma, í traustu formi, áhrifamikið skáldverk," seg- ir þar ennfremur. Nýtir píanóið til hins ýtrasta „Þetta er stórt verk, í fjórum köflum. Síðasti kaflinn er fjögurra radda fúga og er oft spilaður sem sérstakt verk,“ segir Þorsteinn Gauti. „Það sem gerir verkið svona frábæi-t er það að hann blandar saman gömlum og nýjum aðferðum og nýtir píanóið alveg til hins ýtrasta. Þetta er ekki orðið atónal, heldur heyrir maður ennþá tóntegund, og þó að það hljómi á köflum mjög flókið, þá er ljóð- rænn strengur í því og það er mjög glæsilega skrifað fyrir hljóð- færið,“ heldur hann áfram. Þor- steinn Gauti segir þessa sónötu Barbers vera með betri verkum sem hann hefur spilað og segist raunar vel geta trúað að það sé líka með þeim erfiðari, einkum og sér í lagi síðasti kaflinn. Hin víðfræga Tunglskinssónata Beethovens er einnig á efnis- skránni. „Eg hef tekið mig til síð- ustu árin og spilað mjög fræg verk, sem ég gerði aldrei þegar ég var yngri. Það er svo skrýtið að maður heyrir Tunglskinssónötuna ekki oft á tónleikum. Þetta er það frægt verk að það er eiginlega varla spilað,“ segir Þorsteinn Gauti. Tónleikamir verða sem áður sagði á þriðjudag og hefjast þeir kl. 20.30. Miðasalan í anddyri Tón- listarhúss Kópavogs verður opin tónleikadaginn frá kl. 14.00. Samsæri í fortíð og nútíð ERL. BÆKUR Spennusaga ÞÖGUL BORG „SILENT CITY“ Eftir James Kennedy. Aitow 1999. 311 síður. JAMES Kennedy heitir írskur rithöfundur sem er að þreifa fyrir sér í spennusagnagerðinni. Hann hefur sent frá sér tvær bækur, „Ar- med and Dangerous", og síðan þessa, Þögla borg eða „Silent City“, sem nýlega kom út í vasabroti hjá Arrow-útgáfunni. Sögusvið beggja bóka hans er að vonum Irland í for- tíð og nútíð. Sú fýrri fjallaði um nokkra IRA-meðlimi sem ætlpðu að spilla friðarviðræðunum á írlandi en þessi nýja saga, Þögul borg, er um mann, sagnfræðing reyndar, sem álpast til þess óafvitandi að spilla heilmiklu samsæri tengdu mikilvægri heimsókn til Irlands. Hugmyndin er ekki alvond en sem pólitískur samsæristryllir er sagan verulega óspennandi, langdregin og óskýr. Sagnfræðingur leitar svara James Kennedy þessi segist vera fæddur í suðausturhluta írlands en býr nú í Dublin. Hann hefur stund- að ýmis störf um dagana, verið verkamaður og kennari og nú síðast rithöfundur. Hann segir forfeður sína hafa komið frá Lincolnshfre á Englandi. Ails er óvíst af hverju sagan heit- ir Þögul borg því titillinn hefur ekk- ert með innihaldið að gera. Hún hefst á því að Eddie Halpin, sagn- fræðingi sem beitt hefur sér í bar- áttu fyrir auknum mannréttindum, er sýnt fólskulegt banatilræði á þjóðvegum Irlands. Hann tengir það um síðir rannsóknum sínum á stórum og mikilvægum góðgerðar- samtökum á írlandi en hann hefur verið að kafa í sögu þeirra og spurn- ingar hafa vaknað um fortíðina. Svo virðist sem samtökunum tengist gamall hópur írskra fasista sem öm- uðust mjög við gyðingum við upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar og þekkjast af leyniorðinu Kólumbus. Innvígðir spyrja: Hvaða ár fann Kólumbus Ameríku? og það er eins gott að svörin séu á reiðum hönd- um. Sagnfræðinginn Halpin grunar að hópurinn hafi á sínum tíma framið einhverskonar ódæði sem tengist háöldruðum forsvarsmanni góðgerðarsamtakanna en hann kemst einnig að því að annað og mun skelfilegi-a ráðabrugg er í gangi í nútímanum. Hvort hann get- ur komið í veg fyrir það er svo önn- ur saga. Litlausar persónur James Kennedy fóðrar sögu sína með frásögnum af ástum í meinum bæði að fornu og nýju, með skugga- legum náungum sem hafast við í neðanjarðarvistarverum, mönnum sem hverfa á dularfullan hátt en bfrtast aftur, njósnum og leyni- bruggi og morðtilræðum. En ekkert af því er hægt að segja að sé veru- lega áhugavert eða spennandi. Að- alpersónan, Halpin, er nokkurn veginn gersamlega litlaust dauðyfli og það sama er að segja um lög- reglufulltrúann Charlottu Rainey, helsta hjálparkokk hans í málinu og auðvitað gamla kærustu. Það sama er að segja um illmennin, þau vekja hvorki ótta né skelfingu og varla hinn minnsta áhuga. Plön þeirra eru fyrirsjáanleg. Ofan á þetta bætist að frásögnin er leiðinlega formleg og stíllinn sér- lega hátíðlegur sem verður ákaflega þreytandi þegar til lengdai’ lætur. Það má vera að James Kennedy sé með gott efni í höndunum en honum tekst ekki að kveikja líf í persónum sínum, frásögnin er á stundum löt- urhæg og spennan nánast engin. Arnaldur Indriðason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.