Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Hanskadqgar I mars 15% afsláttur Laugavegi 58 sími5513311 af dörnu-, herra- og barnahönskum. Kvennakvöld Fáks Hið árlega kvennakvöld Fáks verður haldið laugardaginn 6. mars nk. í félagsheimili Fáks. Þema kvöldsins: Ástandsárin Miðasala í félagsheimilinu sunnud. 28. feb. kl. 14-17, mánud. 1. mars kl. 17-20 og þriðjud. 2. mars kl. 17-20. Miðaverð kr. 3.500 og eftir miðnætti kr. 1,500. Tekin verða frá sæti við miðasölu en miðar ekki teknir frá. Stjórn Kvennadeildar. VELVAKAJMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Ættingja leitað VE LVAKAND A hefur borist bréf frá Thor Pals- son þar sem hann biður um aðstoð við leit að ætt- ingjum sínum hérlendis. Segir hann að faðir sinn hafi heitið Leifur Palsson og móðir sín Thelma Pals- son (Jónasson). Föðurafi hans hét Páll Hansson, fæddur 18.12. 1868 á Kirkjubæjarklaustri og föðuramma hans var Rannveig Pálsdóttir, fædd 19.02. 1866 á Hofsnesi í Öræfum. Foreldrar henn- ar voru Páll Jónsson og Rannveig Sveinsdóttir. Þau fluttust ásamt fóður hans til Kanada 1903 og settust að í nágrenni Riverton, Manitoba. Móð- ir Thors var fædd 10.03. 1913 í Riverton, Man- itoba. Foreldrar hennar voru T.T. (Tomas) og Magnusina Jonasson (Borgfjörð). Þeir sem gætu geflð Thor einhverjar upplýs- ingar geta sent honum tölvupóst á netfangið tpalsso@0os.net Góð þjónusta á Fiðlaranum MIG langar til að birta sérstakar þakkir til starfsfólks og eigenda Fiðlarans á Þakinu á Ak- ureyri. Ég hafði boðið þangað fólki í mat á laug- ardagskvöldi (14.2.) og vildi að kvöldið yrði eftir- minnilegt. Þökk sé þjónustulipurð þeirra og einstaklega ijúffengum mat varð allt til þess að gera kvöldið að þeirri kvöidstund sem seint gleymist. Það var eitt lítið atriði sem mig langar til að nefna í þessu tilviki, nokkuð sem ég hef aldrei, hvorki hér innanlands eða utan, upplifað fyrr. Eftir að hafa notið forréttar og aðalréttar og við sátum og lukum eftiiTéttinum, kom hún þessi þjónustulipri og brosandi þjónn og spurði okkur á sinn hæverska hátt, sem á engan hátt var tilgerðarlegur né auðmýkjandi fyrir neinn, hvort par sem sat annars staðar í sainum mætti kveikja sér í vindlingi. Öll erum við sem þarna sát- um reyklaus, en þegar við höfðum fengið að njóta matarins í reyklausu um- hverfi, tókum við tillit til þess að reykingafólkið hafði sýnt þá tillitssemi að reykja ekki, en langaði nú auðsýnOega í vindling með kaffínu. Þá var auðvelt að gefa leyfi, þegar spm-t var. Þama sá ég hvernig þetta veitingahús leysir vanda sinn á þann hátt að flestir mættu vel við una. Ég vona að Akureyringar geri sér grein íyrir að með Fiðlaranum eru þeir með veitingastað á hæsta plani. Til að undirstrika þetta efast ég um að fleiri veitingastaðir hvar sem er á landinu bjóði stað með íyrsta flokks veitingum sem hægt er að njóta reykiaust. Ef svo er skora ég á þá að gera viðvart hér til þess að við neyt- endur sem þessa þjónustu þurfum að nota vitum hvert við eigum að leita. A ég þá ekki við reyklaus borð, sem em ekkert nema yfírskyn til að upp- fylla settar raglur. Þú andar bara að þér við- bjóðnum frá næsta borði. Ég þakka Fiðlaranum velheppnaða kvöldstund. Viðskiptavinur að sunnan. Ánægð með 19-20 ÉG veit eiginlega ekki hvað er að gerast í sjþn- varpsfréttum hjá RÚV. Mér finnst orðið svo þungt yfirbragð yfir öliu. Það er eins og mönnunum sem vinna við þetta finnist þetta allt svo leiðinlegt, nema Elín Hirst, hún er alveg dýrleg. Mér finnst svo mikið léttara yfir öll- um í 19-20 hjá Stöð 2. Þar skín gleði og áhugi frá þeim sem þar vinna. Og það er fleira. Ég er nú orðin nokkuð fullorðin og hef ávallt fylgst með veðurfréttum í sjónvarpi. Mér finnst framsetning veðurkortanna hjá RÚV svo ruglingsleg. Er ekki allt of mikið af upplýsing- um inni á þeim? Mér finnst framsetningin á veðurupplýsingunum hjá Stöð 2 miklu skýrari og ég á auðveldara með að átta mig þegar þessir veður- spekingar geta bent á til- tekin svæði. Af hverju benda þeir aldrei hjá RÚV. Þetta er kannski af því ég er orðin svo gömul. En ég er samt áhorfandi og borga mín gjöld. Til hamingju Stöð 2 með góð- an árangur. Eldri kona. ÞVI sest ég nú niður og hripa þessar iínur á blað að ég á ekki ofan í mig að éta. Bölvuð smámuna- semi, verð ég að játa, en svona er þetta nú samt. Auðvitað ætti að duga mér að fara niður í bæ og skoða nokkra þriggja milijóna króna jeppa og fara síðan sæll og glaður heim, en þetta fer bara svo fjári illa í maga.-Ég var einmitt íyrir ekki svo löngu að hlusta á hann Davíð okkar Oddsson í út- varpinu, þar sem hann lýsti öllu góðærinu, en ég er bara svo tregur og seinn að skilja að ísskáp- urinn minn er alveg jafn tómur þrátt fyrir allan þennan lofsöng hans Dav- íðs okkar. Ef til vill fjölg- ar eitthvað ýsubitunum í skápnum um næstu kosn- ingar ef ég skyldi nú slys- ast til að setja krossinn minn einhvers staðar ann- ars staðar en ég gerði síð- ast. En svo undarlega sem það kann nú að hljóma þá verð ég bara að eiga ofan í mig að borða. Auðvitað veit ég að þetta er bölvuð smámunasemi en svona er þetta nú samt. Ég er sykursjúkur og verð þar af ieiðandi að borða eftir klukkunni auk þess sem ég er flogaveik- ur og er þess vegna í svolítið verri stöðu. En ég get bara ekki lifað á loft- inu einu saman, jafn gott og það nú er hér á Fróni. Svo vil ég að endingu skora á alla öryrkja að mæta á fundinn í Ráðhús- inu á sunnudag kl. 14. Með baráttukveðju. Hrafn Hauksson, Reynimel 51, Rvík. Víkverji skrifar... MORGUNBLAÐIÐ greindi frá því í vikunni að menntun og starfsstétt íbúa borgarinnar speglaðist í meðaleinkunn skóla í viðkomandi hverfi. Þetta kemur fram í könnun sem tvær ungar stúlkur unnu til BA;prófs í félags- fræði við Háskóla íslands og eru sannarlega stórathyglisverð tíðindi. Menntun foreldranna skiptir sem sagt meira máli með tilliti til einkunna en til dæmis stuðningur við nemendur og óheimilar fjarvistar þeirra, þótt þeir þættir hafi haft marktæk áhrif til lækkunar á meðaleinkunn. xxx EGAR fylgni er mæld milli at- riða eins og þeirra sem á und- an eru nefnd getur hún fræðilega mest verið 1. Fátítt er að fylgnin sé jafn há og hún var milli menntunar og einkunna - 0,82. Kunningi Víkverja sem þykist þekkja til þessara fræða staðhæfir að fylgnin í umræddu tilfelli sé svo mikil að nánast sé um sönnun að ræða. Hann nefndi að sönnun fyrir tengslum reykinga og lungna- krabbameins byggðist einnig á líkindareikningi (en ekki orsaka- sambandi) og þar væri fylgnin ekki jafnmikil. Efast einhver um að reykingar valdi lungnakrabba- meini? Ef svo er ekki, getur ein- hver efast um niðurstöður BA-rit- gerðarinnar um tengsl menntunar íbúa ákveðinna hverfa og meðalein- kunnar barna í hverfinu? Rétt er að taka fram að hér er um eina könnun að ræða, en fjöldi slíkra hefur verið framkvæmdur varðandi fylgni reykinga og lungnakrabbameins. Það breytir þó ekki því að niðurstaða stúlkn- anna tveggja er gríðarlega athygl- isverð, enda lagði fyrrnefndur kunningi á það áherslu að ekki í einni einustu þeirra kannana sem gerðar hefðu verið vegna reykinga og lungnakrabbameins hefði fylgn- in verið jafnmikil og í þessari ís- lensku könnun. xxx MIKILL er máttur íþrótta- stjarnanna, hugsaði Víkverji með sér þegar hann skoðaði íþróttablað Morgunblaðsins síðast- liðinn þriðjudag. Þar er mynd af fjölda ungra stúlkna á stangar- stökksæfingu. Ahugi hérlendis á þessari grein er vitaskuld engin til- viljun: Vala Flosadóttir hefur náð frábæmm árangri síðastliðin ár og nú hefur Þórey Edda Elísdóttir einnig skipað sér á bekk þeirra bestu. Fyrir nokkrum árum fór fjöldi ki'akka út um allt land að stunda spjótkast - þegar Einai' Vilhjálms- son og Sigurður Einarsson voru í sviðsljósinu - og Víkverji hefur heyrt af krökkum á ýmsum aldri sem spreyta sig í grindahlaupi (jafnvel heima í stofu yfir ferðatöskur!) í tilefni glæsilegs árangurs Guðránar Arnardóttur síðustu ár. Það kæmi Víkverja ekki á óvart þótt sundlaugar landsins fylltust af krökkum í kjölfær frækilegrar frammistöðu Arnar Arnarsonar síðustu misseri, og kjörs hans sem íþróttamanns ársins 1998. xxx KUNNINGI Víkveija ákvað að segja upp miða sínum í Happ- drætti háskólans í janúar. Hann hafði átt einn trompmiða í nokkuð mörg ár, en eftir að miðinn hækkaði í 4.000 krónur á mánuði ákvað kunninginn að eyða þeim fjármun- um í spamað frekar en að freista gæfunnar með þessum hætti. Hann hafði einu sinni fengið lægsta vinn- ing en ekkert unnið í all mörg ár, en reyndar fundist vinningur koma gnansamlega oft á númer í grennd við hans. Kunninginn skoðaði svo vinningaskrána fyrir febráar að gamni sínu þegar hún birtist í Morgunblaðinu, og viti menn! Strax í fyrsta drætti, eftir að hann sagði upp miða sínum, hafði komið vinn- ingur á þetta gamla, góða númer. Fyi'st hann asnaðist til að segja miðanum upp hafði kunninginn sem sagt orðið af fimm sinnum fimmtán þúsundum; 75 þúsund krónum! Hann sagði Víkverja reyndar að sér væri nokk sama um þessa peninga, þeir hefðu eflaust farið í einhverja tóma vitleysu hvort sem er! En hann velti því fyrir sér - í fullri al- vöru - hvort tölvan, sem sér um að draga fyrir fyrirtækið, væri forrituð þannig að meiri möguleiki væri á að númer miða, sem væru í eigu happ- drættisins sjálfs, yrði fyrir valinu en önnur númer. Víkverji kemur þess- ari spurningu hér með á framfæri við Happdrætti háskólans. Gaman væri að fá svar við henni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.