Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Er fðrðun fyrir þig? 6 vikna grunnnám í förðun hefst 1. mars nk. Kennt veröur á kvöldin. Hentar mjög vel fólki sem ætlar að selja og kynna snyrtivörur. Grensásvegi 13, sími 588 7575. Tte power of an tesortal. Tk soal of i bmm. The hean of a hero. W E S l E Y S N i P E S AFFl REYKIAVIK • F S T \ U k \ Nf T ’ R A fc iSlfii m fll Gleðigjafavika - Góugleði Meiriháttar tónlistar- og gleöivika á Kaffi Reykjavík. Mættu á svæöiö og fáðu þér glaðning. Tilboð á mat og drykk alia vikuna. — í kvöld skemmtir dúettinn Blátt áfram — Á morgun, mánudag, Bítlavinafélagið - Lennon-kvöld, aöeins í þetta eina skipti! Þriðjudagur Geiri Úlafs ásamt Furstunum Miðvikudagur Stuðhljómsveítin Karma Hljómsveitin Svillt leikur fyrír dansi fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld Bestu tónlistarmennirnir- lifandi tónlist öll kvöld TILBOÐÁ Í/AFFÍ kí'sss* retmavik HEITASTI STAÐURINN í BÆNUM FÓLK í FRÉTTUM Er í hringiðu kvikmyndaheimsins í Los Angeles Nútíma útgerðarmaður í stuttbuxum á vertíð Konráð Sigurðsson hef- ur búið í tíu ár í Banda- ríkjunum og samsamað sig vel lífinu í Los Ang- eles. Dóra Osk Hall- dórsdóttir talaði við hann um starf hans í heimi kvikmyndanna og stjörnurnar. Clooney er vænsti inaður Morgunblaðið/Ásdís KONRÁÐ Sigurðsson hefur unnið við fjöldann allan af frægum kvikmynduin. er eflaust á við fjórtán mánaða vinnu hjá flestum. Maður vinnur oft sextán tíma á dag og gerir varla nokkuð annað þann tíma sem vinnu- törnin stendur yfír.“ -Er þetta ekki vonlaust fyrir fjölskyldufólk? „Jú, eiginlega. Pað er mjög mikið af einhleypu fólki í þessum bransa. Pað eru fá sambönd sem þola svona vinnutamir þar sem annar aðiiinn sést varla í marga mánuði." Konráð tekur sem dæmi um vinnulagið í heimi kvikmyndanna gerð myndar- innar X-fíles the Movie. „Starfsfólk- ið í myndinni kom allt beint frá því að gera Titanic og var búið að vinna í Mexíkó í heilt ár við gerð þeirrar myndar og margir búnir að skilja við konurnar sínar og selja húsin sín út af álaginu. En það eru það miklir peningar í þessu að sumir fóma kannski of miklu. Pað leystust að minnsta kosti mörg sambönd upp í þessari vinnu.“ -Þetta er eiginlega eins og nú- tímasjómennska, nð vera á vertíð. „Já, það má segja það. Þegar maður er að byrja á nýju verkefni hringir maður í allan vinahópinn til að hitta einhvern áður en törnin byrjar, því um leið og vinnan hefst hittir maður engan í langan tíma, jafnvel mánuði." Ævintýri lífsins -Attu þér einhvem uppáhalds leikstjóra? „Luc Besson," svarar Konráð um hæl. „Eg hef reyndar aldrei unnið með honum en mér finnast mynd- irnar hans frábærar. En Steven Soderberg sem gerði „Out of Sight" er einn af þeim bestu sem ég hef unnið með. Annars fínnst mér Cohen-bræðurnir mjög fínir líka og gott að vinna með þeim því þeir vita nákvæmlega hvað þeir ætla að gera í hvert skipti. Þeir em oft búnir að hugsa út allar tökur í þaula sem sparar mikla vinnu fyrir starfsfólk- ið.“ - Hvað stendur upp úr í minning- unni þessi tíu ár? „Pað kom mér á óvart hvað það eru rosalega miklir peningar í þess- um iðnaði og hvað þetta er sérhæfð vinna. Einnig er samkeppnin rosa- leg í þessum heimi. Fólk kemur hvaðanæva að úr heiminum og þeir sem þrauka samkeppnina eru að- eins þeir bestu í sínu fagi.“ - Er það þá kannski ástæðan fyr- ir því að þú ert stöðugt að hæta við þig þekkingu, að standast sam- keppnina? „Ef til vill er það að ég hugsi eins og íslendingur og vilji læra eins mikið og hægt er. En margir hugsa ekki þannig, heldur eru mjög góðir á takmörkuðu sviði, en vita lítið um aðra þætti. Pað er reyndar iðulega leiðin fyrir marga á toppinn, en það hentar mér alls ekki. Eg vil vera til- búinn í hvað sem er því það finnst mér vera ævintýrið við lífið, að staðna ekki, halda stöðugt áfram.“ EG ER mikið fyi-ir útveru,“ segir Konráð Sigurðsson, sem er ljós yfirlitum og úti- tekinn. „Það er frábært að vakna á morgnana og fara í stuttbuxurnar. Mér finnst ég vera nær náttúrunni þarna úti því það er hægt að gera svo mikið. Ég get t.d. keyrt í tvo tíma og er þá kominn á gott skíða- svæði. Ég get líka farið niður á strönd og farið að kafa. Það er af nógu að taka.“ - Varstu ákveðinn að setjast þarna aðþegar þú fórst út í nám? „Nei, alls ekki. Reyndar hafði ég búið í San Francisco í eitt ár áður en ég hóf nám í LA. Ég út- skrifaðist árið 1993 og var byrj- aður að vinna við kvikmynda- gerð áður en ég lauk námi. Mín fyrstu verkefni voru við tónlistarmyndbönd og stutt- myndir. En ég áttaði mig fljót- lega á því að sem kvikmynda- tökumaður þyrfti ég að læra meira um lýsingu, því í þess- um stórmyndum er búinn til heimur og lýsing skiptir þar miklu máli. Ég lækkaði því sjálfan mig í tign og fór í tæknivinnu og einbeitti mér að lýs- ingu. Sumir af þeim kvikmynda- gerðarmönnum sem ég vann með hafa fengið óskarsverðlaun fyrir myndatöku; ég vildi vinna með þeim bestu því þar lærir maður mest. En ég stefni að því að verða yfirmaður tökusviðs eða „director of pho- tography" og er stöðugt að bæta við mig þekkingu til að ná því rnarki." GEORGl toi&ður Konráð hefur unnið sem ljósamaður við margar frægar kvik- myndir og má þar nefna myndimar The Big Lebowski, Out of Sight, X- fíles the Movie, Deep Impact svo nokkrar séu nefndar. „Ég vann við myndina Out ofSight á síðasta ári í skítakulda í Detroit," segir Konráð hlæjandi. - Hittirðu þá hjartaknúsarann George Clooney? „Já, já. Pað er ekki hægt að vinna að svona mynd án þess. En það er oft þannig að þegar leikarar eru á uppleið eru þeir óöruggir með sjálfa sig og hrinda öllum frá sér. En þeg- ar þeir eru orðnir vel þekktir og ör- uggir verða þeir mjög afslappaðir og fínir. Clooney var til dæmis mjög hress og blandaði mikið geði við starfsfólkið.“ Blaðamanni léttir stórum að vita af því að hinn traustvekjandi læknir Ross á Bráðavaktinni sé jafn vænn og hann lítur út fyrir að vera, hvort sem hann er á sjúkrahúsinu í Bráðavaktinni eða utan þess. Rourke algjört steratröll - En eru sumir leiðinlegir? „Já, dæmi um leiðinlegan leikara er t.d. Mickey Rourke sem að mín- um dómi er bara heimskur „boxari" og steratröll. Ég vann í myndinni Exit in Red með honum, en sú mynd fór beint á myndbandamark- aðinn. „Ég hef eiginlega ekkert gott um hann að segja. Rourke var í fangelsi um tíma fyrir líkamsárás á lögregluþjón og honum fylgir hópur aðdáenda sem hann hefur eflaust kynnst í fangelsinu. Við lentum í MICKEY Rourke er ekki líkleg- ur til vinsælda í kaffiboðum, enda lítt frýnilegur. vandræðum með þennan vinahóp Rourke því reynt var að nauðga dóttur manns sem átti höll sem myndað var í og það var einhver af íylgifiskum Rourke sem átti þar hlut að máli.“ -En segðu mér annað. Hefurðu aldrei unnið á þessu sviði héma á íslandi? „Ég vann svolítið við tónlistar- myndbönd, t.d. fyrir Sálina hans Jóns míns, áður en ég fór til Banda- ríkjanna, en það er það eina.“ -Varstu ekkert spenntur fyrir því að vinna hérlendis? „Ég er búinn að hitta kvikmynda- fólk hérna, en þetta er svo lítill markaður að ég sé ekki framtíð mína hér, þótt gaman væri að geta unnið að einhverjum smærri verk- efnum af og til. En úti í Los Angeles get ég lifað góðu lífi af því að vinna sjö mánuði á ári.“ Eins og að vera á vertíð - Nú gæti einhver haldið að þetta væri mikið hóglífí, að vinna bara sjö mánuði á árí? „Pá er nú reyndar ekki öll sagan sögð, því vinnan þessa sjö mánuði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.