Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Áratugur frá afnámi bjórbanns Áfengisneysla ungmenna jókst með til- komu bjórsins Þau tímamót urðu fyrir tíu órum, miðviku- daginn 1. mars 1989, að leyft var að selja áfengt öl á Islandi eftir 74 ára bjór- bann. Síðan hefur 1 . mars gjarnan verið nefndur bjórdagurinn og vita flestir hvað FRÁ bindindismóti í Galtalækjarskógi. Ljósmynd/Valdór Bóasson við er átt þótt engar skýringar fylgi. María Hrönn Gunnarsdóttir velti því m.a. fyrir sér hvort drykkjusiðir þjóðarinnar hefðu breyst með tilkomu bjórsins. % Hlutfall helstu áfengisflokka af heildarsölu áfengis á íslandi á ýmsum tímum Bjór Léttvín .Clorlrir drykkir I -85 -05 -15 -20 IFRÉTT sem birtist í Morgun- blaðinu daginn eftir að bjórsala varð heimil segir að látið hafi nærri að um 340 þúsund dósir af bjór hafi verið seldar úr verslun- um ATVR þennan fyrsta söludag. A fyrstu þremur dögunum var bjór seldur fyrir um það bil 60 milljónir króna, sem svarar til rúmlega 94 milljóna á verðlagi dagsins í dag. Heildarsala áfengis árið á undan nam um 4,2 milljörðum króna en þegar áfengissala fyrstu þrjá daga marsmánaðar árið 1989 er reiknuð til heils árs svarar hún til heildar- sölu upp á 7,3 milljarða króna. Þessar tölur einar segja vitanlega lítið um það hvort áfengissala og áfengisneysla hafi breyst í kjölfar þess að sala áfengs öls var leyfð en þær benda þó til þess að þjóðin hafi verið orðin nokkuð bjórþyrst. Fólk stóð jafnvel í biðröð fyrir utan verslanirnar um morguninn svo kátir voru menn með þessa ný- breytni. En þeir voi'u líka til sem ekki glöddust á þessum tímamótum og raddir þeirra, sem efast um að með því að aflétta bjórbanninu hafi þjóðin stigið heillaspor, hafa ekki þagnað. Meðal þeiiTa eru fjölmarg- ir bindindismenn, sem unnið hafa að fíkniefnavörnum. Unga fóikið hefur val Góðtemplararegla vai- stofnuð á Islandi árið 1884. Fyrir hennar áhrif var hert á lagasetningu vegna sölu áfengis árið 1887, þegar laga- frumvarp um veitingar og sölu áfengra drykkja var samþykkt. A þessum árum var opinber áfengis- málastefna á landinu smám saman að taka á sig mynd og var henni hvort tveggja ætlað að veita aðhald og vera til tekjuöflunar fyrir ríkis- sjóð. Mörg ákvæði lagafrumvarps- ins frá 1887 eru enn í gildi, óbreytt eða lítið breytt, rúmri öld síðar. Góðtemplarar vinna enn sem fyrr að bindindismálum og reyna þeir sífellt að finna nýjar leiðir í baráttu sinni við böl áfengis og annarra vímuefna með það meðal annars að leiðarljósi að fá ungt fólk til að hugsa sinn gang, minna það á að það hefur val um áfengislaust líf og til að reyna að seinka því í Sterkur og viðbúinn Morgunblaðið/Kristinn HÆTTURNAR eru fleiri núna en fyrir nokkrum árum, segir Valdór og minnir á að dreifing og sala vímuefna helst í hend- ur. Á árinu 1997 voru vínveitingaleyfi á landinu 444 en 80 tíu árum áður. VALDÓR Bóasson hefur starfað að bindindismálum á vegum góð- templarareglunnar frá árinu 1967 er hann „var polli í Kefla- vík“, eins og hann orðar það sjálfur, auk þess sem hann hefur í mörg ár tekið þátt í mótshaldi bindindismanna í Galtalæk. Hann er smíðakennari í Hamraskóla í Grafarvogi og er í nánum tengsl- um við börn og ungmenni, við- fangsefni þeirra og áhugamál, í gegnum kennarastarfið en einnig vegna starfa sinna að bindindis- málum. Um siðustu mánaðamót gerði hann sér ferð, fyrir hönd Stórstúku íslands, til Björgvinjar í Noregi þar sem hann sat ráð- stefnu um bindindismál og kynnti sér nýjar leiðir sem Norðmenn hafa verið að feta sig eftir und- anfarin þijú ár. Vaxandi áhugi sveitarfélaga „Bindindi á nú ekki uppi á pall- borðið í þjóðfélaginu," segir Val- dór um leið og hann rifjar upp að heldur fleiri hafi verið virkir í bindindishreyfingunni þegar hann var strákur en nú, þrjátíu árum síðar. Hann bendir þó á að ýmis sveitarfélög hafi að undan- förnu sýnt forvörnum í vímu- efnamálum og bindindismálum vaxandi áhuga. í Grafarvogi sé t.d. unnið að þessum málum und- ir yfirskriftinni Grafarvogur í góðum málum og svipaða sögu sé að segja frá Suðurnesjum og víð- ar. „Vonandi getum við gengið inn í það starf með tímanum því við höfum mikla reynslu af for- vörnurn," segir hann. „Forvarnir eru náttúrlega allt félagsstarf barna og unglinga þar sem þau eru svo virk að þau hugsa ekki einu sinni um hluti eins og vímuefni," segir Valdór einnig. Ýmsar aðferðir hafa verið not- aðar til að vekja ungt fólk til um- hugsunar þegar vímuefni, lögleg sem ólögleg, eiga í hlut. Einn þeirra er að stunda hræðsluáróð- ur en sjálfur hefur Valdór meiri trú á öðrum forvörnum. „Við er- um að reyna að sinna forvarnar- starfi án þess að skrattinn sé málaður á vegginn. Við viljurn hafa félagsstarf ungmenna það kröftugt að þau geri sér grein fyrir vandanum strax. Nýlegar rannsóknir sýna að ef við getum frestað því að 14 ára unglingur byrji að nota áfengi þar til hann verður 17 til 18 ára getum við minnkað líkurnar á því að hann leiðist út í notkun annarra efna um tugi prósenta." Viti hvar börnin eru Þótt góðtemplarareglan sé orðin meira en aldar gömul lireyfing leitar hún sífellt nýrra leiða til að stuðla að bindindi og þá ekki síst unga fólksins. Bind- indishreyfingin í Noregi er að sögn Valdórs mjög sterk, sér- staklega í Björgvin og nágrenni. Þar hafa menn reynt nýtt form forvarna sem byggist á góðu samstarfi foreldra og ungmenna. Átakið heitir þar í landi Klar og sterk en er á íslensku kallað Sterkur og viðbúinn. Verkefnið er undirbúið af ungmennahreyf- ingu Stórstúku Islands en grunn- skóium, sveitarfélögum og öðr- um sem starfa með ungmennum landsins er boðið að taka þátt í verkefninu. „Þátttaka í Noregi er um 20-30% í þeim unglingadeild- um þar sem verkefnið hefur ver- ið tekið upp. Við erum að vona að okkur takist að fá fleiri til að vera með,“ segir Valdór. Góðtemplarar hugsa sér að átakið styrki foreldra í uppeldis- hlutverki sínu. „Bestu og árang- ursríkustu forvarnirnar hefjist heima. Verkefnið byggist á því að foreldrar afsali sér ekki for- eldrahlutverkinu heldur viti alltaf hvar börnin þeirra eru, hvað þau eru að gera og með hveijum þau eru,“ útskýrir hann. Hugmyndina að átakinu á norskur uppeldisfræðingur, Odd- var Björnestad að nafni. Hann hefur starfað með ungmennum í vanda til fjölda ára og verið skólastjóri í sérskóla sem norska ríkið rekur fyrir ungmenni með hegðunarvandamál. Undanfarin ár hefur Björnestad einkum sinnt fyrirbyggjandi starfi með börn- um og unglingum þar sem hann hefur lagt höfuðáherslu á hlut- verk fullorðinna í því sambandi. Átakið Klar og sterk er einmitt á þeim nótum. Burt með tvískinnunginn Áætlað er að íslenska átakið Sterkur og viðbúinn hefjist með vorinu og er undirbúningur þess nú á lokastigi. Foreldrum barna í 8. bekk grunnskólans er boðið að taka þátt í átakinu, sem stendur yfír í þijú ár allt þar til grunn- skólanámi lýkur. Á þessum þremur árum sinna foreldrar ákveðnum verkefnum í félagi við aðra foreldra og með börnunum sínum. Foreldrar fá til að mynda tækifæri til að læra hvernig hægt er að tala um viðkvæm málefni í fjölskyldunni og um leiðir til að takast á við óæskilega hegðun barna sinna. Einnig er kynnt hvernig foreldrar geta unnið saman og komist að samkomu- lagi uin reglur á borð við úti- vistarreglur og hvemig þeim skuli framfylgt. „Allir þekkja hvernig börn og unglingar reyna að telja foreldr- um sínum trú um að vinir þeirra og kunningjar hafi rýmri reglur en þau sjálf. Þegar til kastanna kemur er það yfírleitt ekki rétt. Verkefninu er m.a. ætlað að hjálpa foreldrum að fást við þetta,“ segir Valdór. Hann segir einnig að ætl- unin sé að vekja foreldra til umhugsunar og varpa Ijósi á þann tvískinnung sem ríkir í þjóðfélaginu gagnvart neyslu vímu- efna. Þessi tvískinnungur segir hann að birtist m.a. í því að sumir foreldrar kaupi áfengi fyrir börnin sín í þeirri trú að með því móti komi þeir í veg fyrir að þau neyti landa eða annarra vímuefna. Við- horf foreldra til áfengis- notkunar almennt skipta miklu máli og segir Val- dór að verkefnið eigi að minna foreldra á það. Valdór segir enn frem- ur að unglingum sem standi sig vel verði umb- unað t.d. með spennandi og óhefðbundnum verð- iaunum. Oft vill gleymast að hampa þeim sem eru til fyrirmyndar en óláta- belgjunum einum hrósað þegar þeim tekst að snúa af villu síns vegar, segir Valdór. Áætlað er að fyrsta ár- ið sé þátttaka í verkefninu ókeypis en síðan þurfi að greiða ákveðið þátttökugjald enda er gert ráð fyrir að ef vel tekst til geti umfang verkefnisins orðið svo mikið að ráða þurfi starfsfólk til að halda utan um það. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér átakið nánar geta haft samband við skipuleggjendur þess í síma 863 8333 milli klukk- an 17 og 19 alla virka daga. Þá geta þeir sem hafa aðgang að Netinu litið inn á heimasíðu norsku góðtemplarareglunnar en slóð hennar er http://www.iogt.no/.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.