Morgunblaðið - 28.02.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
Á árinu 1989 höfðu
126 aðilar leyfi til vín-
veitinga á landinu öllu
en árið 1997 voru
þeir orðnir 444.
lengstu lög að ungt fólk bragði
áfengi í fyrsta sinn.
Miklar breytingar
með tilkomu bjórsins
„Tilkoma bjórsins 1. mars 1989
hafði í fór með sér miklar breyting-
ar,“ segir í ritinu Afengis- og fíkni-
efnamál á Islandi, þróun og staða,
sem Fræðslumiðstöð í fíknivörnum
gaf út á síðasta ári. Heildarsala
áfengis hafði verið tiltölulega
stöðug á árunum 1970 til 1989 en
heildameysla, mæld í hreinum vín-
anda, jókst aftur á móti um 23%
milli áranna 1988 og 89. Skráð
áfengisneysla hefur reyndar aldrei
verið meiri. Fjórum árum síðar var
hún komin niður í það sem hún var
1988. Frá árinu 1993 hefur áfengis-
neysla aukist á ný og var hún sam-
kvæmt opinberum sölutölum 3,6
lítrar af hreinum vínanda á hvern
íbúa árið 1995. Tölur síðari ára era
ekki fyllilega sambærilegar við töl-
ur frá áranum fyrir 1995, að því er
segir í ritinu, þar sem lögum um
heildsölu áfengis var þá breytt.
Hlutfall sterkra drykkja í heild-
arsölu áfengis hefur minnkað tölu-
vert frá því farið var að leyfa sölu á
bjór. Árið 1988 var hlutur sterkra
vína af heildarsölunni 77% en ári
síðar 53%. Fyrst eftir að bjórbann-
inu var aflétt minnkaði sala á létt-
um vínum en hin síðari ár hefur
hlutfall þeirra aukist með hverju
árinu.
Heildarneysla áfengis hefur auk-
ist veralega í flestum löndum
heims, segir í áðurnefndu riti. Lúx-
emborgarbúar keyptu þjóða mest
af hreinum vínanda á árinu 1994
eða 12,5 lítra á hvern íbúa. Hver
Islendingur keypti aftur á móti 3,5
lítra. Munurinn felst í því að Lúx-
emborgarbúar drekka meira af
léttum vínum og áfengu öli en fs-
lendingar. Ef sala á sterku áfengi
er borin saman milli landa sést að
sala á sterku áfengi á hvern íbúa er
ekki tiltölulega mikil á íslandi og
er hún svipuð og t.d. í Bandaríkj-
unum, Kanada og Japan. íslend-
ingar drekka á hinn bóginn ekki
mikið af léttum vínum og bjór sam-
anborið við aðrar þjóðir. íslending-
ar stilla sér aftur á móti upp við
hliðina á íbúum Sovétríkjanna fyrr-
verandi og Pólverjum þegar hlut-
fall sterkra drykkja í heildarneyslu
áfengis er athugað og er, á árinu
1994, með því hæsta sem þekkist.
Fáir velja bindindi
Vínveitingahúsum hefur fjölgað
mjög frá því bjórbanninu var aflétt.
Á árinu 1989 höfðu 126 aðilar leyfí
til vínveitinga á landinu öllu en árið
1997 vora þeir orðnir 444. Ekki era
til nákvæmar tölur um fjölda leyfa
eins og stendur þar sem ný lög,
t — Blöndunaríæki
Hitastilltu Mora Mega
blöndunartækin fyrir bað tryggja
öryggi og þægindi. Mora Mega er
árangur margra ára vöruþróunar
og betrumbóta.
Mora sænsk gæðavara
Heildsöludreifing:
TEndehf
Smiðjuvegi 11. Kópavogi
Sími 564 10S8.íax564 1089
SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 29
áfengislög nr. 75/1998, hafa tekið
gildi en reglugerð sem kveður nán-
ar á um veitingu leyfanna hefur
enn ekki verið gefin út. í svipinn er
því eingöngu hægt að veita bráða-
birgðaleyfi. Samkvæmt nýju lögun-
um er það á könnu einstakra sveit-
arstjórna að veita leyfi til vínveit-
inga. Vínbúðum á landinu hefur
einnig fjölgað mikið á undanfórn-
um áram og era þær nú orðnar 26
að tölu. Árið 1985 voru þær 12.
Geðdeild Landspítalans kannaði
drykkju meðal ungs fólks á aldrin-
um 13-19 ára um hálfu ári áður en
sala bjórs varð leyfileg, hálfu ári
eftir og loks haustið 1992. Var það
gert til að athuga hvort tilkoma
bjórsins hefði áhrif á drykkju og
drykkjuvenjur Islendinga. Þátttak-
endur voru valdir af handahófi úr
þjóðskrá og var svarhlutfall í öllum
þremur um 80%. Samkvæmt könn-
ununum höfðu 90% ungmenna á
aldrinum 16-19 ára einhvem tíma
neytt áfengis þannig að hlutfall
þeirra sem velja bindindi er ekki
hátt.
Niðurstöður rannsóknarinnar
leiddu í Ijós að neytendum í þess-
um aldurshópi fjölgaði ekki með
tilkomu bjórsins. Aftur á móti kom
í ljós að áfengisneysla þeirra jókst
verulega eða sem svarar til 57%
þegar búið var að umreikna yfir í
hreint áfengi. Neysla ungmenna á
áfengu öli margfaldaðist eftir 1.
mars 1989, samkvæmt niðurstöð-
um rannsóknarinnar, en ekki á
kostnað sterkra vína þar eð neysla
á þeim jókst einnig. Það er því ljóst
að drykkja ungmenna hefur aukist
og þeir verða að jafnaði ölvaðri en
áður.
Rannsóknir sýna svo ekki verður
um viOst að tengsl ungmenna við
foreldra sína skipta miklu máli þeg-
ar áfengisneysla á í hlut. Ekki kem-
ur á óvart að því nánari sem þau
era því minna drekkur ungmennið
af áfengum drykkjum. Það sama
verður og sagt um eftirlit foreldra
með bömum sínum, því betur sem
þeir fylgjast með þeim því minni
drykkja. Enda segir í lokaorðum
ritsins Áfengis- og fíkniefnamál á
Islandi: „Hlutverk foreldra í for-
vörnum kemur skýid, fram í rann-
sóknum. Þeir era fyrirmyndir og
hafa áhrif á börn sín sem félagar
þeirra. Samverastundir og gott
samband við börnin era eitt af lyk-
ilatriðum í því að minnka líkur á
neyslu - reykingar og tíð ölvun
þeirra að bömum eða unglingum
ásjáandi auka líkm-nar á neyslu.“
Veggljós / Loftljós
Fákafeni 9 Reykjavík
Sími 568 2866
#>ÍfS§í!íÍ|
Portú
r . .
fAallorca
6- *«P'
Aiwawn
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 568 2277 • Fax 568 2274 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
FERÐIR
Akranes ísafjörður Akureyri Selfoss Keflavík
Kirkjubraut 3 Vesturferðir, Aðalstræti 7 Ráðhústorg 3 Suðurgarður hf., Austurvegi 22 Hafnargötu 15
S: 431 4884 • Fax: 431 4883 S: 456 5111 • Fax: 456 5185 S: 462 5000 • Fax: 462 7833 S: 482 1666 «Fax: 482 2807 S: 421 1353* Fax: 421 1356
Borgarnes Sauðárkrókur Höfn Vestmannaeyjar Grindavík
Vesturgarður, Borgarbraut61 Skagfirðingabraut 21 Jöklaferðir, Hafnarbraut Eyjabúð, Strandvegi 60 Flakkarinn, Víkurbraut 27
S: 437 1040« Fax: 437 1041 S: 453 6262/896 8477 • Fax: 453 5205 S: 478 1000-Fax: 4781901 Sími 481 1450 S: 426 8060 »Fax: 426 7060
Fæst í byggingavðruverslunum um landallt.