Morgunblaðið - 17.03.1999, Síða 24

Morgunblaðið - 17.03.1999, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Saga Reykjavíkur 1940-1990 Sveitin í bænum lengi fyrir- ferðarmikil „ÞAÐ sem kom mér hvað mest á óvart er hvað sveitin í bænum er lengi fyrirferðar- mikil og hve mikil áhrif hún hefur á þró- un byggðarinnar - jafnvel í miðbænum eru kýr fram á miðjan sjötta áratuginn," seg- ir Eggert Þór Bem- harðsson sagnfræðing- ur. Hann er höfundur bókarinnar Saga Reykjavíkur - Borgin 1940-1990, sem kom út nýverið. Bókin er í tveimur bindum, telur hátt í þúsund blaðsíður og er prýdd um 1.500 ljósmyndum, sem margar hveijar hafa aldrei birst áður opinberlega. I heild liggur um tíu ára vinna að baki verkinu en ákveðið var að ráð- ast í það í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar 1986. Sjálfur er Eggert Þór fæddur í Reykjavík árið 1958 og kveðst því ekki þekkja tímabilið nema að hluta til af eigin raun. „Eg náði þó í skottið á Tívolí, var í Nauthólsvík- inni og var frumbyggi í Breiðholt- inu, þannig að það er ýmislegt sem maður þekkir af þessu. En fyrir mig sem malbiksbam sem aldrei fór í sveit kom þetta nokkuð á óvart,“ segir hann. Hann bendir á að um 1940 hafi meirihluti Reykvíkinga verið fædd- ur utan Reykjavíkur, og um 1950 sé enn rúmur meirihluti borgarbúa fæddur utan Reykjavíkur. „Það er ekki fyrr en á milli 1955 og 1960 sem „innfæddir“ verða fleiri en að- fluttir. Og það er vegna þess að bamasprengingin svokallaða er komin í gang,“ útskýrir Eggert Þór. „Þannig að á þessum tíma em Reykvíkingar á starfsaldri margir komnir úr sveitum landsins og þeir halda tryggð við upprana sinn, sem sést mjög greinilega á uppgangi og vexti og blómlegri starfsemi átt- hagafélaganna í bænum. Margir þeirra vilja líka halda í upprunann með því að vera með einhvem búpening; þeir era með kindur, kýr og hesta, eða þeir stunda læktun af miklu kappi,“ heldur hann áfram. Aðspurður um upp- byggingu bókanna segir Eggert Þór að hann hafí fljótlega ákveðið að hafa verkið þemaskipt, en í upp- hafi hafi það reyndar verið tímaskipt. „Eg sá fijótt að það var miklu skynsamlegra að vinna þetta í þemum, bæði fyrir mig sem rannsak- anda, til þess að ná ut- an um tiltekin efni, og ekki síður fyrir lesandann að fá á einum stað ineginumfjöllunina um tiltekið efni, frekar en að þurfa að leita að því á mörgum tímabilum," segir hann. Eggert Þór hafði úr nógum heimildum að moða og raunar seg- ir hann í aðfararorðum að eitt af því sem valdi erfiðleikum í sam- tímasögu séu heimildirnar, ekki fæð þeirra heldur ofgnótt. Sjálfur lagði hann þó einnig í allmiklar grannrannsóknir, t.d. á lífi barna og unglinga í borginni og einnig á tæknivæðingu heimilanna, sem hafði víðtæk áhrif á stöðu kvenna og möguleika þeirra til aukinnar þátttöku á vinnumarkaðinum. Þar leitaði hann m.a. fanga í alþýðleg- um skemmtiritum og ýmsu útgáfu- efni sem lýsandi er fyrir lífsviðhorf og aðstæður á tímabilinu. Hinar svokölluðu kvennasíður dagblaða, vikublaða og tímarita segir hann hafa verið sérstaklega forvitnilegar og upplýsandi um stöðu kvenna og ijölskyldunnar. Mýkri málin í seinna bindinu Höfundurhm segir ákveðinn blæ_- brigðamun á bindunum tveimur: „I fyrra bindinu era tiltölulega hefð- bundnir málaflokkar; atvinnumál, sljórnmál, húsnæðis- og skipulags- mál, borgarmyndunin hið ytra og Eggert Þór Bernharðsson STELPUR í „parís“. Ljósmyndarinn er óþekktur en myndin er varðveitt á Þjóðminjasafni Islands. sveitin í bænum. I seinna bindinu eru mál sem minna liefur verið fjallað um, mýkri málin svokölluðu; fjölskyldan, börnin, heimilin, vel- ferðarmálin, menningarmál og skemmtanalíf, íþróttir, æskulýðs- starf og skólamál," segir hann. Eins og fyrr sagði er mikill fjöldi mynda af ýmsu tagi í bókun- um. Þær era fengnar úr ýmsum áttum; frá opinberum söfnum, einkasöfnum, ýmsum stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum, blöðum og tímaritum. Flestar eru myndirnar þó fengnar að láni hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Þjóðminjasafni íslands. Eggert Þór segir myndavinnuna hafa ver- ið mjög erfiða að mörgu leyti. „Ekki síst vegna þess að þar sem þetta er tiltölulega nálægt okkur í tíma, þá eru ansi margar myndir dreifðar út um víðan völl. Það kemur líka á óvart hve sumar at- vinnugreinar era illa settar, til dæmis var afar erfitt að finna myndir tengdar iðnaði. Eins var mjög erfitt að finna inyndir sem voru teknar úti á sjó af mönnum að störfum um borð í togurunum. Það var mikil heppni að það kom í ljós í einkasafni heil myndasería frá 1952, sem sýnir sjómenn að störfum á togara," segir hann. „Allt nema Esjan“ Honum verður tíðrætt um þær hröðu breytingar sem íslenskt þjóðfélag hefur gengið í gegnum á mjög skömmum tfma, sé miðað við flestar nágrannaþjóðir okkar. „Hér verður nánast stökkbreyting á nokkram áratugum," segir Egg- ert Þór og tekur svo djúpt í árinni að hraðinn sé eitt megineinkenni íslenskrar þjóðfélagsþróunar á seinni hluta þessarar aldar. Því til stuðnings vitnar hann til orða eins heimildarmanna sinna. Þegar inn- fæddur Reykvíkingur á miðjum aldri var spurður að því árið 1980 hvort eitthvað hefði breyst í Reykjavík frá því hann sleit þar barnsskónum á öðrum og þriðja áratug 20. aldar var liann fljótur að svara: „Allt nema Esjan.“ Eggert Þór flytur erindi um bókina á rannsóknakvöldi Félags íslenskra fræða í Skólabæ í kvöld kl. 20.30, undir yfirskriftinni Borg í mótun. Leiki sem kölluðu á tiltölu- lega lítið landrými stundaði Reykjavíkuræskan ekki síður af miklum móð en knatt- og hlaupaleiki ýmiss konar. Fram á unglingsár virtist t.d. „parís“ eiga einna mestum vinsældum að fagna af útileikjum stúlkna, aðallega „gluggaparís“. Parísinn var stór- strikuð mynd dregin á götu eða gangstétt, strikuð í sandinn eða krít- uð á stétt og steini var kastað eftir tilteknum reglum í gluggana. Síðan hoppaði viðkomandi á öðrum fæti eftir ákveðinni leið og keppendur gátu helgað sér glugga sem aðrir urðu að sniðganga. Mikils þótti um vert að eiga góðan parísarstein, vel lagaðan, flatan, sléttan og ekki of hálan. Strákar iðkuðu sérstakt af- brigði af parís, svonefndan „landaparís", sem var ekki alveg hættulaus því „löndum“ var skipt með því að kasta hníf í moldarflag. Algengt var að drengir ættu vasa- hnífa eða dolka og þóttist sá heldur betur maður með mönnum sem gat flíkað flottasta eggvopninu. Aðrir leikir sem stelpur voru sérstaklega áhugasamar um voru t.d. „snú-snú“ en þær „sippuðu" líka af krafti. Úr Sögu Reykjavíkur - Borgin 1940- 1990, síðari hluta.. túlkun tilfinninga Víðfeðm TOJVLIST S a 1 u r i n n EINSöNGSTÓNLEIKAR Jóhann Smári Sævarsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir fluttu íslensk og erlend söngverk. Mánudagurinn 15. mars. 1999. EINN þeirra söngvara, sem hef- ur haslað sér völl erlendis, er Jó- hann Smári Sævarsson, bassa- söngvari, sem hefur m.a. starfað við óperuna í Köln en stýrir nú söng- deild Tónlistarskólans á Akureyri. Með Jóhanni Smára var Helga Bryndís Magnúsdóttir mætt til leiks í Salnum sl. mánudagskvöld og hófu þau tónleikana á þremur ljóða- söngvum eftir Brahms, 0 wiisst ich doch den Weg zuriick (úr op. 63) Vergebliches Standchen (úr op.84) og Von ewiger Liebe (úr op. 43). Það mátti heyra stax í forspilinu að Helga Biyndís er góður píanisti og Brahms allur mjög vel leikinn. Söngur Jóhanns var einnig mjög vel mótaður, treginn í fyrsta laginu, glettnin í mansöngnum og í því stóra söngverki, Von ewiger Liebe, þar sem dimm sorgin er túlkuð, hrópandi örvænting piltsins og síð- an svar stúlkunnar, var söngur Jó- hanns Smára mjög góður. Þrír ljóðasöngvar eftir Schumann fylgdu á eftir, Du bist wie eine Blume (nr. 24, í op. 25), Ich grolle nicht (nr. 7, í Dichterliebe) og Die beiden Grenadiere (úr op.49), allt snilldarverk hvert upp á sinn máta, þar sem tónmálið var mettað djúpri viðkvæmni, fjallað um ástina og í sagnaljóðinu, þar sem sungið var um fáránlegan hetjuskap. Þessar andstæður hjá Heine, sem eru af- burðavel tónklæddar af Schumann, voru mjög vel mótaðar hjá Jóhanni Smára en í síðasta söngverkinu, „Grenjadýrunum“, hefði Helga Bryndís mátt leika sterkar, er hefði gefið þessu söngverki meiri kraft. Islensku lögin voru sérlega vel flutt og lögin eftir Arna Thorsteins- son, Enn ertu fögur sem forðum og Rósin, eru meistaralega vel gerð tónverk. Sama má segja um Þig, sem í fjarlægð, eftir Karl Ottó Run- ólfsson og í Nirflinum, var leikræn túlkun Jóhanns mjög skemmtilega mótuð. Sverrir konungur eftir Sveinbjöm Sveinbjömsson var fluttur af mikilli reisn, en þar eins og í „Grenjadýrunum", var Helga Bryndís of mikið til baka, en lék að öðm leyti mjög vel. Gamanlagið Tengdamæðurnar eftir Atla Heimi Sveinsson var einum of hratt sung- ið. Eftir hlé vora tveir lagaflokkar á efnisskránni, Söngvar don Quixote til Dulcineu, eftir Ravel og Söngvar og dansar dauðans, eftir Muss- orgsky. Hjá Ravel verða þessir skringisöngvar háalvarleg tónlist, sérstaklega bænin en í drykkju- söngnum er þó leikið með gaman- semina. Þarna ræður miklu hversu túlkunin er nærri því fáránlega en túlkun hjá Jóhanni Smára var nær því of alvarleg, nema helst í drykkjuvísunni, sem var mjög vel flutt. Söngvar og dansar dauðans, eftir Mussorgsky er grályndur skáld- skapur, bæði texti og tónlist, og var þessi sérstæði lagaflokkur mjög vel fluttur, t.d. tilfinningaþrangnar andstæðumar í Vögguvísunni og í síðasta söngnum, Hershöfðinginn, þar sem orrustugnýrinn er túlkaður og kyrrðin, sem ríkir þá henni er lokið og dauðinn sækir sína menn. Það sem helst einkenndi þessa tónleika, var víðfeðm túlkun tilfinn- inga og leikrænnar útfærslu, allt frá ofur viðkvæmum söngvum, eins og í báðum lögum Árna Thorsteinsson- ar, Du bist wie eine Blume, eftir Schumann og svo í stórbrotnum ást- arljóðum, eins Von ewiger Liebe, eftir Brahms og leikrænum sagna- ljóðum Vergebliches Standchen, eftir Brahms og „Grenjadýranum" eftir Schumann. Ofan á þetta bæt- ast hinir dauðadimmu söngdansar Mussorgskys, er voru gæddir ómennskri rússneskri dramatík. í þessari margbreytilegu efnisskrá lék Helga Bryndís frábærlega og átti stóran þátt í mótun tónleikanna. Jón Asgeirsson Tdnlist fyrir alla Djasstón- leikar á Suð- urnesjum Á VEGUM verkefnisins Tónlist fyiir alla heldur Jazzkvartett Reyjavíkur tónleikasyrpu á Suður- nesjum. Fyrstu tónleikarnir verða í Ytri-Njarðvíkurkirkju á morgun, fímmtudag kl. 20.30 og í Sam- komuhúsinu Garði mánudaginn 22. mars kl. 20.30. Kvartettinn er skipaður Sigurði Flosasyni, altó- saxófónn, Tómasi R. Einarssyni, kontrabassi, Eyþóri Gunnarssyni, píanó og Gunnlaugi Briem, trommur. Á lyrri tónleikunum syngur Stúlknakór Tónlistarskól- ans í Keflavík með kvartettnum lög eftir Sigfús Halldórsson í út- setningu Sigurðar Flosasonar. Kvartettinn leikur djass-stand- arda eftir ýmsa erlenda höfunda ásamt íslenskum og erlendum al- þýðulögum. Tónlist fyrir alla er samstarfs- verkefni sveitarfélaga og mennta- málaráðuneytisins með stuðningi Norðmanna. ------♦-♦-♦--- Kvennakórstón- leikar á Hvoli KVENNAKÓRINN Ljósbrá held- ur tónleika í Hvoli, Hvolsvelli, föstu- daginn 19. mars kl. 21. Tilefnið er 10 ára afmæli kórsins á þessu ári. Með kórnum koma fram ein- söngvararnir Eyrún Jónasdóttir, Margrét Bóasdóttir og Maríanna Másdóttir. Maríanna mun auk þess leika á þverflautu. Stjórnandi kórisins er Jörg Sond- erman. Kórfélagar eru um þrjátíu. GARÚN hefur geflð gömlu kirkjugluggunum úr Ólafsfjarð- arkirkju nýtt hlutverk. Gamlir kirkju- gluggar í Bílar & list NU stendur yfir sýning Garún- ar (Guðrún Þórisdóttir) á nýjum verkum í Bflar & list, Vega- mótastíg 4. Garún málar á gamla kirkjuglugga úr Ólafs- fjaðarkirkju, þar sem kynjaver- um bregður fyrir, segir í frétta- tilkynningu. Garún útskrifaðist frá Mynd- listaskóla Akureyrar árið 1994. Hún hefur tekið þáttí nokkrum samsýningum, en þetta er henn- ar níunda einkasýning. Sýningunni lýkur 8. aprfl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.