Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 25 Morgunblaðið/Golli starfi læknisins, verið læknir og læknað fólk, í öðru lagi að búa til nýja þekkingu með því að stunda rannsóknir og loks að koma þekking- unni á framfæri með því að vera kennari. Eg fékk tækifæri til að gera þetta alltsaman. En auðvitað var það ekki fyrirhafnarlaust, það var slagur að koma sér upp rannsóknarstofu til að geta stundað þessar rannsóknii-. Eg var svo heppinn að vinna með frábæru samstarfsfólki, ekki er þar síst Helga Erlendsdóttir sem þá var nýlega komin heim til Islands ásamt eiginmanni sínum Sigurði Arnasyni, sem hafði verið í framhaldsnámi í krabbameinslækningum. Helga hafði unnið við rannsóknir í Uppsöl- um og ég hafði heyrt af starfi hennar meðan ég enn var í Madison. Eftir að hún kom heim tókst með okkur mik- ið rannsóknarsamstarf sem staðið hefur óslitið síðan.“ Hvers vegna landlæknir? En af hverju skyldi Sigurður, sem greinilega hafði lifað sig mikið inn í starf sitt sem læknir, rannsóknar- maður og kennari, hafa viljað verða landlæknir? „í fyrsta lagi hafði ég dregist nauðugm- viijugur inn í fjórðu hlið læknisstarfsins, sem er stjómun- arstörf og nefndarstörf ýmiskonar. Ég var fljótt kominn í alls konar nefndir fyrir hönd spítalanna og tengdist Rannís og fann að þetta þótt mér talsvert gaman. Einkum að hafa þannig áhrif á ákvarðanir og það sem verið var að gera. Fyrir einum fjórum árum var farið að tala um það við mig hvort ég vildi ekki sækja um starf landlæknis þegar það losnaði. Ég tók þetta lítið alvarlega fyrst en fór að hugsa málið efth- að hafa leyst hér af um tíma meðan hinn ágæti læknir og frændi minn Ólafur Ólafsson var enn landlæknir. Ég fann að margt í þessu starfi væri mjög áhugavert og að það byði upp á gífurlega möguleika, ekki síst í rannsóknum. Landlæknisemb- ættið hefur aðgang að heilsufai-supp- lýsingum landsmanna, það safnar alls kyns upplýsingum um heilsufar og mikið og gott starf hefur verið unnið við að koma þeim á framfæri. Ég sá möguleika á að gera það í enn ríkara mæli og standa hér, á grundvelli þessa embættis, að rannsóknum í far- aldsfræði sem ekki bai-a nýttust okk- ur íslendingum heldm- gætu haft al- þjóðlega skírskotun. Eitt af því sem mig dreymdi um var að búa til ein- hvers konar „lífheilsu-rannsóknai'- stofnun“. Maður verður alltaf að eiga sér drauma og markmið til að stefna að. Fordæmi þessa kemur víða að m.a. frá Bandaríkjunum og Finn- landi. Ég hafði heimsótt slíka stofnun í Finnlandi og hún var beinlínis eins og „töluð út úr mínu hjarta". Þai' eru gerðar rannsóknir af ýmsu tagi sem eru mjög virtar og vitnað er til víða um heim. Ég sá að við ættum kost á að gera jafnvel enn betur hér á ís- landi. Loks fannst mér spennandi að eiga þess kost að skipta um starf þeg- ar ég stæði á fimmtugu - mér fannst það ákveðin ögrun - því ekki að slá til?“ Það var þó ekki sársaukalaust fyr- ir Sigurð að taka þessa ákvörðun, hann kveðst sjá eftir ýmsu úr sínu fyrra starfi. „Það er mjög gefandi að vera starfandi læknir, bæði í sorgum og þegar vel gengur,“ segir hann. „Það situr vissulega lengi í manni þegai- hræðilegir hluth' gerast, eins og þegar ungt fólk deyr úr bakteríu- heiiahimnubólgu, svo við tökum skelfíleg dæmi. En á móti kemur að það er óskaplega gaman þegai' vel gengur og lækning tekst. Það er ekki aðeins læknirinn sem gefur, sjúklingarnir gefa líka. Læknirinn þroskast og lærh' af sjúklingum sín- um. Fólk sem maður hefur sinnt mjög lengi verður vinir manns. I stai’fi mínu sem smitsjúkdómalæknir sinnti ég HlV-smituðum sjúklingum, fylgdi þeim eftir árum saman, sá suma þeirra deyja og aðra „taka sæng sína og ganga“. Það var erfitt að fara frá þessum hóp manna. Mér þótti líka gaman að kenna og ég reyni að halda því áfram. Ég fer enn upp á spítala til að kenna, það er fátt skemmtilegra en vinna með ungum stúdentum og áköfum og fróðleiks- fúsum ungum læknum. Rannsókn- irnar ætla ég líka að reyna að halda áfram að vinna við.“ Afstaða Sigurðár í gagnagrunnsmálinu Landlæknir hefrn' löngum þurft að taka afstöðu í mörgum erfiðum mál- um, en sjaldan hefur framboð slíki'a mála verið slíkt sem nú og hafa sum þeirra ekkert fordæmi. Má þar nefna gagnagrunnsmálið sem svo miklar og margvíslega umræður hafa snúist um og gera enn. Hvaða afstöðu ætli Sig- urður Guðmundsson hafi til þess máls? „Ég hef jákvæða afstöðu til hugmyndarinnar. Það kemur líklega til af mínum rannsóknaráhuga. Ég sé þessa hugmynd sem rannsóknartæki sem getur gagnast okkur íslending- um verulega, ekki bara á sviði erfða- sjúkdóma heldur líka í fai-aldsfræði og fleiru. Sú hugmynd er ekki ný að tölvuvæða heilbrigðiskerfið og nota þær upplýsingar til að stunda rann- sóknir. Ég tók fyrst þátt í umræðum um þetta á Egilsstöðum fyrir tuttugu ái'um þegar ég var héraðslæknir þai'. Það vai’ Guðmundur Sigurðsson sem hreyfði fyi’stur þessu máli hér á landi, hann er réttnefndur faðir tölvuvæð- ingar íslenska heilbrigðiskerfisins. Hann byi'jaði á svokallaðri Egils- staðarannsókn, sem var sett inn í tölvu árið 1976. Tilgangurinn var að gera vinnuna auðveldari og geta jafn- framt nýtt upplýsingar með því að búa til nýja þekkingu. Það sem er nýtt við gagnagrunnsmálið eins og það kemur nú upp er greiðslumátinn - hvemig á að fjármagna fram- kvæmdina.“ En hvemig kann Sigurð- ur við einkaleyfishugmynd gagna- gnmnslaganna? „Hún hefur einna helst staðið í mér og reyndar mörgum öðrum,“ svai'ai' hann. „Við verðum þó í þessu samhengi að muna að þótt rekstarleyfishafinn, hver sem það verður, hafi einkaleyfi í tólf ár, þá er samt sem áður mögulegt að nálgast þessar upplýsingai' í sjúki-agögnum á spítölum, heilsugæslustöðum o.s.frv. Gagnagrannur er í raun afrit af þeim upplýsingum sem þai' koma fram, frumgögnin verða áft-ain til á sínum stað og þar aðgengilegar fyrir þá sem þurfa að nota þær í rannsóknarskyni. Samkvæmt gagnagrunnslögum hafa heilbrigðisyfirvöld fullan aðgang að gagnagrunninum þrátt fyrii' einka- leyfið og það hafa starfsmenn heil- brigðiskerfisins hka, aðilai' munu Pallbílaeigendur Þeir sem hafa áhuga á að panta pallbíla fyrir sumarið hafið samband við okkur hið fyrsta: Höfum enn fjölbreyttara úrval og nýjar gerðir að bjóða. Pallhús sf., Ármúla 34, símar 553 7730 og 561 0450 nýtt PRJÓNABLAÐ Prjónablaðið Ýr kem tinna simi 565 4610 léösteffnci ubíi vinmimcirkcjisméi I Hvert stefnir í vinnumarkaðsmólum ó nýrri öld? | Fimmtudaginn 25. mars verður haldin róðstefna um vinnumarkaðsmál á Hótel Sögu, þingsal A, 2. hæð kl. 13.00-17.00. Sex sérfræðing- ar á sviði vinnumarkaðsmála munu þar flytja erindi. Að þeim loknum verða pallborðsumræður. Meðal annars verður leitað svara við eftirfarandi spurningum: • Hvert er vinnuviðhorf Islendinga? • Hvernig verða kjarasamningar á næstu öld? • Er menntun fjárfesting? Framsögumenn verða: • Er sveigjanleiki á íslenskum vinnumarkaði? • Hvaða áhrif hafa tilskipanir Evrópusambandsins á íslenska vinnumarkaðinn? • Hvert verður hlutverk samtaka vinnumarkaðarins á nýrri öld? Fundarstjóri verður Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Viðskiptaháskólans í Reykjavík ■ Vinnuviðhorf íslendinga á nýrri öld María J. Ammendrup, félagsfræðingur og sérfræðingur við Félagsvísindastofnun HÍ. 9 Kjarasamningar framtíðarinnar Gunnar Páll Pálsson, hagfræðingur VR. 81 Störf við sjávarsíðu og til sveita - Vinnumarkaður utan höfuðborgarsvæðisins Ingi Rúnar Eðvarðsson, vinnufélagsfræðingur og dósent við Háskólann á Akureyri. Ml Áhrif vinnutímatilskipunar ES á íslenskan vinnumarkað Lárus Blöndal, vinnumarkaðsfræðingur og sérfræðingur hjá Hagstofu íslands. ■ Sveigjanleiki íslensks vinnumarkaðar - |p9H| staðreynd eða tilbúningur mfér'jMt Arelía Eydís Guðmundsdóttir, vinnumarkaðsfræðingur og lektor við Viðskiptaháskólann í Reykjavík. ii Menntun er f járfesting Ingi Bogi Bogason, cand. mag., menntafulltrúi Samtaka iðnaðarins. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða: Stefán Ólafsson, prófessor við HÍ, Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur ASÍ, Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, Davíð Stefánsson, stjórnsýslufræðingur og starfsmaður VSI. Ráðstefnan er öllum opin, en þátttökugjald er kr. 1.500 fyrir félagsmenn neðangreindra félaga, en kr. 2.000 fyrir aðra. vfeLAc FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA iW Félagsfræðinga Félag Sslands m OG HAGFRÆÐINGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.